Morgunblaðið - 29.03.1933, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Huglýsínyadagbók
Glæný ýsa og stútungur. Fisk-
búðin á Grettisgöt.u 44. (Beint á
móti Grettir).
Glæný ýsa og stiitungur. Fisk-
búðin í Kolasundi. Sími 4610._____
Vantar íbúð í Hafnarfirði (4
berbergi og eldhús), þann 14. maí.
H. Sandholt, forstjóri útibús Ham-
ars í Hafnarfirði.
íbúð, 4 herbergi og eldhús, með
öllum nýtísku þægindum og upp-
hitun með laugavatni, til leigu 14-
maí. Ibúðin er sólrík og skemtileg.
Tilboð til A, S. í. merkt: ,íbúð‘.
Rauðmagi fæst framvegis í síma
49Ö3. Fisksala Halldórs Sigurðs-
sonar.
Uan Heusen
Skyrtnr og
ilibbar
Nýkomið.
Frú Asa lausen
Heiöruðu
húsmæður!
þiðjið kaupmann yðar eða kaup
fjeíag ávalt um:
Vanillu
Citron búðingsduft
Cacao frá
Rom
H.f, Efnagerö
Reykjavíkur,
Raflagu r,
nýjar lagnir, viðgerðir og
• breytingar á eldri lögnum.
•Unnið fljótt, vel og ódýrt.
JúUrs Björnsson,
löggiltur r&fvirld.
Anstnrstræti 12.
Simi 3837.
.»
:
m
m
m
I
»*•<
gjarnir eru á að leita uppi ýmsa
ágalla og suma smávægilega,
gleymi því erindi sínu eða hafi
hljótt um, enda verður að gera
ólíkt hærri kröfur til þeirra, sem
árum saman hafa helgað listinni
starf sitt óskift. Aðalatriðið er, að
þeir hæfileikar sem koma í ljós
fái að njóta sín sem best, og um
það má gera sjer góðar vonir, því
ósénnilegt er að allir tónlistar-
vinir geri sig ánægða með erlenda
niðursuðuvöru eingöngu, en láti
Iifandi tónlist með öllu afskifta-
lausa.
Vikar.
hnje í valinn á miðjum aldri, að
eins 43 ára gömul. Hún var dóttir
Clausenshjónanna og kannast flest
ii Reykvikingar við það fólk. Kát
var hún, lífsglöð og þrekmikil
hvernig sem viðraði og á hverju
sem gekk. Var ávalt reiðubúin
að hjálpa öllum og sást ekki fyrir
um fórnir sínar til annara, en sú
dygð er kynlæg í hennar ætt.
•Tarðarför hennar fór fram
fyrradag og kom þá í ljós, liversu
margir vildu sýna henni vináttu
og þakklætisvott sinn, því að svo
mátti heita, að hvert sæti væri
skipað í kirkjunni. Gamlir vinir
fjölskyldunnar voru þar margir,
er. þar var líka margt manna, sem
hin framliðna hafði bundist vin-
áttuböndum og sýnt hlýju- Allir
hefðu vænst lengri dvalar hennar
í þessari tilveru, því okkur vinum
hennar, virtist forsjónin hafa á-
kveðið henni það hlutverk, að efla
kærleika og samúð meðal þeirra er
hún kyntist.
Því eru ekki slíkir látnir dvelja
lengur meðal vor? Vjer spyrjum,
en Guð svarar. Oss er kent, ;
hver fái launin eftir breytni sinni..
Vjer trúum og fullvissumst þegar
að okkur kemur.
Þjer fylgja hlýir hugir okkar
og fyrirbænir. Það nægir.
X.
Frá ísafirði.
ísafirði, FB. 28. mars.
Sýslunefndarfundi Norður-Isa-
fjarðarsýslu lauk í gær. Hafði
hann staðið í viku. Jafnaðarupp-
hæð sýslusjóðs kr. 26.946.00. Til
mentamála veittar 3200 kr. Þrem-
ur mönnum var veitt leyfi til loð-
dýraræktunar. — Skilanefndar-
menn kosnir Bjarni Sigurðsson og
Grímur Jónsson. Verðlaun úr Bún
aðarsjóði fengu Halldór Halldórs-
son, Bæjum og Þórarinn Helgason,
I/átrum, 300 kr. hvor. en Kristján
ólafsson, Eyri 100 kr.
Kappglíma um glímubelti Vest-
fjarða fór fram í fyrradag. Gísli
Kristjánsson úr Bolungavík bar
sigur úr býtum. Næstur var Hrólf-
ur Sigurjónsson, ísafirði. Kepp-
endur 8.
Templarastúkurnar hjer vestra
hjeldu umdæmisstúkuþing sitt und
anfama daga. Umdæmistemplar
valinn Gunnar Andrew.
Látinn er nýlega Jón Þórólfsson
fyrv. kaupm., eftir Ianga van-
heilsu. Var um sextugt.
Góður afli hjer undanfania
daga, en stærri bátamir eru flestir
að veiðum í Jökuldjúpinu.
Brjefið frð Rockefeller.
Þegar ókunnugir menn velja
sjer veg yfir mýri og hitta fyrir
ófært fen, þá krækja þeir fyrir
það eða snúa aftur og þykir
engin vansæmd að því.
Oðru vísi gengur þetta í flest-
um landsmálum, sjerstaklega þar
sem flokkarnir berjast. Þar á það
að vera ósæmandi, að ríða ekki
beint í foraðið. Að skifta um skoð-
un, eftir því sem reynslan bendir
til, þykir kviklyndi eða lítil-
menska.
Svo mikið er þroskaleysi vort.
Einn af þeim mönnum, sem
skifti um skoðun í bannmálinu,
var John D. Roekefeller, sonur
hins alþekta auðmanns. — Hann
hafði verið einbeittur stuðnings-
maður bannsins í Bandaríkjun-
um, og sjálfur bindindismaðut. —
Fyrir nokkru ritaði hann N. M.
Butler, forstjóra Columbia-háskól-
ans í New York, brjef, sem var
birt í blöðum og vakti mikla eftir-
tekt. Þar segir meðal annars;
„Það kemur yður sjálfsagt á
óvart, og mörgum vinum mínum,
að heyra að mjer hefir snúist
hugur í hannmálinu. Jeg hefi verið
strangur bindindismaður alla æfi,
og hvorki faðir minn nje afi bragð
að áfengi, jeg heldur ekki. Bæði
jeg og faðir minn höfum styrkt
„fjelagið gegn veitingahúsunum",
(Anti-Saloon league)“. Hann seg-
ist hafa vænst þess, er bannið
komst á, að almenningur væri því
fylgjandi, að það yrði bráðlega
öllum ljóst, hve mikilsvert það
væri fyrir þjóðfjelagið, að losna
við drykkjuskap og alt það tjón,
sem af honum hlytist. Þessi von
hefir brugðist og drykkjuskapur
hefir aukist í stað þess að hverfa.
í staðinn fyrir gömlu veitingahús-
in hafa komið speakeasies (leyni-
veitingastofur), heill her af lög
brjótum og þeirra aðstoðarmönn-
um hefir sprottið upp og grætt
offjár. Fjöldi af landsins bestu
mönnum þykjast ólögum beittir,
og persónufrelsi sínu misboðið. —
Þeir hafa því haft bannlögin að
engu, brotið þau leynt og Ijóst,
og að ósekju. Þetta hefir aftur
haft í för með sjer, að virðing-
unni fyrir öðrum landslögum hef-
ir stórum hrakað, og meiri glæpa-
öld gengið yfir landið en dæmi
eru til. „Jeg hefi barist fyrir
banninu til þess ýtrasta, en smám
saman, og móti vilja mínum, hefi
jeg hlotið að sannfærast um það,
að bannið sje villigata." Hann
segist ekki búast við því, að
þessu vandræðáástandi Ijetti af
þjóðinni, þó bannið sje afnumið,
en þó sje það fyrsta skilyrðið
fyrir því, að það geti lagfærst.
Vafalaust hafa bannmenn ráð-
ist með skömmum og svívirðing-
um á þennan heiðursmann fyrir
skoðanaskiftin, en síðan hafa kosn
ingarnar leitt það í Ijós, að mikill
meiri hluti kjósenda hafa skift
skoðun og þingmennirnir auðvit-
að um Ieið. Þegar nógu margir
snúast, þá þykir það gott og
blessað.
G. H.
100 svín brenna. Útihús í nánd
við Bærum í Noregi brann í fyrri
nótt og brunnu þar inni 100 svín.
(FB.).
Dagbók.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5):
Yfir SV-landi er alldjúp lægðar-
miðja (737 mm.). Veður er kyrt
á S- og A-landi með dimmviðri og
rigningu og 5—8 st. hita. Á N
landi og V-landi er hins vegar
NA-kaldi, og norðan til á Vest
fjörðum er vindur orðinn hvass á
NA. Hiti hefir lækkað niður í 1—2
st. og sums staðar minna, og úr-
j koman er orðin slydda eða snjó
t koma. Lægðin mun hreyfast NA-
yfir landið í nótt og valda NA- og
N-átt á morgun og kaldara veðri.
Veðurútlit í Rvík í dag. N-kaldi.
Ljettir til.
Föstuguðsþjónusta í dómkirkj-
unni í kvöld kl. 6. Síra Friðrik
Hallgrímsson prjedikar.
Föstuguðsþjónusta verður í frí-
kirkjunni í kvöld kl. 8; síra Árni
Sigurðsson.
Norsku samningarnir. Frv. um
staðfestingu á samningum þessum
var til 1. umr. í Ed. í gær. Um-
ræðum var útvarpað og stóðu þær
yfir í rúmar 3 klst. Til máls tóku:
Jón Þorláksson, Jón Baldvinsson,
Ásg. Ásgeirsson og Þorst. Briem.
Mikla athygli vöktu ræður Jóns
Þorlákssonar í þessu máli og mun
blaðið innan skamms birta frum-
ræðu hans. — Að lokinni umræðu
var frv. vísað til 2. umr. og
sjútvn. með 6:1 atkv. Nokkrir
þiúgmenn voru fjarverandi.
Fjáirlögin. Eldhúsumræðum lauk
laust eftir miðnætti í fyrrinótt, en
atkvgr. um fjárlögin var frestað
þar til í gær og var þeim þá vísað
til 2. umr. Búist er við að 2. umr.
fjárlaga í Nd. hefjist á föstudag
og stendur hún vafalaust yfir í
tvo daga.
Áfengislagafrumvarpið er ekki
enn komið í nefnd í Nd.; var
framh. 1. umr. í gær. Pjetur Otte-
sen hefir talað gegn frv. og flutti
hann mjög langa og ýtarlega ræðu.
Jón A. Jónsson, fyrsti flm. svar-
aði P. Ottesen, en allar líkur benda
til þess, að þessari 1. umr. sje
hvergi nærri lokið ennþá.
Skákþingið. 5. umferð fór þann-
ig að Ásmundur Ásgeirsson vann
Eggert Gilfer, Sveinn Hjartarson
vann Konráð Árnason, Steingrím
ur Guðmundsson vann Þráinn Sig-
urðsson, Einar Þorvaldsson vann
Árna Snævar og Jón Guðmunds-
son vann Guðmund Ólafsson. —
Hæstir eru Ásmundur Ásgeirsson
og Jón Guðmundsson með 4 vinn-
inga og Sveinn Hjartarson með
3vinning. 7. umferð er í kvöld
kl. 8 í Varðarhúsinu.
Af veiðum hafa komið Max
Pemherton með 99 tunnur lifrar,
Arinbjörn hersir með 70 tn. og
Hannes ráðherra.
Hjálpræðisherinn. Fimtudags-
kvöldið kl. 8 fer fram kínversk
sýning í samkomusal hersins. —
Majór H. Beekett stjórnar.
Fyrstu vorblómin (krokusar)
sprungu út í garði Hressingarskál-
ans í gær.
Trúlofun. Síðastliðinn föstudag
opinberuðu trúlofun sína ungfrú
Vilborg Jónasdóttir, Bergþórugötu
29 og Eggert Ólafsson vjelstjóri.
Látinn er nýlega í Stokkhólmi
Hermann Palmgren stjórnarráð.
Palmgren kom hingað til íslands
á aðalfund embættismannafjelags
Norðurlanda, er haldinn var hjer
1926. Átti hann síðan marga á-
gæta kunningja hjer, mintist hann
ferðar sinnar hingað altaf með
sjerstakri ánægju.
Jarðarför frú Þórunnar Stef-
ánsdóttur frá Hrafnagili fór fram
í gær að Munkaþverá, að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Ilýt! böplasmjör
gulrófur, nýteknar upp úr jörðu,
jafngóðar og á haustdegi. HvítkáL
Gleymið ekki blessuðu silfurtæra
þorskalýsinu, sem allir lofa.
B jfiminB.
NÝKOMIÐ:
Manchettskyrtur.
Ullar-Hálsbindi.
Rykfrakkar.
Hattar og Húfur.
Vorubusið.
Aðalfundur Ferðafjelags íslands-
verður haldinn x kvöld kl. 8V2 í
Oddfellowhúsinu. Fara þar franr
venjuleg aðalfundastörf, en auk
þess verða á fundinum afhent.
verðlaixnin fyrir ljósmyndasam-
kepnina á sýningu fjelagsins.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00*
Veðurfregnir. 18.00 Föstuguðsþjón.
xxsta í dómkirkjunni. (Síra Friðrik:
Hallgrímsson). 19.05 Þingfrjettir-
19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 20.00 Klukku-
sláttur. Frjettir. 20.30 Háskóla-
fyrirlestur. (Árni Pálsson). 21.15*
Ópera. Puccini: „Madame Butter-
fly“ (seinni hluti).
Mötuneyti safnaðanna hafa bor-
ist eftirtaldar gjafir: 1 tunna olía
frá h.f. Shell, 5 kg. kaffi frá O.
Johnson & Kaaber, 25 kg. smjör-
líki frá Smjörlíkisgerðin Smári,.
I214 kg. smjörlíki frá Smjörlíkis-
gerð Reykjavíkur, 25 kg. smjörlíki
frá Smjörlíkisgerðin Ásgarður, 1
dunkur sápa og þvettaefni frá
H.f. Hreinn, 70 bollapör frá Jó-
hanni Ólafssyni & Co., 3 pakkar
eldspýtur frá fslensk-rússneska
verslunarfjelaginu, Lyfjabúðin Ið-
unn brensluspritt og salmiaks-
spiritus, salt frá ónefndum. Bestu
þakkir. — 27. mars. Gísli Sigur-
björnsson.
Útvarpsnotendafjelagið. Aðal-
fundur fjelagsins verður haldinn 1
kvöld í Kaupþingssalnum, hefst
kl. 8%.
Náttúrufræðifjelag hafa nem-
endur Mentaskólans á Akureyrí
nýlega stofnað.
Alþingisútvarp. Er útvarpað var
frá efri deild í gær olli það all-
mikilli truflun hve mikill glumru-
gangxxr heyrðist úr neðri deild.
Þyrfti að fyrirbyggja slíkar trufl-
anir framvegis, með því að hafa
ekki umgang milli deildanna með-
an á útvörpun stendur.
Tuttugu fiskiskip frá Álasundi
lögðxx á stað til íslands í vikunní
sem leið. en xxrðu að snúa aftur
vegna veðurs og leita hafnar 1
Fosnavaag. Nú munu þaxx þó flest
lögð á stað aftur.
Malygin, rússneska ísbrjótnum
sem strandaði hjá Spitsbergen, hef
ir nú verið komið á flot aftur.
80 menn fórust í námu í Perxr
nýskeð. Fjell. aurskriða á námunæ
og hrundu ná.magöngin.