Morgunblaðið - 14.12.1933, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐiÐ
3
JRorgxutbíafttA
ÍTtc«f.: H.f. ÁrvHiur, SarUarik.
‘tltatjórar: Jón KJ&rtansaon.
Vs.ltýr StnfÓJDiMOB.
Hltatjörc ogr afgrolðsla:
Aucturstrætl 8. — Siml 1«00.
& Ufflýsln^ajitJöri: BL Haf ber*.
A.UKlí»lntra«krlf«tofa:
Austuratrætl 17. — Slnl »700.
Xelmasluar:
Jón Kj rtansson nr. Í74Í.
Valtýr StefAnsson nr. 4220.
Árnl Óla nr. 8045.
H. Hafberg nr. 8770.
Inkrlftagjald:
Jnnanlanda kr. 2.00 4 m&nnSt.
TJtanlanda kr. X.E0 4 »4nnSt,
1 laua&aölu 10 anra clntaklS.
20 aura m«B ImML
Alþýðublaðið.
AlbýSnblaðið hefir margt að
segja um stjómmálaviðhorfið
pessa dagana.
Skiljanlegt er, að þeir sósíalist-
arnir sjeu glaðið yfir þeim liðs-
auka, sem þeim nú er væntanleg-
ur úr li«i Framsóknar- Því að
eftir klofninginn, sem orðið hefir
í Framsóknarflokknum, nálgast
óðum sú stund, að Jónas frá
Hriflu hverfi aftur til sinna fyrri
heimkynna — sósíalistanna. — Ur
þeim herbúðum var llann gerður
út á bændaveiðar um árið, og nú
mun sú stund komin, að ekki þýði
fyrir hann að halda feluleiknum
áfram úr þessu.
Annað mál er það, hvort mann-
margt verði liðið, sem Jónasi fylg-
ir að lokum yfir til sósíaHstanna.
Vafalaust verða þar mikil vanhöld
á, þegar dregið verður endanlega
í dilkana.
Þessi ótti skín út úr Alþýðu-
blaðinu síðustu dagana.
Þess vegna er blaðið að flytja
allskonar Gróusögur um ktofning
í Sjálfstæðisflokknum.
Síðast í gær, segir Alþýðubl. frá
því, að Pjetur Ottesen alþm. sje
i þann veginn að ganga úr Sjálf-
stæðisflokknum og yfir í einhvern
nýjan flokk, sem Tryggvi Þórlialls
son sje að mynda.
f sambandi við sögu þessa, skýr-
ir Alþbl. frá því, að Sjálfstæðis-
menn hafi haldið fund í fyrradag,
en Pjetur Ottesen hafi ekki mætt
þar og þó hafi verið gerðar ýtar-
legar tilraunir til þess að ná
honum á fundinn-
Alt er þetta tóm endileysa hjá
Alþýðublaðinu. Sjálfstæðisflokkur
inn hefir engan fund haldið síð-
an á sunnudag og eklci staðið
til. A fundinum á sunnudaginn
voru allir flokksmenn mættir
nema Kári Sigurjónsson — sem
var farinn úr bænum, og Jakob
Möller, sem var veikur.
Annars skal Alþbl. sagt það,
þótt því falli það sjálfsagt miður,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefir
sennilega aldrei verið eins sam-
hentur og einhuga og einmitt nú.
Og máske er það að einhverju
leyti sósíalistum að þakka, bæði
þeim, sem að Alþbl. standa og
eins hinum, sem gefa út Tímann,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefir
aldrei verið öruggari um sigur
síns málstaðar og einmitt nú.
Makk þeirra sósíalista og Jón-
■asarliðsins í Framsóknarflokknum
á aukaþinginu í haust, liefir opn
að augu kjósendanna í landinu
fyrir þeirri staðreynd, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er eini stjórn-
málaflokkurinn í landinu, sem
hægt er að treysta gagnvart bylt-
inga og öfgastefnum.
Togarastranöið.
Einn af þýsku sjómönnunum, sem
taldir voru af, er fundinn á lífi. —
Annar fanst liðið lík í bátnum.
Þegar enski togarinn „Mar-lur skeyti um ófarir Þjóðverj-
garet Clark“ strandaði á sönd-|anna til Fagurhólsmýrar. Voru
unum fyrir vestan Ingólfshöfða, | þá sendir aðrir menn á stað til
komu bændur úr Öræfum þang-,þess að fara niður í sand og
að niður í sandinn til þess að ileita að þeim og reyna að bjarga
vera skipbrotsmönnum til að-!þeim. Þessir menn hittu á miðri
stoðar. | leið þrjá Þjóðverja og sneru
Enski togarinn fleygði út með þeim heim til bæja, eins og
dufli með mjórri festi í og rakjsagt var frá í blaðinu í gær.
það í land. Átti síðan að draga
frá skipinu til lands sterkari
Hinir mennirnir, er fyr voru
sendir um morguninn, höfðu far
festi, er skipverjar gæti bjarg-jið á mis við þá. Komu þeir nið-
ast á. En meðan verið var að ur í sandinn,
draga hana frá skipinu, slitn-
aði hún.
Þá tóku skipverjar það fanga-
ráð, að setja björgunarbátinn
á flot. Bundu þeir við hann kað-
al, sleptu honum svo og Ijetu
hann reka til lands með kaðl-
inum. Gekk þetta vel. Menn-
irnir í landi náðu í bátinn og
kað^linn, sem við hann var fest-
ur, og nú var báturinn dreginn
aftur cg fram milli skips og
lands, þangað til öllum skip-
verjum var bjargað. Komust
þeir óhraktir í land, en menn-
irnir í landi, sem höfðu staðið
í brimgarðinum til þess að taka
þar sem bátur Þjóð-
verjanna lá marandi
og eitt lík í honum.
Þaðan heldu leiðangurs-
menn vestur með söndunum og
þangað að, er enski togarinn
hafði strandað. Þar rjett fyrir
vestan var enski báturinn, sem
skilinn hafði verið eftir í fjör-
unni
og í honum lá þýskur
sjómaður, meðvitund-
arlaus.
Sáu aðkomumenn varla lífs-
mark með honum, en það varð
þeirra fangaráð, að færa hann
úr freðnum fötunum, meðan
á móti þeim, voru kaldir og illa einn klæddi sig úr hverri spjör
til reika. Var nú haldið heim til og var svo skift fötum þannig,
bæja, því að enginn af land- að Þjóðverjinn var klæddur í
mönnum sá neina ástæðu til þess hiýju föt mannsins, en hann fór
að vera þarna lengur. Skipshöfn aftur í hin klökugu föt Þjóð-
inni var bjargað og meira var verjans. Var síðan um Þjóðverj-
ekki hægt að gera. ! ann vafið heyi, sem leiðangurs-
Strandmönnunum var komið menn höfðu haft með sem fóð-
fyrir á Fagurhólsmýri og ur handa hestum sínum, og því
Hnappavöllum, eins og áður er næst haldið til sæluhússins hjá
sagt. Morguninn eftir voru Ingólfshöfða. Þar var gist um
menn sendir með hesta niður í nóttina. Raltnaði Þjóðverjinn
sand til þess að vita hvað tog- við, þegar honum tók að hlýna
aranum liði og hvort nokkuð og gerðist nokkuð hress. Var
ræki úr honum í land. ! komið með hann að Fagurhóls-
Þá um sama> leyti var þýski mýri í gærmorgun. Ekkert man
togarinn „Consul Dubbers“, hann um það, hvernig hann
kominn á strandstaðinn, ogjlosnaði við bátinn, nje hvernig
hafði mist frá sjer bát með sexjhann rak á land. Ekki man hann
mönnum, og báturinn farist við
sandinn.
Þetta vissu menn þá ekki inni
í Öræfum, en rjett á eftir kem-
Er skarlatssóttar-
faralður í aðsígi?
Skarlatssótt hefir undanfarið
gert talsvert vart við sig í Kefla-
vílt, og eins austur í Árnessýslu.
Og mi upp á síðkastið hefir skar-
latssótt komið upp á einum 15—
20 heimilum í Hafnarfirði. Eftir
því, sem blaðið frjetti í gær, hafa
skarlatssóttarsjúklingar í Hafnar-
firði ekki verið einangraðir, en
þær varúðarráðstafanir gerðar
gegn útbreiðslu veikinnar, að böm
hafa ekki fengið að koma í heim-
sókn í liin sýktu heimili, og börn
þaðan hafa ekki verið látin sækja
skóla.
Veikin hefir hingað til verið
væg, að því er læknir segir. Þó
hafa lcomið nokkur eymarbólgu-
tilfelli í sambandi við veikina.
Morgunblaðið spurði bæjarþekni
í gær, hvort skarlatssótt hefði
gert vart við sig hjer í bænum.
Sagði hann að hjer væra nokkr-
heldur * neitt eftir eftir göngu
sinni vestur með sjónum, eða
hvernig hann lenti í enska
bátnum.
ir skarlatssóttar sjúlingar, en þeir
hefðu verið settir í sóttkví á Far-
sóttahúsinu, jafnóðum og til þeirra
hefir spurst.1
Bæjarlæknir sagði ennfremur,
að hann myndi að sjálfsögðu beita
sjer fyrir því, að gerð verði gang-
skör að því, að hefta útbreiðslu
veikinnar hjer í bænum.
Pinghallarbruninn.
Dómur væntanlegur fyrir jól.
Berlín, 13. des. F. ÍJ.
Rjettarhöldin út af bruna-
málinu hófust aftur í Leipsig í
dag, og byrjaði ákærandi hins
opinbera á ræðu sinií morgun,
eftir að nokkur vitni, sem urðu
eftir um daginn, höfðu verið
yfirheyrð. Það á að Ijúka á-
kæru- og vamarræðum í þessari
viku, og mun þá dómur verða
kveðinn upp fyrir jól.
Götubardagar
§páni.
Miklar birgðlE* fundnar
sk f sprengikúlum.
3SO menn bafa verið
drepnir,
Madrid, 13. des.
United Press. F.B.
Sprengikúlubirgðir hafa fund
ist á ýmsum stöðum í landinu
frá því á föstudag síðastliðinn,
t. d. í Aömeria, Gijon, San Se-
bastian og víðar, og er því tal-
ið engum efa undirorpið, að
stjórnleysingjar hafi áformað
allsherjar byltingu til þess að
steypa lýðveldisstjórninni af
stóli. Á sumum stöðum fund-
ust sprengikúlur í þúsundatali.
Dómar í málunum út af Þing-
hallarbrunanum verða senni-
lega ekki upp kveðnir fyrir jól.
London 13. des. F. Ú.
Enn er langt frá því, að alt
sje með kyrrum kjörum á Spáni.
I Saragossa hefir verið barist á
' strætum, og frjettir berast um
strætabardaga frá Salamanca
og víðar að. Herliðið og lög-
reglan vinna saman að því að
bæla niður óeirðirnar. í Cordova
gerðu uppreisnarmenn sjer vígi
í þrem húsum, og gerðu skot-
grafir og varnargarða um kring.
I Herliðinu tókst með sprengj-
; um að sigrast á þeim, og voru
; nokkrir menn teknir til fanga.
Madrid 13. des.
United Press. FB.
j Alt var me<5 kyrrum kjörum í
jnótt, nema aS nokkuð bar á ó-
jspektum í Saragosa. Samkvæmt
seinustu tilkynningum hafa 110
! menn A’erið drepnir í óeirðunum.
Enskt „Katanesdýr'í
Þingmenn ræða um að senda
út leiðangur til rannsóknar.
London 12. des. FU-
Miklar sögur hafa gengið und-
anfarið um skrímsli, sem menn
þykjast hafa orðið vaiáð við í
Loch Ness í Skotlandi, og í dag
varð þetta skrímsli að umræðu-
efni í enska þinginu, þingmönnum
til mikillar skemtunar. Þingmaður
einn, skoskur, lagði það til, að
stjórnin gerði út vísindalegan leið
angur til þess að rannsaka skrímsl
ið. Umboðsmaður stjómarinnar
taldi svo, að slíkar rannsóknir
yrði að gera fyrir framtak ein-
staklingsins, en hið opinbera sæi
ekki ástæðu til að skifta sjer af
þeim. Þingmaðurinn stakk þá upp
á því, að flugmálastjtórnin sendi
flugvjel á staðinn, en fulltrúi flug
málaráðherrans sagðist vilja fá
meiri upplýsingar um skepnuna
áður en slíkur leiðangur yrði gerð-
ur iit.
* ® **»
Nýfunðnalanð
5uift 5jðlfstjórn.
London 13. des. F. Ú.
Frumvarpið til laga um nýja
stjórnskipulagningu í Nýfundna
landi var til annarar umræðu í
breska þinginu í gær. Thomas
samveldismálaráðherra sagði í
ræðu um frumvarpið, að stjórn-
inni þætti, leitt að þurfa að
svifta nokkurt samveldisland-
anna sjálfsstjórn, en benti á að
Nýfundnalendingar sjálfir sæu,
að þau ráð væru heppilegust
eins og sakir stæðu. Stjórnar-
andstæðingar (Jafnaðarmenn)
mótmæltu frumvarpinu, ekki
vegna þess að Nýfundnaland
væri svift sjálfsstjórn, heldur
vegna þess, að hið nýja stjórn-
arfyrirkomulag gerði ekkert
ráð fyrir afnámi samkepnis-
stefnu kapítalismans, og sæti
því raunar við hið sama og áð-
ur hefði verið. Frumvarpið var
samþykt til þriðju umræðu með
250 atkv. gegn 42.
Flug Lindberghs.
London 13. des. F. Ú.
Lindbergh flugmaður og
kona hans komu í gær síðdeg-
is til Port of Spain á eyjunni
Trinidad, og eru þau á leiðinni
heim til Bandaríkjanna. Lind-
bergh sagðist myndi hafa eins
stutta viðdvöl þar og ástæður
leyfðu.
nasmæðiir!
Til miiMiís :
Jóla- og sódakökumót.
Smáköku- og mót í kjöt-
kvarnir.
Kleinujárn. Vöflujárn.
ísbúðingsmót og önnur
búðingsmót.
Þeytarar allskonar.
Fars- og deigvjelar.
Skálar allskonar.
Búrhnífar.
Borðhnífar.
Gafflar og skeiðar.
Kökuhnífar.
Smáhnífar allskonar.
Hnetubrjótar.
Spekke nálar.
Eplakjarnahnífar.
Ávaxtahnífar
og yfir höfuð höfum við á
boðstólum allar nauðsynleg-
ar smávörur í eldhúsið.
JÁRNVÖRUDEILD
Jes Zimsen.