Morgunblaðið - 07.12.1933, Blaðsíða 4
4
v| < > R <i I N H I, A f) I H
*
| Sma-auglysingar;
Kjötfars og fiskfars heimatilbú-
ið, fæst daglega á Fríkirkjuvegi
3. Sími 3227. Sent heim._____
Sauma dömukjóla og kápur. —
Einnig allskonar barnafatnaði.
Elínborg Kristjánsdóttir, Grettis-
götu 44 A-__________
Kenni þýsku, ensku, bókhald og
verslunarreikning. Jón A- Gissur-
arson, Dipl. Handelslehrer, Báru-
götu 30 A. Sími 3148.
Fæði, gott og ódýrt, einnig ein-
stakar máltíðir og aðrar venju-
legar veitingar. Café Svanur, við
Barónsstíg og Grettisgötu.
AUar upplýsingar viðvíkjandi
Happdrætti Háskólans fáið þjer í
Varðarhúsinu daglega frá kl. 11—
12 fyrir hádegi og 4—7 eftir há-
degi. Sími 2644.
Dívanar, dýnur og alls konar I
stoppuð húsgögn. — Vandað I
efni. Vönduð vinna- Vatnsst. 3 I
Húsgagnaverslun Reykjavíkurl
Kaupið
Jólakjólinn
á jólasölu NINONS
sem hefst í dag.
Kjólar seldir fyrir
15.00 til 38 kr. sem
hafa kostað alt að
75.00. —
Komið strax meðan
úrvalið er mest!
NINON.
Austurstræti 12, uppi-
Opið frá 2—7.
KrossviðBr
ódýrastur og bestur í
Húsgaffnaverslun
Kristjáns Siggeirssonar,
Laugaveg 13.
Gerduft
á 1,50 1/2 kg. Eggjaduft 1.50
i/2 kg. Rúsínur 0.65 l/2 kg.
Alt til bökunar er best að
kaupa í
tfersl. Einars Eyiölfssonar
Týsgötu 1 — Baldursgötu 10,
Hveiti besta teg. 0.18 Va kg.
Haframjöl besta teg. 0.20 %
kg.
Hrísgrjón 0.20 y2 kg.
Kartöflumjöl 0.25 V2 kg.
Hrísmjöl 0.35 y2 kg.
Molasykur 0.28 y2 kg.
Strausykur 0.23 y2 kg.
Versl. Fos§
Laugaveg 12. Sími 2031.
□agbók.
Veðrið (miðvikudagskv- kl. 5):
1 Vm. er vindur ennþá hvass. SA,
en yfirleitt er hægviðri og góð-
viðri hjer á landi. Hiti er 5 st.
sunnanlands og vestan, en um 0
á NA-landi. Lægðin fyrir suðvest-
an landið hefir grynst mjög síð-
asta sólarhring og lítur út fyrir
að góðviðri muni haldast næsta
sólarhring.
Veðurútlit í Rvík í dag: SA-
gola. Urkomulaust.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 15.00
Ve^urfregnir- — Endurtekning
frjetta o. fl. Þirigfiyettir. 19.00
Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir.
19.20 Tilkynningar. Tónleikar.
19.35 Dagskrá næstu viku- Tón-
leikar. 20.00 Klukkusfáttur. Frjett-
ir. 20.30 Erindi: Ilm myndlist-
(Guðm. Einarsson). 21.00 Tónleik-
ar. (Útvarpstríóið). Grammófón:
Baeh : — Brandenburger Konsert,
Passaeaglia. — (Philadelphia Sym
phoniu orkestrið, Leopold Sto-l
kowski). — Danslög.
Sjómannakveðja. FB. 6. des.
Erum á útleið. Vellíðan- Kærar
kveðjur. Skipverjar á Skallagrími.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Afh. af Hallgrímsnefnd dómkirkju
safnaðarins. Ábeit frá N- N. 5 kr.
Frá Dagbjarti Sigurðssyni 10 kr.
Kærar þakkir. 01. B. Björnsson.
Frá Norðfirði var símað { gær:
Mikil síld var hjer á firðinum í
nótt- Einn bátur kastaði herpinót,
en reif nótina og fekk því aðeins
50 tunnur- Afbragðs færafiskur
upp við iandsteina. Veðurblíða
seinustu daga.
Jarðarför frú Sigríðar Þorláks-
dóttur frá Rauðará fer fram í
dag og hefst með húskveðju lcl. 1.
Eimskip. Gullfoss fór frá Leith
í fyrrakvöld á leið til Vestmanna-
eyja. Goðafoss er á lejð til Ham-
borgar frá Hull. Brúarfoss fór frá
fsafirði í gærmorgun á leið til
Reykjavíkur. Dettifoss kom frá
Hull og Hamborg í fyrrakvöld.
Lagarfoss var á Akureyri í gær.
Selfoss er { Reykjavík-
Farþegar með Dettifossi frá út-
löndum voru Geir Zoega útgerðar-
maður í Hjafnarfirði, ungfrú Re-
gína Jónasdóttir og Ingólfur Hin-
riksson.
Björgunarskútu ætla Siglfirðing
ar að koma sjer upp, og hafa tekið
upp fjársöfnun í því skyni. Hafa
Siglfirðingar á þessu hausti feng-
ið mikil og sorgleg tilefni til þess
að koma sjer upp björgunarskútu.
Er vonandi að þeim takist þetfa
sem fyrst.
Haustgróður. I varpeyjum í
Mýrasýslu, þar sem gróska er mik-
il, hefir gróðri að sögn farið fram
nú um tíma. Svo miki] og stöðug
hafa hlýindin verið. Af Norður-
jlandi berast fregnir um það, að
menn hafi fundið nýútsprungnar
sóleyjar í túnum-
Kirkja valt. Á Brettingsstöðum
í Flateyjarda] valt, kirk.jan um
koll í ofviðrinu á laugardaginn
var. —
Gosfregnir. Á þriðjudaginn var,
um kl. 5 síðd. urðu menn á Skútu-
stöðum í Mývatnssveit varir við
bjarma í suðri, er þeir hiklaust
töldu stafa af gosi. Var stefnan
frá Skútustoðum í bjarmann rjett
vestan við Sellandafjall.
Mæðrastyrksnefndin hefir upp-
lýsingaskrifstofu sína opna á
mánudagskvöldum og fimt.udags-
kvpldum k]. 8—10 í ÞinglioHs-
stræti 18. niðri.
ísfisksala. Júpíter seldi a.fla sinn
í Englandi í gær, 2500 körfur,
fyrir 1171 sterlingspund.
Ungbarnavemd Líknar, Bárug.
2 (gengið inn frá Garðastræti, 1.
dyr t. v.). Læknir viðstaddur á
fimtud. og föstud- kl. 3—4.
Meðal farþega með Lyru hingað
frá Noregi í fyrradag voru: Guð-
mundur Jónsson, Ari Jóhannesson,
Ámi Oddsson, A- Ólafsson, Jónas
Andrjesson, H. R. Jóhannesson.
Lyra kom hingað í fyrrakvöld
frá Noregi og fer hjeðan í kvöld
áleiðis til Bergen. Fyrsta ferð
skipsins eftir áramót frá Bergen
verður 4. jan.
Aldrei fyr
hefir verið tækifæri að kaupa jafn ódýra borðlampa og nú_
20% afslðttur til iíla.
Raftækiaverslun Eiríks Hiartarsonar,
Laugaveg 20. Sími 4690.
Dronning Alexandrine kom til
Leith á þriðjudaginn kl. 5 síðd-,
er skipið væntanlegt til Kaup-
mannahafnar á morgun.
íslandið kom hingað frá Kaup-
mannahöfn kl. rúmlega 6 í gær-
kvöldi.
Sigurður Nordal prófessor kom
heim með „íslandi“ í gær úr há-
skólafyrirlestraför sinni til Sví-
þjóðar.
Hjúskapur. 1 dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssjmi, ungfrú Sigríður Einars-
dóttir og Þorbjörn Jóhannesson
kaupmaður. Heimili xingu hjón-
anna verður á Laugaveg 78.
Pjetur Benediktsson eand- jur.,
sem um þrjú ár hefir verið full-
trúi í danska utanríkisráðuneyt-
inu, kom hingað í gærkvöldi með
íslandi. Mun hann dvelja hjer um
þriggja vikna skeið.
Höfnín, Hunstworth, kolaskipið,
sem var væntanlegt hingað með
ltolafarm til kolaverslunar Sigurð-
ar Ólafssonar, kom hingað ; gær-
morgun. Norska fisktökuskipið
Lyngstad fór hjeðan í gærkvöldi
til þess a% lesta fisk út um land.
Meðal farþega með íslandinu
hingað í gær frá Kaupmannahöfn
voru: Scheving Þ. Thorsteinsson
og frú, L. Kaaber, Brynjólfur
Stefánsson, Halldór Sigfússon,
Magnús Sigurðsson, Jóhann Þor-
steinsson, Halldór Eiríksson, Haf-
liði Helgason, Einar Pjetursson
Bjarni Guðjónsson,, frá Elna Guð-
jónsson, Þuríður Þorsteinsdóttir,
ísafold Teitsdóttir, Rósa Guð-
mundsdóttir, frú Vilborg Sigurðs-
son, frú Gjaflaug Hlín, Jón Krist-
jánsson, Akureyri, Sigvaldi Þor-
steinsson, Helgi Pálsson, Akureyri.
Jóhann Sigurjónsson. Minning-
arútgáfa af öllu því, sem liggur
eftir skáldið í bundnu og óbundnu
máli, ætlar Gyldendal að gefa út
á næsta hausti. Verður bókin í
tveimur stórum bindum og vérður
þar margt, sem ekki hefir birst
opinberlega áður, svo seni brjef
Jóhanns o- fl. Það er Gunnar
Hansen leikstjóri sem sjer um út-
gáfuna. fyrir forlagið.
Fjárhagsáætlun Hafnarf jarðar
var tii umræðu á bæjarstjórnar-
fundi í fyrrakvöld. Eru tekjur
og gjöld áætlað svipað og í fyrra
og niðurjöfnun útsvara 115.200 kr.
Varðmenn hefir Mentaskóli Ak-
ureyrar nú á hverri nóttu uppi á
Súlum til þess að skygnast eftir
því hvort nokkuð sjáist til eld-
gosa í Trölladyngju eða Vatna-
jökli.
Fjárþurðin í Landsbankanum.
Rannsókn í máli Þorsteins Jóns-
sonar bankamanns var lokið \
fyiradag og dómur kveðinn upp í
gær í undirrjetti. Var Þorsteinn
dæmdur í 16 mánaða betrunarhús-
vist og til þess að greiða Lands-
banka íslands kr. 74.424.24. Síðan
mál þetta komst upp, hefir Þor-
steinn verið í gæsluvarðhaldi, en
slept um leið og dómur hafði ver-
ið upp kveðinn.
Morgunblaðið er 8 síður í dag-
Höfðíngleg gjöf. Framfarafjelag
Seltirninga sendir Slysavarnafje-
lagi íslands 200 kr. — tvö hundr-
G’S U N BREAKÁB LE
WATCH CHVSTALS
Obrjótanlegu
úrglerln
fást hjá
Ölllllll
úrsmiðum.
Tungumálaskólinii
Laugaveg 11
WBSr
gengst fyrir dansleik í Oddfellow húsinu, laugardaginn 9. þ. m.
kl. 9 e. m. Ágóðinn verður jólag-jöf til fátækrar ekkju. — Að-
göngumiðar fást í Oddfellow-húsinu og Tungumálaskólanum,
Laugaveg 11 og kosta kr. 3.00.
Skemtið ykkur! — og gerið um leið þarft verk.
Aths. Dansleikurinn verður á 1. hæð til kl. 11%, eftir það
niðri í stóra salnum.
uð krónur — sem gjöf til björg-
unarskútunnar við Faxaflóa, í
minningu um fimtíu ára starfsaf-
mæli fjelagsins. Þetta fjelag var
stofnað á þeim tíma þegar sjósókn
og sjómenska öll var rekin af
Seltimingum með hinum mesta
dugnaði 0g fyrirhyggju af hinum
mestu sjógörpum og heppnisfor-
mönnum, er sögur fara af hjer við
Faxaflóa, þegar engin vjel þekt-
ist, eða var komin í nokkum bát
á Islandi- Fyrir þessa vel hugsuðu
minningargjöf þakka jeg hjartan-
lega fjelaginu og forgangsmönnum
þess. Rvík, 6. des. 1933. F- h. Slysu
vamafjelags íslands.
Þorst. Þorsteinsson.
Kosningalögin voru til einnar
umr. í Nd. í gær- Allmargar brtt.
lágu fyrir, bæði frá stjórnarskrár-
nefnd og einstökum þingmönnum
og var mikill ágréiningur um
sumar þessar tillögur. Kl. um 7
voru umræður að heita má búnar
og aðeins atkvgr. eftir; rýkur þá
forseti til og tekur málið út af dag
skrá. Hjekk Jónas frá Ilriflu altaf
yfir forseta og mun hann hafa
ráðið þessum vinnubrögðum. En
ástæðan til þess, að málið var tek-
ið af dagskrá var sú, að tveir úr
sósíalistadeild Framsóknar, Berg-
ur og Eysteinn voru fjarverandi-
Ef þjer ætlið að
kaupa góðan lind-
arpenna, þá at-
hugið að á honum
standi merkið
WokdeR
l l
áborð,
Saumaborð,
Lampaborð,
Reykborð,
Dagstofuborð
í miklu úrvali, afar ódýr, mjög
hentug nú fyrir jólin í
Húsgagnaverslun
Kristjáns Siggeirssonar,
Laugaveg 13.
Suðurför Byrds.
London, 6. des. F. Ú.
Byrd pólfari og fjelagar hans
komu í dag til Wellington í
Nýja Sjálandi, og leggja það-
an af stað næstkomandi þriðju-
dag í nannsóknarför sína suður
í höf á skipi sínu, Jacob Rupert.
Þeir hafa með sjer fjórar flug-
vjelar, og ýmisleg rannsóknar-
tæki, og ætla að fljúga yfir
svæði, sem ekki hafa verið rann-
sökuð áður. Meðal annars hafa
þeir með sjer þrjár kýr, og eru
það fyrstu kýrnar, sem fluttar
hafa verið til suðurheimskauts-
landa.
Mnnið A. S. I
Stórráð fasista.
London, 6. des. F. Ú.
Meðal annara mála, sem tek-
in voru til umræðu á fundi
Stór-ráðs Fasista í Róm í gær-
kvöldi, var yfirlýsing um endur-
bætur á þjóðfjelagsskipulag-
inu, sem Mussolini hefir stung-
ið upp á að yrðu gerðar, og
fela í sjer breytingar á skipu-
lagningu stjetta í landinu.