Morgunblaðið - 08.03.1933, Síða 4
1
MORGUNBLAÐIÐ
/
Heil hæð í nýtísku steinhúsi
með öllum nútíma þægindiim, á
besta stað í bænum, er til leigu,
eftir samkomulagi, nú þegar eða
14. maí. Upplýsingar gefur Tóm-
as Pjetursson, sími 1370.
íslenskir leirmunir, mjög fjöl-
breytt úrval fæst nú aftur í List-
vinahúsinu, Árna B. Björnssyni og
hjá Valdemar Long í Hafnarfirði.
Glæný ýsa og stútungur fæst í
síma 4933. Fisksala Halldórs Sig-
urðssonar.
fbúð — 4 til 5 herbergi til leigu
14. maí. Öll þægindi. Uppl. í síma
3700 milli 11 og 12 í dag.
Munið Fisksöluna á Nýlendu-
götu 14, sími 4443. — Kristinn
Magnússon.
Glæný ýsa. Fiskbúðin í Kola-
suni. Sími 4610.
Ilýtt böglasmjör
gulrófur, nýteknar npp úr jörðu,
jafngóðar og á haustdegi. Hvítkál.
Gleymið ekki blessuðu silfurtæra
þorskalýsinu, sem allir lofa.
B|Sruinn.
Haupmenn!
er lang útbreiddasta blaðið
til sveita og við sjó, utan
Reykjavíkur og um hverfis
hennar, og er því besta
auglýsingablaðið ,á þessum
slóðum.
Stefnuskrá Roosevelts.
Lækkun skatta fyrst og fremst.
Washington 7. mars.
United Press. FB.
Roosevelt forseti hefir gert
grein fyrir kröfum og fyrirætl-
unum sínum í viðurvist ríkisstjóra
allra Bandaríkjanna, á fundi, sem
haldinn var í Hvíta húsinu (for-
setabústaðnum.) • Meðal annars
kváð hann verða að stefna að
lækkun skatta og hefja víðtæka
samvinnu um atvinnubætur, koma
í veg fyrir að gullforðinn mink-
aði frekara o. s. frv.
Þingrof í Hessen.
Berlín 7. mars.
í Hessen hefir Nazistanum, dr.
Múller, verið fengið lögregluvald
í hendur. Hann ljet í nótt gera
húsrannsóknir hjá ýmsum þing-
mönnum úr flokkum jafnaðar-
manna og kommúnista, meðal
þeirra íh.já/ innanríkisráðherran-
tfm í Hessen. Hann hefir einnig
sett fram kröfur um það, að
þihgið í Hessen verði rofið og
gengið til nýrra kosninga, þvi að
ríkiskingskosningarnar hafi sýnt
það, að þjóðernissinnar sjeu nú
í stórum meiri hluta. FÚ
Dagbók.
I.O.O.F. 114386. Spilakvöld.
Veðrið í gær: Lægðin sem að
undanförnu hefir verið fyrir sunn
an landið, þvínær hreyfingarlaus,
hefir nú færst norður fyrir landið
og samtímis gekk vindur úr A-
til V-á.ttar um alt land.
Samkv. fregn frá norsku skipi
sem er statt um 700 km. suður af
Reykjanesi er S-átt í aðsigi. —
Mun vestanáttin því þegar ganga
niður í nótt en vindur fara vax-
andi af S eða SA á morgun.
Veðurútlit í dag: Vaxandi S
eða SA-átt. Sennilega hvassviðri
og rigning þegar á daginn líður.
Föstuguðsþjónusta í dómkirkj-
unni í kvöld kl. 6; síra Bjarni
Jónsson prjedikar.
Alþingi. Á dagskrá Ed. í dag
er: Afmáning veðskuldbindinga,
innl. tóbaksgerð, eignarnámsheim-
ild á ábúðar og erfðafesturjetti
á nokkrum býlum á Hvaleyri við
Hafnarfjörð. í Nd. Stjórnarski'á.r-
breytingin, sjúkrasamlög, hjúkr-
unarkonur, alþýðutryggingar,
sjúkrahús, náttúrufriðun og frið-
un sögustaða, lögreglustjóri í
Keflavík, greiðsla víxilskulda á
Austfjörðum vegna síldareinka-
sölunnar 1931, innflutningur á
óþörfum varningi.
Innflutningw karakulsauðfjár.
Sex þingm. í Nd. flytja svohlj.
þál.till.: „Neðri deild Alþingis á-
lyktar að skora á ríksistjórnina
að nota heímild laga nr. 27, 8.
sept. 1931, um innflutning kara-
kulfjár frá Þýskalandi, og svo
fljótt, að imt verði að hafa það
til framtímgunar næsta vetur.“ 1
grg. segir m.a.: „Mjög miklar lík-
ur eru til, að verulegs ávinnings
megi vænta af ræktun karakul-
fjár hjer á landi, þar sem verð-
mætustu afurðir þess eru aðrar
en þær, sem sauðfje vort gefur“.
Lögreglustjóri í Keflavík. Ól.
Th. flytur frv. um lögreglustjóra
í Keflavík, og er það flutt samkv.
tilmælum hreppsnefndar Kefla-
víkurhrepps. — Lögreglustjórinn
skal skipaður að fengnum til-
lögum hreppsnefndar Keflavík-
urhr., og á hann að annast hrepp
stjórastörf í hreppnum, innheimtu
tolla og gjalda til ríkissjóðs, fó-
getavald, lögreglustjórn og dóms
vald í lögreglumálum. Laun eru
álcveðin 2000 kr. á ári úr ríkis-
sjóði, og auk þess fær hann
þóknun hjá hreppnum, ef honum
verður falið að annast störf fyrir
hreppinn.
Dýralæknar. M. Torfason flyt-
ur frv. um breyt. á 1. 61, 1915,
um dýralækna. Leggur hann til,
að dýralæknar verði 5, tveir í
Sunnlendingaf jórðungi, og einn í
hverjum hinna fjórðunganna. At-
vinnumálráðh. skipi dýralækna og
kveði á um bústað þeirra.
Bruggarar dæmdir. í gær var
kveðinn upp í lögreglurjetti R,-
víkur dómur 'fyrir heimabrugg
og sölu yfir þeim Bjarna Kjart-
anssyni og Guðgeiri Guðmunds-
syni Bergstaðastræti 22 (ekki 20
eins og stóð í blaðinu í gær.) Var
hvor þeirra dæmdur í 15 daga
fangelsi við venjulegt fangaviður
væri og 1000 kr. sekt hvor. í
gær fjell einnig dómur í vín-
bruggunarmáli Árna Strandbergs.
Var hann dæmdur í þriggja mán-
aða einfalt fangelsi og 4000 kr.
sekt. Er þetta í fjórða sinn sem
hann er dæmdur brotlegur við
bannlögin.
Að gefnu tilefni skal þess getið
að bruggarinn Bjarni Kjartansson
sem nú er nýdæmdur, er ekki
Bjarni Kjartansson smiður frá
Búðum.
Togararnir. Af veiðum komu í
gær Skallagrímur með 111 tn. lifr-
ar og Tryggvi gamli með 83 tn.
Karlsefni kom frá Englandi.
Blairbeck, enskt flutningaskip,
kom hingað í gær með saltfarm
til Hallgr. Benediktssonar og Co.
Dronning Alexandrine er vænt-
anleg liingað í dag.
Línuveiðarinn Sigríður kom af
veiðum í gær með góðan afla, og
lagði fiskinn á land í Viðey.
Talsverð síld er inni í Norðfirði
núna. Þorskveiðar engar, enda
ekki reynt að róa til fsikjar.
Atvinna í Reykjavík. Á fundi
bæjarstjórnar 2. þ. m. var sam-
þykt áskorun til atvinnurekenda
hjer í bæ, að taka ekki utanbæj-
armenn í vinnu, meðan nógur
vinnukraftur er hjer fyrir. í sam-
bandi við þetta aðvarar borgar-
stjóri utanbæjarmenn að þeir
skuli ekki koma hingað í atvinnu
leit, því að hjer sje ekki, sem
stendur, um meiri atvinnu að
ræða en bæjarbúar komast sjálfir
yfir.
Gullfoss kom til Hafnar í morg-
un. Goðafoss er á útleið. Brúar-
foss er í Höfn fer þaðan á morg-
un beint til Rvíkur. Dettifoss er
í Leith fer þaðan í dag. Lagar-
foss var á Kópaskeri í gær. Sel-
foss fór frá Rvík í fyrrakyöld,
áleiðis út.
Lýra kom hingað í gær og fer
aftur á morgun.
Jón Baldvinsson smeykur? Jón
Bald. spurði dómsmálaráðh. að
því í gær, i þingræðu, hvort satt
væri, að allmargir menn úr vara-
lögreglunni væru í þinghúsinu á
meðan fundur stóð yfir í Efri
deild. Sagði hann að dæmi væri
til þess nú á tímum,. að ríkis-
lögregla væri höfð í þinghúsum
til að ógna þingmönnum. Vildi
hann spyrjast. fyrir um það hvort
hjer væri nokkuð slíkt að ræða.
Þótti þeim sem á hlýddu Jón
vera fremur kjarklítill, er hann
bar fram fyrirspurn slíka.
f stjórnarskrárnefnd E. d. hefir
Jón Þorláksson verið kosinn for-
maður, en -Jón. Baldvinsson ritari.
Gengisskráning hefir ekki farið
fram hjer í bönkunum undanfarna
daga. En þetta hefir ekki orðið
mönnum til verulegra óþæginda,
því þeir, sem hafa þurft erlendan
gjaldeyri hafa fengið hann eftir
því gengi sem var, er síðasta
skárning fór fram. En gengið er
ekki skráð hjer vegna þess, að
enginn regluleg skráning fer
fram í London þessa daga, hverf-
andi gjaldeyrisverslun þar yfir-
leitt vegna bankalokunarinnar í
Ameríku.
Lýsissamlagið hjer fekk nú með
Lýra vjelar þær, sem setja á upp
í verkunarstöð samlagsins, til þess
að kaldhreinsa lýsið. Er búist við
að kaldhreinsunin geti byrjað eft-
ir mánuð. Verkunarstöð lýsissam-
Iagsins í Vestmannaeyjúm byrjar
sennilega að starfa um miðjan
þennan mánuð. Vjelarnar smíð-
aðar hjer í Hjeðni. Áttu að vera
fullgerðar, en smíði þeirra tafðist
Hefl ðkveiii
að halda námskeið í leður og
teppavinnu. Byrja næstu viku.
ERNST PRULLER,
Sóleyjargötu 13. — Sími 3519.
vegna járnsmiðaverkfallsins eftir
áramótin.
Ferðasýningin. Um 3500 manns
keyptu aðgöngumiða á sýningu
Ferðafjelagsins í Sundhöllinni. En
auk þess bauð fjelagið skólafólki
— um 1500 manns. Svo um 5000
hafa sjeð sýninguna. Sýning þessi
var Ferðafjelaginu til sóma, og
sýndi bæjarbiium betur en 'áður,
að framtak og dugur er í þessum
þarfa fjelagskap.
Umboðslaunin og opinberu trún
aðarmennirnm Jón Þorl. flytur
frv. um viðauka við alm. hegning-
arlög. Þar segir svo: „Forstöðu-
menn og starfsmenn við stofn-
’iir ríkisins, bæjarfjelaga og
sveitarfjelaga mega hvorki sjálf-
um sjer til handa nje handa fyr-
irtækjum, sem þeir eru við riðn-
’r, taka við neinum umboðslaun-
um eða þóknun í neinni mynd
frá framleiðendum eða seljend-
um þess varnings sem keyptur
er handa stofnun þeirri, er þeir
veita forstöðu eða starfa við.Brot
gegn þessu heimfærist undir 13.
kapítula hinna almennu hegning-
arlaga.“
Dánarfregn. Stefán Guðmunds-
son bóndi að Fitjum í Slcoi’radal,
ljest 2. þ. m. eftir stutta legu.
Verður þessa merka og gáfaða
bónda síðar minst hjer í blaðinu.
Bethania. Saumafundurinn verð
ur á Sjafnargötu 9i, fimtudaginn
9. mars kl. 4. Konur eru vel-
komnar.
Hnefaleikarinn heitir þýskur
skopleikur, er verslunarskólanem-
endur sýna í Iðnó annað kvöld.
Næsti fyrirlestuir próf. Árna
Pálssonar um Kirkju íslands á
þjóðveldistímanum, er í kvöld kl.
8,30. Öllum heimill aðgangur.
Vestmannaeyjabátur strandar. 1
gærmorgun er Vestmannaeyjabát-
ar lögðu af stað á veiðar, vildi
það til að vjelin stöðvaðist í vjel-
bátntum Skuld, er báturinn var
kominn rjett út fyrir hafnar-
mynnið. Allhvast var af austri og
hrakti bátinn upp á grynningar.
Var nú fljótt hrint björgunar-
báti á flot, en hann komst ekki
að Skuld. En eftir nokkurn tíma
tókst að koma línu í Skuld úr
öðrum bát, með því að línan var
Iátin fljóta á belg að hinum
strandaða bát. Síðan tókst þrem
vjelbátum að draga Skuld af
skerinu eða grynningunum og inn
á höfn, og þar upp að bryggju.
En þar sökk Skuld rjett á eftir.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 10,12 Skólaútvarp (Stein-
grímur Arason, kennari). 12,30
IIádegisútvarp. 16,00 Veðurfregn-
ir. 18,00 Föstuguðsþjónusta í
Dómkirkjunni (síra Bjarni Jóns-
son). 19,05 Þingfrjettir. 19,30
Veðui’fregnir, 19.40 Tilkynningar,
Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Frjettir. 20,30 Háskólafyrirlestur
(Árni Pálsson). 21.15 Tónleikari
Fiðlusóló. (Þór. Guðmundsson).
Grammófón. Mozart: Lög úr
Si,
Lillu-egfijadsftið
ei búið til úr bestu fáanlegu efn-
um, enda viðurkent af húsmæðr-
um fyrir gæði.
Það besta verður það ódýrasta.
Viðgerðirá rafmagnsmóforum
og allskonar raftækjum fram
kvæmdar fljótt, vel og ódýrt
á raftækjavinnustofu
Júiins Bjfirnsson.
Austurstræti 12,
Simi 3837.
(Drossia) óskast til kaups (straxþ
gegn staðgreiðslu. Tilboð, þar semi
fram er tekið verð, tegund og ald-
ur. Sendist A. S. I. fyrir annaði
kvöld; merkt „5.“
Sænskt
Flitbrauð
fæst best f
„Töfraflautunni“. Lög drotningar
næturinnar (Ebba Wilton). Int
diesen heiligen Hallen. O Isis und!
Osiris (Ivar Andresen). Mozartr
Eine kleine Nachtmusik. (Ríkis--
óperuorkestrið í Berlín, Leo Blech
Jarðarför Skúla Skúlasonar
præp. hon. fór fram í gær að við--
stöddu fjölmenni. Sr. Bjarni Jóns-
son flutti húskveðju, 6n biskupinn-
talaði í kirkjunni. — Starfsmemr
stjórnarráðsins báru kistuna úfc
úr kirkju. en prestar úr kirkju.
Stríðið í Kína.
Berlín 7. mars.
Af Austur-Asíuófriðnum frjett-
ist nú það, að Japanar sjeu n®
að víggii’ða borgina Jehoul, sem
þeir hafa náð á sitt vald. Japanar-
lýsa því og yfir, að þeir sjeu bún-
ir að ná á. sitt vald öllum fjalla-
skörðum, sem liggja inn í Johoul-
hjeraðið. (F. Ú.)
s
r.ué