Morgunblaðið - 07.09.1933, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Hei
I I
avistarskóli
fyrir heilsuveil böm.
Þörftn.
A hverjum vetri verða mörg
börn að hætta námi i barnaskólum
Eeykjavíkur um lengri eða skemri
tíma fyrir vanheilsu sakir. Þau
þola ekki erfiði það, sem skóla-
vistinni fylgir, því að það er mið-
að við námsþol heilsuhraustra
barna. Þessi börn hljóta því að
dragast aftur úr og fara á mis við
það, sem lagt er til fræðslu barn-
anna af hálfu hins opinbera. Og
auk þess verða börnin frá fátæku
heimilunum af matgjöfum skól-
anna, sem þau mega ekki heldur
við að missa. Þannig verða börn
þessi olnbogabörn. Þau fá ekki
notið sömu rjettinda og heilbrigðu
börnin. Stóru skólarnir taka ekk-
ert tillit til þeirra, heilsa barn-
anna verður aðeins að skera úr
því, hvort þau geta fylgst með
eða ekki. Ættu þau aftur á móti
kost á skólavist, þar sem alt væri
miðað við þeirra hæfi og verndun
á heilsu þeirra, þá myndi allur
þorri þeirra geta notið þar fræðslu
og -jafnframt aukið þroska sinn
og þrótt-
Umsögn skólalækna.
Nokkur áraskifti kunna að vera
að hundraðstölu þessara heilsu-
veilu barna í barnaskólunum hjer,
•en þó mun trauðla miklu skakka,
•frá því, er skólalæknar gáfu upp
■síðastliðið liaust samkvæmt, beiðni
Bamaverndarráðs og Barnavernd-
arnefndar Reykjavíkur. Vottorð
læknanna hljóða svo:
„Eftir beiðni Barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur og Barna-
verndarráðs Islands, vil jeg geta
þess, eins og skýrslur mínar frá
Nýja-b'arnaskólanum sýna, voru
full 6% af börnunum, sem síðast-
liðinn vetur voru fjarverandi í
lengri tíma sökum vanheilsu. Af
þessum börnum voru samtals 18,
sem berldaveik voru og þess vegna
tekin úr skóla á skólaárinu. Engin
af bömum þessum höfðu þó smit-
andi berkla.
Þar sem fjoldi af þessum börn-
um er frá fátækum heimilum, er
hætta á, að þau, sökum Ijelegra
húsakynna og skorts, bíði varan-
legt heilsutjón, sem þó fyrir-
byggja mætti, ef þau nógu snemma
kæmust undir heilbrigðari lífsskil-
yrði.
Rvík, 22. áúst 1932.
Oskar Þórðarson.
„Samkvæmt beiðni Barnavernd-
arnefndayinnar í Reykjavík, hefi
jeg athugað tölu barna þeirra, er
tekin voru úr kenslu í Miðbæjar-
skólanum í Reykjavík s.l. skólaár
vegna lasleika, aðallega um lengri
fímá. Hefi jeg komist að raun um,
að þau hafa verið 62 talsins eða
rúm 5% af nemendum skólans.
Þess ber þó að geta, að læknar
þeir, er hafa tekið börnin úr
kenslu, láta sjiíkdómsins sjaldnast
getið, en af kunnugleik mínum og
hjúkrunarkonunnar á börnum þess
um, áætla jeg, að meira en helm-
íngur þeirra sje berklasmitaður
(kirtlaveiki o. þ. h.).
Reykjavík, 23. sept. 1932.
Olafur Helgason.“
Út frá vottorðum skólalæknanna
má draga þá ályktun, að tala þess-
ara heilsuveilu skólabarna sje nú
ekki undir 150.
Berklavarnir.
Yfir mörgum barnanna vofir
berklahættan, og er ]iá Ijóst, að
þær berklavarnir eru betri, sem
verja börnin því að verða veik-
inni að bráð og gera þau að starf-
hæfum mönnum, heldur en hinar
sem algengastar eru, að tekið er
við ósjálfbjarga sjúklingum í
berklahælin og þeim haldið þar
upp frá því til æfiloka. Hún er
betri hjálpin til þess að lifa, heldur
en hjálpin til þess að deyja. „At
ósi skal á stemma“. Það á sann-
arlega við í þessurn efnum og er
það ekki aðeins siðferðilega rangt
heldur blátt áfram óvit að bíða
með hjálpina, uns alt er orðið um
seinan. Þetta er svo einfalt. mál,
að það ætti ekki að þurfa að segja
það. En reynslan sýnir, að þess
þarf.
Álit yfirlæknisins á Vífilsstöðum.
Prófessor Sigurður Magniisson,
yfirlæknir á Vífilsstöðum, hefir
sent Barnaverndarráðinu og Barna
verndarnefnd Reykjavíkur álit sitt
í þessum efnum og segir hann þar
rþ4ð,al annars að heimavistarskóli
fyrir kirtlaveik börn myndi verða
mikilsverður þáttur í berklavöm-
um því að berklaveiki fullorðinna
’gi oft rót sina að rekja til
bernskuáranna.
Tilboð Odd-fellowa.
Eins og kunnugt er, liafa Odd-
fellowar reist, veglegt og. vandað
hús við SilungapoII í Mosfellssveit
og hafa starfrækt þar sumarheim-
ili fyrir kirtlaveik börn 2 mánuði
á ári undanfarin sumur. Arangur
af starfi þessu hefir orðið nijög
góður, og hafa nú sum börn, sem
þarna hafa dvalið, náð fúllri heilsu.
En fyrir mörgum hefir þó eðlilega
aftur að vetrinum sótt í sama
horfið og áður. Hafa Odd-fellowar
því sjeð nauðsyn þess, að heimilið
síarfaði alt árið og helst fullskip-
að. Sama hugsun mun einnig liafa
gripið flesta þá, sem komið hafa
í húsið, og sjeð þar allan aðbúnað
að börnunum. Þeim hefir þótt sárt
að hugsa til þess að fleiri börn
skyldu ekki vei-ða hans aðnjótandi.
að þetta mikla hús væri aðeins
hálfskipað við það, sem vera
mætti, og stæði svo autt 10 mánuði
• rsins. Nú hafa Odd-fellowar boð-
ist til þess að lána hús sitt, án
sjerstakrar húsaleigu, fyrir heima-
vistarskóla o g heilsuverndarhæli
handa veikluðum börnum í 9 mán-
uði á ári, frá 15. sept. til 15. júní,
g fylgi húsinu öll áhöld, sem í
því eru, nema rúmfatnaður.
Áætlun um kostnað.
Bamaverndarráðið og Barna-
verndarnefnd Reykjavíkur hafa
áætlað stofnkostnað heimavistar-
skóla, fyrir 60 börn við Silunga-
poll, alls 9100 kr., en reksturs-
kostnað í 7 mánuði 24440 kr. Er
þá miðað við það, að ltennarar
sjeu tveir, ein hjúkrunarkona og
4 kvenmenn að auk til innanhúss-
starfa-
Greiðsla kostnaðarins.
En hvernig yrði allur þessi
kostnaður greiddur ? Stofnkostnað-
ur ætti að verða lagður fram sem
lán eða beint framlag úr sjóðnum
þeim til barnaverndar, sem Reykja
víkurbær hefir í sínum vörslum.
Eru það barnaliælissjóður Reykja-
víkur og barnahælissjóður Thor-
valdsensfjelagsins, en báðir þessir
sjóðir til samans námu í árslok
1931 samkvæmt reikningum bæjar-
ins kr. 115235.23. Helmingur rekst-
urskostnaðar kveðst ríkisstjórnin
munu mæla með við Alþingi, að
greiddur verði úr ríkissjóði. Þá er
liinn helmingurinn, 12220 kr. Mik-
ið af þeirri upphæð má gera ráð
fyrir, að Reykjavíkurbær þurfi að
greiða hvort sem er. Sennilegt er,
að aðstandendur ekki færri en 30
jbarnanna fái fátækrastyrk og gild-
ir þá einu fju-ir bæinn, hvort hann
greiðir meðlagið, 80 aura á dag
fyrir hvert barn til heimavistar-
skólans eða til heimila bamanna í
Reykjavík. En fátækrastyrkur til
30 barna í 7 mánuði nemur 5040
kr. Þá er bærinn jafnt skyldur til
að sjá börnum sínum fyrir kenslu
hvort sem þau eru heima eða heim-
an. En lilutdeild bæjárins í laun-
um tveggja kennara er 2780 kr.
Enn má gera ráð fyrir, að áðstand-
endur greiði með um 10 börnum,
eða 1680 kr., og liennarar fæði
sitt 420 kr- Beinn útgjaldaauki
yrði þá til rekstursins 2300 kr.
Thorcilliisjóður.
Þessa síðasttöldu upphæð ætti
að mega jafna a. m. k. að nokkru
leyti með árlegri greiðslu af vöxt-
um Thorcilliisjóðs, því að það væri
í fylstu samhljóðan við erfðaskrá
gefandans, þar sem segir, að árleg
ur arðui' af eignunum skuli ganga.
til stofnunar, þar sem allra aum-
ustu og fátækustu börn í Kjalar-
nesþingi skuli fá kristilegt upp-
eldi, þar með talið húsnæði, klæði
og fæði, þangað til þau geti sjeð
jfyrir sjer sjálf. Virtist það sjálf-
gefið samkvæmt þessu, að Thor-
cilliisjóður kostaði skólavist ein-
hverra þeirra barna, sem ekki
væru á fátækraframfæri en ættu
við bág kjör að búa. Enda hefir
núverandi kenslumálaráðherra lof-
að því að hlutast til um það, að
fje Thorcilliisjóðs skuli framvegis
Aarið meir í samræmi við vilja
gefandans en verið hefir undanfar-
in ár.
Mótbárur.
Tvennar mótbárur eru hugsan-
legar gegn stofnun þessa heima-
vistarskóla fyrir heilsuveil börn.
1 Þótt svo geti litið út á pappírn-
nm, að kostnaðurinn verði ekki
filfinnanlegui' fyrir Reykjavíkur-
bæ, þá veríur hann það í raun
og veru. Og nú eru krepputímar
fyrir Reykjavík, svo að hún má
ekki leggja út í þennan kostnað.
2. Staðurinn er óheppilegur. Heima
vistarskóli og heilsuvemdarhæli
Reykjavíkurbarna á að vera á
góðri jörð í sveit, þar sem rekinn
er stór biiskapur og börnin geta.
fengið verkefni við sitt hæfi og
unrtið eitthvað að framleiðslunni.
Fyrri mótbárumar.
Setjum svo, að kostnaður verði
meiri en hjer hefir verið áætlað,
þá getur kreppan þó ekki rjett-
lætt það, að hann sje sparnaður.
Enda væri ekki um raunverulegan
sparnað að ræða — síður en svo.
Þessar mótbárur má hrekja með
einföldu dæmi. Væri það góð
Síml 1234.
Hðinm fyrirliggjandis
Lauk í ks. og sk.
Appelsínur 252 stk.
Kartöflur þýskar, hollenskar
„.... óreyndum því ýtar spakir aldrei treysta hal nje geir“.
er þrautreyndastur allra sjálfblekunga og
við bestan orðstír (en nú á dögum er meira
vert um pennann en sverðið). Hálfrar ald-
ar reynsla lýgur ekki.J Miljónir manna
nota Watermans og á öilum tungum jarðarinnar er honum sungið lof. Lítið
inn og skoðið hann. Snæbjörn Jónsson
Eins og stð nndssnfðrnn
tek jeg á móti pöntunum á hinu fræga saltaða dilkakjöti frá Kaup-
fjelagi Nauteyrarhrepps. -— Þeir, sem eiga g'óð eikar-ílát, ættu að
senda þau með allra fyrstu ferð og merkja þau sínu nafni og K.
N. A. pr. Isafjörð. ,
«
Snorri Jóhann§son.
Sími 3503.
Brjefritarar — gjaldkerar — lögfræðingar — kaup-
menn — forstjórar og aðrir,
ef þjer viljið hafa greiðan aðgang að plöggum yðar,
þá fáið yður þar til gerðar
skrifborðsmöppnr.
Vjer fengum nokkuð af möppum þessum í vor, og
líkuðu þær svo prýðilega, að þær seldust strax upp. Nú
eru þær komnar aftur, í enn þá meira úrvali en áður. —
Gerið svo vel að líta á þær!
Einnig höfum vjer fengið aftur hina margeftirspurðu
gnmmí-stðlpáða
a.f mörguhi gerðum og þyktum.
Ingólfshvoli.
kreppnráðstöfun og sparnaður fyr-
ir hónda að forðast kostnaðinn við
það, að leita börnum sínum eftir
föngum heilsubótar og heilsu-
verndar ?
Væri það ekki betra á allan Iiátt
að styðja þau til þroskans svo að
þau gætu síðar sjálf farið að
ljetta undir með en yrðu ekki ó-
sjálfbjarga aumingjar. Auk þess
sem það væri siðferðilega Ijótt af
bóndanum að vanrækja þessa
skyldu sína, þá væri þetta eyðslan
mesta og versta. Afstaða Reykja-
víkurbæjar til barna sinna er ná-
kvæmlega liin sama. Og skyldi ein-
Iiver halda því fram, að Reykja-
vík blátt áfram gæti þettæ .ekki,
þá mætti t- d. benda honum á tim-
leitanir bæjarins til þess að koma
upp bálstofu fyrir ærið fje. Eða á
að taka líkin fram yfir börnin?
Síðari mótbárurnar,
Það er rjett, að heimavistar-
skóli og heilsuverndarhæli Reykja
víkurbarna nmn eiga að vera á
góðri jörð í sveit. Og að því marki
á að stefna. En sennilega verður
— því miður — nokkuð löng hið
á því, að slík stofnun taki 1il
starf'a. Hvert ár sem líður þang-
að til svo, að ekkert er gert í þessa
átt fyrir veikluðu börnin, er
dýrt. Það kostar heilsu og líf —
Guð veit, hve margra barna. Og
Sími 2354.
það er ákæra á liendur okkur
Reykvikingum, sem berum á-
bvrgðina. Eigum við að hafna
boði Oddfellow og láta hús þeirra
stanaá autt áfram vetur eftir vet-
lU', í stað þess, að nota það a. m.
k. þangað til við höfum komið
olckur upp sjerstöku barnaheimili
fyrir bæinn? Húsið er gott, staður-
inn fallegur, liggur ágætlega við
samgöngum, landrými mikið og
sumt vel ræktanlegt.
Hvað dvelur?
Vjð undirritaðir, sem hiifum
leitast við að athuga aðstæður
allar við stofnun lieimavjstarskóla
við Silungapoll nú í haust, get-
um ekki sjeð neitt því til fyrir-
stöðu, að Iiann megi taka til
starfa í oktúber, svo framarlega
,sem þegar verður hafist handa
að undirbúningi. Við teljum það
skyldu okkar að vekja athygli
bæjarbúa á þessu máli og skor-
um á alla, sem að því geta st.utt,
og þá fyrst og fremst bæjarráð
og bæjarstjórn að hrinda því í
f'ramkvæmd. Það er ekkert frá
okkar sjónarmiði, sem getur af-
sakað lengri bið-
Og börnin eru búin að bíða
lengi.
Reykjavík, 5. sept. 1933.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Ásmundur Guðmundsson.
Arngr. Kristjánsson.