Morgunblaðið - 31.08.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
8
JRdtptiHa^
Otcef.: H.f. Árvaknr, Reykjavtk.
Rltatjðrar: Jðn Kjartanaaon.
Valtýr Stef&neaoeu
Rltstjðrn og afgretBsla:
Austurstrætl 8. — Slml 1600.
AUKlýslngastjðri: E. Hafbergr.
Auelí-slnnaskrif stof a:
Austurstræti 17. — Simi 3700.
Heimaslmar:
Jön Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlanda kr. 2.00 á mánuBl.
Utanlands kr. 2.60 & mánuBL
1 lausasölu 10 aura elntakiB.
20 aura meB Leabðk.
Bændur og sósíalistar.
Alþýðublaðið birtir nýlega langt
samtal við Ivar Yennerström, lancl-
varnarráðlierra í sósíalistaráðuneyti
Svía, sem bjer er staddur, ásamt
konu' sinni, frú Lóu Guðmunds-
-dóttur frá Nesi.
ÞaS, sem mesta athygli vekur í
samtali þessu, eru ummælin um
Ibændaflokkinn í Svíþjóð, sem Alþ.-
bl., hefir eftir hr. Vennerström.
iÞar segir m. a. svo: „Bœndaflokk-
urinn hefir sjeð sitt ráð vœnst með
því (iQ nálgast jafna'ðarnienn og
hlíta þeirra forsjá“.
Alþýðublaðið er ákaflega hreykið
•af þessiuu ummælum og af gleði
blaSsins verður það ráðið, að nú
sje leýstur hnúturinn lijer hjá okk-
ur, því að bændum á Islandi sje
fyrir bestu að hlíta nú forsjá sós-
íalista.
Rjett er að taka það fram, að
meðal sósíalista í Svíþjóð eru
margir ágætir menn, og gerólíkir
þeim, sem daglega skrifa í Alþýðu-
blaðið. Þó mun fjarri því, að bænda
flokkur Svía telji málstað bænda
best borg'ið með því að hlíta for-
sjá sósíalista.
En hvað mundu íslenskir bænd-
ur segja, ef þeim yrði nú sagt, að
þeir ættu framvegis að hlíta for-
,«já sósíalista og kommúnista?
Islenskir bændur hafa reynt for-
sjá sósíalista og gera enn að
nokkru leyti. Jónas frá Hriflu var
sendur út af örkinni til þess að
reyna að fá bændnr ti'l fylgis við
■stefnu sósíalista og kommúnista.
Nokkuð hefir Jónasi orðið á-
gengt í þessu starfi. Það sýnir
best Keykholtssamþyktin fra’ga. Þar
-sátu trúnaðarmenn Jónasar að verki
og gerðu „samþykkt“ um ýms mál.
Þar var fyrsti liður á sviði land-
foúnaðarmálanna svohljóðandi: Að
land alt verði ríkiseign“.
Á síðasta Alþingi gerðu sósíal-
istar undir forsjá Jónasar frá
'Hriflu tilraun til að koma þessu
rstefnumáli í framkvæmd. Þeir vildu
nota fjárhagserfiðleika bænda. til
þess að knýja þá inn á braut sósí-
alismans og kommúnismans með því
að ná undan þeim jarðeignunum.
Jónas frá Hriflu studdi þessa
stefnu ákaft í Trmanum. En bænd-
ur á Alþingi risu upp og mót-
mæltu þessari lævíslegu tilraun
.Jónasar til þess að festa bændur á
klafa sósíalismans.
Hra. Vennerström landvarnar-
ráðherra Svía getur af þessu sjeð,
að íslenskir bændnr hafa þegar
fengið nóg af handleiðslu sósíalist-
ans frá Hriflu og annara hans sam-
herja,. Það er náttúrlega vel meint
af honum, að reyna nú að koma
þessum marghrjáða samherja td
hjálpar, en hætt er við, að árang-
vurinn verði lítill.
Brúarfoss
bjargar brem mðnnum
f
f Lundúnablaði frá 17. þ. m.
er frá því sagt, að Brfiarfoss
liafi aðfaranótt 16. þ. m. bjarg-
að þrem mönnum. Þeir höfðu
verið á seglskipi „Faith Robey“
frá London, sem var að flytja
sand. Skyndilega kom leki að
skipinu og sökk það 4 svipstundu.
Þeir höfðu smábát meðferðis og
fóru í liann, en voru í 8 tíma að
velkjast í bátnum og voru mjög
þjakaðir þegar Briiarfoss hitti
þá.
Samtal við 2. stýrimann á
Brúarfossi.
Mbh hefir snúið sjer til 2.
stýrimanns- á Brúarfossi og fjekk
hjá honum nánari upplýsingar um
þessa björgun. Honum fórust orð
á þessa leið:
Það var kl. 1.40 aðfaranótt 16.
ágúst. Brúarfoss var á leið frá
Leith til London og kominn inn í
Themsármynnið. Sjór var úfinn
og niikill straumur frá landi.
Þegar Brúarfoss var staddur ca.
3 sjómílnr frá Mousse vitaskipi
sást Ijósleiftur á stjórnborða. Við
nánari athugun kom í ljós, að
þetta var mjög lítið bátkríli með
þrem mönnum í, sem voru frá
skipi er sokkið hafði fyrir 8
klukkustundum, en mennirnir
velkst í bátnnm allan þennan
tíma.
Skipbrotsmennirnir voru teknir
um borð í Brúarfoss. Svo þjakaðir
voru þeir af kulda og vosbúð, að
þeir gátu naumast komist upp
stigann, í Brúarfoss. Báturinn var
hálffullur af sjó og svo illa útlít-
andi, að fnrðu gegnir, að menn-
irnir skyldu geta lialdist lifandi
í honum þennan tíma. Var bátnum
slept, því menn töldu hann einsk-
is virði.
Þegar skipbrotsmenn voru
komnir nm borð í Brúarf. og þeir
fengið þar föt og hressing, tóku
þeir smám saman að ná sjer eft-
ir volkið. Skipstjóri þeirra skýrði
frá, að skipið, sem þeir voru á,
hafi verið lítil seglskúta og var
hún lest-uð með sandi. Kom snögg-
lega leki að skútunni svo mikill,
að þeir höfðu ekki við að dæla.
Neyddust skipsmenn því til að yf-
irgefa skipið út í rúmsjó og fara
í þennan smáhát, sem var svo lít-
ill, að hann naumast gat borið þá
alla.
Brúarfoss flutti skipbrotsmenn-
ina til London. Skipstjóri á Brú-
arfossi er, sem kunnugt er, Júlí-
us Júliniusson.
Ford erfiður viðfangs.
Washington 30. ágúst.
United Press. FB.
Johnson hershöfðingi yfirstjórn-
andi viðreisnarmálanna hefir farið
hörðum orðum um kergju Henry
Fords, en hann hefir til þessa hliðr-
að sjer hjá að ganga að viðreisnar-
skilmálum stjórnarinnar. Kvað
Johnson Henry Ford eiga heift al-
þjóðar yfir höfði sjer, ef hann sæi
sig ekki um hönd.
Lækkar enn
gengi dollars?
Wasliington 29. ág.
United Press. PB.
Roosvelt liefir fyrirskipað að
leyfa skuli útflutning á gulli, en
útflutningurinn verður lfláður eft-
irliti ríkissjjóðs.
Washington 30. ágúst.
United Press. FB.
Talið er af fjármálasérfræðing-
um, að fýrirskipun Roosevelts um
að leyfa takmarkaðan útflutning á
gulli undir eftirliti ríkissjóðs muni
bráðlega leiða til þess, að gefin
verði út opinber tilkynning um
verðlækkun dollars. Búist er við, að
verðlag fari hækkandi, svo og verð-
bréf, og að dollarinn muni hér eft-
ir ekki hafa neitt ákveðið gullmagn,
en verðið sveiflast dag frá degi,
eftir því sem verðsveiflurnar eru á
hinum frjálsa gullmarkaði heimsins.
Hljómleikar.
Rozsi Ceglédi og Karoly Szén-
ássy hjeldu fjórðu hljómleika sína
í fyrrakvöld í Gamla Bíó. Szén-
ássy byrjaði að þessu sinni með
Adagio og Fúgu eftir Bach, sam-
ið fyrir fiðln einsamla. Leikur
lians var fágaður og hinil- ytri
örðugleikar urðu að engu í hönd-
um hans. En — „hann ætti ekki
að heita lækur (Bacli), heldur
haf“, sagði eitt sinn Beethoven
um þennan mesta fyrirrennara
sinn. En þá vantar hinn þunga
nið liafsins í leik þessa snjalla
fiðluleikara , þá er hann flytur
verk Bachs. Persónuleiki lians
þarf enn að magnast, svo að hann
nái fullum tökum á hinu tröll-
aukna í list þessa meistara. Bach
gerir hinar mestu kröfur til innri
orku og íhygli hljóðfæraleikarans,
og hversu vel sem annars er leik-
ið, þá verður verkum lians ekki
gerð full skil, nema þessum skil-
yrðom sé fnlinægt í ríltum mæli.
Um leik þeirra beggja að öðru
leiti þar'f ekki að fjölyrða. í verk-
mn eftir Liszt, Hubay og Sara-
sate heilluðu þau áheyrendumá
svo mjög með leik sínum að alt
ætlaði að ganga af göflunum, og
var að lokum skapið orðið engu
minna niður í salnum en uppi á
sjálfum söngpallinum.
Páll Isólfsson.
Bannið
í Bandaríkjum
verður sennilega upphafið
algerlega.
í skeyti frá New York til ,Poli-
tiken* hinn 21. ágúst, segir að
miklar líkur sje til þess að auka-
þing verði kvatt saman til þess
að ganga af banrdögunum dauð-
um. í 22 ríkjum hefir atkvæða-
greiðslan sýnt að menn vilja fella
bannlögin, og ef 14 ríki bætast
þar við, þá er fenginn sá meiri
hluti, sem til þess þarf að upp-
hefja bannið. Búist er við því,
að hinn 1. nóvember muni þessi
ríki hafa bæst við.
Reglulegt þing á að koma sam-
an í janúar. En Roosevelt forseti
sjer það, að undir eins og 36 ríki
liafa afneitað banninu og vilja
frjálsa verslun með áfengi, þá
verði að kalla saman aukaþing.
Frá Noregi
Osló 30. ágúst. FB.
Vinnudeilu lokið.
Sættir hafa komist á út af deil-
unni á Fredriksstad mekaniske verk-
sted, og hefst vinna þegar á ný.
Hroðalegt shjs.
Þegar herskipið Tordenskjold var
við skotæfingar viS Jómfrúland í
gær, varð hroðalegt slys, og biðu
fjórir menn bana. Slysið varð, þeg-
ar verið var að hlaða fallbyssu;
sprakk hleðslan áður en fallbyssan
hafði lokast alveg. Nokkrar skemd-
ir urðu á skipinu. Sex menn særð-
ust alvarlega. Nefnd hefir verið
skipuð, til þess að rannsaka orsakir
slyssins.
Ráðherraftindur
í London.
Eveðia
til Þorsteins Einarssonar
íþróttakappa.
Ungur varstu á okkar tungu
afreksmaður sannkallaður,
gerður vel af guði og verður
gildra kosta, er vel þú skildir.
Enda varstu ekki að henda
afli þínu að dauðri línu.
Traust var sálin, tímann branstu,
tókst upp leiki og metin jókstu.
Hæsta áttu liylli glæsta,
háttrómaðnr dýrum sóma,
innan lands og utan þinnar
ættarþjóðar liróður bættir.
Hyllir þjóðin hetju-snilling.
Haldavelli skaltu að elli.
Þrótti búinn, Þorsteinn, liljóttu
þinna’ afreka lífsins minni.
Lárus Salómonsson.
London 30. ágúst.
United Press. FB.
Frá Aldergrove í Norður-írlandi
er símað, að MacDonald hafi flogið
þjingað frá Lossiemouth, þar sem
hann hefir verið á sumarleyfi, til
viðtals við Londonderry lávarð. Því
næst flýgur MacDonald til London
og hefir forsæti á ráðiuieytisfundi,
sem haldinn verður næstu daga. All-
ir ráðherrarnir hafa verið kvaddir
á fund þennan, en þeir-hafa margir
verið í sumarleyfum að undanförnu.
Á ráðuneytisfundi þessum mun verða
rætt um sendiferð Leith Ross til
Washington og fleiri mál. Að ráðu-
neytisfundinum loknum mun Mac-
Donald fara á fund konungs.
750 kílómetra flug til þess
að sækja veika Lappakonu.
Snemma í þessum mánuði fór
sænskur flugmaður, Gunnerfeldt,
frá Boden til Kábanejaur, sem er
lítið Lappaþorp hjá landamærum
Svíþjóðar og Finnlands, til þess
að sækja þangað sjúka Lappakonu
og koma henni undir læknishend-
ur. Honum gekk ferðin vel og
flutti hann sjúklinginn til sjúkra-
hússins í Gállivare. Hafði hann þá
flogið um 750 km. til þess að
bjarga lífi þessarar fátæku konu.
Hópflug Frakka.
París í ágúst.
Vnited Press. PB.
Mikill undirbúningur fer nú
fram undir hið mikla fyrirhugaða
liópflug Frakka um Afríkulönd.
Ráðgeii; er, að 25 flugvjelar taki
þátt í hópflugi þessu, en áformuð
flugleið er 25.000 kílómetrar. •—
Yalið ]ið á að taka þátt í flug-
inu og á liðið að búa í flugstöð-
inni (Istris) og vera þar við stöð-
ugar æfingar og undirbúning í tvo
mánuði samfleytt áður en flugið
hefst. Hefir verið boðað, að allir
flugmennimir eigi að vera komnir
til Istris þ. 1. sept., en í nóvem-
ber er áformað að leggja upp í
hópflugið. Vera má þó, að lagt
verði af stað í seinustu viku okt-
óbermánaðar. Flogið verður sem
hjer segir, samkvæmt áætluninni:
Frá Istris til Kartagena, þaðan
til Rabat, Colomb-Bechar, Odrar,
Bidon, Gao, Mopti. Bamaco, Ta-
bacounda, Dakar, Kayes, Segou,
Ouagadougou, Niamey, Zinder,
Lamay-vígis, Archamabault-vígis,
Banghi og þaðan til Adrara með
viðkomu á nokkurum stöðum, sem
áður var komið við á, því næst
til E1 Golea Touggourt Tunis, Al-
gier, Oran Meknes Kartagena, Per-
pignan og loks til Istris. — Vuill-
emin hershöfðingi verður höfnð-
maður leiðangursins, nema Coti
flugmálaráðherra taki sjálfnr að
sjer yfirstjórnina. eins og orð-
rómur hefir komist á kreik nm.
Flugvjelarnar eru allar herflug-
vjelar sem geta flogið með alt að
150 kilometra hraða á klst.
Dagbók.
Veðrið í gærkvöldi kl. 5. Lægð-
armiðja suður af Reykjanesi á
lireyfingu norðaustur eftir og lít-
ur út fyrir að hvin verði yfir Suð-
urströnd íslands á niörgun. Veður
er nú SA og rigning á S-landi, en
á Breiðaf., Vestfj.. og N-landi er
hæg Austan-- eða Norðanátt og úr-
komulaust. Ef til vill nær N-átt
sjer aftur á öllu Vesturlandi a
íimtudagskvöld. Veðurútlit í Rvík.
í dag SA og* síðan NV eða N-
kaldi. Rigning öðru hvoru.
Háflóð í dag kl. 14.50.
Meðal farþega á Goðafossi til
útlanda í gær voru: Matthías Ein-
arsson læknir, Þorsteinn Ólafss-
son, Björn Ólafsson. heildsali og
frú, Regína Jónasd. Sigurþjörg
Fedike, Ragnheiður Ólafsdóttir,
Dagbjört Einarsdóttir, Ragna
Björnsson og fjölda margir út-
lendingar.
Jarðarför Ragnliildar Bene-
diktsdóttur stúdents fór fram í
gær að viðstöddu fjölmenni. Á
heimili foreldra hennar, frú Guð-
rúnar Pjetursdóttur og Benedikts
Svéinssonar fyrv. alþingisforseta,
Skólavörðnstíg 11, flutti síra
Bjarni Jónsson húskveðju og eins
flutti hann ræðu í Dómkirkjunni.
Þegar líkfylgdin kom niður að
kirkjunni höfðu stúdentar skipað *
heiðursfylkingu undir fána shram
l\já Alþingishúsinu. Sambekkingar
Ragnhildar bárn kistuna í kirkju
en úr kirkju báru venslamenu
og vinir foreldra hennar. Á
nndan líkfvlgdinni og suður í
kirkjugarð gengu stúdentar
fylktu liði undir fána sínum og
þegar kistan kom þangað. Báru
stúdentar kistnna inn í garðinn
til grafar og sungu útfararsálm
hjá gröfinni.