Morgunblaðið - 26.04.1933, Side 2

Morgunblaðið - 26.04.1933, Side 2
2 M O K G TT NT V J a » * llazlstar og Gyðingar. Menn eiga yfirleitt erfitt með íið átta sig á því sem gerist í iÞýskalandi um þesar mundir. Blöð stjórnarandstæðinga eru annað livort bönnuð eða undirgefin rit- skoðun- Að eins eitt blað í Þýska- landi, liægrablaðið „Deutsclie All- gemeine Zeitung“, getur ennþá leyft sjer að láta sjálfstæðar skoð- anir í l.jósi, og þó aðeins að nokkru leyti. Erlendir frjettaritarar eiga á bættu. að þeim verði vísað úr landi, ef þeir breiða út fregnir, sem Nazistum líkar miður. Eitt af stærstu blöðum Norðurlanda, „Eöteborgs Handelstidning" hefir því kvatt frjettaritara sinn í Berlin heim — „þar sem honum var ekki leyft að skýra frá því sem ha.nn vissi að var satt“. Við þetta bætist, að Nazistar þröngva andstæðingum sínum til þess að bera til baka ýmsar fregnir um ástandið í Þýskalandi. - Samkvæmt opinberri tilkynn- íTigu frá miðstjórn Nazistaflokks- ins eiga Nazistar að koma því til leiðar, að sjerhver Þjóðverji til- kynni kunningjum sínum og við- skiftavinum erlendis, að friður og ró ríki í Þýskalandi. Af þessum ástæðum hafa margir Gyðingar i Þýskalandi sent til útlanda skeyti. þar sem þeir fullyrða, að ■skelfingarfregnirnar og kvíðvæn- legar frjettir um Þýskalandy sjeu ósannar. Þessi svoköluðu „Goeb- Bels-skeyti eru flest orðuð eins, að líkindum að undirlagi yfir- valdanna". Af framangreindum á- •stæðum er oft erfitt að greina á milli sannra og ósannra fregna frá Þýskalandi. Frá Þýskalandi hafa að undan- förnu borist hræðilegar fregnir um ’ morð, ofbeldisverk, misþyrm- íngar á föngum í fangelsunum o■' m. fl. Nazistaráðherrann Göhring hefir að sumu leyti gefið þessum fregnum byr í seglin. Göhring hef ír t. d. sagt opinberlega, að lög- reglan og Nazistaherinn eigi held- Tir að skjóta of mörgum en of fá- nm skotum. Göhring hefir enn- fremur sagt opinberlega „að það sje ekki hlutverk lögreglunnar að vernda 80.000—100.000 fanga í f angelsunum' ‘. Margar af fregnunum um of- beldisverk í Þýskalandi eru vafa- laust ósannar. T. d. birtu nokkur blöð þá fregn, að Nazistar hafi nivrt kommúnistaforingjann Thál- mann í fangelsinu. Nokkru seinna var erlendum frjettariturum gefið tækifæri til að tala við Thálmann og ýmsa aðra fanga. Föngunum har öllum saman um það, að fregn írnar um misþyrmingar í fang- ■elsunum væru ósannar. Með þessu er þó ekki sagt, að engin ofbeldisverk hafi verið framin í Þýskalandi. Áreiðanleg blöð víðsvegar um beim hafa flutt fregnir um líkamleg'ar misþyrm- Ingar og jafnvel morð á andstæð- ingum Nazista. Þessar fregnir geta ekki allar verið hæfulausar. Þótt hinsvegar alt bendi til þess, að ofbeldisveíkin hafi ekki verið framip með vilja stjórnarinnar. Jafnvel „Times“ talar um ógnar- öld (terrorisma) í Þýskalandi og flvtur nákvæmar fregnir um ýms ofbeldisverk af hálfu Nazista. Og „Times“ er blað, sem ekki er vant að hlaupa með flugufregnir. M. a. talar „Times“ um,: að margir hafi verið teknir fastir af „privat“ persónum og að þessum mönnum sje haldið í varðhaldi í ,,privat“ húsum í Berlin. Blaðið segir að meðal þessara fanga sjeii heims- frægir menn. í seinni hluta f. m. birti Hitler tilkynningu, þar sem hann segir m. a- að nú verði ofbeldisverk í landinu að hætta. Daginn eftir skrifar hægrablað Deutsche All- gem. Zeitung m. a., að síðan þ. 6. mars hafi bæði í Berlin og víðar gerst viðburðir, sem ríkisvaldið geti ekki þolað. Blaðið talar um ofbeldisverk, sem sjeu ekki síst óþolandi af þeirri ástæðu að þau hafi verið framan af 18—20 ára gömlum skólastrákum. Blaðið læt- ur í ljósi gleði yfir tilkyningu Hitlers og segir að s.jerhver, sem raski friði heimilanna skerði per- sónulegt frelsi eða verði sekur um aðrar refsingaverðar athafnir, verði framvegis afhentur lögregl-' unni. Og nú eigi lögreglan að fá tilkynningu um þá staði, þar sem „pólitískum föngum“, handtekn- um af „prívat“ persónum, sje haldið í várðhaldi. Þanuig tálar blað, sem er nákomið einum af stjórnarflokkunum í Þýskalandi, nefnil. ])ýsk-nationa!a flokknum. Bæði framannefnd tilkynning. Hitl ers og ummæli Deutsche Allgem. Zeitnngs bera vott um að fregn- irnar um ofbeldisverkin í Þj'ska- landi hafa ekki verið algerlega hæfulausar. Nazistar hafa árum saman sáð hatri í garð Gvðinga. Það má því telja víst að ofbeklisverkin í Þýskalands hafi ekki síst bitnað a Gyðingum. Flótti margra Gyð- inga frá Þýskálandi bendir til þess að svo hafi verið- — í lok f. m. sagði enski stjórnipálamaðurinn Tíobert, Oecil lávarður í ræðu: „Þýski sendiherrann hefir full- vissað mig um, að stjórn Hitlers ætli að binda enda á ofbeldisverk- ííí gegn Gyðingum“. — Nokkru Bandaríkjanna yfirlýsingu um Gyðingamálin í Þýskalandi. Þar er sagt, að „líkamlegar misþyrm- ingar hafi átt sjer stað um. tíma“, en nú sje bundinn endi á þetta. Þarna er vafalaust skýrt rjett frá. Sumstaðar erlendis hefir án efa verið' gert of mikið úr Gyðinga- ofsóknunum í Þýskalandi. Sam- kvæmt, Nazistablöðum hafá erlend blöð breitt út þær freguir, að liendurnar hafi ýerið höggnar af handteknum Gyðingum, margir liafi verið myrtir og brvtjuð Gyð- ingalík liggi í hrúgum t Spree. Þessar og svipaðar fregnir eru án efa reifarasögur. Annars er ekki kunuugt í hvaða bliiðum Naz- istar hafa lesið þessar fregnir. Fregnirnar um Gyðingaofsókn- irnar vöktu rnikla gremju meðal Gyðinga erlendis; margir þeirra komu sjer saman um að kaupa ekki þýskar vörur. I lok mars. ákvað miðstjórn Nazistaflokksins þýska að útiloka Gyðinga í Þýskalandi frá öllum viðskiftum- Flokksstjórnin skoraði því á alla Þjóðverja, að hætta öllum viðskiftum við Gyðinga, bæði kaupmenn, lækna, lögfræð- inga og aðra Gyðinga frá 1. apríl kl. 10 árd. að telja. Nazistaflokks- stjórnin sagði, að þetta væri varn arráðstöfun vegna rógburðarins um Nazista erlendis. Af Nazista- blöðum má þó sjá, að ástæðurnar til þessara ráðstafana voru að minsta kosti meðfram aðrar. „Oll neyðin og vandræðin í Þýskalandi eftir stríðið eru Gyðingunum að kenna“, skrifar „Der Angriff“, blað Goebbels, 28. f. m- Að undan- förnu hafa Nazistar hvað eftir annað bi-ýnt fyrir þýsku þ.jóðinni, að ósigur Þjóðverja í heimsstyrj- öldinni, byltingin í Þýskalandi haustið 1918, og öll vandræðin eftir stríðið sje alt. saman verk Gvðinganna,- í Þýskalandi eru alls um 650 þúsuncl menn og konur af Gyð- ingaættum, þar af 100 þúsund kristnir. Forfeður margra núlif- andi Gyðinga í Þýskalandi hafa flust þangað fyrir mörgum manns- öldrum. Nazistar berjast á móti Gyð- ingum fyrst og fremst af þjóð- ernislegum ástæðiim. Eitt aðalat,- riðið á stefnuskrá Nazista hefir lengi verið það, að eingöngu fólk sem er þýskt að þjóðerni, geti notið ríkisborgararjetts í Þýska- landi. Atvinnusamkepni er önnur aðalástæðan til baráttunnar á móti Gyðingum. A keisaratímanum liöfðu Gvðingar í reyndinni ekki aðgang að ríkisembættum, en þeir fengu það eftir byltinguna, 1918. Nazistar vilja aftur meina Gyðingum aðgang að ríkisem- bættum. Þar að auki vilja Naz- istar draga úr atvinnuleysinu meðaí lögfræðinga og lækna, sem eru þýskir að þjóðerni. Nazistar vilja enn fremur útiloka Gyðinga frá öðrum atvinnurekstri, einkum verslunarrekstri. Hin stóru Gyð- inga-vöruhús eru nefnilega hættu- legir keppinautar smákaupmann- anna, en margir þeirra eru fylg- ismenn Nazista. Viðskiftin við Gyðinga í Þýska- landi voru aðeins stöðvuð einn dag. Svo afturkallaði flokksstjórn Nazista viðskiftastöðvunina. Það er sagt, að Schacht ríkisbankastj., Neurath utanríkisráðherra og amerískir fjármálamenn hafi var- að Hítler við að halda henni á- fram, því að húu mundi valda mikilli truflun í atvinnulífi Þjóð- verja., hafa óheppileg áhrif á ut- anríkisverslun og fjármíál þeirra ••: yfirleitt skaða Þjóðverja er- lendis. Það hefir mælst illa fyrir, að Nazistar hafa „æst stórþ.jóð upp á móti1 varna.rlausum minni hluta“, eins og Times kemst að orði. í enska þinginu hefir Sir John Simon, utanríkisráðherra, lýst yfir því, að öll enska þjóðin fordæmi atferli nýju þýsku vald- hafanna gagnvart Gyðingum- Með afturköllun bannsins gegn viðskiftum við Gyðinga í Þýska- landi er barátta Nazista á móti Gyðingum langt frá lokið. Flest- um embættismönnum af Gvðinga- ættum hefir verið vikið frá em- bættum. Gvðingar reknir frá öll- um blöðum og leikhúsum og fram vegis mega að eins vera 35 mál- færslumenn af Gyðingaættum í Berlín (liingað til um 2000). — Og nú á að takmarka aðgang Gyðinga að æðri skólum. Vafalaust sjer Hitler um, að „ekki verði skert eitt hár á höfði Gvðinga“, en smátt og smátt verða þeir sviftir öllum tilveru- möguleikum í Þýskalandi. Khöfn í apríl 1933. P. Stysta leiðin til sigurs- Það er nú margt sem bendir á vaxandi áhuga fyrir starfi Slysa- varnafjelagsins. Manni liitnar þeg- ar t. d- Siglfirðingar róa heilan róður, allir, til ágóða fyrir slysa- varnir, eða þegar fleiri hundruð manns ganga í fjelagið eins og Isfirðingar. Margt fleira mætti telja. Alt þetta ber vott um mann- ilð og menningu, og .skilning á þeim kjörum sem. „glímukapparn- ir“ eiga við áð búa, gagnvart gamla Ægi. Þá hefi jeg og sjeð, að minsta kosti eina grein um framtíð fje- lagsins, frá Dan. Dan. Hún sýnir áhuga og samúð í ríkum mæli. Á- stæðan til að jeg rita þetta grein- arkorn, er þó þessi grein, það er sú leið, sem greinarhöf. ætlast til að farin verði til fjáröflunar Slysavarnafjelaginu. Jeg er nefni- lega á móti henni. Þetta má ]>ó ekki skilja svo, að jeg sje á móti því, að skip og bátar eða skip- verjar greiði eitthvað til fjelags- ins, þvert á móti, og jeg veit að margir hafa. gert það og gera það ekki síður hjer eftir. Nei, en jeg vil ekki, fyr en í síðustu lög, að nokkuð sje lögboðið í þessu efni. Skal jeg hjer gera þess nánar grein. Þegar búið væri að lÖgbjóða þetta, þá ér viðhorf almennings til málsins orðið alt annað. Þá verð- ur hætt að bera málefnið og þessa þörf eins fyrir brjósti. Hlýja og sa.miíð þrýtur. f stað þess fer fólkið að gera aðeins kaldar kröf- ur til ríkisins um fjárframlag. Löggjafarnir stympast. eða heyra ekki og sjá. Og svara. ef þeir svara nokkru, að peninga til þessa hafi þeir ekki til, fram yfir það litla sem þeir nú af rausn sinni láta. Þannig verða smátt og smátt aðeins gerðar kröfur, sem aldrei. verða nema að nokkru leyti upp- fvltar. Þar afleiðandi verður ]>á og líka miklu minna gert en vera bæri og með þyrfti. Enda hefir ríkið nú í nógu mörgu að vasast. Hins vegar held jeg að frjáls starfsemi verði. — ef við erum ekki alveg dauð — lífæðin í þessu slarfi, og að slík fjáröflun verði vissasta leiðin og fljótvirkasta og farsælasta, þessu máli til framdráttar. Og aðeins með því starfi verður þetta ahlrei eins og köld og dáuð vjel, því dauðinn felst altaf fyrst óg fremst í því að gera kröfur til annara, en aldrei sjálfs síh. En þar sem líf er, er líka starf, og gagnkvæmt. Og það fer ekki hjá því að slíkt verður mörgum til bjargar. Þá er þó ótalinn mesti vinning- urinn. Ef það sýnir sig. sem ma.rgt bendir til, að þjóðin ætli marg- víslega með ráðum og dáð, að taka að sjer þetta mál, þá er al- veg víst. að ekki verður útbúið betra vopn til að sækja fje í rík- kona Magnúsar Sigurðssonar bankastjóra andaðist í gær úr lungnabólgu, eftir stutta legu- isfjárliirsluna. Því það er eini lyk- illinn sem að henni gengur í þessu efni. Því megið þjer trúa. Því ef löggjafarnir láta ekki af hendi fje i þessu augnamiði, það sem ávant- ar, eða svo eitthvað megi gera, þegar þéir hafa sjeð að almenn- ingur hefir ekki legið á liði sínu, jeg segi, ef þeir ekki þá sýna drengskap, þá: eru þeir á „sínum stað“ fyrir sjálfa sig en ekki þjóðina. Munið, að við komumst ekki nógu langt ofan í ríkissjóð- inn, nema að safna sjálfir. Þannig verðum v.jer að ,,mana“ hann t.il að leggja á móti- Þetta er stysta leiðin til sigurs. Akranesi, 16. mars 1933. Ól. B. Björnsson. Fiðluhliómleikar. Lilli Poulsen og Einar Sigfússon, Annað kvöld ætla þau Lilli Poulsen og Einar Sigfússon að lialda fiðluhljómleika í Gamla Bíó, eins og auglýst var hjer í blaðinu í gær. Það mun engin þörf á að kynna Einar fyrir bæjarbúum, svo vel var honum tekið í fyrravetur, enda voru hljómleikar hans með slíkuni ágætum. Hann hefir síðan stundað nám hjá kennara sínum, Gerliard Rafn, og þarf ekki að efa að hann hafi tekið þeim fram- förum, sem vænta, má af vel gefn- um og áhugasömum listamanni- Ilngfrú Lilli Poiilsen er öllum ókunn hjer, enda kemur hún nú í fyrsta sinn hingað til lands, en í Kaupmannahöfn hefir hún getið sjer góðan orðstír, þótt ung sje. Ilún gekk fyrst á tónlistaháskól- ann, en hefir síðan stundað nám hjá fiðlusnillingnum Max Schlúter, en hann var nemandi próf. Joa- chims, hins víðfræga. Ungfrúin hef ir oft leikið opinberlega í Kliöfn, síðast á hljómleikum ungra tón- listamanna í janúar síðastliðnum og fekk þá mikið lof fvrir (m. a. af Hugo Seligmann í Politiken 26. jan). TTngfrúin og Einar leika annað kvöld sína sónötuua hvort (eftir Handel og MoZart), en bæði sam- an Concert fyrir 2 fiðlur og píanó eftir Vívaldi. Auk þess leikur Ein- ar hinn fagra fiðlukonsert Mend- elssohns. Frú Valborg Einarsson aðstoðar við hljómleikana- Fiðluhljómleikar gerast nú sjaldgæfir hjer í Reykjavík, svo að ætla mætti að fólk noti nú betta einstaka tækifæri til að lievra svo ágæta listamenn sem þau Einar og unnustu hans, Lilli Poulsen. Enginn mun sjá eftir kvöldinu því. — Fiddi minn, nú er kominn tími til þess að þú farir a.ð sofa. Allir hænuungarnir eru farnir að sofa fvrir löngu. — Já, og gamla hænan líka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.