Morgunblaðið - 10.01.1934, Side 6

Morgunblaðið - 10.01.1934, Side 6
6 5 MÖRGÚN'BíiÁÐÍÐ Einar Finsson. GutSm. Guffmundsson, skáld. Jón Ólafsson. SigurSur Jónsson, Isaf. Gunnþórunn Halldórsdóttir. Marta Pjeturssen. Þuríður Sigurðardóttir. Kristján J ónsson. Mganús V. Jóhannesson. Eugenia Nielsen. Páll Jónsson. Guðlaugur Guðmundsson. Pjetur Zophoniasson. Bjarni Hjaltalin. Og annars staðar voru þá og síðar margir ágætir starfsmenn svo sem Kristján Jóhannesson, Pjetur Guðmundsson og frú E. Nielsen á Eyrarbakka, Jón Páls- son bankaf jehirðir (síðar stór- templar), og þeir bræður hans Bjarni, Gísli og ísólfur á Stokks- eyri, : Sveinn Ouðmundsson sjóm. og Jón próf. Sveinsson á Akra- nesi, Jón Chr. Stefánsson timbur- m. og Páll Jónsson verslm. á Ak- ureyri o. fl. Stúkan Einingin tók einkum að sjer húsbyggingarmálið hjer í Iteykjavík, og eftir stutta stund hafði hún komið upp húsi. Til þess að standa straum af kostnað- inum stofnaði hún leikfjelag, og þar Ijeku þau fyrst frú Stefanía Guðmundsdóttir og Árni kaupm. Eiríksson sem oft síðar skemtu Reykvíkingum með ágætum leik sínum. Upp úr því var stofnað Leikfjelag Reykjavíkur og marg- ir starfsmenn þess templarar t. d. Gunnþórunn og Þuríður, Jens Waage og Helgi Helgason. Það var síst að undra þótt Reglan næði skjótt föstum tökurri þar sem fjöldi yngri mentamanná fylkti sjer undir merki hennar^ enda var hún svo heppin að fá h vern valinn regluboða eftir ann- an, má þar nefna Arna Gíslason Íeturgrafara, Olafíu Jóhannesdótt- ur, Sigurbjörn Á. Gíslason guð- fræðing, Ásgrím Magnússon kenn- ara, síra Hjörleif Einarsson, síra Guðm. Guðmundsson, Guðm. Þor- bjömsson, Hofi og síðast en ekki síst Sigurð Eiríksson, enda stór- fjölgaði fjelögum Reglunnar þeg- ar kym.ifcim undir aldamótin. — Jndriði Einarsson vakti veturinn 3897—1898, ásamt öðrum mönn- i | iim, rriikla hreyfingu meðal skóla- manna um að ganga í Regluna, á rrieðal þeirra voru Haraldur próf. Níelsson, Friðrik prestur Hall- grímsson, Sigurður Júlíus Jóhann- | esson skáld, S. Á. Gíslason, sr. I Guðmundur Einarsson, Mosfelli, ; Jón Ófeigsson adjunkt og fjöldi ^onnara ágætra manna, t. d. Jón kaupm. Þórðarson, Flosi Sigurðs- ’son trjesm., Páll Halldórsson ; skólastjóri, P}etur blikksmiður o. j fi. og var þá starfað af miklu kappi,- enda voru fjélagar Regl- unnar orðnir 6783 sumarið 1907, en þá var Þórður J. Thoroddsen íjtórtemplar. En auk þeirra er þeg- ar hafa verið nefndir má telja fjölda annara er þá höfðu á ýms- um tímum bæst í hópinn, t.d. hinn ágæta starfsmann Halldór Jóns- §on bankafjehirðir, skáldin Guð- .mundana Guðmúndsson pg Magn- ússon, ráðherrana Jón Magnússön og Kristján Jónsson, Davíð Öst- lund, síra Sigurð Gunnarsson, síra Árna í Görðum síra Jes Gíslason, síra Þórð Söndum, sr. Björn Þor- klksson, síra Eggert Pálsson og fril ^hans, Einar Brandsson Reyn- ir,- þá bræðurna Kristinn og Qjgtr^gg á Núpi, Kristján H. Jóns ppnjpjjptjóra, prentarana Jón Árna son -og Sigurð Grímsson, og þá ekki .síst bræðurna Sigurð lækni og Einar skáld Kvaran., síðar stórtemplar. Síðnstu árin var talsvert unnið f'yrir aðflutningsbannið, og um haustið 1908 fór fram atkvæða- greiðslan um það, sem lyktaði með sigri bannmanna og bannlög- um. — Fjelagarnir litu svo á, að Davið Óslund, með lögum þeim væri alt fengið, og fjelögum Reglunnar stórfækk- ! aði því ár frá ári. En þetta var á> allan liátt rangt, það sýndi reynsl- an. Ög þótt bannlögin væru kom- in, þá þurfti enn að hjálpa mörg- um drykkjumanninum og frelsa marga frá bölvun áfengisins. ; En það vár énn meiri vissa frá sjónarmiði Reglunnar. Reglan er stofnuð af frímúrurum, með það takmark fyrir augUm að reýna að göfga og þróska mennina, og hún telur það ekki kleift nenia með því áð útrýma áfengisnautninni. Þótt þyí áfengi væri með öllu út- rýmt 'úr heimínum þá hefir hún stórt og mikið verlé að inna af hendi, verk er ábyggilega tekur fjöldá áldaraða. Að þessu leyti er Reglan ólík öllum bindindis- fjelögum, þótt barátta hennar fyrst óg fremst út á við snijist gegn skaðsémi áfengis. I>að var Pjetur Halldórsson bók saíi er bar fyrst gæfu til þess að stöðva þetta útstreymi úr Regl- unni, og eftir það fór fjelogum hennar að fjölga. Þeir voru síðan við stjórnina Þorvarður Þorvarðs- son, Einar H. Kvaran og Bryn- ! leifur Tobíasson kennari og loks Sigurður Jónsson, skólastjóri og öll þau ár fjölgaði fjelögum Regl- unnar að miklum mun, enda var unnið af meira kappi en nokkru sinni fyr að regluboðun. Aðstoð- uðu þá fjöldi ágætra manna, skal jeg þar aðeinS nefna, Þórð Bjarna- son kaupmann, síra Árna Sigurðs- son, ísleif Jónsson gjaldkera, Magnús V. Jóhannesson • og Jóh. Ögm. Oddsson. Hafa hinir tveir sjðastnefndu starfað af alhug fyrir Regluna, hinn fyrri sem yf- irmaður barnastúknanna, en Jó- liann sem stórritari, og leyst öll störf prýðilega af hendi. — Árið 1928 voru fjelagarnir um 11000, ljet Sigurður þá af störfum sem Stórtemplar, og strax á eftir fóru fjelagar hennar að fækka., enda hætti Reglan þá að beita sjer af alvöru fyrir bindindisútbreiðslu. Á hinpm liðnu árum hefir kven- fólkið unnið vel og dyggilega að bindindismálinu, hefði þess ekki notið við væri öðruvísi umhorfs. Að nafngreina allan þann f jölda væri í mörg blöð, hjer skal að- eins minnast húsfreyjanna Önnu Thoroddsen, Mörtu Pjetursdóttur, Gróu Andersen, Arnfríðar Ólafs- dóttur, Rebekku Jónsdóttur, Isa- firði, Lilju Kristjánsdóttur, Ak- ureyri, Elínu Zoega, Jensínu Árna dóttur og Guðrúnar Ingjaldsdótt- ur Gerðum og Petreu Sveinsdóttur bóksala á Akranesi. Þegar litið er yfir sögu Regl- unnar sjest skjótt, að þeim mun betur sem unnið er að útbreiðslu bindindis, þeim mun meir fjölgar fjelögum hennar og almennur drykkjuskapur minkar. Það er Ijóst, að eigi að ala á landi hjer upp bindindissama þjóð, þá verð- ur á komandi árum að leggja fram mikið fje til Regluboðunar, og leggja ríka áherslu á að bind- indi verði hvarvetna boðað og Ólafur Rósenkranz.. stúkur stofnaðar. Það er enginn efi á því, að þjóðin ver vel því fje er til þess gengur. En það er fleira gagn er leitt hefir af Reglunni en það að drykkjuskapur íslendinga hefir mirikað. Á fjöldamörgum stöðum í landínu eru samkomuhúsin bygð af templurum, og það þótt þau sjeu nú í annara manna eign. —J Fjölda manns hafa þau kent fje~ lagslög, reglur og venjur, kent þeim að koma fyrir sig orði, kent þeini þýðiilgU fjelagsskapar. ÖÚ: þau f jelög er síðan hafa risið upp, hvert sem það eru atvirmufjelög, kaupfjelög eða stjórnmálafjelög, hafa þar notið mjög góðs af starf- semi Reglunnar. Ilún hefir rutt brautiná, svo rúenn hafa betur en ella skilið fjelög þessi og orðið Starfhæfir fjelagár þeirrá. Þjóðin getur því öll, með fullri ánægju þakkað Reglunni starf sitt á hvern veg sem þeir lítá á bann- mál, því aílir eru sammála um, að hjer eigi að búa reglusöm og starf- söm þjóð, þjóð sem kann að vera samtaka ög samhent. Og þeSs er að vænta og óska að Reglan starfi enn að marki sínu, og nái því að gera alla bind- indissama, göfga þá og þroska. En þá má hún aldrei gleyma höfuð- atriðinu — útbreiðslu bindisins — þá kemur alt annað gott af sjálftx sjer. Pjetur Zóphóníasson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.