Morgunblaðið - 25.03.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.03.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAl' 1B 3 Úti»t.: H.Í. Arvaknr, RtrWarlk, KlUtJörar: Jön KJartanaaon. Valtýr Btcfánaaon. Kltatjörn og afgralBala: Auaturatrœtl S. — Staal 1*00. ▲aKlýal»ffa*tJörl: a Hafbara. ▲nalýalnaraaVrlfrtofa: Auaturatratl J7. — SlaU S700 Halaaaalaaar: Jön KJartanaaon nr. S74S. Valtýr Stef&naaon nr. 4110. B. Hafbers nr. 1770. Aakrif tas.lald: Innanlanda kr. 1.00 * naáaaVL. Utanlanda kr. 1.S0 * aaAnaVU f lauaaaölu 10 aura alntaklV. 10 anra maö Leabök. Sigurður Thorlacius. '* Sigurður Thorlacius skola- stjóri Austurbæjarskólans hefir nú í Alþýðublaðinu lielt úr skálum reiði sinnar út af því, að Morg- unblaðið hefir clregið skólastjóra hæfileika hans í efa. Þegar tekið er tillit til þess í hvaða andrúmslofti maðurinn lifir, •er' reiði hans og bálvonska skilj- anleg. i Því Sigurður Thorlacius rskóla- stjóri er í þeirri tiltölulega fá- mennu klíku, á landi hjer, -sem þjáist af takmarkalausu sjálfsáliti: Þegar þessum mönnum dettur í húg að taka áð sjer eitthvert starf, fyllast þeir hroka og gikks- hætti, halda í blákaldri alvörú að þeir sjeu af æðri máttarvöldum útvaldir sem leiðtogar hver á Sínu súiði, þó þá skorti þekking, mánn- dóm og alla dómgreind til þess að vera starfinu vaxnir. Nægir í því efni að bánda á Pálma Loftsson, Jónas Þorbergs- son, Herm. Jónasson. Alt eru þetta menn, útbelgdir af sjálfsþótta.Þeg ar þeim er bent á misfellurnar í starfrækslu þeirra, hafa þeir ekki aðra vörh en fúkyrði, brigsl og ■eigið innantónlt stærilæti, enda eru þessir menn allir kvistir af hinum fúna pólitíska meið Hriflumensk- unnar. Jafnframt því sem Sigurður Thorlacius lýsir skólastjórn sinni að ágætum, skýrir hann frá því, að hann ætli að höfða mál gegn Morgunblaðinu út af ummælum þeim, sem fallið hafa lijer í garð hans. I barnalegum liroka sínum hefir skólastjórinn haldið að með þessu væri hann að hafa í hótunum við blaðið. En til þess að fyrirbyggja allan misskilning, þá er best að segja honum strax, að málshöfðun frá honum, gegn blaðinu, er hand- hægt og mjög kærkomið tilefni til þess, að fletta ofan af misfellun- nm í skólastjórastarfi hans — mis fellum, sem sannarlega er tími til kominn að verði leitað lag- færinga á. Norsk fiskiskip til íslands. 24. mars, FB Næstu daga leggja 50—60 fiski- •skip af stað frá Álasundi til þorsk- veiða á miðunum við ísland- — (NRP—FB): Mistral, spanski togarinn, sem hjer hefir verið1 undanfarna daga, fór hjeðan í gær á veiðar,. . Vjelbátar hjeðan úr bænum, hafa fengið ágætan afla undan- farna daga. Bifreiðarslys. Vöruflutningabifreið- in RE 529 rekst á hús- horn og maður verður fyrir henni og meið- ist mikið. 1 gærmorgun kl. 7% vildi það slys til, að vöruflutningabifreiðin RE 529, sem var að koma ofan Bankastræti, skrikaði á götunni neðst á horni Lækjargötu og Aust urstrætis, þar sem er gullsmíða- búð Árna B. Björnssonar. Rakst hún á horn hússins, skemdi það allmikíð og braut sýningarglugga, en um leið bar þar gangandi mann að og varð hann milli bifreiðar- innar og hússins þegar áreksturinn varð. Um slys þetta hefir Mórgun- blaðið fengið eftirfarandi upplýs- ingar hjá lögreglunni: — Snemma í gærmorgun var mikil ísing á Bankastræti. Flutn- ingabífreiðir, sem komu ofan gÖt- una og voru að fara til vinnu nið- ur hjá höfn, mistu stjórn ^þegar þær ætluðu að beygja norður með horninu neðan við brekkuna. Var hálkan svo mikil að þær hliðflatti hvora af annari, og runnu með miklum hraða eftir glerhálli ís- ingunni. Þegar Vörubifreiðin RE 529 (eig andi og bílstjóri Páll Thorberg) var að koma niður brekkuna, kom á möti henni maður á hjóli. Fell hjölið þar á hálkunni í brekkunni rjett fyrir framan bílinn, en þó tókst bílstjóranum að sveigja þíl- inn fram hjá, svo að hann varð hjólreiðamanninum ekki að skaða. En fyrir neðan Bankastrætið, rjett framundan Bifreiðastöð Reykjavík ur, Stóð þill á götúnni. Ætlaði nú bílstjÖrinn að reyna að komast slysalaust fram hjá honum líka, en um leið og hann greip í stýrið til þess að sveigja bifreiðina til hliðar, skrikaði hún á hálkunni og snerist alveg við. Hentist hún með miklum hraða upp á gang- stjettarhornið, framundan búð Árna B. Björnssonar, og slóst aft- urendi hennar, pallurinn, í húsið og varð árekstur mikill. En alveg í sömu andránni var maður að koma fyrir hornið, sunn- an úr Lækjargötu- Hann heitir Sveinn Móesesson og á heima á Hverfisgötu 64 A. Varð hann fyrir bifreiðinni um leið og hún kast- aðist upp á gangstjettina, og fleygðist langa leið vestur eftir stjettinni. Var það hrein mildi að hann skyldi ekki merjast milli bif- reiðarinnar og hússins. En við þetta váveiflega fall meiddist hann mikið. Um leið og þetta skeði vildi svo heppilega til að lögreglubílinn bar þarna að. Tók hann manninn og flutti hann þegar suður í Lands- spítala. Bílstjórann sakaði ekki og bíll- inn skemdist tiltölulega lítið við áreksturinn. Brotnaði þó vörupall- ur hans nokkuð og eins grindin á honum, en bíllínn gat ekið burt seinna af sjálfsdáðum. Hljómleika hjelt Páll ísólfsson í fríkirkjunni í fyrrakvöld og ljek þar lög eftir Lúbeck, Bach og Reger. Aðsókn var góð, og gerðu áheyrendur ágætan róm að leik Páls og þökkuðu honum með dynj andi lófataki. Norsku samnlngarnír sambyktir í Neðri deild í gær. Norsku samningarnir svonefndu voru til 3. umræðu í Neðri deild í gær. "" i Enn urðu miklar umræður um þetta mál, sem ekki verða þó raktar hjer. En úrslitin urðu þau, að samningarnir voru samþyktir með 19:6 atkvæðum; á móti voru: Magnús Jónsson, ViliU. Jónsson, Guðbr. ísberg, Har. Guðmundsson, Hjeðinn Valdimarsson og Jón A. Jónsson. Þrír þingmenn voru fjar- verandi, þeir...Steingr. Steinþórs- son, Bergur Jónsson og Björn Kristjánsson. Fer nú mál þetta til Efri deildar. Umræður þær, sem fram fóru á þingi í gær, gefa enn ástæðu til að víta þá meðferð, sem stjórn- in befir á þessu máli. Á það hefir áður verið bent. hjer í blaðinu, að milliríkjasamn- inga sem þá, sem hjer um ræðir, eigi ekki að ræða fyrir opnum tjöidum. Þingið á vitanlega að ræða slík mál fyrir luktum dyrum. í umræðunum í gær var mikið rifist um það, hvaða rjett þær aðrar þjóðir öðluðust, sem vjer höfum svonefndu bestukjara- samninga við, ef þessir norsku samningar yrðu staðfestir. Um þetta rifust þingmenn lengi og sagði einn það Svart. sem annar sagði hvítt. En niðurstaðan varð vitanlega sii, að þingmenn voru jafn fákunnandi eftir sem áður, því að enginn gat úr því skorið, hvaða alþjóðareglur gilda í þessu efni. r'^^| Það út af fyrir sig er ámælis- vert, að gerður skuli vera mikils- varðandi samningur við erlenda þjóð, án þess fyrst að gera sjer ljóst, hvaða áhrif sá samningur kann að hafa gagnvart öðrum þjóðum, sem hafa hjá oss bestu- kjara-samninga. Stjórn og þing verða að gera sjer það ljóst, að vjer íslendingar munum eiga erfitt með að neita öðrum vinveittum þjóðum, sem bestukjara-samninga njóta, um samskonar fríðindi og einni þjóð eru í tje látin, nema. alveg sjer- stakar ástæður sjeu fyrir hendi. En hvað sem því líður, hvort aðrar þjóðir öðlist hjer aukin rjettindi ef norsku samningarnir verða staðfestir, er eitt víst, og það er, að málstaður vor íslend- inga batnar ekki við það, að verið sje að rífast um slíka hluti fyrir opnum tjöldum á Alþingi, og það samtímis því, sem vjer erum að reyna að ná samningum við aðr- ar þjóðir um mikilsvarðandi versl- unar- og viðskiftamál- Churchill hvassyrtur. Berlín 24. mars. FÚ Winston Churchill rjeðist með harðvítugum orðum á MacDonald forsætisráðherra, í ræðu er hann hjelt í neðri málstofu breska þingsins í gær. Sagði hann, meðal annars, að afskifti hans af utan- ríkismálum miðuðu að því einu, að auka stríðshættmia í Evrópu. Eden, fulltrúi utanríkisráðherra, varð fyrir svörum, og sagði meðal annars, að Churchill væri það méira áhugamál, að auka voþna- burð Frakklands, en að minka vopnaburð liinna þjóðanna. Lík funðið í gærmorgun fann Ólafur Guð- mundsson í Nesi við Seltjörn sjó- rekið lík, þar sem kallað er Suð- urnes og gengur suður í Skerja- fjörðinn undan háhæðinni á nes- inu. Tilkynti hann þetta Gunnsteini Einarssýni hreppstjóra í Skild- inganeshreppi, en hann tilkynti það aftur lögreglunni í Reykja- vík. Voru þeir þá sendir þangað vestur eftir lögregluþjónarnir Sig- urður Gíslason og Þórður Geirs- son, til þess að sæltja líkið á bíl. Fluttu þeir það svo hingað til lík- hússins. Líkið var nokkuð torkennilegt, m við rannsókn, sem fór fram á því síðari hluta dags í gær, þótti mega ráða af nærfötum þess, að það væri af Árna P- Jóössyni, sem. var starfsmaður hjá brjóstsykurs- gerð M. Th. S. Blöndahl, og hvarf hinn 12. febrúar síðast liðinn. „Houa“-mdlið. I Alþýðublaðinu er sagt frá því í gær, að sámkomulag muni hafa náðst milli bæjarstjórnar Akur- eyrar og kommúnistafjelagsins þar, út af „Nova“-deilunni. Frásögn blaðsins er mjög mál- nm blandin. Samkomulag hefir fengist um það, að þeir, sem fá atvinnubóta- vinnu í tunnuverksmiðju Akureyr- arbæjar, skyldi fá útborgað 1 krónu á hverja tunnu, sem fyrir- framborgun, í stað 75 aura, sem ákveðið var áður, og svo máske uppbót seinna. Svara þessi laun til þess að mennirnir, sem við þetta vinna, hefði 95 aura tímakaup. En samkomulag er ekki fengið með þessu. Kommúnistar hafa heimtað það líka, að tveimur mönnum verði bönnuð vinna við tunnuverksmiðjuna, þeim Halldóri Friðjónssyni og Jens Eyjólfssyni. í fyrrakvöld var fundur haldinn í bæjarstjórn Akureyrar og var þar algerlega neitað að ganga að þessari kröfu kommúnista, og mun ''æjarstjórnin alls ekki ganga að henni fyrir neinn mun. 1 dag klukkan 9 mun bæjar- stjórnarfundur verða haldinn á Akureyri út af þessu máli. „Nova“ mun sennilega vera á Akureyri á mánudaginn. Grávöru markaðurinn. 24. mars. NRP. FB Samkvæmt tilkynningu frá Roar Nord í Oslo, umboðsmanni hins þekta grávörufirma Hudson’s Bay Company í London, hjelt fjelagið uppboð á silfurrefaskinnum, hið þriðja á þessum vetri, 6. og 7. þ. m. Fram voru boðin 10750 skinn, aðallega frá Norður-Ameríku og Norðurlöndum. Verðið var sem hjer segir: Meðal verð Hæstaverð £ s. d. £ s. d. Svort og lítið silfruð 6— 0—0 10—10—0 14 silfur 7—15—0 16—10—0 i/2 silfur 9—ICU-O 25— 0—0 34 silfur 9— 5—O 22— 0—0 Alsilfur 1Ö—- 5—0 16—- 0—0 Ljeleg skinn 4— 6—0 8—10—0 1.... Tucer tillögur. Nú liggur fyrir þinginu, að á- kveða hvort öðlast skuli gildi á- kvæðin í samkomulagi um við- skiftamál íslands og Noregs — hinn svokallaði norski samningur — Allir eru sammála um að í hon- um felist mikill styrkur fyrir af- komu landbúnaðarins, og ætla jeg ekki að fjölyrða um það. En með því að samningur þessi verði stað- festur, öðlast Norðmenn meiri rjettindi lijer við land en þeir hafa nú. Er þá fyrst að atliuga, hvaða áhrif þetta hefir á síldarútveg okk ai íslendinga. Fríðindi Norðmanna bitna eingöngu á sjómönnum og útgerðarmönnum þeirra skipa er síldveiði stunda. Hlunnindi þau er Norðmenn hafa samkvæmt fiski- veiðalöggjöfinni frá 1922 eru stór hættuleg fyrir útgerðarmenn og sjómenn. Þessar 500 til 700 tunnur sem þeir mega selja samkvæmt henni, er nægilegt atriði til þess að eyðileggja eða stórskemmaJ splumöguleika á afla íslenskra síldveiðaskipa, Síldarkaupmenn munu ógjarnan vilja: gera fyrir- fram samninga við íslensk fiski- skip — er neinu nemur — fyrir t. d. 5 krónur pr. uppsaltaða tunnu eins og í fyrra, því þeir geta biiist við að höfnin fyllist af norskum skipum er bjóði síld fyr- ir 3 krónur tunnuna. Þannig skap ast verðlækkun og söluvandræði á nýsíld til söltunar. Það er því laukrjett hjá ólafi Thors að á- standið versnar tiltölulega lítið við norska samninginn. Þótt hann yrði feldur og ekkert yrði gert fil að lappa upp á fiskiveiðalöggjöf- ina, yrðu sömu erfiðleikarnir á sölu nýsíldar, eins og jeg hefi lýst. Ástandið við síldarverksmiðj- urnar hefir verið þannig síðustU sumur, að oft hefir fjöldi skipa orðið að bíða í fleiri daga eftir losun og mörg dæmi eru til þess, að eftir biðina hefir síldin verið orðin of gömul, svo verksmiðj- urnar hafa neitað að kaupa hana. Hefir þá næsta skrefið verið sigla með hana lit á haf og moka henni í sjóinn. Ekki batnar af- greiðslan eða sölumöguleikarnir við verksmiðjurnar eftir að norsk skip fara að þyrpast þangað líka- Verðið hefir verið svo lágt síðustu sumur, að það getur tæplega' lægra verið, ef sjómennirnir eiga! að liafa sem svarar tímakaupi við löndunina. En hvað er þá hægt að gera, til hjálpar útgerð íslensku síldveiði- skipanna næsta sumar. Ætla jeg að bera fram tvær tillögur í þá átt. Fyrri tillagan er þannig: „Að þingmenn Sjálfstæðisflokks ins gangist fyrir því, að tríkið taki síldarverksmiðju Dr. Poul á Siglu- firði á leigu og starfræki hana! næsta sumar“. Þótt jeg sje ekki .sjerlega hrif- inn af ríkisrekstri, leyfi jeg mjer samt að koma fram með þessa til- lögu. Verksmiðjan var ekki starf- rækt síðastl. snmar. Kæmist þetta í framkvæmd tel jeg niikið bætt úr söluvandræðum á bræðslusíld eða útlitið ekki verra en síðastliðið sumar. Það er ekki nægilegt, þótt þýsku eigendurnir starfræki hana sjálfir, því þeir mundu meðfram kaupa síld af erlendum skipum í skjóli fiskiveiðalöggjafarinnar. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.