Morgunblaðið - 25.08.1933, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
5kipulag5ferðir 1930,
Eftír Gaðmtind Hannesson.
Það liefir
að .sífelt hafa
skipulags
að afgreiða,
Tar eftir. Er
bæina og leitt fyrir skipulags-
nefndina, sem verður að hafa
>;kipulagsstörfin í hjáverkum. —
Húsameistari ríkisins hefir oft í
mörg horn að líta og verður stund-
um að iáta skipulagið sitja á hak-
anum.
I þetta sinn stóð til að gera
skipulag á Húsavík og Sauðár-
króki, hvað sem um meira yrði.
Húsavík hafði lengi beðið, en um
Sauðárkrók tókst því miður svo
til, að uppdrátturinn af bænum
A'ar ekki til í tæka tíð, svo þar var
•ekki unt að gera skipulag í þetta
sinn. Tlt var þetta, en livað sem
því leið, þá lögðum við húsameist-
ari af stað með Gullfossi til Húsa-
víkur 18. júlí með töskur okkar
■og tæki.
Um ferðina er fátt að segja, því
viðkomustaðir voru fáir. Við kom-
hvað sagt frá kommúnisma í fyrstu
og ekki gefið um að hann
enuaði illa.'En úr
því að kommúnisminn geisar þar á
Siglufirði, þá ætti stjórnin að nota
tækifærið og safna þangað öllum
landsins kommúnistum, en reka
aðra burtn. Fengju menn þá að
sj.á, hversu kommimistunum bún-
aðist, er þeir væru einir um hit-
una og ættu að bjarga sjer sjálfir.
Ef þeim farnaoist betur en öðrilm
landsmönnum, þá mvndi það
styrkja þeirra málstað meira en
allar iirókaræður og öll verkföll.
A leiðinni inn Eyjafjörð sá jeg
Olafsfjarðarþorpið tilsýndar og
þótti leitt að geta ekki komið þar
við og sjeð hvað breyst hefði til
bóta síðan i fyrra. A Dalvík og í
Hrísey er nú komin svo mikil
bygð, að það mj'iidi borga sig vel
fyrir þessi þorp að fá gert þar
skipulag, því alt verður erfiðara
og dýrara, þegar mörg steinhús
liafa verið bygð með lítilli fyrir-
hvggju.
gengið svo undanfarið,
fleiri kauptún óskað , kristni,
gerðar en unt hefir verið stóð stutt
svo fljótt sem æskt
þetta bagalegt fyrir
nm á ísafjörð og Siglufjörð og á
báðum stöðum gekk mestnr tíminn
til þess að svipast eftir hvað bygt
hefði verið og hyggja að skipu-
laginu. Á ísafirði var deila um
byggingu á útgerðarhúsi og skipu-
lagi við Norðurtangabryggjuna og
var úr þessu greitt eftir föngum-
Hafa ísfirðingar í hyggju að
byggja þar nýja bæjarbryggju.
ísfirðingar hafa komið sjer upp
•dáiítilli gróðrarstöð eða skraut-
garði skamt fyrir sunnan og ofan
sjúkrahúsið. Þótti mjer fremur ó-
líklegt að trjágarður þrifist þar,
•en þó ieit þetta hlómlega út og
hafði þroskast furðuvel. Mun svo
víðast vera, að trje og runnar
þrífast í kauptúnum vorum, ef
menn kunna með að fara og má
þetta vei-a til mikillar prýði. —
Hinsvegar mega menn vara sig á
því að gróðursetja trje fyrir fram-
an glugga sína, ekki síst á suður-
hlið, því lifi trje taka þau af alla
sól og gera dimt í herbergjunum-
Verður svo seinni villan verri
hinni fyrj'i.
Á Siglufirði dvaldi jeg skamt
<og fekk lítið aðhafst annað en
sað athuga nokkur skipulagsatriði,
gaf mjer einu sinni ekki tíma til
þess að heimsækja Helga lækni,
og sjá hve mikið hann hefði yngst
síðan jeg sá hann síðast. Helgi er
nú gamall orðinn, en er þó svo
teinrjettur, að ungir menn eru
kengbognir í samanburði við hann.
Siglfirðingar hafa reist sjer
kirkju, sem Árni Finsen húsameist-
ari gerði uppdrátt að. Var svo
mikil. deila um hvar hún ætti að
síanda, að bæjarbúar skiftust um
tima í fjandsamlega flokka, og
gleymdu öllum stjómmálum. Þessu
lauk með því, að kirkjan var bygð
þar sem skipulagsnefnd taldi hana
best setta, á litlum hjalla fyrir
•enda aðalgötunnar, og eru nú allir
sammála um, að þar sómi hún sjer
vel, þegar nokltrir húskumhaldar
hverfa og mun þess ekki langt að
biða. En það lítur út fyrir að
kirkjan liafi haft fáránleg áhrif á
Siglfirðinga, því óðar en hún var
bygð, hófst þar hin magnaðasta
kommúnistaöld.
Má vera, að presturinn hafi eitt-
Það voru mikil viðbrigði, að
koma úr kuldanum og rigning-
unni hjer syðra í hitann og sól-
skinið nyrðra. Veðrið á Akureyri
var líkast því sem gerist á góðum
sumardögum erlendis og alt í sum-
arskrúði. Ber meira á þessu á Ak-
ureyri en víðast annars staðar, þ\rí
AÍða eru trjálundar og blómreitir
við húsin og á einum stað vöfðust
blómstrandi kíifurjurtir upp hús-
veggina.
Á Akureyi i stóðum við við í 2
daga, til þess að bíða eftir ferð
til Húsavíkur. G.ekk mestur tím-
inn í það að athuga ýmislegt við-
víkjandi byggingum og skipulagi,
því mikið hefir verið bygt þar á.
siðustu árum, jafnvel heilar götur.
Mörg af þessum nýju húsum eru
snotur, en ]»ó mætti betur vera, og
sumir kvistirnir sýndust mjer
spilla húsunum. Kvistasmíðin tekst
oftast betur í Rvík, þó misjafnir
sjeu þeir. Gluggagerð er þar víð-
ast með sjerstöku sniði, engar
gluggagrindur en ,sprossarnir‘ eru
festir í karminn. Rúðurnar eru
festar með trjelistum í stað kíttis,
og ein í málmsumgerð til þess að
opna. Þetta er sjálfsagt ódýrara,
en ekki kunni jeg allskostar við
það. Sagt ATar mjer og, að vat.n
vildi oft leita inn með lausu rúð-
unni. Mjer er nær að halda, að
hreinlegra væri að spara alla trje-
glugga, og skifta gluggaopinu
eftir þörfum með steyptum stólp-
um (ór vikursteypu?) ogfella rúð-
urnar í múrinn. En þá þyrfti auð-
vitað að sjá fyrir sjerstöku loft-
opi t. d. neðan gluggans. Mjer
verður ætið starsýnt á ]»essa
gluggagerð, þegar jeg kem til Ak-
ureyrar.
Eins og mörgum er kunnugt býr
Sveinbjörn Jónsson húsameistari
til sjerstaka hoísteina úr steypu,
sem hanri nefnir ,,r“ steina eftir
laginu. Verður sæmilegt holrúm í
veggjum, sem. hlaðnir eru úr steini'
þessum og er það fylt með mó-
mylsnu jafnóðum og veggurinn er
hlaðinn. Steinar þessir eru nú
gerðir nokkru þvkkari en áður og
ei' ]>að vafalaust til bóta. Ekki
leitst mjer aílskostar á þessa
veggjagerð í fyrstu og óttaðist. að
vatn kynni að komast í móinn, en
veggirnir hafa þó gefist ailvel að
sögn, húsin verið rakalaus og hlý.
Þó hefir borið á því, að sprungur
Iiafa komið í innri múrinn, stund-
um niður frá glúggaliornum og
eru þá óreglulegar, en oftar liggja
slíkar sprungur lárjett eftir steina
mótinu- Þær geta orðið um 2 mm.
fi breidd. Sennilega stafa sprungur
þessar af þurk og hita inni í stof-
unum og elcki sjást ]»ær á útveggj-
um að utan.
Á Akureyri sá jeg sorglegt dæmi
þess, að illa gerð steinsteypa eða
úr illu efni er verra en ekkert
verk. Þar var verið að tala um að
rífa niður nýlegt íbúðarhús. —
Veggjasteypan var svo ónýt, að
'. púss.“ toldi ekki á henni. Þannig
eru mörg steypuhús hjer á landi
og það má pjakka göt á veggina
með einföldum broddstaf, jafnvel
með vænum ljdíli. Það er eins og
menn lialdi, að allur sementsgraut-
ur verði að góðri steypu og enga
kunnáttu þurfi til þess að steypa
Lraustan vegg. Og ekki nenna
menn að lesa leiðbeiningar, sem
ritaðar hafa verið. Jeg liefi skrifað
heila bók um steinsteypu fyrir al-
þýðu og Jón Þorlákssona mikla og
vandaða ritgerð í Verkfræðinga-
tímaritinu, þetta ár. Hjer þurfa
rnenn að taka sjer fram. Við fá
verk skiftir það jafnmiklu og við
steinsteypu, hvernig verkið er unn-
iC og efnin valin.
Til Húsavíkur komum við 22.
júlí í sólskini og sumarhita. Eins
og kunnugt er liggur bærinn upp
af breiðri AÚk austur úr Skjálf-
andaflóa.
Upp frá sjó gengur hár brattur
sjávarbakki og er lítið sem ekkert
undiriendi neðan hans, svo bærinn
er bygður ofan bakkans. Norðan
til er bæjarstæðið hálent, sunnan
Húsavíkurhöfða og. er þar víðast
gott byggingaland. Oðru máli gegn
ir um alt miðbik bæjarins. Það er
ein flatneskja til þess að gera og
var þar fyrrum blaut mómýri, en
liefir verið þurkuð fyrir löngu og
breytt í stóreflis tún. Á mestum
hluta þessa svæðis var tvísýnt
hvar byggja mætti, vegna þess að
menn vissu ógjörla hve djúpt var
á föstum jarðvegi. Þó mun þar
víðast bj7ggilegt. Á þessari flat-
nesltju er lágur hóll, Borgarhóll,
þar á Garðar SAmfarsson að hafa
hygt hið fyrsta hús á Islandi.
nokkru áður’en Ingólfur Arnarson
nam lijer land. Segir Landnáma,
að Garðar liafi dvalið einn vetur á
Húsavík. Á hóli þessum hafa Hús-
víkingar bygt barnaskóla sinn.
ITm þurkun og ræktun mýrar-
innar hefi jeg lieyrt þá sögu, að
gömlu Htisvíkingarnir hafi haft
svo mikið að starfa í þjónustu
Bakkusar, að þeir höfðu engan
tíma til þess að fást við jarðrækt,
Svo stofnaði Gísli læknir Pjeturs-
son þar bindindisfjelag og sneri
lýðnum frá Bakkusi í mýrina, svo
liún varð fljótt að þurru og þokka,-
legu túnir kúnum fjölgaði, börnin
fengu mjólk s\ro þetta varð hin
mesta siðabót, Suðurhluti bæjar-
slæðisins er að mestu þurlendur.
Norðan hans rennur lítil á til sjáv-
ar, Húsavíkurá og nota bæjarbúar
hana til rafveitu. Vatnsveitu hafa
þeir og.
Húsavík var lengi lítið kaup-
tún, sjávarútvegur rýr og aðeins
? sumrinu. Þetía hefir nú breyst
og þorpið vaxið til muna. Árið
1910 voru þar uni 600 íbúar, en nú
eru þeir 900 eða fleiri. Þar eru nú
um 20 vjelbátar en flestir smáir,
3—11 tonna. Báta þessa verður að
'sctja, því ekki er þeim óhætt á
svo opinni höfn, síst að vetrinum,
en nú fiskast þar bæði sumar og
vetur. Nú hafa þorpsbúar með
höndum mikla bryggjusmíð og á
bryggjan að Arerða hafnargarðui",
en annar garður á að koma síðar
frá höfðanum norðan víkurinnar.
Myndast þá innilukt höfn. Komist
þetta í framkvæmd' styður það ó-
efað allan vöxt og viðgang bæjar-
ins. Bryggjusmíðinni var þannig-
hagað, að trje voru rekin niður í
röð með fallhamri, hvert við ann-
að, og bnndin ramlega saman með
járni. Þessar stauraraðir mynduðu
hliðar bryggjunnar og ' var svo
fylt upi» með lausagrjóti milli
þeirra. Er nú eftir að vita, hversu
þetta stenst sjávarrótið að vetrin-
um, en sjálfsagt verður þetta ó-
dýrara en steinsteypa.
Þarna fyrir neðan sjávarbakk-
ann, frá nýju bryg'gjunni og norð-
ur að. hinum nýbygðu útvegs og
frystihúsum kaupfjelagsins, er
gert ráð fyrir all-langri uppfyll-
ingu, og verður þar þá ærið land
fyrir útvegshús. Frá þessu út vegs-
svæði verða síðan lágðir bílvegir,
bæði að utan og sunnan upp á bakk
ana, fyrir fiskiflutning o. fl. Ekki
er þó hlaupið að þessu, því bakk-
arnir eru háir og úr óvinnandi
móhellu. Yar því jafnvel gert ráð
fyrir, að leggja annan aðalveginn
upp árgilið, þar sem Húsavíkurá
rennur, og setja ána á alllöngum
kafla í holræsi-
Fiskinn þurka Húsvíkingar á
túnunum ofan víkurinnar og breiða,
á vírstrengi eða trjegrindur. Hefir
]»etta gefist betur en grjótreitir,
því fiskurinn vill brenna eða soðna
á þeim. Þó er vafalaust betra þurk
pláss á hólum nokkrum í suður-
•jaðiú bæjarins og var gert ráð
fyrir að þar yrðu frámbúðar reit-
iruir.
Eftirtektarvert ér það, og öðr-
um bæjum til fyrirmyndar, að á
Húsavík sjest enginn óþverri í
fjörunni, ekkert slóg eða slor, þó
mikill fiskur berist á land. Það er
stranglega bannað, að kasta,
nokkru slíku í fjöruna. Þetta þótti
liart í fyrstu, en nú telja allir
]iað sjálfsagt, og nú er alt slóg
vandlega hirt og notað. Hausa og
og hryggi þurka menn og Björn
■Jósefsson læknir á beinamjöls-
verksmiðju, sem breyt.ir þessu í
beinamjök Með því að flýta sem
rnest fyrir þurkuninni, og láta sem
minst maðka eða úldna, hefir tek-
ist að fá venjufremur gott og nær-
ingarríkt mjöl. Alt slóg nota þorps
búar sein áburð, og það eru undur
að sjá hversu þeim t.ekst að breyta
jafnvel ófrjóum leirjarðvegi og
berum melum í frjósamt land.
Verkin sýna merkin. ÖIl mómýrin
er orðin að túni og væn spilda af
fjallshlíðinni neðan til og Höfð-
anum. Bíerinn er umkringdur af
túnum, og var mjer sagt að um
ein dagslátta túns kæmi á hvern
þorpsbúa. Geri aðrir betur. Það er
líka ódýrt að rækta á Húsavík. Að
plægja, herfa og sá 1 dagsl. i auð-
unnum móum kostar 70 kr., en á-
burð og fræ leggur þá eigándinn
til. — Erh.
Valðar
ísleuskar kartöflnr
á 10 aura !/2 kg.
Versl. Einars Eyfólfssonar
Sími 3586.
Mesta
og
Besta
Grænmett
jtessa árs:
Tomatar
Asíur
Ag-úrkur
Blómkál
Rauðkál
Hvítkál
Charlottenlaukur
Dill
Persille
Salat
Gulrætur
Rauðbeður
Púrrur
Selleri.
auiamji
Kosningavísur.
Þegar útvarpið hafði birt kosn-
ingaúrslitin, urðu bónda nokkrum
þessar vísu á munni:
Fti’ á stígum styrjaldar
stálið margan bryður.
Frægir kappar Framsóknar
falla hrönnum niður.
Hlaut þar Magnús, hraustur kall,
holund inn að beini.
Lárus niður skotinn skall,
skorinn síra Steini.
Húnvetningar hvöttu geir,
í hornin trú’ eg þeir blási,
þVí frækilega feldu þeir
forsetann í Ási.
Steingrímur hnaut og liníga hlaut
— hörð er þraut í strandi —
undan flaut og upp ei skaut
— öfga brautryðjandi.
Ungur Thórs í víking vatt
víga slcrýddur Iiökli.
Þegar Hannes dauður datt
drundi í Snæfellsjökli.
Framsókn haugar sína sveit
sorgar baugum kvalin.
Jónas augum ýrðar leit
yfir drauga-valinn.
Dýrt spaug. Dómstóll í París
liefir ákveðið, að þegar maður
|uir í borg kemst upp á milli
bjóna, á hjónabandsspillirinn að
greiða allan kostnað af hjóna-
skilnaðinum.
Allur er varinn góður. Auðmað-
ur einn í Ameriku hefir látið gera
sjer örk mikla, sjer til lífsbjargar,
ef nýtt Nóa-flóð kæmi.