Morgunblaðið - 07.09.1933, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐXÐ
1
| Smá-auglýsingar| Dagbók.
Athugið! Ilattar og aðrar karl
niannafatnaðarvörur nýkomnar. —
Hafnarstræti 18. Karlmannahatta
búðin. Einnig gamlir hattar gerðir
sem nýir, sama stað.
Teborð höfum við nú aftur fyr-
irliggjandi í dölckum og ljósum lit.
Verð kr. 38.00 og 46.00. Körfu-
gerðin, Bankastræti 10.
Ný Ijóðabók: „Jeg ýti úr vör“,
eftir Bjarna M. Gíslason. Fæst í
bókaverslunum.
Ryksuga á kr. 5.85. Ný uppfinn-
ipg. Körfugerðin. Bankastræti 10-
Tóm sultutausglös; einnig l/2 og
heil flöskur kaupir verslun Hall-
dórs R. Gunnarssonar, Aðalstr. 6.
■Kjötfars og fiskfars heimatilbú-
ið, fæst daglega á Fríkirkjuvegi
3. Sími 3227. Sent heim.
Hútel Valhöll
Þingrvöllum er opin
áfram. Fæði og hús-
næði lækkað fyrir
fasta gestí.
Fermingarföt
Karlmannaföt
blá o g mislit
Karlmannafrakkar
Peysuf atafrakkar.
Best og ódýrast í
Versl. Manchester.
Laugaveg 40. Sími 3894
Því nota þeir, sem
ætíð biðja um það
besta, o g mesta
þekkingu hafa á
vörum til bökunar,
ávalt
Lillu-böknnardropa
Af því þeir reynast
bestir og drýgstir.
eyljavilur
Veðrið í gær; S-læg átt um alt
land, með dálitilli rigningu og 9
1—11 st. hita á S- og V-landi. Á
N- og A-landi er hiti 10—13 stig-
Yfir Atlantshafinu suðaustanverðu
Bretlandseyjum og Norðurlöndum
er háþrýstisvæði, en lág loftþrýst-
ing yfir Grænlandi og vestanverðu
Atlantshafi. Er því útlit fyrir S-
veðráttu hjer á landi fyrst um
sinn. Við S-Grænland er alldjúp
lægðarmiðja, sem mun hafa áhrif
á veður hjer á landi á morgun.
Veðurútlit í dag: Vaxandi S-
átt. Rigning.
Jarðarför Þorsteins bónda Þór-
arinssonar fer fram næstkomandi
laugardag 9. september frá heim-
ili hans Drumboddsstöðum í Bisk-
upstungum og hefst með hús-
kveðju kl. 11 árdegis. Jarðað
verður í Bræðratungu.
Bethania. Saumafundurinn verð-
ur á Ljósvallagötu 24 í dag kl.
4 síðd. Konur velkpmnar.
I. O. G. T. Fjelagskonur þær,
sem styrkja vilja byggingarsjóð-
inn, eru beðnar að mæta með
handavinnu í G. T. húsinu föstu-
daginn 8. þ. m. kl-. 4 síðd.
íslenskur hagleiksmaður. Korn-
ungur íslendingur, Joseph Ólafs-
son, sonur Sveins og Guðrúnar
Ólafsson að Mildmay, Sask., hefir
nú öðru sinni unnið fyrstu verð-
laun í listasamkepni, sem fram
hefir farið í Saskatchewanfylki.
Smíðisgripur hans er Napoleons-
kerra og þykir hinn mesti kjör-
gripur. f verðlaun fekk pilturinn
ókeypis ferð til Toronto og Ghi-
cago. Nú hefir hann afráðið að
senda smíðisgripinn á verðlauna-
samkepni í Bandaríkjum. Sá, sem
fær fyrstu verðlaun þar, fær
fjögra ára ókeypis nám við amer-
iskan fjöllistaskóla. (Eftir Lög-
bergi).
Halldóra Sumarliðason Lewis,
heitir íslensk kona vestanliafs. —
Hefir hún að undanförnu gegnt
ábyrgðarmikilli og vandasamri op-
inberri stöðu í mentamálum Wash-
ington-ríkis (um barnauppeldi og
húsmæðrafræðslu) og hefir fengið
þá viðurkenningu fyrir starf sitt,
að hún var sæmd „Fellowship in
the Laura Spellman Rockefeller
Foundation“ og 1200 dollars í
peningum. Fellowship við þessa
sjerstöku deild Rochefeller-stofn-
unarinnar veitir henni ókeypis
nám um árstíma við einhvern há-
skóla í Bandaríkjum. Ætlar hún
fyrst að fara til háskólans í Cin-
einnati og þaðan til háskólans í
Minneota. Að námstíma loknum
ætlar hún að bregða sjer heim til
íslands í kynnisför.
Hjálpræðisherinn. f kvöld kl.
8 y2. Stórt enskt „At Home“
(Heima). Majórsfrú Beckett
stjórnar. Aðgangur 50 aura.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12-15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir. 19.30 Veður-
fregnir. 19.40 Tilkynningar. Tón-
leikar. 20,00 Klukkusláttur. Tón-
leikar: Einsöngur (Maria Mark-
an). 20.30 Erindi: Áfengisbannið
og atkvæðagreiðslan (Fr. Á.
Brekkan). 21.00 Frjettir. 21-30
Grammófóntónleikar. Wagner:
Tannháuser Ouverture. (Koncert-
gebow orkestrið, Amsterdam. —
Mengelberg).
Heimatrúboð leikmanna. Vatns-
stíg 3. Samkoma í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
íþróttaskólinn á Álafossi held-
ur sund og Ieikfimissýningu á
föstudag 8. sept. kl. 4 siðd. For-
eldrar bamanna eru boðnir.
,Botnia‘ kom liingað í gærmorg-
un. Um 30 farþegar voru á skip-
inu.
Mullersskólinn auglýsir í blað-
inu í dag að fólk, sem hefir iðkað
þar leikfimi undanfarna vetur, og
liafi í hyggju að æfa í vetur, verði
að gefa sig fram sem fyrst. Mull-
ersskólann má hiklaust telja besta
íþróttaskólann hjer á landi.
Mentaskólinn. Foreldrar þeirra
25 barna, sem hæstu einkuiínir
fengu við inntökupróf í skólann
í vor, eru ámintir um að senda
umsóknir um skólavist nú þegar,
ef börnin eiga að vera í skólanum.
Gagnfræðingar sem óska að kom-
ast í lærdómsdeild, bæði þeir, sem
útskrifast hafa úr Mentaskólan-
um og öðrum skólum, sendi um-
sóknir sínar tafarlaust eða komi
til viðtals við rektor.
70 ára afmæli á í dag Hjörtnr
Jónsson á Reynimel við Bræðra-
borgarstíg 22, hjer í Reykjavík,
faðir Sveins M. Hjartarsonar bak-
arameistara og þeirra systkina. —
Einn af hinum gömlu, góðu Vest-
urbæingum.
ísfisksala. Júpíter seldi afla
sinn (um 1500 körfur) í Englandi
í fyrradag fyrir 629 sterlingspund,
að frádregnum tolli.
Áttræður er á morgun (8. sept-)
Oddur Tómasson til heimilis á
Grettisgötu 31. Er hann einn af
þeim gömlu, góðu Reykvíkingum
sem hefir sjeð Reykjavík hafa
nokkrum sinnum fataskifti —
fluttist hingað til bæjarins um
1870 og hefir dvalist hjer síðan.
Gamli maðurinn er hinn ernasti
enn, hefir ágæta sjón og stöðuga
fótavist. Munu margir vinir hans
og kunningjar senda öldungnum
hugheilar óskir á morgun, í til-
efni af afmælinu og óska að æfi
kvöld hans megi verði sem bjart-
ast. K.
Sí 1 dveiðaskipin eru nú sem óð-
ast að Itoma heim. Komin eru vb.
Haraldur frá Akranesi, Andey frá
Akranesi, Pjetursey og Huginn
frá Hafnarfirði.
.íslandið' kom hingað í gær.
,Kongshavn„ norskt fisktöku-
skip er hjer að taka fisk.
Skipafrjettir: Gullfoss fór frá
Höfn í fyrramorgun. Goðafoss
kom til Hamborgar í gær. Brúar-
foss var á ísafirði í gær. Dettifoss
var á Patreksfirði í gær. Lagar-
foss var á Akureyri í gær. Sel-
foss fór frá Antwerpen í fyrra-
kvöld.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Sig-
ríður Oddsdóttir frá Strönd í
Seyðisfirði og Oddur H. Björns-
son, Laufásveg 18 A.
Grænlandsskipin ,Gustav Holm'
og ,Godthaab‘ eru komin til ísa-
fjarðar. D. Lauge Koch og leið-
angursmenn hans koma hingað til
Reykjavíkur með Brúarfossi.
Ensku og hraðritunarskóla ætl-
ar ungfrú Erla Benediktsson
(dóttir Einars skálds Benedikts-
sonar) að stofna hjer í haust. Mun
hún væntanleg heim bráðlega frá
Lundúnum, þar sem hún hefir
dvalið að undanförnu.
Gjörir silkisokkana
ENDINGARBETRI
Hundar fita kirkju. Biskupinn í
Winnipeg var einu sinni beðinn
að koma til þess að vígja kirkju
í Iitlum Eskimóabæ í norðurhluta
Hudson Bay. Ferðin þangað var
bæði löng og ströng. Eftir þrjá
mánuði komst hann þó loksins á
áfangastaðinn. En maður getur
ímyndað sjer, hve undrandi hann
varð, þegar hvergi sást nein kirkja
Spurði hann þá. um heiti bæjarins,
jú, það var rjett, en kirkjuna
vantaði engu að síður. Kom það
Slæmt þvottaef ni getur un-
nið fíngerðum silldsokkum
meira tjón en nokkura vik-
na notkun. Því venjuleg'
sápa hefir skaðleg áhrif á
viðkvæma silkiþræði. Sok-
karnir endast mörgum vi-
kum lengur, ef þeir em
aðeins kreistir upp úr
volgu Lux löðri, með
þeirri þvotta aðferð halda
þeir einnig lögun sinni og:
lit. Það er Lux, sem
gefur sokkunum endin-
guna.
BIÐJIÐ (JM
FÍNGERÐA
LUX
Hinir nyju Lux spæmr eru
svo íingerSir og þunnir a6
þeir leysast s&mstundis npp
í þykkt hreinsandi löSur. ÞaS
þarf minna Lux — og þaS
skúmar enn fyrr. ÞaS er
sparnaSur aC kaupa fínna Lux
eg m er 1 stærri pðkkum.
M-UX 393-047A IO
LXVER BROTHBRS LIMITBD, PORT SUNLIGHT; ENGLANB
Dsgnfræðaskúlínn
i Reykjavib,
starfar eins og að undanförnu frá 1. okt. til 1. maí.
Námsgreinar í aðalskólanum eru þessar: íslenska,
danska, enska, þýska, saga og fjelagsfræði, landafræði,
náttúrufræði, eðlisfræði, heilsufræði, stærðfræði, bók-
færsla, vjelritun, teiknun, handavinna og leikfimi.
Námsgreinar í kvöldskólanum: íslenska, danska,
enska og reikningur.
Inntökuskilyrði í 1. bekk eru: Fullnaðarpróf barna-
fræðslunnar og 14 ára aldur. Nýir nemendur, sem óska
að setjast í 2. eða 3. bekk, verða prófaðir 3. og 4. okt.
Innanbæjarneímendlir njóta ókeypis kenslu í aðal-
skólanum, en við kvöldskólann verður 25 kr. kenslugjald,
sem greiðist fyrirfram.
Umsóknir sjeu komnar til mín fyrir 15. sept., og gef
jeg allar nánari upplýsingar.
Heima kl. 7—9 síðdegis.
ÍVitastíg 8 A.
Ingimar Jónsson
Sími 3763.
Hafnfirðingar!
2 herbergi og eldbús ósk-
ast, helst í miðbænum.
Kristín Sigurðardóttir,
Vesturhamri 4.
þó loksins upp úr kafinu, að
íbúarnír í þorpinu höfðu haft lít-
ið að borða, en þó einkum hund-
arnir. Höfðu þeir slitið sig lausa,
ráðist á nýju kirkjuna og etið
hana upp til agnar! — Þess er
ekki getið úr hverju Eskimóarnir
bygðu kirkjuna, en manni verður
næst að halda, að það hafi verið
úr skinnum.
Tíi Borgarfjarðar
og Borgarness
alla mánudaga og fimtudaga.
Nýja Bifreiðastfiðia.
Sími 1216 (tvær lxnur).
Þeir,
sem kaupa trúlofunarhringa
hjá Sigurþór verða altaf
ánægðir.