Morgunblaðið - 01.03.1933, Síða 5
Miðvikudaginn 1. mars 1933.
jpU>rgttttM»t)if>
Ferðasýningin opnuð aftur.
Frá ljósmynidasýningunni.
Undanfarna daga liefir sýningin
verið lokuð fyrir almenning, eji
nemendum í ýmsum skólum hefiir
verið boðið að skoða sýninguna,
svo sem nemendum úr MentaskóJ-
anum, Gagnfræðaskóla Reykvík-
inga, Kvennaskólanum, Kennara-
skólanum, Samvinnuskólanum,
Ingimarsskólanum og Verslunar-
skólanum. Sýningin verður opnuð
aftur í dag, vegna margra áskor-
ana, og verður opin til sunnudags.
Aðgöngueyiúr hefir verið lækkað-
ur niður í 50 aura.
Stríðið um lehoul.
Áköf sókn af Japana hálfu. Þeir hafa
tekið ýmsar borgir.
Á laugardaginn var tilkyntu
Japanar það, að aðalsókn
þeirra væri hafin í Jehoul hjer
aði. Hafa þeir þar að sögn til-
tölulega lítið lið á móts við
Kínverja, en sá er munurinn,
að japanska herliðið er útbúið
með öllum nýjustu hergögnum
og þaulæft, en herlið Kín-
verja bæði illa æft og illa út-
búið að öllu leyti.
Þegar í fyrstu hríðinni tóku
Japanar borgirnar Peipiao,
Kailu og Yao-yan. Höfðu flug-
menn þeirra áður flogið yfir
borgirnar og varpað þar nið-
ur tundursprengjum. Varð af
því mikið manntjón, en eldur
kom upp í borgunum og flýðu Þ
búarnir skelfingu lostnir. Segja
Kínverjar að japanskar flug-
vjelar hafi kastað sprengjum á
flóttamannahópa.
? Sl
Kort af Jehoul-hjeraði.
Á sunnudaginn urðu Kínverj-
or enn að yfirgefa tvær borgir
sunnan við Kailu, en segjast
hafa sótt fram eða haldið velli
á öðrum stöðum í hjeraðinu.
Japanar heldu þá uppi lát-
lausri stórskotahríð á stöðvar
Kínverja og voru afleiðingar
hennar hræðilegar, en yfir öllu
hjeraðinu voru jjapanskar flug-
vjelar á sveimi og ljetu rigna
niður sprengikúlum. Kínverski
meginherinn hefir tekið sjer
stöðvar í fjallgarði nokkrum og
gerðu Japanar þar margar árás
ir, en Kínverjar hröktu þá af
Saito, forsætisráðherra Japana.
höndum sjer jafnharðan. Segj-
ast Kínverjar hafa mist 1000
manna í þeirri orrahríð, en Jap
anar segjast hafa mist 600
menn.
Afstaða Þjóðabandalagsins.
Á laugardaginn helt Þjóða-
bandalagið þingfund í Genf til
þess að ræða um bann við því
að selja ófriðarþjóðunum vopn.
Sama dag helt ráðgjafarnefnd-
in fyrsta fund sinn til þess að
ræða þetta mál. Fulltrúi Breta,
Authony Eden, helt því fram,
að nauðsynlegt væri að hefj-
ast handa þegar í stað til þess
að koma í veg fyrir vopnasölu
Ákvað nefndin að bjóða Rúss-
um og Bandaríkjamönnum að
vinna með Þjóðabandalaginu að
þessu máli. Er gert ráð fyrir
því, að Bandaríkin muni um-
yrðalaust fallast á slíka sam-
vinnu, en alt var í óvissu um af-
stöðu Rússa. Litvinoff, sem er
fulltrúi þeirra í Genf, fór þá
rakleitt þaðan til Moskva til
þess að ráðgast um við stjórn-
ina hvað gera skyldi. Það er
mælt. að þessi samtök eigi að-
eins að vera um það, að banna
vopnasölu til Japana.
Á mánudaginn lýsti Sir John
Simson yfir því í neðri mál-
stofu breska þingsins, að rík-
isstjórnin hefði ákveðið, að
banna allan hergagnaflutning
il Austur-Asíu á meðan ekki er
útsjeð um árangur af alþjóða
íamkomulags tilraunum í þessu
efni.
Útlendingar í Peking hafa
varnarviðbúnað.
Fulltrúar erlendra ríkja í
Peking gera nú ýmsar varúð-
arráðstafanir til þess að vernda
íf og eignir evrópiskra borg-
'ra. — Hefir þeim öllum ver-
.ð skipað að hörfa inn í borg-
arhluta þann, sem sendiherra-
Soong, stjómarforseti í Kína.
bústaðirnir eru í, ef árás verði
gerð á borgina, en þessi borgar-
hluti er víggirtur. — Einnig er
byrjað að víggirða stærsta hó-
elið í borginni. — Breska
endisveitin hefir sjeð um, að
:atvælabirgðir til 6 mánaða
verði fyrir hendi handa Ev-
rópumönnunum. — Breska
tjórnin hefir mótmælt yfirlýs-
gu frá Japönum þess efnis,
ð Bretar sjeu samþykkir inn-
rásinni í Jehoul svo framar-
ega sem ekki verði ráðist á
ðra kínyerska landshluta.
(F. Ú.)
London, 27. febr.
United Préss. FB.
Japanar hafa hertekið Pais-
íischumen, að því er fregn frá
Chin-Chou hermír. Er borg
þessi á suðúflandamærum Je-
houl-hjeraðs. Kínverjar vörðust
vasklega, en ljetu undan síga
kl. 8 f. h. í morgun. — Jap-
anai* halda áfram sókn sinni í
áttina til Jehoul-borgar.
London, 28. febr.
Frjettir frá Asíu benda til
að Japanar vinni á í Jehol, og
sæki einkum fram í áttina til
Peiping. Nota þeir mikið flug-
vjelar, og kasta sprengjum úr
loftinu.
Tvö japönsk herskip hafa
komið á hofnina í Shanghai, og
er það talið vita á það, að Jap-
anar muni ætla að loka höfn-
um Kínverja í grendinni við þá
borg. (F. Ú.).
28. febr.
Forseti kínverska lýðveld-
isins, Chang Kai Check mar-
skálkur, mun nú fara á víg-
stöðvarnar í Jeholhjeraðinu
og taka við yfirstjórn kínverska
hersins þar. Til Shanghai er
komið mikið af erlendum flug-
mönnum, sem bjó,ða Kínverjum
hjálp sína í viðureigninni við
Japana. (F. Ú.)
Heimavlstarskðli brennur.
Börnin bjargast nauðulega.
28. febrúar. FB.
Skólahúsið á Finnbogastöðum| í
Árneshreppi brann til kaldra kola
kl. 1—2 í nótt. — í skólanum voru
heimavistir. — Húsið var 10X18
álnir, 1 liæð, portbygt með risi.
Fimm fullorðnir bjuggu í húsinu
og eitt barn, en 10 börn svéfu
uppi og einn karlmaðm' var hjá
þeim. Bitt bamanna, 8 ára áð
aldri, vaknaði við reykjarsvæluna,
sem hafði breiðst út um alt húsið,
sem var á hröðum vegi að verða
alelda. Yar sængum vafið um börn
in og þau borin í útihús og mátti
ekki tæpara standa um björgun
þeirra. — Húsið var vátrygt, en
innanstokksmunir ekki. Það vár
bygt fyrir 2,árum og eign Guðm.
Þ. Guðmundssonar skólastjóra.
5kugga-5uelnn.
Erlendur Pjetursson leik-
ur hlutverk Skugga-Sveins
í 50. sinn.
Hið ágæta leikrit Matthíasar
Jochumssonar, Skuggá Sveinn,
verður leikið í K. R. húsinu í kvöld
og munu alli-r aðgöngumiðar vera
uppseldir.
Það vekur nokkra eftirtekt á
sýningunni frkvöld, að einn aðal-
Skugga-Sveinn formælir lyddun-
um í bygðinni.
leikarinn, Erlendur Pjetm’sson, fer
með hlútverk Skuggá-Sveins í 50.
sinn. Það mun vera sjaldgæft, ef
ekki einsdæmi, hjer, að sami leik-
ari hafi farið með svo erfitt lilut-
\ erk jafnoft, og það án alls end-
urgjalds, utan ánægju þeirrar, sem
,er því samfara að vinna fyrir gott
málefni
Það nmn hafa verið árið 1912,
sem Erlendur ljek fvrst Skugga-
Svein. Þá var það Leikfjelag Vestf
urbæjar, sem stóð fyrir leiksýn-
ingunum, en þær fór frgm í svor
nefndu. Hala-húsi við Bræðraborg-
arstíg. Þá ljek Morten Ottesen
Lárentsíus, en þeir Valtýr Blön-
dal og Bjarni Þorsteinsson stú-
.dentana. Erlendur ljek þá einuig
Grasa-Guddu ásarnt „Skugga“. —-
Arreboe Clausen málaði öll leik-
tjöldin. Aðgangur að leiksýningum
þessum kostaði 10 aura og rann
ágóðinn, sem þótti talsverður, til
styrktar íþróttahreyfingu í Vest-
urbænum.
AIls var Skugga-Sveinn leikinn
14 sinnum í Hala.
o
02
ek
<!
Q
bo
M
.9
3
ca
u
Q>
bo
05
Ö
>
<
o
<
I
M
w
05
Q
05
W
o
<
£
W
fe
Pm
Nýkomið:
Hinir marg-
eftirspurðu
mislitu silki
Kaffidúkar
komnir aftur.
Vöruhúsið.
Haupmenn!
er lang útbreíddasta blaðið
til sveita og við sjó, utan
Reykjavikur og um hverfis
hennar, og er þvi besta
auglýsingablaðið á þessum
slóðum.
Hýtt böglasmjör
gulrófur, nýteknar upp úr jörðu,
jafngóðar og á haustdegi. Hvitkál.
Gleymið ekki blessuðu silfurtæra
þorskalýsinu, sem allir lofa.
B jöruinu.
Nýkomið:
Uveiti í sekkjum á 14.50 pokinn.
Norskar kartöflur á 8.00 pokinn.
Bjðrlur Hjartarson,
Bræðraborgarstíg 1.
Sími 4256.
Sæuskt
flitbiaui
iæst best i
c£iverpoo£j
t