Morgunblaðið - 08.08.1933, Síða 2
2*
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsemi
Fjelags íslenskra
bifreiðaeigenda.
Ni(5url.
Framkvæmdir þessar allar og
ýmsar aðrar liafa auðvitað kostað
talsvert fje, mun meira en árs-
gjöld fjelagsmanna ein mundu
hafa verið. Hafa bensínfjelögin (B.
P, Shell, Hið ísl. steinolíufjelag)
sýnt fjelaginu miliinn skilning og
mikla velvild og lagt fjelagssjóði
2000 kr., og auk þess ýmsir ein-
stakir menn sýnt því velvilja sinn.
Samkvæmt ósk nokkurra fjelags
manna var leitað fógetaúrskurðar
nm tvö atriði við innheimtu skatts-
dns:
1) Við innheimtuna 1. júlí 1932
var í fyrsta sinn innheimt kr.
31.20 ökumannstryggíng af hverri
hifreið, án tillits til þess hvort
■sjerstakur bílstjóri ekur henni, eða
hvort það er eigandinn sjálfur, og
verður eigandinn að greiða þetta
(þótt hann sje slysatrygður annars
staðar. Þótti mörgum það hart
•að vera skyldur til þess að slysa-
tryggja sjálfa sig, ef þeir ltysu að
vilja aka einkabifreið sinni, held-
vir en t. d. ganga. Fógetaúrskurð-
urinn gekk fjelaginu í óhag.
2) Skatturinn var innheimtur í
júlí 1932 samkv. gömlu lögunum,
ákveðið gjald af hverju hestafli
vjelarinnar. Voru sumir sem álitu
.að hefði átt að innheimta skattinn
samkvæmt nýju lögunum þ. e. af
þunga bifreiðarinnar. Fógetaúr-
skurðurinn fell á þá leið, að inn-
heimta skyldi sarnkvæmt gö'ndu
'lögunum, eins og gert var. Vms
atriðL ^viðvíkjandi bifreiðatrygg-
ingunum hefir fjelagsstjórnin haft
til meðferðar. Hafa tryggingar-
fjelögin snúist mjög fúslega og
sánngjarnlegá við óskum fjelags-
dns. —
Markarfljótsbrúin. Tveir menn
úr stjórn fjelagsins tóku þátt í
fjársöfnunarnefndinni til þess að
gera Markarfljótsbrúna. Fjelagið
útvegaði 120.000 kr. lán (hjá vá-
tryggingafjelaginu Thule) til þess
að gera brú á Múlakvísl.
Fjelagið hefir gengið í alþjóða-
samband bifreiðaeigendafjelaga,
Alliance internationale de Tour-
isme, sem hefir aðsetur í Bruxell-
■es. Bru rúmlega 8 miíj. manna í
sambandsfjelögunum. I árbók sam-
bandsiris og árbók stærsta fjelags-
ins innan þess, Automobile Associ-
ation í Englandi hafa nokkrar
blaðsíður verið prentaðar um Is-
land, sem ferðamannaland. Mun
það vera einhver mesta auglýsing,
scm gerð hefir verið fyrir ísland
sem ferðamannaland, því árbækur
þessar koma út í miljónaupplagi.
"Einkum gerir enska fjelagið, Auto
TOobiÍe Association, mikið að því
að auglýsa ísland, hefir liggjandi
frammi ferðabækur, kort og mynd
ir og áætlanir Eimskipafjelags ís-
lands í aðalskrifstofu sinni í Lond-
on, en á hana koma þúsundír
manna á hverjum degi.
Fjelagið liefir komist að sjer-
stökum samningi við Eimskipafje-
lag íslands um flutningsgjald af
bifreiðum, sem ferðamenn hefðu
nieð sjer í milli landa, þannig að
ö farþegar geta liaft bifreið með
sjer ókeypis fram og aftur milli
landa, 4 borga eins manns far-
gjald (kr. 135), þrír farþegar
’tveggja manna (kr. 270) o. s. frv.
Mun sennilegt að liin skipafjelögin
taki upp líkan taxta. Er þetta til
mjög mikils hægðarauka fyrir þá,
.sem' fara vilja hjeðan til annara
landa með bifreið sina, eða útlend-
inga, sem kynnu að vilja koma
hingað með bifreiðar sínar.
Umbúðakassar. í sumar hefir
F. í. B. látið útþiia umbúðakassa
til þess að hafa í bílum. Er til-
ætlun stjórnar fjelagsins að sem
flestir bílar hafi þannig kassa til
nokkurrar hjálpar ,í viðlögum, ef
slys ber að höndpm. Hefir þeim
þegar verið komið fyrir í tíunda
hverjum bíl, sem er í umferð. Bíl-
ar þeir sem hafa umbúðakassa eru
auðkendir með merki. Rauður
kross á hvítum grunni, innan í
bláum hring merktum F. 1 B„
Merkið er í hægra neðra horni
•frarn og afturrúðu, svo bæði þeir,
sem á móti koma og á eftir fara,
sjái merkin.
Umbiíðakassa geta fjelagsmenn
fengið á skrifstofu F. í. B. í af-
greiðslu vikublaðsins Fálkinn,
Bankastræti 3, Reykjavík. Fjelags-
menn fá umbúðakassana fyrir
minna en hálfvirði, eða 3 kr.
Aðstoð við viðgerðir úti á veg-
unum. Bílar með bílstjórum með
,,meira prófi“, sem fúsir eru til
þess að veita f.jelagsmönnum þá
aðstoð, sem þeir geta, við viðgerð-
ir úti á vegunum, eru auðkendir
rneð merki: Blár hringur merktur
F. 1. B. á hvítum grunni, með
áletruðu: Aðstoð við viðgerðir. —
Merkið e/sett fyrir ofan umbúða-
Lcassamerkið, sem áður var minst á.
Bílar þeir, sem hafa merkið ,,að“
oð við aðgerðir *, fá umbúða-
kassa fjelagsins ókeypis.
Stjórn f jelagsins skipa 9 menn:
Helgi Tómasson læknir, formaður;
Brynjólfur Stefánsson skrifstofu-
stjóri ritari; Árni Pjetursson lækn
ir, gjaldkeri. Formaður, ritari og
gjaldkeri skipa framkvæmdastjórn
fjelagsins. Meostjórnendur eru 6:
Egill, Yilhjálmsson, Erlendur Ein-
arsson, Erling Smith, Jón Guð-
laugsson, Kristinn J. Helgason og
Nikulás Friðriksson.
Til þess að annast daglegar
framkvæmdir, innheimtu o. þ. h.
hefir stjórnin í sumar ráðið lir.
Ólaf Á. Theill, Hverfisgötu 35.
Er skorað á alla bifreiðaeigend-
ur að gerast sem fyrst meðlimir
fjelagsins, til þess að gæta saní-
siginlegra hagsmuna og vinna að
sameiginlegum áhugamálum; Skrif
Jofan, innheimtumaður og allir úr
djórninni taka á móti nöfnum
lýrra fjelaga.
Fjelagsmenn eru ámintir um að
fá nýju fjelagsmerkin hjá hr.
caupm. Páli Stefanssyni, Lækjar-
orgi 1, Og að fá umbúðákassa á
ikrifstofu fjelagsins, Bankastræti
3, Reykjavík.
„Gustav Meyer“, þýski togarinn
*m tekinn var út af Meðallands-
jöru', kom hingað um hádesri í
®r; Einar Einarsson fyrrum skip-
?rra sigldi skipinu hingað. Skipið
om til Vestmannaeyja á sunnu-
agsmorgun. eftir 12 stunda ferð,
í frá Vestmannaeyjum til Rvíkur
ar skipið 15 klukkustundir. (tekk
■rðin vel.
Hafrannsóknaskipið ,Dana,‘ kom
til Siglufjarðar í fyrrakvöld. —
Hafði mjög skamma viðdvöl þar ^
og bjelt síðan vestur á Grænlands-
haf —
Mussolini fimmtngur
Mussolini hyltur af ungum fascistum.
Hinn 29. júlí átti Mussolini fim-
tugsafmæli- 1 tilefni af því flytur
eitt Norðurlandablaðið eftirfar-
ándi grein um hann:
, — Hann er aðeins 50 ára í
dag. Þrátt fyrir það, sem hann
hefir afkastað, er hann ennábesta
aklursskeiði. Lavour sameinaði ít-
alíu í eitt ríki. Mussolini liefir
sameinað alla títali í eina ]»jóð, og
þegar honum hafði tekist það, var
hann vart ferfugúr að áldri. Það
frægðarverk Ijans er afrek æsku-
mannsins, og það gat ekki hafa
verið framkvæmt nema með hug-
rekki og dugnaði æskunnar. En
]>að er heldur eigi hægt að skilja
það, nema að baki hafi staðið
„mannvit mikið“, pólitísk gagn-
rýni og* hyggjuvit í útreikningum.
Ef Mussolini hefði ekki haft
þessa kosti til að bera, mundi
siarf hans ekki hafa getað staðist
og yaxið að innri styrlrleik ár frá
ári. Þegar hann kom fram á sjón-
arsviðið sem leiðtogi, þá brostu
hinir vísu menn, sem vissu hvað
pólitík var, þeir, sem höfðu tekið
á leigu framtíð þjóðanna. Og þeir
sögðu: ..Ilvílíkm* skýjaglópur!
Veit hann ekki að hann er uppi
á öld þingræðjsins?“
En þegar fram í sótti gerðust
þeir alvarlegri, þeir brostu eltki
lengur, þeir urðu áhvggjufullir og
sögðu sem svo í gremju: „Þjóðar-
viljinn mun rísa upp gegn honum
og lieimta sinn rjett, því að hann
ei heilagur og lætur ekki kúgast“.
En í dag er Mussolini eflaust
merkasti stjórnmálamaðnr í lieimi,
qg æfistarf hans stendur nú fastar
en noklcru sinni áður. Hann bjarg-
aði þjóð sinni frá tvöföldum
háska: Frá kyrkingartökum kom-
múnista, og frá spillingu og á-
byrgðarleysi þingræðisins.
Hann tó.k sjálfur á sig alla ár,
byrgð gerða sinna, og hann sýndi
mönnum fram á að þjóðlífið er
dýrmætara en líf einstaklingsins.
Fascisminn byggir á framtíð þjóð-
arinnar, en ekki einstaklingsins,
því að þjóðin lifir, þótt einstak-
lingarnir falli frá. Mussolini hefír
yngt þjóð sína, hann hefir gert
þessa þjóð, sem stóð báðum fótum
aftur í fornöld, að æskuþjóð og
skapað henni trú á mátt sinn og
megin, og sýnt 'henni hvert *lrlut-
verk hún hefir í heiminum. Hann
einn skapaði hinn nýja anda, sem
nú einkennir ítölsku þjóðina og
kemur í ljós í stórkostlegum
framaverkum, svo sem hinu mikla
flugi ítalska flugvjelaflotans
heimsálfanna milli-
Gæfusöm er sú þjóð, sem eignast
slíkan foringja. á vandræðatímum!
fDinning.
Sorgin er hljóð. Söknuðurinn
sviftir mann orðum.
En minningin um Jón Ágúst
Jónsson frá Vatnsleysu lifir í hug-
um þeirra sem áttu því láni að
fagna að eiga samleið með honum
litla stund. ÖlÍum þeim er hann
ógleymanlegur. Glaðlyndi hans og
göfug* framkoma ljettu hversdags-
stritið. Öllum var liann góður, þó
einkum þeim er lasburða voru eða
áttu við bág kjör að búa og gam-
almenni hafði hann sjerstakt yndi
af að gleðja. Með örfáum orðuin
og hlýju handtaki gat hann vakið
bros á andlitum þeim sem áður
voru hrygg og raunamædd. Hann
var sem geisli af Guðj sendur á
ötu samferðantannanna. Birtu og
yl lagði frá honum alt nm kriiyj,
og ósjálfrátt benti hann til hæða,
upp til hinna eilífu Ijóssins linda.
Og nú er hann horfinn „yfir
hel og harma, heim í Drottins sól-
arlönd“.
I Hinn 10. febrúar síðastliðinn
andaðist hann eftir 'langa og
stranga sjúkdómsþraut, sem hann
bar með þeirri geðró og stillingu
er einkendi hann alt hans líf
Æfiatriði hans kann jeg ekki að
rekja. Hann var fæddur og upp-
aiinn vestur á Dýrafirði, fluttist
um tvítugsaldur suður á land og
rcisíi bú skömmu síðar að Vatns-
leysn í Biskupstungum. Bjó hann
þar* nálægt tuttugu árum og er
því oftast kendur við þann bæ.
Síðustu árin starfaði hann við
ullarverksmiðjuna „Framtíðin* ‘
hjer í Reykjavík, en heimili hans
var á Grettisgötu 30. Hann varð
aðeins rúmlega hálfimtugur að
aldri (f. 3. ágúst 1887). Hann var
kvæntur Margrjeti Gisladóttur,
sem nú syrgir mann sinn ásamt
Til Hkureyrar
alla mánudaga, þriðjudaga, fimtu-
daga og föstudaga. Afgreiðsluna í
Reykjavík hefir Aðalstöðin. Simi
1383.
BlfreiðastSð Hkureyrar.
Simi ð.
tveimur dætrum þeirra og aldr-
aðri móður hans.
Jón sál. var góðum gáfum gædd-
ur og vel að sjer, voru því margir
er til hans leituðu um vandamál
sín og leysti hann þau af fúsum
liuga og ættum við því, sem nut-
um góðs af návist hans, að muna
eítir gömlu konunni, rjettum henni
höndina og reynum að ljetta henni
gönguna síðasta spölinn. Jeg veit
að mannlegur kraftur megnar ekki
að græða sorgarsárin, ep samhug-
ur og samúð góðra vina getur, ef
til vill, dregið úr sárasta sviðan-
um. —
Drottinn blessi hann og *all.a
hans ástvini og veiti þeim stýrk.
Gamall vinur.
Guðm. Þórðarson.
Fæddur 13. sept. 1902.
Dáinn í Boston 23. maí 1933.
Kveðja frá æskuvini.
Jeg krýp við beð þinn,
kæri vinur minn,
og krans þjer vef
úr dýrum bernskuminjum.
í himinlindum laugarðu’ anda þinn
er leitar enn
að nýjum gróðurvinjum.
Þú áttir mörg
en viðkvæm vonablóm,
er vorsins unað
glæddu’ í huga þínum; —
nú harma vinir
höfgan skapadóm,
er hreif þau frá oss
mitt í blóma sínum.
Sem augnablik
á andans þroskaleið
er æfin lijer,
á þessum jarðlífsvegi.
Þín bíða, vinur, önnur æfiskeið
við árdagsroða af nýjum vinnudegi
Jeg veit þú lifir ennþá
einnig hjer —
sem orkulind,
er nýjar brautir ryður,
því bróðurástin býr í hjarta þjer
og beinir kærleiksgeislum
hingað niður.
Með klöklrri lund
jeg' kveð þig, horfni vin,
því kær er minning
eftir slíkan bi'óður; —
hún gefur von
um dýrlegt skúraskin,
hún skapar hjá oss
fegri sumargróður.
— .—' — Á brautir þínar
blessuð sólin skín,
og beiskju þrungin
jarðlífssárin græðir.
Við biðjum gnð
að blessa sporin þín,
uns bjarma slær
á ljóssins sigurhæðir. —-
F. H.