Morgunblaðið - 08.08.1933, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.08.1933, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 JHorgtusMaMft : H.f. Árraknr, litUtTlki lUtatJörar: Jön KJaxtanaaoa. Valtýr Btaf&nMOBi, SJtatJörn or afcralSala: Austuratmtl g. — llaal XIII. Aaclýalnaaatjörl: M. Hafbors. Amalf aínaaakrlf atofa: Auaturstraetl 1.7. — Blaai 1701 Kalaaaalaamr: Jön Kjartanaaon nr. 1741. Valtýr Stef&naaon nr. 4111. B. Hafberc nr. 1770. AakriftaaJald' InnanlanÆa kr. 1.00 & aaAaBVL Vtanlanda kr. 1.10 & aa&naBL 1 lansaaðlu 10 aura olntahlB. 20 anra aao« UlMk Kommúnistar. * Kommúnistaflokkur íslands ; g'erist æði uppvöðslusamur á Siglu- firði um þessar mundir. Þar nýtur hann sín best. Þar kemur „stefn- an“ greinilegast í Ijós, enda er það ekki ný bó.la, að Siglufjörður sje um síldveiðatímann vettvang- ur þeirra manna, s-em á lægsta menningarstigi standa í þjóðfje- lagi voru. Er þetta ekki sagt til að niðra íbúum Siglufjarðar, enda væri slíkt órjettmætt. Þeir hafa mesta skapraunina af því haft, ihvaða srip bæjarlífið fær þar oft *og einatt, þegar flest er þar um . aðkomumenn. Pyrir skömmu gerðu kommúnist- ;ar á Siglufirði alvarlega tilfaun tii þess að hleypa þar allri. síldar- . alvýmu i strand. Þetta mistókst. Og þó náðu þess- ir óaldarseggir að nokkru leyti. til- :gangi sínum, er Armann Svejnsson ■ sagði upp starfi sínu á síldarstöð Jngvars Guðjónssonar. Það mun hafa þótt dýrt spaug, að hleypa síldarútgerð Siglfirð- inga í tvísýnu, eins og þá stóð. En það er augijóst mál, að sam- viskuiausir fjandmenn hins ísl. ] þjóðf jelags, kommúnistadrengir, færa sig upp á skaftið, þegar und- ; an er látið. Atburðirnir á Siglufirði á sunnu 'daginn, eru eðlileg afleiðing af ;«ndahlátssemi þeirri, er ltomm- ; únistum var þar sýnd um daginn. Þeim tókst ekki að stöðva síld- ;aratvinnuna í það sinn. Þá taka þeir upp nýja aðferð. Til Siglufjarðar koma þýskir ■ verslunarerindreltar. í þeim erincl- Kiii að kynna sjer íslenska síldar- verkun og framleiðslu. Það er vitað, að afkoma síldar- útgerðarinnar nú. sjómanna, verka mamia og útgerðarmanna, er mjög undir því komin, hvernig tekst :með viðskiftin við Þjóðverja. Þetta vita kommixnistapiltarnir ■eltki síður en aðrir. Þá grípa þeir til þess bragðs, að sýna þýsku þjóðinni þá frek- ilegustu og strákslegustu móðgun, sem götudrengir á annað borð geta sýnt. Þeir skera niður þýska stjórn- arfánanu, og viðhafa um leið ým- iskonar ókvæðisorð í garð þess- :arar viðskiftaþjóðar vorrar, í von um, að með því megi takast að ó- frægja svo þjóðina í angum útlend inga, að miður takist nm væntan- Teg viðskifti. , Mikil síldveiði var fyrir norðan :ó sunnudag og í gær símaði frjetta rritari blaðsins á Siglufirði. Siglfirskir kommúnistar svívirða stjórnarfána Þjóðverja. Þeir skera fánann niður af húsi þýska ræð- ismannsins, rífa hann í tætlur, og hrópa um leið ýms ókvæðisorð. Svohljóðandi skeyti barst frjetta stofu blaðamanna á sunnudaginn: Siglufirði, PB. sunnudag. Kommúnistar rjeðust í dag að bústað þýska ræðismannsins og skáru niður fána þýska stjórnar- flokksins með hakakrossinum, sem ræðismaðurinn hafði dregið á btöng í fyrsta sinni í tilefni þess, að margir Þjeðvei’jar eru nú í bænum. Rifu kommúnistar fánann í tætlur og tróðu hann niður í for- ina og hrópuðu ýms ókvæðisorð um Hitler og ræðismanninn. — Iljelt svo flokkurinn á braut. — Kona ræðismannsins var ein heima er óspektirnar voru gerðar. Samtal við Sophus Blöndal. í gær átti blaðið ta] við ræðis: mann Þjóðverja á Siglufirði, Sophus Blöndal útgerðarmann. Honum sagðist frá á þessa leið: Það er venja lijer á Siglufirði, að ræðisménn erlendra þjóða draga fána á stöng úm helgar, um síldveiðatímann, til leiðbein- ingar fyrir útlendinga er hingað koma. Þyí um helgar eru hjer að jafnaði mörg erlend skip á höfn- inni. Samkvæmt nýrri tilskipun er jeg hefi fengið, eiga þýskir r^ðis- menn að hafa tvo fána, þjóðfán-' ann og stjórnaríáuann, með þórs- merkínu. En jeg hafði ekki fyrri en í gær tvær fánastengur á íbúð- arhúsi mínu. Þótti mjer sjerstak- lega vel til fallið á sunnudaginn, að draga stjórnarfánann upp í fyrsta sinni, því hjer voru inargir Þjóðverjar nýkomnir til bæjarins, m. a. nokkrir síldarkaupmenn, er hafa í hyggju að kaupa hjer síld. Jeg var heima við eina klukku-. stund eftir að jeg hafði dregið upp fánana, og bar ekkert til tíð- inda- Fór jeg síðan suður á bryggj ur. Þangað frjetti jeg, að 30—40 kommúnistar hefðu komið heim að húsi mínu og skorið niður þórsliamarsfánann. Sneri jeg strax: heimteiðis. En er jeg kom lieim voru kommúnistar á bak og burt. En tætlur lágu nálægt húsinu af fánanum, og hirti jeg þær. En sjónarvottar utan kommún- ista hópsins segja svo frá, að fyr- irliði koinmúnista þarna hafi verið Þóroddur Guðmundsson. Pánann skáru þeir niður af stönginni, og síðan skáru þeir og rifu hann í sundur. Meðan á þessu stóð hrópuðu þeir ýms ókvæðisorð um Hitler og nazismann. En síðan sneru þeir brott. Stað- næmdust þeir aðeins fáar mínútur við húsið. — Höfðu kommúnistar á Siglu- firði ekki hótað því fyrr, að skera niður fánann? — Eitthvað heyrði jeg um það í vor, sagði S. B., en jeg taldi enga ástæðu til að skifta sjer neitt af því. —- Hvað hefir verið gert í mál- i inu ? Jeg' tilkynti til aðalræðismanns- ins í Reykjavík hvað gerst hefði. Stjórnin tók síðan málið í sínar hendur. Rjettarhöld byrjuðu á sunnudag, og er ekki lokið enn. Er búist við að þeim verði lokið í kvöld. Frá rjettarhaldinu. (Einkaskeyti). Siglufirði, mánudag. Rjettarliöld út af árás komrnún- ista á þýska konsúlatið stóðu yfir í gær til miðnættis, eða samfleytt 11 12 stundir. Halda þau áfram í daga og mun verða lokið í kvöld. Rjettarprófin verða síðan send ráðuneytinu suður. Margir voru yfirheýrðir í gær, því að fjöldi fólks í nærliggjandi húsum horfði á er ofbeldismenn- irnir brutust inn á friðhelgan reit umliverfis bautasteininn sem Norð menn reistu til minningar um Haf- liða heitinn Guðmundsson, en steinninn stendur framan við bú- slað ra‘ðismannsiiis, Sophusar Blöndal, tengdasonar Hafliða. Kommúnistar játuðu á sig verknaðinn og hafa í hótun- um að endurtaka hann. Pjórir sakborningar voru yfir- heyrðir í gær, þeir kommúnistarn- ir Þóroddur Guðmundsson, Gunn- ar Jóhannssou, Aðalbjörn Pjeturs- son og Eyjólíur nokkur frá Isa- firði. Hefir kommúnista a?singa- sk.ríll safnast hingað hvaðanæfa af landinu og er ísfirðingurinn einn þeirra. Sakborningarnir játuðu tregðu- laust verknaðinn og kváðust reiðu- búnir að endurtaka hann ef tæki- færi byðist. 23 bolsa-spæjarar teknir fastir í Fínnlandi. Hinn 17. júlí kom sú fregn til sænskra blaða 'frá Helsingfors, að lögreglan í Pinnlandi hefði veitt vel. Hún hefði sem sje náð í mann, sem Nieminen heitir, og var njósnari fyrir Rússa i Finn- landi og forstjóri leynifjelags, er stendur fyrir njósnum þar, eftir fyrirskipunum Sovjet-stjómarinn- ar. Og eftir þvi náði lögreglan 1 22 af þessum njósnurum, og hef- ir þeim öllum verið st.efnt, fyrir dómstólinn í Vasa. Þegar Nieminen var tekinn fast- ur fundust á lionum fölsuð vega- brjef, útbúin af Sovjet-stjórninni. Árið 1929 bafði hann farið huldu höfði frá Finnlandi yfir til Rúss- lands og gengið þar á njósnara- skóla stjórnarimjar. Að „námi“ loknu hafði Sovjet-stjórnin feng- ið honum of fjár í finskum mörk- um og fór hann þá til Finnlands aftur til þess að stjórna njósn- unum þar. Stofnaði hann þar margar kommúnista-„cellur“, sem hjeldu njósnunum uppi undir yfir- stjói’n hans og samkvæmt f.yrir- mælum Sovjet-stjórnarinnar. Flug Griersons. Hann kom hingað laust fyrir kl. 3 í gcer. Á sunnudagsmorgun kom hing- að frjett um það, að enski flug- maðurinn, John Grierson, hefði lagt á stað frá Scapa Flow kl. 9.45 og ferðinni fyrst heitið til Pæreyja, en ef veðurútlit væri sæmilegt þegar til Þórshafnar kæmi, var það ætlan hans að halda áfram til íslands. Veðurliorfur voru þá ekki góð- ei'. — Um morguninn hafði verið þrumuveður og ofviðri í Scapa Flow og tafði það burtför flug- mannsins. Og þótt það veður lægði, voru horfur ekki góðar, vestan og norðvestan vindur all- hvass í hafinu alla leið, en þó talsyert hvassara milli Pæreyja og fslands heldur. en milli orkneyja og Færeyja. Mikil rigning var í Færeyjum um það leyti, sem flug- maðurinn lagði á stað. Um miðjan dag á sunnudag frjettist, að flugmaðurinn hefði komið til Þórshafnar í Færeyjum kl. 12,50 eftir hádegi. Varð liann að fljúga nokkra, hringa yfir bæ- inn og höfnina til þess að átta sig á lendingarskilyrðum, áður en hann þyrði að setjast. Beið hann nú eftír veðurfregn- um hjeðan um það hvort hann skyldi halda áfram lengra þann daginn, en kl. um 3 var hann á- kveðinn í því að halda kyrru fyr- ir í Færeyjum, það sem eftir var dagsins, og freista ekki flugsins fyr en í gær. Veðurútlit var lijer ekki gott í gærmorgun, rigning mikil og dimmviðri, en fremur horfur á því að birta mundi. Kl. 5 fekk Grierson veðurfregn- ir hjeðan, og kl. 7 var hann enn ófarinn frá Færeyjum. Þótti þá bera til beggja vona um það hvort hann mundi fljúga þann daginn, en svo mun veður hafa tekið að birta í Færeyjum og kl. 8.30 lagði flugmaðurinn á stað þaðan. Veður hjelst dimt hjer með rigningu, þó heldur tæki að ljetta þegar fram á daginn kom. Sím- stöðvar á Súðurlandinu, þar sem liklegt þótti að verða mundi vart við flugmanninn, er hann kæmi að landinu, höfðu verið beðnar að til- kynna þegar hingað til Reylrjavík- ur, þegar vart yrði við hann. Um hádegi kom símfrégn frá Vík-i Mýrdal um það, að þar væri svo mikil þoka og dimmviðri að öldungis væri óvíst að flugmanns- ins jn-ði vart þegar hann færi þar fram hjá. Þegar kl. var rúmlega eitt frjett ist þó að hann hefði farið, fram hjá Hjörleifshöfða, og skömmu síðar að hann væri kominn fram lijá Vík. Kl. 1% varð hans vart hjá Vestmannaeyjum, en síðan frjettist ekkert til hans langa hríð. Og þegar kl. var langt gengin þrjú, fóru menn hjer að gerast, órólegir og óttuðust að eitthvað hefði orðið að honum. Beið fjöldi fólks víða þar sem helst myndi líkur til þess að sjá til hans fyrst. Bjuggust flestir við, að hans væri f'ð vænta úr vesturátt, eins og ann- ara flugmanna, sem hingað hafa komið, og störðu því þangað út í þok'una og súldið. En þegar kl. vantaði eitthvað 10 minútur í þrjú sast til hans í ausfri og virtist sem hann kæmi stefnuna frá Þing- ivöllum. Hann bar þá hratt yfir og var ekki neitt að tvínóna við það að lenda. Flaug hann einu sinni yfir bæinn og skelti sjer svo nið- ur á ytri höfnina, skamt frá belgiska skemtiferðaskipinu. Þar* var hafnarbáturinn fyrir og leið- beindi flugvjelinni inn á innri höfnina- Fór hann fyrir en hún á eftir vestur í krikann hjá Örfiris- ev. þar sem flugyjel Ahrenbergs lá forðum. Var þarna útbúið akh- erisdufl fyrir hana og tókst flug- manninum að leggjast að því og festa flugvjelina við það, enda. þótt hann væri einn síns liðs. Fjórir bátar voru á sveimi í kring um hann og ætluðu að að- stoða hann ef með þyrfti, en hann þóttist einfær um það sem gera þurfti, að ganga frá flugvjelinni að öllu leyti. En þegar hann hafði lokið því, steig hann á hafnar- bátinn og fór í land. Lenti bátur- inn við bryggju hjá nýju upp- fyllingunni vestan við Grófina. —> Þar beið bíll flugmannsins og ók með hann til Hótel Borg, þar sem hann dvelur meðan liann stendur hjer við. En óvíst er, hve löng sú. dvöl verður. Það er ákveðið að draga flugvjelina upp í Slippinn, athuga hana þar og gera við hana, ef með þarf. Grierson br ungur og gjörfu,- legur maður, aðeins 24 ára gamall. Hann vill ekkert segja um flug- fvrirætlan sína, og sem minst tala um sjálfan sig. En í ensku blaði er stuttlega getið um þennan flugleiðangur hans og sagt frá manninum sjálf- um. Hann ætlar að fljúga alla leið til New York og er í mjög lítilli flugvjel, sem Englendingar nefna ,.moth“, eða mölflugur, og vann hann það sjer til frægðar fyrir tveimur árum að fljiiga í þessari sömn flugvjel alla leið frá Kar- aclii í Indlandi til Englands. Nú er flugvjelin betur búin að ýmsura nýtísku tækjum, svo sem Marconi miðunarstöð, og tekur flugmaður- inn stefnu eftir þeim miðunum, sem hann fær frá loftskeytastöðv- um á leiðinni. Flugvjelin biluð. Skömmu eftir að Grierson fór frá Færeyjum, varð lianu var við einliverja bilun í hreyfli flugvjel- arinnar og varð hann því að fara hægt. I gær var flugvjelin dregin upp í Slipp. og í dag verður farið með hana inn í Vatnagarða ef veður leyfir. Verður hún dregin þar inn í flugskálann og þar ætl- ar Grierson að taka hreyfilinn sundur og vita hvað að honum er. Enn er óvíst hve löng töf verður Irjer vegna þessa, en búast má við að hann verði hjer nokkra daga. Áheit á Helgafell kr. 2.00 frá, N. N. 12. júlí 1933. S. Ó. L.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.