Morgunblaðið - 09.07.1933, Blaðsíða 7
9
MORGUNBLA ÐIÐ
7
Smábarnaföt.
Mikið nrval.
• Gott verð.
! Vðrnhnsið.
'til ríkis og bæjar. Eins og málum
er nú komið horfir þetta að vísu
dálítið öðruvísi við. Afgangs sk’itt-
um verða rúmlega 2000 kr. upp í
allan kostnað til heimilisþarfa. —
Það sem þá vantar á verður hlut-
aðeigandi að taka af eign sinni.
— En óneitanlega er það hart
aðgöngu fyrir livern þann, sem
hefir ekki rýrari tekjur en
þetta, að verða að taka af eign
sinni til hrýnustu nauðsynja
— Afleiðingin hlýtur að verða
sú, að allir, sem aðallega hafá
tekur af eign, t. d. sparifje, og
eru ekki hundnir við Reykjavík
vegna atvinnu sinnar, flýja bæinn
og fer þá hagnaður hæjarsjóðs af
hinum háa eignaskatti niðurjöfn-
unarnefndarinnar að verða tví-
sýnn.
Þetta eru ljós dæmi þess, að
skattur af eign er orðinn óhæfi-
lega hár, enda er eignaútsvar nið-
virjöfnunarnefndar margfalt hærra
en eignaskattur sá, sem Alþingi
hefir treyst sjer til að lögleiða.
1 nýjum skattalögum fyrir Rvík
teldi jeg rjett að halda hæfileg-
mm eignaskatti í einhverri mynd,
en hann má ekki vera hærri en
skattur af eign til ríkisins er,
samkv. gildandi lögum, og eklci
eins víðtækur. Arðlausa eign eins
•og t. d. hlutabrjef, sem engan arð
gefa, ár eftir ár, er fráleitt að
■skattleggja. E.t.v. væri hagkvæm-
ast að leggja ekki heinan skatt
á eignir manna, heldur óbeinan,
með því að hafa hærri skatt af
eignatekjum en atvinnutekjum. —
híeð því vinst það, að eignaskattur
miðast við arðinn af eigninni, svo
sem eðlilegt er, en ekki við meira
«g minna óábyggilegt skattmat.
IV.
Þá er hitt, ekki síður alvörumál,
hvaða áhrif skattar þessir hafa
á atvinnuvegina, eins og þeim er
háttað nú á tímum hjer í hæ.
Verður þá fyrst og fremst að hafa
hugfast, hversu stopull höfuðat-
vinnuvegur hæjarmanna, sjávarút-
vegurinn, er, gefur stundum góð-
an arð, en þegar illa árar verður
stórtjón á rekstrinum. Tilvera
slíkra atvinnugreina byggist á því
að í góðærunum takist að vinna
tap erfiðu áranna vel upp. Sje
nú skattalöggjöfinni þannig hátt-
að, að atvinnurekendur sjeu sviftir
meiri hlutanum af arði góðær-
anna, en verði að þola misærin
hótalaust, eru atvinnuvegirnir í
mikilli hættu staddir og um leið
öll framtíð Reykjavíkur. En eins
og tekjuskatturinn til ríkisins er
nú, er hann algerlega miðaður
f ranikvæmir niður j öfnunarnef din
útsvarslögin, að því er skatt af
tekjum snertir.
Til þess að skýra, hvernig skatt
arnir hvíla eins og mara á slíkum
atvinnurekstri vil jeg fyrst taka
eitt dæmi frá liinni nýafstöðnu
niðurjöfnun lijer í bæ.
Mjer er kunnugt um atvinnu-
rekanda, sem tapaði sem næst 30
þús. kr. s.l. ár — en sjálfsagt eru
það margir, sem hafa slíka sögu
að segja, og þaðan af verri Skatt-
skyldar eignir eru engar. Á þenn-
an atvinnurekanda lagði niður-
jöfunarnefndin nál. 7000 kr. rekst-
ursútsvar. Augljóst er að slíkur
atvinnurekstur er dauðadæmdur,
nema góðæri kömi, sem bæti þetta
tjón vel upp. Og þungbært er að
þurfa að berjast við það árum
saman að vinna upp tjón eins árs.
Verður þá erfitt að standast að-
kallandi greiðslur og hætt við að
vonleysi grípi atvinnurekendur,
svo að þeir gefist upp.
Hvað mundi nú þessi atvinnu-
rekandi þurfa að græða mikið í
ár til þess að vinna upp tjónið
og eiga nóg aflögu fyrir því út-
svari og tekjuskatti, sem fellur
á gróðann? Mjer telst svo til, að
gróðinn þurfi að vera 135000 kr.,
eða meira en ferfalt tapið, til þess
að vinna það upp að fullu. Af
þeim gróða geri jeg ráð fyrir
14 þús. kr. í rekstursútsvar og
það er að vísu alger áætlunarupp-
hæð. En auðvitað er að svo miklu
betri afkoma getur ekki hugsast
nema með stórkostlega aukinni
veltu og áætla jeg hana tvöfalda,
sem er sennilega of lágt Útsvar
af tekjum mundi nema 52080
kr. Tekjuskattur (af 1271/2 þús.
kr.) (+40% álagi) 38900 kr. —
Skattar þessir verða því alls 104980
kr. Afgangur 30020 kr.
Þrátt fyrir 135 þiis. kr. gróða
í ár, stæði atvinnurekandinn þann-
ig í járnum eftir bæði árin þegar
greiddir væru skattar af ágóða
síðara ársins. En bærinn og ríkið
hefðu tekið í sinn hlut samtals
ca. 112 þús. kr. í útsvör og tekju-
skatt fyrir þessi tvö ár.
Jeg efast um að inenn hafi al-
ment gert sjer það ljóst, að bein-
ir skattar til ríkis og bæjar eru
orðnir svo þungir, að til þess að
vinna upp ekki meira tap en þetta
iá einu ári, þurfi 135 þús. króna
hagnað. En þegar þess er gætt að
skattar af tekjum komast upp í
samtals 74%, þegar tekjurnar eru
komnar upp yfir 25 þús. kr. og síð
ar upp í 82.4%, og að við það bæt-
ist rekstursútsvar, þá verður þetta
skiljanlegt. Dæmið sýnir glögt út
í hvaða öfgar þessir skattar eru
Jiomnir. Mundi þó vera enn örð-
ugra að vinna tjónið upp ef um
verulega eign væri að ræða.
Framh.
Vísindin úrskurða. í barnsfað-
ernis máli í Stokkhólmi nýlega,
var gerð blóðrannsókn á föður og
jbarni. Kom í ljós, að hann gat
| ekki verið faðirinn, enda þótt
Íþann vildi gangast við barninu.
jDómarinn fór eftir því sem vís-
iindin sögðu.
Reykjavíkurbrief.
8. júlí.
Veðuryfirlit.
Pyrri hluta vikunnar var stöð-
jUg SV-átt hjer á landi, stundum
;ailhvasst, og vætusamt, einkum
,um vesturhluta landsins. Á fimtu-
dag brá til A-áttar við suðurströnd
[ina en gerði annars kyrt veður og
þlýtt, sem síðan hefir haldist um
land alt. í Rvík varð hiti mestur
á föstudag, 18.7 stig, en minsljp’
6—7 st. aðfaranótt miðvikudags.
Úr norðursveitum.
Sig. Sigurðsson búnaðarmálastj.
ur nýkominn heim úr ferðalagi
um Norðurland. Hefir hann sagt
blaðinu að hann muni ekki eftir
annari eins sprettu og á þessu
sumri. Er svo um allar sveitir.
Mikið segir hann að færist nú
í rjetta átt um jarðræktarstörf
bænda, hve betur er hirt um
nýræktarlönd en áður vildi við
brenna. Hafa bændur nú alment
fengið þá þekkingu og reynslu
sem þeim dugar, til þess að þeir
lcomi nýrækt sinni í gott horf á
fvrstu árum, og fái af henni full-
an arð.
Merkilegt er hve sáðgresi held-
" sjer lengi í nórðlenskum tún-
um. Pyrir 30 árunj t. d. sáði Sig-
urður búnaðarmálástjóri í nýrækt
'Sigurðar Sigurðssonar járnsmiðs á
Akureyri foxgrasi og háliðagrasi,
Og halda sjer báðar tegundir vel
enn í dag.
Rjómabú er verið að hugsa um
að reisa á Sauðárkróki, Húsavík
og vestur á Flateyri.
Nautgriparækt.
Hjer á dögunum komu hingað
með „Brúarfossi‘‘ 4 veturgamlir
tuddar skoskir, og ein kvíga. —
Ríkisstjórnin flytur inn, og ætlar
að selja til kynbóta.
Eru gripir þessir af 4 naut-
gripakynjum: Galloway-, Aberdeen
angus,- Stutthorna- og Hálendis-
lcyni.
Ekki er blaðinu kunnugt um
hver rök að því liggja að þessi
nautgripakyn eru valin.
En hitt er víst, að reynsla. þeirra
]>jóða, sem haft hafa hvað rýmst
um innflutning búfjárkynja, og
gert hafa flestar tilraunir til kyn-
bóta, bendir sumstaðar til þess
að ekki sje alt gull sem glóir í
þeim efnum.
I hinum harðgerða og þurftar-
litla en nytháa kúastofni vorum
er sá efniviður, sem eigi má
fara forgörðum. Er vonandi að
þessi litla byrjun á innflutningi
rlendra nautgripa verði ekki
fvrirboði þess, að lagt verði út í
lausbeislaðar tilraunir um blönd-
un á kúakyni voru.
Furan á Þingvöllum.
í fyrra vor er Pr. Weis próf.
við búnaðarháskólann í Höfn var
lijer á ferð, var það eitt af því
er vakti mesta eftirtekt hans, hve
mikiil vöxtur hafði verið undan-
farin ár í furu þeirri, sem vex
í hinum litla gróðurreit á Þing-
völlum. Weis prófessor hefir átt
við trjáplöntun á jósku heiðunum.
Honum þótti Þingvallafuran
standa sig vel í samanburði við
furugróður heiðanna.
Jarðvegurinn í gróðurreitnum á
Þingvöllum, er ljelegur holtajarð-
vegur. Umhirða mun þar eigi hafa
verið teljandi nema algerð friðun.
Sje svo, að reynslan sýni, að
friðun ein sje furuskógi nægileg
til þroskunar, þá ætti það að vera
hending að hjer hafa eigi komist
upp furuskógar meðan land var
óbygt.
Rússland undan-
tekning.
I kosningaræðu í útvarpinu um
daginn talaði Brynjólfur Bjarna-
son um þau missmíði á viðskifta-
málum heimsins, er þvi valda,
að matvara verður verðlaus og
liún er blátt áfram eyðilögð.
Engum dettur í hug að neita
því, að viðskiftunum er ábótavant
þegar slíkt á sjer stað í stórum
stíl.
En annað er það, hvort menn
kæra sig um, að kommúnistar komi
á sína vísu í veg fyrir að neyslu-
vörur verði eyðilagðar. Það mun
af skiljanlegum ástæðu m rjett
vera hjá Brynjólfi, að í Rússlandi
eigi ekkert slíkt sjer stað.
En orsökin er eðlileg, sú, að
þar er ekkert til umfram brýnustu
lífsþarfir, og ekki einu sinni nægi-
’-g matvara til að forða fólkinu
frá hungri, þó öllu sje uppskift á
bolsavísu.
Ýmislegt sagði Brynjólfur annað
frá Rússlandi, m. a. að fyrir bylt-
inguna hafi þar engin iðnaðar-
framleiðsla verið — en nú væri
hún ferföld á við það sem áður
var(!)
Rússum fremri.
Blöð kommúnista og Alþýðu-
flokksins hafa verið samtaka í
því að birta svívirðingar um ít-
ölsku stjórnina og flugleiðangur
Balbos ráðherra. Verður hjer eigi
eytt orðum að svo frunta- og
fíflalegum strákshætti í garð vin-
gjarnlegra. viðskiftaþjóða. Sýnir
sú framkoma hið algerða siðleysi,
sem nær engu tali.
Balbo ráðherra fór fyrir nokkr-
um árum með mikla flugsveit
norður yfir Svartahaf í heimsókn
til Odessa. Veittu yfirvöld bolsa
honum og liði hans hinar virðu-
legustu viðtökur
Á sviði siðleysis og ólíurteisí
hafa skósveinar hins rússneska.
siðs, komist fram úr lærifeðrum
sínum.
Um kosningar.
Stjórnmálaflokkar, sem byggja
tilveru sína iá lygum og blekk-
ingum, eins og rauðu flokkarnir
hjer, verða að taka til margskon-
ar ráða. Einkum verður gripið til
margs um kosningar, til að glepja
mönnum sýn.
Austan úr sveitum hefir það
frjest, að vikutíma hjer um dag-
inn hafi kosningasmalar rauðu
flokkanna haldið því óhikað fram,
að fjárþröng sveitabænda stafaði
af gengishækkuninni 1925. Þetta
átti miskunnarlaust að hamra inn
í menn fyrir kosningarnar.
En mönnum var bent á, að ef
gengishækkunin hefði verið slíkt
allsherjar böl, hefði gengislækkun-
in síðastliðin ár átt að geta bætt
úr því. Því gullgildi íslensku krón
unnar nii orðið er lægra en nokkru
sinni 1924 og 1925. Þá var úti
nm þessa kosningafluguna.
í hjáleignnni.
Plokksmönnum Framsóknar-
flokksins hjer í bænum er við
kosningarnar ætlað að greiða.
Hjeðni Valdimarssyni atkvæði. Á
með því að venja þá við þá mis-
munandi geðfeldu tilhugsun, að
Pramsóknarflokkurinn eigi í
ð nokkurn veginn jafna afkomu i Edwina Booth, er ljek „hvitu
á ári til árs, en ekki við á- konuna“ í Trader Hom, hefir
ettusaman atvinnurekstur, sem fengið ókennilegan sjúlcdóm í Af-
m.k. öðru hvoru hefir talsvert ríkuveru sinni og liggur nú al-
p í för með sjer. Á sama hátt varlega veik i Hollywood.
Hýkomlð:
Pokabuxur, fyrir dömur og
herra, drengja stuttbuxur frá
3 kr. Næturtreflar á 3.75 og fl.
Manchesfer.
Laugaveí: 40. Sími 3894
Arne Finsen,
(húsameistari),
Viðtalstími 1—3. Kirkjustræti 4.
Ilfkomli:
Kaffistell 6 manna 11.50
Kaffistell 12 manna 18.00
Bollapör postulín 0.50
Ávaxtaskálar krystalglas 3.50
Vatnskönnur krystalglas 3.00
Sjálfblekungar 14 karat 7.50
Sjálfblekungar með glerpenna 1.50
Sjálfblekungaf^neð postulíns
penna 3.00
Vínglös slípuð frá 0.50
Saumakassar frá 2.50
Ýmiskonar postulínsvörur með ísl.
myndum og fleira, alt með lækk-
uðu verði. j
I Jm & Bltrissii
Bankastræti 11.
Til nkureyrar
alla mánudaga, þriðjudaga, fimtu-
daga og föstudaga. Afgreiðsluna í
Reykjavík hefir Aðalstöðin. Sími
1383.
IBifreiðastðð flkureytar.
Sími 9.
Til Borgarfjarðar
og Borgarness
alla mánudag'a og fimtudaga.
Nýja Biireiðastöðiu
Símar 1216 (tvær línur).
Því meira sem notað er af Lillu
eggjadufti í baksturintí, því meira
er hægt að spara eggjakaupin.