Morgunblaðið - 19.09.1933, Blaðsíða 4
4
MOX6UNB L’fA. ÐIÐ
• r
Smá-auglýsingarf
SmábarnafatnaSur. Mikið úrval
ódýrt. Yersl. Frón. Njálsgötu 1.
Efni í fermingar- og samkvæmis-
kjóla, margir litir, ódýrast í bæn-
um. Semelinspennur. Garn, margir
litir, Sloppar. Yersl. Frón, Njáls-
götu 1.
Til sölu hálft steinhús í austur-
,bænum; íbúð laus 1. okt. Borgun-
arskilmálar mjög góðir ef samið
er fyrir hádegi á morgun. Jónas
H. Jónsson, Hafnarstræti 15, —
sími 3327.
Bernhöftsbakarí, Bergstaðastræti
14. Heit vínarbrauð, birkishorn og
kruður kj. 9 að morgni. Einnig á
Nönnugötu 7 og Njálsgötu 23.
íbúS, 5 herbergi og eldlrás, til
leigu í Mjóstræti 6. (Einnig lient-
ug til iðnreksturs eða. matsölu).
Stúlka óskast 1. október í vist.
Þarf ekki að hugsa um matreiðslu.
Upplýsingar í Auglýsingaskrifstof
unni, Austurstræti 17-
Sölubúð, stór og góð, til leigu.
Ábyggilegur leigjandi getur feng-
ið mjög hagkvæman leigumála. —
Upplýsingar í A.S.Í. Ekki í síma.
Nokkrir menn teknir í fæði á
Laufásveg 4, uppi.
Nokkrir notaðir skólabekkir til
sölu eða leigu. fyrir mjög lágt
verð. Upplýsingar í síma 2416;
kl. 1—4 síðd.
Athugið! Hattar og fleira ný-
komið. Karlmannahattabúðin, —
Hafnarstræti 18. Handunnar liatta
viðgerðir, þær bestu, sarna stað.
Síminn í Fiskbúðinni á Laufás-
veg 37 er 4956.
Skólafólk og aðrir, sem í bæinn
koma utan af landi, ættu að fá
sjer mat í Café Svanur. Hann er
bæði góður þar og ódýr.
Legubekkir vapdaðir. Verð kr.
45.00, 55.00, 60.00 og 70.00. Körfu-
gerðin, Bankastræti 10.
„Freia'*, Laugaveg 22 B Sími
4059. „Freiu' heimabökuðu kök-
ur eru viðurkendar þær bestu og
spara húsmæðrúm ómak.
„Freia" fiskmeti og kjötmeti
mælir með sjer sjálft. Hafið þjer
reynt það ? Sími 4059.
„Freia“ „Delicious" síld er ó-
missandi á kvöldborðið. Sími 4059.
Postulíns matarstell, kaffistell
óg bollapör, nýkomið. Laufásveg
44, Hjálmar Guðmundsson-
Nýkomið. Morgunkjólaefni í fal-
legu úrvali, tvistau ódýr, Ijereft
frá 0.75,' silkiljereft mislit, barna-
sokkar allar stærðir, kvensokkar
margar fallegar tegundir. Nær-
fatnaður kvehna og barna í úr-
,vali, kvensvuntuefni frá 1.95 og
margt fleira af fallegum og ódýr-
um vörum. Ljereftabúðin.
Ensku og dönsku kenni jeg —
að lesa og tala. Einnig verslunar-
brjefaskriftir. 1 Kr. 2.00 um tím-
ann. Ódýrara ef fleiri eru saman.
Gunnar Benjamínsson, Garðastræti
8 niðri. Sími 3166.
Heimabakarí Ástu Zebitz, Öldu-
gðtu 40, þriðju hæð. Sími 2475.
Sigurjón Jónsson úrsmiður,
Laugavegi 43. Fljótar og vandað-
ai úrviðgerðir. Sanngjarnt verð.
Simi 2836.
Hreinlætisvðrur:
Persil 60 aura pk.
Flik Flak 55 aura pk.
Rinso, stór 50 aura pk.
Rinso, lítill 30 aura pk.
Allar vörur með tilsvarandi
lágu verði.
löhannes lóhannsson,
Grundarstí^ 2. Sími 4131.
Nýkomið:
Karlm.
Rykfrakkar,
mýög míkíð og
fallegt árval.
Verð frá
kr. 35.00
Vöruhúsið
Sköli ininn
fyrir börn, innan skólaskylduald-
urs, byrjar um næstu mánaðamót
i Aðalstræti 11 (Barnalesstofunni)
Sigríður Magnúsdóttir,
frá Gilsbakka,
Marargötn 1, sími 2416.
Heima kl. 1—4 síðd.
Pergamentpappír
nýkominn í mörgum litum.
Málarinn.
Sími 1496. P. O. Box 701.
Landmælingum herforingjaráðs-
ins mun hafa miðað vel áfram í
sumar, því veðrátta hefir verið
fremur hagstæð á Austurlandi. —
Fara landmælingamennirnir heim-
leiðis með Gullfossi nú í vikunni.
Magnús Gíslason, sýslumaður er
staddur hjer í bænum.
Hjeraðsvatnafyrirhleðsla. Hjer-
aðsvötnin í Skagafirði hafa í vatns
flóði í sumar brotist gegnum
bakka austanvert við Vindheima-
brekkur, svo hætt er við að þau
kunni að leggjast í gamla farvegi
vestur með brekkunum vestur í
Svartá. Tókst þá að teppa í rásir
þessar til bráðabirgða og er nú
í ráði að gera þarna fyrirhleðslu
í haust, til þess að sporna við því,
að Vötnin fari þarna úr farvegi
sínum og valdi skemdum á vestur-
hluta Vallhólmans.
Þessi númer hafa komið upp við
happdrætti þjóðkirkjunnar í Hafn
arfirði: Skipslíkan nr. 502. Ein
smálest kol nr. 740. Eitt lamb nr.
162. Einn stóll nr. 81.
Sogsvegvtrinn. Vegna stórrign-
inga og vatnsaga, hefir ekki verið
hægt að vinna að Sogsveginum nú
um tíma. Er vegurinn nú að mesta
lagður frá Grímnesbraut upp fyrir
Ásgarð, en eftir er þó að mölbera
veginn.
Bílvegur til Siglufjarðar. Mikill
áhugi er fyrir því, á Siglufirði, að
bílvegur komi sem fyrst þangað
sem yrði í sambandi við bílvega-
kerfi landsins.' Hefir vegamála-
stjóri haft það mál til athugunar
andanfarin ár, en ekki er fullráðið
enn hvar vegurinn verði lagður-
Er nít helst talað um að leggja
veginn um Siglufjarðarskarð. 1—
Árni Pálsson verkfræðingur mun
nú gera þar mælingar og rann-
sókn á því, hvert unt er að gera
þar bílfæran veg.
Líkið sem fanst á reki út af
Siglufirði telja ísfirðingar, sem
staddir eru þar nyrðra, hispurs-
laust vera lík Kristjáns Sigur-
geirssonar stýrimanns á ,Gunnari‘.
Ráða þeir það af vaxtarlagi og af
gullhring á hendi þess. Er hring-
urinn með plötu og á hana grafið
,.K“. — Líkið var í bjarghring,
eins og áður er sagt, og var hann
með nafni skipsins. Líkið var að
eins í nærfötum og með skó á
fótum.
Á hlutaveltu K. R. lilaut far-
seðilinn til Kaupmannahafnar
Árni Einarsson umboðssali. Mat-
vörudráttinn hlaut Loftur Áma-
son Nýlendugötu 15, kolatonnið
Guðbjartur Stefánsson, Góugötu
1 í Skerjafirði, steinolíuna Ingólf-
ur Theódórsson, Víðidal við Laug-
arnesveg.
Erindi Áma Pálssonar í útvarp-
ið um bannmálið var frestað þang-
að til í næstu viku.
Rit Jónasar Hallgrímssonar. —
Þriðja bindi af ritum Jónasar Hall-
grímssonar er nú komið í bóka-
verslanir- í því eru meðal annars
dagbækur skáldsins og kennir þar
margra grasa. Auk þess eru þarna
ýmsar yfirlitsgreinar og í þeim
fjöldi teikninga og mynda eftir
Jónas. Kynnast menn þar nýrri
hlið á listfengi skáldsins, sem fá-
um mun hafa verið kunn áður.
Bókarinnar verður getið nánar'
síðar.
Morgunblaðið er 6 síður í dag.
María Markan, hin ágæta söng-
kona, ætlar að syngja í kvöld í
Iðnó. Á söngskánni eru m. a. lög
eftir Pál ísólfsson (1 dag skein
sól), Bjarna Þorsteinsson (Taktu
sorg mína), Sigfús Einarsson
(Sofnar lóa), Þórarinn Guðmunds-
son (Þú ert), Árna Thorsteins-
son (Meðal)- Enn fremur lög eftir
Böhm, Rimsky-Korsakoff, Tosti,
Gianini, Puccini (aria úr Boheme
og Tosca), Verdi (aria úr Trou-
badour).
Ásigling varð fyrir utan Malmö
á sunnudagsnótt. — Rákust þar á
gufuskipið „Malmö“ eign Öre-
sundsfjelagsins og norska skipið
„Alex“. Á „Malmö“ voru 400 far-
þegar og tryltust þeir af hræðslu.
Sextíu meiddust, en þó þurfti
ekki að flytja nema 9 í sjúkra-
hús (Sendiherrafrjettú
Danssýning. Ungfrú Helene Jóns-
son og Eigild Carlson hafa stofn-
að danskóla hjer í bænum, og ætla
að hafa danssýningar fyrir bæj-
arbúa í Iðnó annað kvöld og fimtu
dagskvöld. Verða þar sýndir nýj-
ustu samkvæmisdansar.
Fisktökuskipin Örn og Fulton
sem flytja fisk fyrir Fisksölusam-
lagið, komu hingað á sunnudag-
inn og höfðu tekið fisk á höfnum
úti um land. Fulton fór aftur í
gærkvöldi.
Enskur togari kom hingað í gær
morgun til að leita sjer viðgerðar.
Auslýsine
u iii
bólusetntngu.
Þriðjudag, miðvikudag og fimíudag, 19., 20. og 21.
þ. m., fer fram opinber bólusetning í leikfimissal Miðbæj-
ar barnaskólans, kl. 1—3 síðd.
Þriðjudaginn skal færa til bólusetningar börn þau,
sem heima eiga vestan Laufásvegar og Þingholtsstrætis*
þar með talið Grímsstaðaholt og Skildinganes.
Miðvikudaginn, börn af svæðinu frá götum þessumt
austur á Frakkastíg, Leifsstyttu og Eiríksgötu.
Fimtudaginn, börn austan þessara takmarka.
Skyldug til frumbólusetningar eru öll börn, fullra
tveggja ára, ef þau hafa ekki haft bólusótt, eða verið
bólusett með fullum árangri eða þrisvar án árangurs.
Skyldug til endurbólusetningar eru öll börn, sem á
þessu ári verða fullra 13 ára eða eru eldri, ef þau ekki,
eftír að þau voru fullra 8 ára, hafa haft bólusótt, eða
verið bólusett með fullum árangri eða þrisvar án árangurs.
Hjeraðslæknirinn í Reykjavík, 17. sept. 1933.
jMagnús Pfefursson.
a.'owwniiawwBWWiiyh* <n? wu'.orjr. i ..uws* wwcMiaxjBsvwwBaGjiiiiiiiiOTJWi bwww>
Fyrirlíggfandi:
Haframjöl „Lormania“.
Hveiti „Crystal“.
Kandíssykur — Flórsykur.
Eggert Kristjánsson & Ce.
Sími 1400 (3 línur)
Hafði komið leki að skipinu. — í
gær var kafari að skoða botn
skipsins.
Niord, danska skipið, sem
strandaði hjá Ásmundarstöðum á
Sljettu, en Óðinn bjargaði, er 600
smálestir að stærð og er eign
Oscar Övesen í Höfn. Skipið var
við síldveiðar í sumar og munu
Norðmenn liafa átt eitthvað í út-
gerðinni, því að svo er sagt í
„Aftenposten“ að við strandið
hafi skipið mist bæði nót og nóta-
bát og hvort tveggja hafi verið
eign Henrik Knutsen á Akrehavn
á Körmt. Tveir Norðmenn voru á
skipinu
Hvalurinn í Vogum. Margir
menn fóru hjeðan úr bænum í gær
suður í Voga að gamni sínu til
þess að sjá hvalinn, sem Auðunn
frá Vatnsleysu fann og dró þar a.ð
landi.
Skipafrjettir: Gullfoss kom að
vestan og norðan í fyrrinótt. —
Goðafoss kom frá útlöndum á
sunnudag og fer vestnr og norð-
ur 20. þ. m. Brúarfoss er í Höfn.
Dettifoss er á leið til Hull frá
Vestmannaeyjum. — Lagarfoss er
í Höfn. Selfoss fer hjeðan í dag
til Keflavíkur, Önundarfjai'ðar,
Hesteyrar og þaðan út.
Innflutning'urinn. Samkvæmt til-
kynningu f jármálaráðuneytisins
varð innflutningurinn í ágústmán-
uði kr. 6.120.047.00; þar af til
Reykjavíkur kr. 4.499.183.00. FB.
Sjómannakveðja: FB. 17. sept.
Byrjaðir að veiða. Óvíst hvenær
komnm heim. Kveðjur.
Skipverjar á Karlsefni.
Nemendnm
ber að tryggja sig! —
Andvaka.
Lækjargötu 1. Sími 4250,
Hið viðurkenda
Barnalýsi
frá
Laugavegs Hpótekí
inniheldur í einu grammi:
2000 A bætiefnaeiningar
1000 D bætiefnaeiningar.
Nú er tíminn til þess að gefai
börimm þetta viðurkenda þorska-
lýsi.
ibúð.
Tvö herbergi og eldhús með öll-
um þægindum, óskast sem næst
miðbænum 1. okt-
Tvent í heimili.
Tilboð með nauösynlegum upp
lýsingum leggist inn á A. S. 1.
fyrir föstudagskvöld. Merkt: íbúð-