Morgunblaðið - 24.02.1934, Page 2
MGRGUNBLAÐIÐ
JPftorgtinHaöid
Otgeí.: H.f. Árvakur, Reyklavlk
Rltatjórar: J6n KJartansson,
Valtýr ötefájieson.
Rltstjórn og afgreiOBla:
Auaturstræil 8. — Slml 1600
Auglýsingastjóri: B. Hafberg.
Auglýstngaskrlfstofa:
Austurstræti 17. — Slml 3700
Helmasfmar:
Jön Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220
Árni Óla nr. 3046.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskrlftagjald:
lnnanlands kr. 2.03 6. mánuBl.
Utanlands kr. 2.60 & mánuBi.
1 lausasölu 10 aura eintaklO.
20 aura meö Lesbök.
AÐALFUNDUR FISKIFJELAGS ÍSLANDS.
Stjettaflokkar.
Þegar litið er á stjórnmálasögu
og stjórnmálaþróun menningar-
þjóðanna undanfarin ár, er það
alveg augljóst, að stjettaflokbar
lýðræðislandanna eru það, sem
mestri truflun og mestum vand-
ræðum hafa valdið.
Fjölmennir öflugir flokkar í
lýðstjórnarlöndum, sem bygt hafa
starf sitt o'g tilveru á einhliða
baráttu fyrir efnahagsumbótuni
einstakra stjetta, hafa komið á
flokkseinræði, sem óþolandi hefir
verið.
Menn, þeir, sem heyja stjetta-
baráttu innan þjóðf jelagsins,
berjast með kjörorðinu: stjett
gegn stjett, vinna þjóð sinni,
stjettnm sinum ógagn. — Bng'in
þjóð hefir reynst svo voidug, svo
vel stæð, að hún til lengdar þyldi
áfallalaust slíkar inanlandsstyrj-
aldir, sem stjettabaráttuna..
Stjettabaráttan hefir jafnan ver
íð háð. með kjörorðinu: sigur sam-
takanna. Þegar samtökin hafa
sigrað, og þau hafa með einhliða
hagsmuni fyrir augum fylgt sig'r-
inum eftir, þá fer ekki hjá því,
að sigur samtakanna hefir orðið
ósigur annara þjóðfjelagsborgara.
ósignr þjóðarheildarinnar.
Eru Dorskgflngurnar að
toma frð Qrænlandi?
Runciman vonar að
Brelar geti dregið úr
verslunarlnimlunuin
í þjóðarvitund íslendinga er
stjettaskifting mjög óþjál hugs-
un. Þó hefir um stund tekist að
koma hjer upp nokkrum stjetta-
ríg, stjettabaráttu, stjettapólitík.
Bn það er alveg víst, að íslensk-
ir Icjósendur eiga tiltölulega auð-
velt með að átta sig' á stjetta-
streitubölinu, og dapurlegri
reynslu annara þjóða um ófarnað
þann, er af innanlandsstyrjöldum
stjettabaráttunnar leiðir.
Velgengni Sjálfstæð;i!sflokksins
«r fyrst og fremst af því sprottin
að Sjálfstæðisflokkurinn er flokk-
ur þjóðarheildarinnar, flokkur, er
byggir framtíðarstarf sitt á því,
að sameina hagsmuni allra stjetta
þjóðfjelagsins, gera allar starfs-
greinar með þjóðinni að samverk-
andi heild.
Vegna þess að kjörorð Sjálf-
stæðismanna er: Stjett með stjett,
fylkir helmingur þjóðarinnar sjer
nú þegar um stefnu flokksins.
Velgengni einnar þjóðfjelag's-
stjettar er velgengni annarar. —
Þetta skil.jum við íslendingar
allra manna best hjer í fámenn-
inu.
Þess vegna fer fylgi Sjálfstæðis-
flokksins vaxandi.
Á AkraJiesi reru í gær 21 bát-
ir. Sjóveðnr var dágott og aflinn
I—16 þiis. br. FÚ.
Aðalfundur Fiskifjelags íslands
var lialdinn í gær í Kaupþingssaln
um. Ekki var fundurinn fjöl-
mennur og var það illa farið, því
mörg' stórmál og merkileg báru
þar á góma.
Forseti Fiskif jelagsins, Kr.
Bergsson setti fundínn og til-
nefndi fundarstjóra Benedikt
Sveinsson fyrv. alþm. og fundar-
ritara Arnór Guðmundsson.
Skýrslur gefnar.
Fyrstu liðir dagskrárinnar voru
skýrslur frá forseta, vjelfræðingi
og fiskifræðingi Fiskifjelagsins.
Forseti lýsti í löngu og ýtar-
legu erindi starfsemi Fiskifjelags-
ins á s.l. ári.
Hann gat þess. að Fiskifjelag'ið
stæði nú betur að vígi en nokkru
sinni áður í starfsemi sinni. —
Upplýsinga- og leiðbeiningastarf-
semi fjelagsins væri komið í betra
og fullkomnara liorf en verið
hefði. Þá mintist forseti á hið
nýja hús fjelagsins lijer í bænum,
en það myndi ljetta mjög störf
fjelagsins í framtíðinni.
Æfifjelagar Fiskifjelagsins voru
90 í ársbyrjun 1933 og þrír bætt-
ust við á árinu.
Starfandi voru alls 30 deildir
á landinu og töldu þær 794 með-
limi.
Næst gaf vjelfræðingur fjelag's-
ins, Þorsteinn Loftsson skýrslu
run starf sitt. Mintist liann þeirra
námskeiða, sem haldin voru að
tilhlután fjelagsins. Þá mintist
hann á þá stórfeldu úmbót, sem
fekst á árinu. þar sem var full-
kominn kenslusalur fyrir nám-
skeiðin, í hinu nýja húsi fjelagsins
hjer í þæ.
Hvað líður
Jjorskgöngunum ?
Árni Friðriksson fiskifræðing-
ur gaf þvínæst skýrslu. Hún var
ekki löng, en ákaflega merki-
leg, og von er á innan skamms
ýtarlegri, prentaðri skýrslu frá
fiskifræðingnum.
Arni Friðriksson gat þess, að
starfsemi hans s.l. ár, hefði eink-
um snúist um rannsóknir á þorsk-
og síldargöngum.
Við þorskraþnsóknir hefði ým-
islegt merkilegt komið í ljós.
A því ári hefðu aðeins tveir
árgangar borið að mestu leyti
nppi þorskafla okkar íslendinga.
Þetta voru árgangarnir frá 1922
(11 ára) og 1924 (9 ára).
Þessir árgangar báru uppi út-
gerðina. Ef þeir hefðu brugðist,
hefði afli orðið rýr hjer við land.
Víðast hvar voru þessir árgang-
ar 75% af aflamagni. að jafnaði.
í Vestmannaeyjum gerðu þeir 60
—85%. Keflavík 70—90% og víð-
ast hvar í öðrum verstöðvum um
75%.
Aflamag'nið s.l. ár var heldur'
minna en árið 1932. í Vestmanna-
eyjum var mestur afli í mars-
mánuði; nam þá 167 fiskum að
meðaltali á 1000 öngla. — Mun
meiri var fiskimergðin á Kefla-
víkurbáta; komst þar upp í 300
fiska á 1000 öngla, en var þó
minna en 1932.
Ástæður til þess, að fiskimergð-
in var minni 1933 en 1932 er sú,
að engir nýir árgangar bættust
við.
Árið 1933 var einkennilegt að
þvx leyti, sagði Á. Fr„ að mikill
afli var á vertíðinni við Suður-
og Suðvesturland, en lítill á öðr-
um tímum árs og lítill við aðra
landshluta.
Hver er skýringin á þessu?,
spurði Á. Fr.
Skýringin liggur í ferðalögum
þorsksins, seg'ir Á. Fr.
Það hefir sem sje komið í ljós,
að fiskurinn ferðast milli fslands
og Grænlands og það í stórum
stíl. í hlýjum árum, þegar Golf-
straumurinn er sterkur, er vafa-
laust, að mikið berst af þorsk-
horgnum og seiðum hjeðan til
Grænlands, í stað þess að berast
upp að ströndnm landsins, inn á
firði og flóa.
Þegar svo fiskurinn fer að kom-
ast upp, skapar hann afla við
Grænland meðan hann er ungur.
Þegar árgangurinn verður kyn-
þroska, þá sýnir það sig, að
skilyrðin við Grænland eru ekki
góð og þá hefjast hingað göng-
urnar af kynþroska þorski frá
Grænlandi, á g'otstöðvarnar í
hlýja sjónum hjer við land.
Þetta skapar góðan afla hjer
við ,Suður- og Suðvesturland, á
vertíðinni: En þegar vertíðinni
er lokið, virðist stofninn hverfa
aftnr til Grænlands. Hann leggur
leið sína vestur með landi, að
Látraröst, eða e. t. v. norður með
Yestfjörðum, áður en hann beygir
til vesturs, yfir að Grænlands-
strönd.
Enginn nýr árgangur virðist
ætla að koma hingað á þessu ári,
því reynsla undanfarinna ára þef-
ix leitt í Ijós, að þorsknr, sem
hrygnir í fyrsta skifti, kemni-
fyrst á vertíðarmiðin.
En nú virðist, eftir síðustu
íregnum frá Vestfjiirðum að
dæma, sem nýjar fiskigöngtir sjeu
í aðsigi að vestan.Ætti þar að vera
á leiðinni fiskur, sem kemur frá
Grænlandi, sá sami er fór þang-
að er síðustu vertíð lauk og brást
okkur s.l. sumar.
Næsti, góði þorskárgangurinn,
sem við eigum von á, kemur senni
lega á vertíðarstöðvarnar að ári,
]\e. árgangurinn frá 1927.
Loks gat Á. Fr. þess, að rann-
sókn ætti eftir að leiða í ljós,
hvort sjóhlýindi gætu orðið svo
mikil hjer við land, að þorskurinn
gangi ekki á miðin. Það gæti vit-
anlega orðið afleiðingaríkt fyrir
okkur, hvað sú rannsókn leiddi
í Ijós.
Þá mintist Á. Fr. á síldarrann-
sóknir sínar. Þær hefðu einknm
snúist um átuna, enda ylti mest
London 23. febr.FÚ.
í Runeiman, verslunarmálaráðh.
Breta, . át.ti fund með viðskifta-
ráði Bretlands í dag, og' ljet svo
ummælt í ræðu, sem hann Iijelt,
að af viðskiftahorfum Breta væri
hið besta að segja. Iðjureksturinn
væri að rjetta við, og vildi hann
til dæmis nefna það, að í karl-
mannafatagerð væru Bretar að
taka forystuna um allan heim.
Hann ltvaðst vona, að brátt myndi
verða unt, að draga úr hinni taf-
sömu vöruskiftaverslun og öðr-
um hömlum þeim, er væru á versl-
uninni.
Leooold tekur við konung
dðmi f BelgiH.
Kalundborg og Oslo 23. febr. PÚ
Leopold prins tók við völdum,
sem konungúr í Belgíu í dag, og
vann eið að stjórnarskránni, og
fór sú athöfn fram í neðri deild-
arsal belgíska þinghússins í Brús-
sel. Hjelt hann hátíðlega innreið
sína í borgina en hátíðahöldin
höfðu hafist með klukknahring-
ingum snemma í morgun.
Kl. 9 voru fulltrúar erlendra
ríkja og sendinefndir frá ýmsum
landshlntum, saman komnar fyrir
utan konungshöllina, og var það-
an haldið til þinghiissins. Hvar
vetna þar sem konungur fór um
var mikill mannfjöldi samankom-
inn, og var honum hvarvetna
í'agnað af fólkinu.
Þá er konungur hafði unnið
eið sinn. hjelt hann stutta ræðu,
og fór hvort tveggja sii athöfn
fram bæði á belgísku og flæmsku.
Fór hinn nýi ungi konungur nokk-
unim orðum um sögu Belgíu og
hlutverk bennar í framtíðinni, og
kvað hana eiga, þýðingarmilclu
Fjarstæða að fella gengi
marksins.
Berlin 23. febr.
United Press. FR
Forseti Ríkisbankans þýska hef-
ir í viðtali látið svo um mælt að
ekki kæmi til mála að fella mark-
ið í verði. þar eð tapið yrði miklu
meira en ávinningurinn fyrir
Þýskaland. ef gjaldmiðillinn væri
feldur í verði.
hlutverki að gegna, sem málsvara
friðar og jafnvægis í Evrópu,
en Belgía mundi jafnt í framtíð-
inni sem hingað til, ekki skorast
,■ un'dan, að leg'gja á sig hinar
þyngstu fórnir til þess að vernda
j örvggi og frið í álfunni. Ræðu
i konungsins var tekið með miklum
| fögnuði.
Þingið hyllir Leopold
konung.
LRP. 23. febr. FÚ
Efri og neðri málstofa belgíska
Jxingsins færðu Leopold Belgíu-
kommgi síðdegis í dag sameigin-
legt, ávarp, þar sem þingið lýsir
fullu trausti sínu á konung'i, og
heitir honum trú sinni og hollnstu
Kveðst þingið vera fullvíst um, að
konungur virði rjettindi þess og
siðvenjur, og lætur í ljósi von
um, að með konungi og þingi
megi varðveitast sú gagnkvæma
trygð og hollusta, sem verið hafi
í tíð föður hans.
HfiR meðvltundailaus
af kolsýringi í ofnl.
Sauðárkrók 23. febr. FÚ.
Heimsviðskifti minkuðu
enn árið 1933.
Genf 23. febr.
Unlted Press. F.B.
Bráðabirgðaskýrsla þjóðabanda
lagsins nm heimsviðskifti 1933
leiðir í Ijós, að heimsviðskiftin
minknðu um 10% (miðað við gull-
verð) á árinu.
Stefán .íóhannesson og kona
lians Hólmfríður Þorsteinsdót.t.ir,
að Bæ í Skagafirði, fundust á
föstudagsmorgun meðvitundar-
laus af kolsýringi frá ofni. Áiitið
; er, að spjald í ofnpípunni liafi
| smiist af súg í ofninum. Konan
. kom til meðvitundar um hádegi.
' og er t.alin úr hættn. Stefán var
ekki vaknaðitr um miðaftan, en
læknir vonast eftir að geta bjarg-
að bonum.
á því, að komast fvrir um or-
sakir síldargangnanna, því „síld-
arleysi“ myndi ekki, eða a. m.
k. sjaldan stafa af síldarskorti,
heldur óheppilegum síldargöng-
um. Þess vegna væri lagt kapp
á, að finna átumagn í sjónum
og finna sambandið milli síldai'-
magns og átumagns.
Meira.
Vinfengi tekst með ítölum
og Ungverjum.
Budapest 23. febr.
United Press. F.E.
Undir-utanríkismálaráðherrann
ítalski, Suvieh, liefir verið á. ráð-
stefiixi raeð Gömbös, forsætisráð-
Iien*a Ungverjalands. Að viðræð-
xxnum loknum var tilkynt ,að þeir
liefðx fundið grxindvöll til þess að
byggja á samvjnnunm lausnýmissá
mála, sem Ungverja og ítali varð-
ar sjerstaklega. Er því þúist við,
að vinfeng'i með ítölum og Ung-
verjnm eflist nú að mun.