Morgunblaðið - 07.12.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.12.1933, Blaðsíða 3
a MORGUNBLADIH 1 H.f. Arvakur, ReykJaTÍk* IXLltatjörar: Jón Kjartanssoa. Valtýr StafáJBMom. Rltstjörn Off afgrelBsla Aurturetræti 8. — Slml 1«00 fl.ujrlýalnff&atjórl: BL Hafberjf. V ajtf lýstnKaakrlfetofa A uat aretrætl 17 —Slml «700. <*tmaeiuar Jói. K.J rtanseon nr. 8742. v'altýr Stef&neeon nr. 4220. Árnl Óla nr. 8046. E Hafberg nr. 8770. e&rlftagjald: Innanlande kr. 2.00 A mÍB«81. Htanlande kr. 2.60 á eeAnaól. laueæölu 10 aura elntaklB. 20 aura meO LmMIl leiklist og leikhús. Leikfjelag Reykjavíkur fór jjess á leit við Alþingi, að fá und- anþágu frá greiðslu skemtana- skatts. Bfri deild synjaði því- Leikfjelagið fær 4000 króna ríkisstyrk á ári. Leikfjelagið greið ir 3000 krónur í skemtan a.skatt- Sú fjárnpphæð rennur í ríkissjóð. Eftir eru 1000 krónur. Það er sá styrkur, sem Leikfjelagið fær nú frá ríkinu. Þjóðleikhús hefir verið hygt. -— Það er komið undir þak. — Það, sem komið er hefir kostað urri % miljón króna- — Yon- ast er eftir að leikstarfsemi geti byrjað þar eftir nokkur lár. Að innan þeirra v-eggja geti íslensk leiklist eflst og blómgast- Eða er ekki svo? Var ekki skemtanaskattnr lög- leiddur í þeim tilgangi? Eða hefir þjóðin verið krafin xim þenna skattpening, til þess ins, að fyrir þá yrði hægt að reisa háa múrveggi — innantómt liús, kumbalda, sem aldrei fengi a.Ö hýsa sanna leiklist? Menn geta litið svo á, eftir því ■sem síðast hefir á daginn komið. Leikfjelag Reykjavíkur á erfitt nnpdráttar- Það :á við marga erf- íðleika að stríða. Það berst í bökk um, og er mjög hæpið að starf- ■serni þess geti haldið áfram, með þeim hverfandi styrk, sem það fær. En leggist leikstarfsemi hæjar- íns í rúst — til hvers er þá þjóð- leikhiisið? Hvaða gagn gerir sú mikla bygging, ef leikstarfsemi hæjarmanna hefir orðið hungur- morða, orðið úti við húsvegginn? Þeir, sem vilja leiklistinni vel, og halfa harist fyrir þjóðleik- húsi hennar vegna, þeir hljóta að skilja, að leikstarfsemin er aðal- atriðið, og leikhúsið er bygt henn- ar vegna- En framkoma Alþingis gagn- vart Leikfjelagi Reykjavíkur hendir helst til þess, að þar sjen menn, sem telja steinveggi þjóð- leikhússins aðalatriðið, en minna um vert, hvað það verður, sem þeir fá að geyma. Jarðskjálftar í Grikklandi. Berlín 6. des. F. Ú. f Grikklandi urðu allsnarpir jarðskjálftar í nótt, á sömu slóðum og jarðskjálftarnir í fyrra. Tjón varð þó ekkert af, en íbúamir urðu mjög skelkað- ir og hræddir um að hörmung- arnar þær í fyrra endurtækju sig. Asgeir Asgeir§son gefst upp við sijóriiarniyiidiin. Forseti sameinaðs þings enn spurð- ur ráða. ' Eins og frá hefir verið skýrt hjer í hlaðinu, símaði konungur þ. 22- f. m. Ásgeiri Ásgeirssyni forsætisráðherra og fól lionum, samkvæmt hendingu frá forseta sameinaðs þings, að rannsaka möguleika fyrir myndun nýs ráðu neytis, „er hefði stuðnings eða hlutleysi meirihluta alþingis- manna'£. Forsætisráðherra mun strax um hæl hafa símað konungi, að svar sitt viðvíkjandi þessari málaleytan yrði sent eins fljótt og mögulegt væri. Á þriðjudagskvöld____sendi svo Ásg. Ásgeirsson konungi skeyti, þar Sem hann skýrði frá því að hann, að irannsökuðu máli, treysti sjer ekki að mynda þingræðis- stjóm og því afsalaði hann sjer umboði til frekari tilrauna tjl stjórnarmyndunar. Konungur snýr sjer enn til forseta sameinaðs þings. Er konungur hafði móttekið skeyti forsætisráðheira, símaði konungsritari aftur forseta sam- einaðs þings, Jóni Baldvinssyni, og spurðist fyrir um það, hvort hann gæti bent á nokkum annan mann, eir hann teldi líklegan til að geta myndað þingræðisstjóm. Þetta skeyti barst forseta Sþ. laust eftir liádegi í gær. Formenn flokkanna spurðir. Þegar Jón Baldvinsson hafði fengið skeytið frá konungsritara, sneri hann sjer til formanna Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins og spnrðist fyrir um það, hvort þeir vissu nokkra mögu leika til myndunar þingræðis- stjórnar. Formaður Sjálfstæðisflokksins mun þegar hafa svarað forseta Sþ. því, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði áður verið búinn að gefa sitt svar lijer að lútandi, þegar konungsrit- ari hafði til hans leitað. Það, sem fram hefir farið nú í sambandi við tilraunir til nýrrar stjórnarmyndunar, er í raun og veru ekkert ánnað en það, sem hver og einn gat sagt sjer sjálfur fyrir. Þegar Jón Baldvinsson benti á dögunum á Ásg. Ásgeirsson sem líklegan til þess að geta myndað nýja stjóm, var það í raun og | veru ekkert annað en blekking. Jón Bald. vissi vel, að Ásg. Ásg. haðst lausnar — ekki vegna þess að stjóm hans hefði mist þing- ræðisgrundvöllinn — heldur vegna ósamkomulags innan Framsóknar- flokksins. Hann baðst lausnar vegna þess að meirihluti hans flokks hafði óskað þess. Af þessu mátti telja það nokk- urnveginn víst, að Ásgeir Ásg. myndi ekki fara að mynda nýja stjórn gegn vilja meirihluta síns | flokks- Nú kemur aftur til kasta Jóns Bald. að gefa konungi holl ráð- Hver þau verða veit blaðið ekki, en ekkert hafði hann símað kon- ungi í gærkvöldi. Bannið npphaiið i U.S.A. Yínsala byrjaði i gær. London, 6. des. F. Ú. Loksins, klukkan 9 í gær- kvöldi (eftir íslenskum tíma) staðfesti Utharíki atkvæðagreiðsl- una um bannið, og var þá skömmu síðar byrjuð vínsala á veitingastöðum, sem frá því um morguninn höfðu beðið eftir því að leyfilegt yrði að selja. Osló, 6. des. F. Ú. Það er nokkuð misjafnt, hvernig áfengislagabreytingin er framkvæmd í einstökum ríkj- um. í sumum ríkjum eru bann- lögin ekki afnumin, og í öðrum hefir atkvæðagreiðsla ekki far- ið fram ennþá. Um vínflutn- inga frá útlöndum hafa verið sett sjerstök ákvæði, og að því er snertir flutninga milli Canada og Bandaríkjanna gilda þau ákvæði, að Bandaríkja-ferða- menn mega flytja með sjer frá Canada inn í Bandaríkin alt að 100 dollara virði af áfengi, ef áfengið er ætlað til eigin þarfa þeirra, en það má ekki vera 'ætlað til verslunar. Berlín 6. des. F. Ú. Roosevelt hefir gefið út opin- bert ávarp í tilefni af afjiámi bannlaganna. Kveðst hann treysta svo hinni heilbrigðu skynsemi Bandaríkjamanna, að þeir misnoti ekki drykki, sem komnir eru á markaðinn, og skorar hann á alla, að styðja viðleitni stjómarinnar í að ala þjóðina upp í hófsemi. Vetrarhðrkur f Eurúpu. Alstaðar nema á íslandi. London, 6. des. F. Ú. Blöðunum verður nú tíðrædd- ara um veðrið en jafnvel um stjórnmál. Vetrarhörkur ríkja nú svo að segja um alla Evrópu nema ísland og suður Græn- land, og eru sumstaðar þær mestu í manna minnum. I Frakklandi er meira frost en menn vita til áður, og Parísar- búar skemta sjer nú á skaut- um. Sumstaðar er 25 gráða frost á Celcius. Víða fylgir mik- il snjókoma þessum kuldum. Hafið þið lesið Sögar eftír Shakespeare, 1. bíndí. Alþýðuútgáfa af verkum þessa heimsfræga skálds er nú byrj- uð að koma út á íslensku- — í Englandi hafa sögur þessar náð almennum vinsældum, sem skemtilegur og hollur lestur, einkum fyrir traglinga. — Fæst hjá bóksölum. Höftini fyrirliggjandi Ýmis konar spánskar og ítalskar Vcfnaðarvörur. Eínníg sokka fyrir dömur og herra. B. Helgason & Melsted. Lindbergh í Brasilíu. Bathurst, 6. des. Unlted Press. FB. Lindbergh og kona hans eru lögð af stað hjeðan og er emri ætlað að þau muni halda til Brazilíu. Síðari fregn: Frá New York er símað, að áreiðanlegt sje, að Lindbergh ætli til Brazilíu. Hef- ir hann haft stöðugt samband j við loftskeytastöðina í Para frá j því nokkru eftir að hann lagðij af stað frá Afríku. London, 6. des. F. Ú. Lindbergh flugmaður og kona hans lentu heilu og höldnu í Port Natal í Brazilíu síð- degis í dag. Þau lögðu af stað; frá Bathurst á Vesturströnd Afríku í morgun. Vegalengdin sem þau flugu yfir Atlantshafið er 1900 mílur enskar, og gekk flugið slysalaust. Fótatak manna hin nýja bók eftir Hall- dór Kiljan Laxness er nú komin í bandi. Verð kr. 7.00, betra band kr. 8.00, óbundin kr. 5.00. Htilda: Þú hlustar Vör. Ljóðaþættir eftir hina góð kunnu skáldkonu Huldu. Sumar eldri bækur henn- ar munu nú vera uppseld- ar, og er lítill vafi á að þessi bók selst upp fyrr en varir, enda er upplag hennar aðeins 260 tölu- sett eintök. Verð kr. 7.75 innbundin. Þórtinn Magnúsdóttír: Dætur Reyk'avíkur. Sögur. Verð kr. 3.50 ób. og kr. 5.00 ib. Hit’er samningafús við frskka. London, 6. des. F. Ú. Sendiherra Breta í Berlín fór í gær á fund Hitlérs, og sagði honum, að Bretar vildu gjarn- an að Þýskaland og Frakkland byrjuðu sem fyrst á samniiiga- gerðum sín á milli. Hitler tók málinu vel, og sagði að Þjóð- verjar væru mjög fúsir til þess að hefja umræður við Frakka, gegn vissum skilyrðum. Um verslunarskuldirnar. Fundur var í Varðarfjelaginu í fyrrakvöld- Þar hóf Gísli Sveins- son alþm. umræður um frumvarp Gttðm. Kamban: 30. Generation. Þessi bók hefir þegar selst mikið bæði hjer og í Dan- mörku. Ritdómarar hafa sagt kosti og lesti á bók- inni, og hefir hún verið mjög ramtöluð. Kaupið þessa bók og kynnist henni af eigin reynd. Úrvalsljóð Jónasar Hallgrímssonar, í hinni fallegu útgáfu, er ágæt bók til þess að senda kunningjum úti á landi í jólagjöf. Bókin er svo fyr- irferðarlítil að hana má senda í brjefi. iM’imiiM það sem hann flytur á Alþingi um verslunarskuldir, ásamt tveim öðr- um þingmönnum í neðri deild. Flutti hann langt mál og snjallt, og var gerður góður rómur að máli lians- Margir tóku til máls; m. a. Garðar Þorsteinsson málafærslu- maður. Benti hann á, að hægt myndi vera að fara kringum á- kvæði frumvarpsins. Næstur tal- aði Sig- Skjaldberg kaupm., þá Magnús Jónsson alþm. Hafði hann j ýmislegt við frumvarpið að at- j huga. Fleiri tóku til máls, m. a- jJón Pálmason á Akri. Fundurinn var mjög fjölmenn- 1 ur, og stóð fram undir miðnætti. Austurstræti 1; Sími 2726. L Hðardúnn 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.