Morgunblaðið - 30.08.1933, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.1933, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ r i ISmá-auglýsingarf mmmmmmmmmm mmmasazisami' Miðdagsmatur (2 heitir rjettir) fæst daglega heimsendur. Kristín Thoroddsen, Fríkirkju’-eg 3. — Til Borgarfjarðar og Borgarness áila mánudaga og fimtudaga. Kýja BifreiðastSðia. Sími 1216 (tvær línur). ; TTínar margeftirspurðu ljósu : liarlm. regnkðpur 5 n eru nú komnar aftur • og kosta aðeina ? kr. 12.00. VOrahúsli. NV rúllupylsa og kœfa KLEIN. Baldursgötu 14. Sími 3073. Til flkurevrar aii&. mánudaga, þriðjudaga, fimtu- daga og föstudaga. Afgreiðsluna í Beykjavík hefir Aðalstöðin. Sínu 1383. BlfreiðastSð Hkureyrar. Sími 9. Bflferðlr til Borgarfiarðar Frá Reykjavík alla fimtudaga, en tii Reykjavíkur alla miðvikudaga. Viðkomustaðir': Hreðavatn, Arn- bjargarlækur, Norðtunga, Reyk- holt o,. fl. Ódýr fargjöld. Upplýs- ingar á afgr. hjá Ferðaskrlfstofa Islands InsrólfshvolL-----Sími 2939. Hllstyrkur. Umsóknum urn ellistyrk úr ellistyrktarsjóði Reykjavík- ur skal skilað hin^að á skrif- stofuna fyrir Iok september- mánaðar næstkomandi. Eyðublöð undir umsóknir fást hjá prestunum og; hjer á skrifstofunni. Borgarstjórinn í Reykjavík, 29. ágúst 1933. fiarðar Borstelnsson settur. Landflótta rithöfundar. Yínarborg, 28á ágúst. United Press. PB. Austurríski P. E. N. klúbburinn, sem liefir á stefnuskrá sinni að gæta hagsmuna austurrískra rit- höfunda, hefir farið þess á leit við stjórnina, að hún veiti borg- ararjettindi þýskum rithöfundum, sem sest hafa að í Austurríki og glatað borgararjettindum sínurn í Þýskalandi. Dagbóh. Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5): Lægðin sem var vestur af Reykja- nesi á mánudagskvöldið er nú við SA-strönd íslands. Er vindur því yfirleitt norðanstæður og veður bjart á V- og N-landi. Hinsvegar er þykkviðri og lítils háttar rign- ing austan lands. Veðurútlit í Rvík í dag: N- kaldi. Bjartviðri. Háflóð í dag kl. 13.55. Áheit til Hallgrímskirkju í Saur bæ frá Gr. Ó. 5 kr., frá Jónu 5 kr. Afhent af Sn. J. 22. ágúst 1933. Ól. B. Björnsson. Togaramir. Belgaum kom frá Englandi í gær og fór á ísfisk- veiðar. Geir kom af veiðum í gær með 1600—1700 körfur, Kári Söl- mundarson með 1200 körfur. Báðir heldu áfram áleiðis til Englands. Max Pemberton fór á ísfiskveiðar í gær. Skagatind, norskt flutningaskip, kom hingað í fyrradag. Það kom með pípur til vatnsveitunnar nýju og sement til H. Benediktsson & Co.' Nordkap, norska rannsóknaskip- ið, fór heðan í gær áleiðis til Nor- egs. Kona bíður bana af permanent- hárliðun. Fyrir skömmu vildi það til í Noregi, að eldri kona andað- ist, er hún hafði fengið hár sitt permanent-liðað. Hafði hún liaft hjartasjúkdóm og ekki þolað það. Hinn sorglegi dauðdagi konunnar fjekk svo á mann hennar, að hann tapaði sjer alveg. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00. Klukkusiáttur. Tónleikar: Einsöngur: (Daníel Þorkelsson). 20.30 Frjettir. 21.00 Erindi: Frá útlöndum. (Síra Sig. Einarsson). 21.30 Grammófóntónleikar: Bach: Sonata í D-moll fyrir fiðlu án und- irleiks. (Adolf Buseh). Jarðarför Ragnhildar Benedikts- dóttur stúdents fer fram í dag og liefst kl. 1% með húskveðju að Skólavörðustíg 11. Sambandslaganefndin hóf fundi sína í gær í -Kristjánsborg í Kaup- mannahöfn. íslensku fulltrúarnir eru, svo sem kunnugt er, Jóhann- es Jóhannesson fyrv. bæjarfógeti, Einar Arnórsson hæstarjettardóm- ari, Jón Baldvinsson hankastjóri og Jónas frá Hriflu. Dönsku full- trúarnir eru dr. Krag, H-alfdan Henriksen þjóðþingmaður og Arup prófessor. Fjórði danski nefndarmaðurinn, Hans Nielsen þjóðþingmaður, getur ekki tekið þátt í störfum nefndarinnar, vegna þess að hann er veikur. Skipafrjettir. Gullfoss er í Kaup mannahöfn. Goðafoss fer hjeðan í kvöld kl. 8 til Vestmannaeyja, Hull og Hamhorgar. Brúarfoss er í Reykjavík. Dettifoss fór frá Hull um hádegi í fyrradag. Lagarfoss fór frá Siglufirði í gærmorgun áleiðis til Haganesvíkur. Selfoss fór frá Aherdeen í fyrrakvöld. Filmai sem ekkl svfkur. Dag hvern, árið inn og árið út, hefir Kodak-filman verið notuð í hverju einasta landi veraldarinnar. Filmu-notend- ur hafa lært af reynslunni að þeir geta treyst á Kodak-filmuna. Þeir vita að þeim er óhætt að reiða sig á hvað hún er altaf eins, hvað hún er fljótvirk, hvað birtu- munur hefir undursamlega lítil áhrif á hana og hvað hún geymist vel. Notaðu filmuna sem ekki svíkur — film- una sem staðist hefir prófraun tímans — notaðu KODHH flLMU óbrigðulu filmuna í rauðu ög gulu hylkjunum. Aðalumhoðsmaður: HANS PETERSEN Bankastræti 4, Reykjavík. Fæst líka hjá öllum þeim, sem Kodak-vörur selja. Karlakór Reykjavíkur heldur fund í kvöld kl. 8V% í K. R.-húsinu. Jón Þorláksson borgarstjóri var ftieðal farþega á Brúarfossi, sem kom liingað í gærmorgun. Síra Ragnar E. Kvaran, frú hans og 3 börn komu hingað með Brú- arfossi í gær. Þau eru nú komin alfarin hingað frá Vesturheimi. EfnkasSln eða nmboð veitum við á Islandi 1. flokks firma eða duglegum sölu- manni í okkar vörugrein. Knapfabriken „R0SC0‘, Roskilde — Danmark. Stúdentar eru beðnir að koma j saman við Háskólann kl. 1 e. h. í dag vegna jarðarfarar Ragnhildar Benediktsdóttur háskólastúd'ents. Farþegar með Brúarfoss frá Kaupmannahðfn og Leith í gær: Páll OddgeirSson, Þorsteinn Þor- steinsson, Ránnveig Sturladóttir, Mrs. B. E. johnson, frú- Guðrún Indriðadóttir og dóttir, Asgeir Guðmundssori og frú, Jón Bene- diktsson tannlæknir og frú. Sveinn Tngvarsson, Ámi Þorvaldsson og frú, G. J Foisberg kaupm., Krist- inn Markúsáon kaupm., ungfrú Anna Sigurðardóttir, 20 skátar frá Jamboree í Gödöllö, Júlíus Magn- ússon, Jakob Sveinsson, Arni Skúlason. ( Úr óbygðum komu nýlega til Akureyrar i>eir Pálmi Hannesson rektor, Steindór Steindórsson kenn ari og Magnús Björnsson cand. phil; voru |>eir í rannsóknaleið- angri. Lögðu upp frá Möðrudal 21. júlí og fylgdu öræfaflokki landmælingamanna og höfðu altaf samflot með þeim. Farið var um svæðið milli Jökulsár á Fjöllum og Jökulsár á Brú og upp að Vatnajökli. Löngst viðdvöl var í Hvannalindum, 9 dagar. Pálmi rektor fekkst við jarðfræðirann- sóknir, Steindór við grasafræði og Magnús við fuglarannsóknir. Þeir komu aftur til Möðrudals .19. ág. (Eftir íslendingi). Björgunarsýning fór fram nv- lega við Torfunefsbryggju á Ak- ureyri að tilhlutan Slysavarna- sveitar Akureyrar, en Undir for- ystu Jóns E. Bergsveinssonar og með aðstoð skáta. Var björgunar- línu skotið frá innri álmu bryggj- tmnar yfir í tógara er lá við ytri álmuna og þangað síðan dreginn , kaðall með björgunarstól frá innri bryggjunni Fór svo skáti úr skip- inu í stólinn og var dreginn á línu yfir eyðið milli bryggjuálmanna. Tókst þetta vel. Nokkrar aðrar björgunaraðferðir voru einnig sýndar. Formaður Slysavarnasveit- arinnar, Steingr. Matthíasson lækn ir, talaði nokkur orð á undan sýn- ingunni, en fjöldi fólks horfði á. (Eftir Islendingi). Hvítkál. Rauðkál. Gulrætur. Selleri. Rauðróf ur. Rabarbari. Gulrófur. Kartöflur. Knatfspyrnumót 3. flokks hófsf :á sunnudagiim. Fóru kappleikai" þá svo að Iv. R. vann Víking með- 4:1 og Valur sigraði Fram með- ■8:2, 1 dag kl. 2 heldur mótið á- 'írarn og keppa þá Franr og Vík- ingur, en á morgivn Id. 2 keppas K. R. og Valur. Fánalið Sjálístæðismanna. Liðs mejm eru mintir á að fjölmennæ á æfingn stundvíslega kí. 8% n kvöld. Fundur á eftir. 22 petur Þú fyrlrgeflð ? „Ágætt“. —— „:Má jeg sjá þar innf' Hann.hneygði sig. „Hvenær sem vera skal“, svaraði hann, „þegar þjer) komið einar.“ „Og án allrar verndunar ?“ — „Algjörlega.þ ---- „En unnusti minnf ‘ Hatjn hristi höfuðið, „get- ur ekki fengið aðgang“. „Það freistar mín mikið“, sagði hún. „Miðvikudag eða fimtudag, er minst hætta á, að þjer verðið sprengdar íJoft upp“, sagði hann, „og ráðskonan mín býr til te kl. fjögur“. „Nú gengúr það alt saman svo vel. Jeg hefði ekki þurft að gera mjer það ómak' að hjóða yður heim.“ „Nei, það var hreinn óþarfi“, fullvissaði hann hana, „þjer hefð- uð getað hlíft mjer við því. Jeg fer ekki til svona miðdagsverðar, eins og þessa, tvisvar á ári.“ — „Þjer sýnið okkur mikla virð- ingu“, sagðí hún lágt.“ Hann snðri sjer snögglega við og hofði á hana, og hún fann, að aldrei hafði hún verið athuguð á sama hátt. ?,Áð- einu |íe,yti, vissulega, „sagði hann. „Þjer eruð eina konan, sem jeg mundi hafa þegið heimhoð af‘. Hann talaði fullkomlega rólega og 1 án nokkurar hrifni eða ákafa. Þó i fann Judith að hann sagði satt. Hún varð hálfvandræðaleg, og vildi helst hætta þessum orðaleik. Hún sneri sjer því til Clareon lá- í varðar, og fór að tala við hann í ; ákafa, en hann eyðilagði strax i þann möguleika, -að halda uppi al- mennu samtali- „íTeg frjetti einmitt núna, hver hann er, þessi maður, sem situr vinstra megin við yður,‘ ‘ sagði hann lágt. „Vitið' þjer ,að hann er einhver undursamlegasti maður á 1 þessari jörð?“ „Er hann það?“ spurði hún, í óþarflega kæruleysislegum mál- róm, „jeg*veit bara að faðir minn metur vinnu hans mjög mikils“. .„Sjálfur er jeg ekki vísinda- maður“, hjelt lávarðurinn áfram. „En bróðursonur minn var með honum á háskólanum, og þreyttist ekki á að tala um hann. Eftir að Paule var búinn að fá allar hugs- anlegar viðurkenningar, gaf hann til kynna, að áður en hann yrði fertugur, ætlaði hann að vera húinn að leysa gátu tilvernnnar, og takmarkalausa framlengingu;. lífsíns, Vel sagt af tuttugu ogr þriggja ára pilti“. „Hann liefir varla gert það enn: þá“, sagði hún þurlega. | „Hann er ekki fertugur enn‘ 'svaraði Clareton lávarður, en 'lief— | ir þó framkvæmt dásamlegustm i hluti“. „Judith laut áfram, og drakk: 1 eitt glas með FrécTrik Amberley,. ! svo sneri hún sjér að nágranna* sínum til vinstri. „Clareton lá- , varður segir mjer, .ac þjer liafið skuldbundið yður til, að leysa | gátu tilverunnar, og finna u p|> eilífðardrykk, áður en þjer verðiði ! fertugur ?‘ ‘ „Sennilega mun jeg gera livort tveggja“, sagði hann þurlega. — é „Jeg get nú þegar framlengt líf sæmilega heilbrigðs riianns, um 30' ár, ef það þá er ómaksins vert,, sem sjaldan er“. „Gætnð þjer framlengt mitt?“' spurði hún. „Mjög auðve[dlega“, fullvissaði hann liana, „til hnndrað ára. En þjér eruð of skynsamar til að biðja um slíkt“. „Er það eltt af þeim viðfangs- efnum, sem þjer stundið í töfrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.