Morgunblaðið - 09.02.1934, Qupperneq 7
I lofti.
Hin ág'æta nnglingabók, „f
lofti“, sem dr. Alexander Jó-
hannesson riáftði og kom í
bókaverslanir skömmu fyrir
nýár, hefir hlotið mikla at-
hygli og mikið verið um hana
ritað.
Mag. Guðni Jónsson ritar
■M hana langa groin í Morg-
unblaðið 21. deseuiber, og
segir þar m. a.: „Frdeagnim-
ar (um alla þá flugmenn, er
hingað til lands hafa komið)
eru ritaðar af miklu fjðri og
hraða, eins og sæmir slíku
•fni. Kennir þar víða skáld-
legra tilþrifa og mælsku,
sem fraistandi væri að taka
upp sýnishorn af. Höfundur-
inn helgar æskulýtS íslands
bók sína. Hinn hugdjarfí og'
bjartsýni brautryðjandi í sam
göngumálum íslands, hefir
þar með gefið itenskum »sku
mönnum góða gjöf. Bókin
logar af fjöri og framfara-
hug“.
Alþýðublaðið 23. desember
segir m. a.: „Hjer er ritað
um merkilegt efni, s«m litrii
hefir verið skrifað um á ís-
lensku áður, af þeim manni,
sem sýnt hefir mestan áhuga
og dugnað í flugmálum "fei-
lendinga.
Myndir eru stargar í bók-
inni og allur ytri frág'angur
hinn besti“.
Bókin er ágæt unglinga
bók, prentuð með stóru og
fallegu letri, prýdd fjölda
mynda.
ÚtSlllfl
heldur áfram í fullum
gangi.
ManGhester.
Sími 3894.
Kartöflur
til sölu. Leitið tilboða. — P. H.
Rasmussen, Stöving, Danmark.
Hjtaaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband í Hvammi í
Döimm (símstöð Ásgarður) ungfrú
Ragnhildur Ásgeirsdóttir og Sig'-
urður Ólason lögfræðingur. Heim-
ili þeirra verður á Preyjugötu 39.
Hafnarfjarðarhöfn. — í gær:
Togararnir Andri og Maí fóru
til Englands fullfermdir af báta-
fiski og eigimafla. Kolaskip kom
með 5000 smálestir af kolum til
útgerðarmanna í Hafnarfirði.
Ctuðspekifjelagið: ■— Fundur í
„Septímu“ í kvöld kl. 8%. Fund-
arefni: „Hngajómr manmáns frá
Nazaret“ (framhald). Fjelags-
menn mega taka með sjer geati.
Fram dansleiknrinn verður hald
inn annað kvöld að Hótel Borg.
Togararnir Gulltoppur og Egill
Skallagrímason voru væntanlegir
hingað frá Bnglandi í gærkvöldi.
ísfisksölur. Þrír togarar seldu
í Grimsby í gær: Sindri, bátafisk,
fyrir 1097 •éorlingRfyand. Belgaum,
um 1300 körfur fyrir 1762 ster-
lingspund, og’ Ólafur, 79 smálestir
af bátafiaki fyrir 18M séerlim#)-
pund.
Kaupfjelag Eyfirðinga hefir
hækkað verð á timbri um 15—
20%. Timbrið fekk það síðastliðið
sumar, svo ekki er um ntanað-
komandi verðbreyting að ræða,
heldur aðeins búhnykk hjá fje-
laginu sjálfu, þegar það veit sig
orðið eitt um hituna, eins og nú
hagar til. (,,ísl«mdiugnr“).
Dómur fjell nýlega í máli, sem
hófðað var gegn Sigurði Svein-
björnssyni bifreiðarstjóra, fyrir
það að stúlkubarn varð fyrir bif-
reið hans á Njálsgötu í haust, og
beið bana af. Bifreiðarstjórinn
var sýknaðnr.
Prá Skákþingi Reykjavíkur. —
Þriðja umferð var tefld á miðviku
dagskvöldið. t meistaraflokki
fóru leikar þannig að Jón Guð-
mundsson vann Eggert Gilfer og'
Baldur Möller vann Sigurð Jóns-
son. í 1. flokki vann Benedikt
Jóhannsson Margeir Sigurjónsson
en skák þeirra Sturla Pjetursson-
ar og Bjarna Aðalbjarnarsonar er
biðskák. Fjórða umferð er í kvöld
í Oddfjelagahúsinu, uppi.
Suðurland fór til Borgarness í
gærmorgun.
Karlakór iðnaðarmanna. Samæf-
ing í kvöld kl. 8%.
Tilmæli. Jeg hefi orðið þess
áskynja, að grein mín í Morgun-
blaðinu 2. þ. m. um útigöngufje,
hefir vakið talsverða athygli, og
leyfi jeg mjer nú að mælast til
þess, að allir þeir, sem svipaðar
sögúr hafa að segja, láti mjer
þær í tje skriflega við fyrstu hent
ugleika. Einkum væri mjer kært
að fá allar slíkar sagnir um til-
felli, sem kunn eru hjer á Suður-
landi, sem og umsögn kunnugra
manna um fje það, er árum sam-
an gekk úti á Þórsmörk meðan
sá góði siður hjelst, að menn not-
uðu sjer þau gæði náttúrunnar,
er hún hefir upp á að bjóða, en
misskilin mannúð skaut loku fyr-
ir.
P. Stefánsson, Þverá.
MORGUNBLÁÐIÐ
hina allra bestu, sem jeg hefi átt
í kirkju í háa tíð. — Jeg varð
bæði hissa og hrifinn. Jeg bjóst
auðvitað við því, að heyra prest-
inn segja eitthvað gott við börnin,
og ræða hans. var líka góð. Hún
var við hæfi bamanna, en hefði
þó átt gott erindi til allra og
jafnvel hins slungnasta stjóm-
málamanns. En það sem gerði mig
hissa og veitti mjer sanna nautn,
var söngur barnaiuta. Hann var
hrósverður. Það var hinn besti
og hjartanlegasti söngur, sem jeg
minnist að hafa heyrt í íslenskri
kirkju. Þessar skæru og inndælu
barnaraddir, sem fyltu alla kirkj-
una. Á honum var enginn leti-
blær, sem því miður oft gerir vart
við sig í telenskum kirkjusöng.
Þama gat maður sungið með, þó
maður sæti niðri í kirkjunni, því
söngur barnanna yfirgnæfði alt og
fylti húsið svo prýðilega. Jeg var
hissa á unglingunam, seni komu
of seint og mistu því mikið af
söngnum. Það eitt þótti mjer að
guðsþjónustunni, að börnin, sem
sungu, voru bvo fjarri prestinum
á meðan á ræðunni stóð, að at-
hygli þeirra var ekki eins góð og
hún hefði átt að vera, en mjer
var það slík nautn að hlusta á
söng þeirra, að jeg lofaði því í
kirkjunni, að jeg skyldi þakka
þeim fyrir skæra og inndæla söng-
inn. — Meira af slíkum söng,
börnin góð, inn í hugi og hjörtu
íslensku þjóðarinnar.
Pjetur Sigurðsson.
Afmæli keisarans.
Hrósvert.
Maður ætti að vera eins fljótur
til að hrósa því sem hrósvert er,
eins og lasta hitt, sem lastvert er,
því margt og mikið hrósvert og
gott verður á vegi manna. — Jeg
gekk niður í dómkirkju til þess
að hlusta þar á barnaguðsþjónustu
í fyrsta sinni. Veður var leiðinlegt
og aðsókn því ekki mjög mikil, en
jeg fjekk þarna inndæla stund,
Vilhjálmur fyrverandi Þýska-
landskeisari, átti 75 ára afmæli
hinn 27. janiiar. Öll hátíðahöld út
af þessu afmæli voru bönnuð í
Þýskalandi. Stjórnin ljet svo um
mælt, að liún viðurkendi alls ekki
neinar ríkiserfðir, nje rjett neins
sjerstaks manns til þess að ráða
yfir þjóðinni.
Keisarasinnum í Þýskalandi hef-
ir aukist mjög fylgi að undan-
förnu, og voru þeir farnir að
stofna sjerstök fjelög með sjer
víðs vegar um land. Nú hefir
Göhring ráðherra krafist þess af
Frich innanríkisráðherra, að hann
uppleysi þennan fjelagsskap keis-
arasinna.
Myndin hjer að ofan var nýlega
tekin af Vilhjálmi í Doorn. Hann
er enn hinn ernasti og á hverjum
ínorgni hefir hann það fyrir sið,
að saga við í eldinn. Segir hann
að það sje sú besta og hollasta
líkamsæfing sem hann geti hugs-
að sjer.
ýrslur
um afvinnu ufanbæjarmanna.
Hjer með eru atvinnurekendur í bænum aðvaraðir
um að þeim ber, samkvæmt 11. gr. laganna um útsvör. að
viðiögðum dagsektum, að senda hingað um hver áramót
skrá yfir alla utanbæjarmenn, sem þeir hafa haft í þjón-
ustu sinni eða veitt atvinnu á umliðnu ári hjer í bænum
eða á skipum, sem hjer eru skrásett eða gerð út hjeðan,
ásamt upplýsingum um starfstíma hvers þessara manna
og kaupupphæð. ^yðublöð undir skýrslur þessar fást hjer
í skrifstofunni og f skattstofunni, og ber þeim, sem ekki
hafa sent skýrslumar fyrir umliðið ár, að gara þáð
tafarlaust.
Jafnframt eru atvinnurekendur og verkstjórar enn
einu sinni mintir á að láta innanbæjarmenn sitja fyrir
þeirri atvinnu, sem til fellur hjá þeim, vegna sameigin-
legra hagsmuna allra bæjarmanna.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 8. febrúar 1934.
Jóa Þorláksson.
fli sefflu tllefnl tiiHvnnisl
að undirritaðar hárgreiðslustofur nota við Permanent-
hárliðun að eins þann vökva, sem tilheyrir hverri vjel, þar
sem þær vinna ekki vel á annan hátt.
Bjóðum þvi að eins 1. flokks vinnu.
Kr. Kragh (Nestlévjel)
Carmen (Figarovjel)
HoUywood (WeUavjel)
Perla (WeUavjel)
J. A. Hobbs (Wellavjel)
G. Norðfjörð (Queenvjel)
Lindís HaUdórsson (WeUa og Eugene-vjel) .
Ragna Eggers, (WeUavjel)
Edina (WeUavjel)
Soffía & Ásta (WeUavjel)
Ondula (WeUavjel)
Helene Kummer (Durafönvjel)
Marci (Durafönvjel)
Hárgreiðslustofan Kirkjustræti 10 (Eugenevjel)
Hrefna Þorkelsdóttir, (Perfektvjel)
Danmarks Brevskole
(Akademisk Korrespondanceinstitut)
hefir síðan 1916 haft yfir 17000 nemendur og veitir stöðugt til-
sögn í eftirgreindum námsgreinum: Dönsku, reikning, skrift,
töivisi, steinogr., bókhaldi, verslunarhrjefaskriftum, ensku, þýsku,
frönsku, esperanto, teikningu, tónfræði, iðnfræði o. fl. Skrifið
i dag eftir 48 síðu upplýsingariti.
3524. Slcólaeigandi: Lektor JL Saxe. Holbæk.
KUPON Hjermeð óskast Danmarks Brevskoles kensluleiðarvísir burðargjaldsfrítt.
Nafn_______________- ----------------------------------------------------------------g
Heimili________________________________________________—.....— _________________________ “j