Morgunblaðið - 09.03.1934, Page 6

Morgunblaðið - 09.03.1934, Page 6
6 MORGUN BLAÐIÐ Hað besla Scandia eldavjelar. Svendborgar þvottapottar. II. Biering Laugaveg 3. Sími 4550. Vegia bnrtiarar er til sölu strax, 2 armstólar; 1 reykborð; stofuborð; sauma- borð (pólerað mahogni); 1 sófi og gólfteppi. Yesturgötu 17. Sími: 4947. Plötur frá 1.00 Nótur frá 0.25 Munnhörpur frá 1.50 HLJÓÐFÆR AHÚSIÐ Bankastræti 7. ATLABÚÐ Laugaveg 38. Ka§sa- apparat óskast til kaups, má vera notað. A. §. S. vísar á hifur Dg hjörtu, frosið, aðeins 40 aura % kg. HlðPúð’n Herðub'eið Hafnarstræti 18. Sími 1575. sj n Veggjalws. Gesfur PáEsson Mjer var sagt það fyrir nokkru á skrifstofu heilbrigðisfulltrúa, að veggjalús myndi vera hjer í nokkr um húsum. Hennar hefir orðið áð- ur vart (Pólarnir) en tekist að útrýma henni. Engar skýrslur yoru þó um þetta, og ékki hafði það verið athugað nánar. Jeg geri þó ráð fyrir, að eitthvað sje til í þessu og vildi jeg því vekja at- hyg'li á því, að veggjalúsin er ill- ur vágestur, svo hvimleiður að fáir vilja búa í húsum með veg’gja lús, og. auk þess erfiður viðfangs. Jeg hefi sjeð, að ár eftir ár kvarta Svíar stórum undan veggjalúsinni og verja miklu fje til þess að út- rýma henni, en gengur það illa. í flestum borgum ágerist hiin stór- um þrátt fyrir allar „hreinsanir". í Málmey er ráðgert að skipu- leggja útrýmingU liisanna í allri borginni og t.alið að hiin muni kosta um 1 miljón króna.*) í Eng- landi hefir það komið til tals að banna algerlega íbúð í lúsugum húsum, og takist ekki eigendum að hreinsa þau, þá skuli rífa þau nið- ur. Af öllu þessu má sjá, að hjer er að ræða um alvarlega hættu fyrir bæjarfjelag vort, sem g'etur kostað það stórfje, og að sjálf- sagt er að útrýma lúsinni áður en hún vex oss yfir höfuð. Það væri gróðabragð, þó bærinn ætti að kosta útrýminguna. Veggjalúsin (cimex lectularius) er flatvaxið, brúnleitt skorkvik- indi um hálfan sentim. á breidd, vængjalaust en fljótt á fæti, um 5 millimetra á lengd. Klær eru á löppunum, svo lúsin getur runnið beint upp veggi. Hún þrífst best í ríflegum stofuhita. Kvendýrið verpir þá 5—6 eg'gjum á dag, og er talið að hvert dýr vei-pi alls 2—300 eggjum, svo viðkoman er mikil ef hiti er nægur, eins og títt er við miðstöðvarhitun. Lúsin skiftir 5 sinnum ham og verður í hvert sinn að sjúga blóð úr mönn- um eða dýrum. Til þess hefir hún bitfærí og sýgur sig fulla af blóði, en bitinu fylgir kláði og upphlaup. Hún situr um að bít.a menn á nætumar meðan þeir sofa, og verð ur sjaldan ráðafátt að komast að þeím. Á daginn verður hennar lítt vart eða ekki. Helst heldur hún til í svefnherbergjum, hefst liún við í smáglufum eða rifum (fótlist- ar, hitapípur), stundum í rúmun- um, bak við húsg'ögn, innan í fjaðrastólum eða rúmum, í fötum og gluggatjöldum, bak við vegg- myndir eða • rafmagnspípur, yfir- leitt hvar sem eitthvert afdrep finst. Lífseig er lúsin með afbrigðum. Hún þolir 10—20 stiga frost vik- um saman og margra mánaða sult, enda hefir reynst mjög erfitt að vinna á henni. Þó hús standi auð mánuðum saman kemur lúsin strax í Ijós, þegar flutt er í þau. Svo grómtekin g'eta hús verið af veggjalús, að lítil von sje um að geta hreinsað þau, og eru þau þá ónýt, að minsta kosti til íbúðar. Veggjalúsin þrífst líka í skipum, en ekki er mjer kunnugt um hvort hennar hefir orðið vart í ísl. skip- unum. , Hvaðan kemur svo þessi ófögn- uður ? Auðvitað hefir liún flust hingað frá útlöndum í búsmunum eða farangri manna. Ekki veit jeg til þess að lúsin fari sjálfkrafa milli húsa. Henni er ekki gefið um útivist. Þó sýnir reynslan að hún flyst allajafna í hvert húsið af öðru. Hvernig fer hún þá að útbreiðast? Hún flytur með mönnunum, sem skifta um íbúðir, með húsmunum þeirra og farangri. Þéss vegna er það víða bannað að flytja úr lúsugu húsi í annað, nema allur farangur og búsmunir sje tryggi- lega hreinsaður.Ei’lendu borgirnar hafa sjerstakar hreinsunarstöðvar til þessa og kostar 1—4 kr. að hreinsa hvert húsgagn. Jafnframt verða þá innflytjendur að bera ábyrgð á því að þeir smiti ekki nýju íbúðina með veggjalúsum, og það getur orðið dýrt spaug. Þetta er þýðingarmesta og ódýr- asta ráðstöfunin til þess að hindra útbreiðslu lúsanna. Þó er hún ekki einhlýt, því sífelt stafar hætta af lúsahúsunum. Það þarf líka að hreinsa þau, að útrýma lúsunum. Þetta er nú gert með blásýru, baneitraðri lofttegund, og tekur það einn sólarhring. Verður þá að flytja algerlega úr húsinu meðan á því stendur. Hreinsun á meðal- húsi (fleiri íbúðir) kostar um 1500 kr., svo dýrt er þetta. Og það er ekki ætíð, sem ein hreinsun dug ar. Hjer er því að ræða um mikið fjármál. Við hreinsunina þarf helst að rífa fótlista frá, rífa burt gaml- an veggjapappír kítta og mála á eftir, þjetta með hitapípum o. fl. Meðan þessi leið er ekki farin, þá eru allir sammála um það, að langt megi komast með áköfu hreinlæti, sífeldum sápuþvotti, eft- irliti á öllum húsmunum svo lúsin hafi hvergi frið. Steinolíu, terpen- tínu eða karbolineum má og ýra inn í rifur, kítta þar o. þvíl. Sjaldnast mun þó lúsinni verða tryg'gilega útrýmt á þennan hátt. Ef veggjalús er hjer í húsum eða skipum þarf að gera þetta: 1) Kannsaka útbreiðslu lúsanna vandlega í húsum og skipum og semja skýrslur um hvar hún sje. 2) Banna flutning manna úr þessum stöðuxn, nema allur þeirra farangur sje hreinsaður. 3) Koma upp hreinsistöð fyrir húsmuni o. þvíl. 4) Ganga að því sem fyrst að hreinsa húsin og skipin, svo lús- unum verði með öllu útrýmt. 5) Banna flutning á gömlum húsmunum, fötum og öðru skrani frá útlöndum, nema trygging sje fyrir því að veg'gjalýs flytjist ekki með slíku. G. H. #) 26.4% húsa voru talin lúsug í skýrslum, sem nýlega var safnað. Ekki reyndist það ætíð rjett, sem eigendur sögðu. Var lús'í sumum húsum, sem talin voru lúsalaus. 63 menn farast í eldi. Berlín, 8. mars. FÍJ. Eldur kom upp í verkamanna- skúrum í bæ einum í Austui*- Kína í fyrradag og brunnu 63 verkamenn inni. Grunur leikur á, að um íkveikju sje að ræða. sem „TschölT ‘ í Meyjaskemmunni. Jeg sá Gest Pálsson í fyrsta sinn á leiksviði í „Candita“ eftir Bernhard Stiaw. Þá var hann að vísu ungur og’lítt þroskaður, enda var það ekki kunnáttan sem þá einkurn vakti athygli, heldur miklu fremur það sem framtíð hans sem leikara lofaði, ef svo mætti að orði kamast. Skilningur leikara á hlutverki sínu fer vitanlega að afarmiklu leyti eftir þeirri mentun, er hann hefir notið á því sviði, en þar sem hæfileikar eru í sjerlega rík- um mæli, virðist þroskinn oft svo óskiljanlega ör. Það sem að þessu sinni gerði leik Gests svo eftirminnilegan var hve greini- lega kom fram fjölhæfni hans. — Nær 10 ár eru liðin síðan jeg sá Gest í „Candita“. Hin síðari árin hefir Gestur að miklu leyti dregið sig' xxt úr ,leikn- ■ um‘ þangað til í vetur, að TTljóm- Sveit B-eykjavíkur rjeðist í að sýna söngleikinn „Meyjaskemm- una“ pndir stjórn Tí. E. Kvaran. Það er óþarft að fjölyrða um það að Gestur hefir aldrei fengið slík- ar viðtökur. Að sjálfsögðu má það | að miklu leyti þakka hinum frá- bæi’a stjórnanda, R. E. Kvaran, en hæfileikamir eru Gests sjálfs, Hjer leikur hann hlutverk gjör- ólíkt öllu því, sem hann hefir leik- ið áður. Hlutverk Tsehöll, er fyi’st og fremst sprenghlægilegt, en þó eru þar atvik, sem heimta mjög mikla fjölhæfni. Gesti tekst þar alt vel. Hann grætur með öðru auganu þótt hann brosi með hinu. Hvert spor og hvert augnatillit er vand- Ieg'a íhugað. Á. K. 10 konur brenna inni. Eldur kom nýlega upp í gamal- mennahæli í Brookville í Penn- I sylvaníu. Yar hæli þetta fyrir 1 garnlar hermannaekkjur. Slökkvi- liðið komst ekki á staðinn vegna ófærðar og' hælið brann til kaldra kola. Brunnu þar inni 10 konur, sem voru svo lasburða, að þær gátu ekki bjargað sjer. IJIfaplága. Að undanförnu hefir verið stefnivargur af úlfum í skógunum hjá Camba Laza á Spáni. Á stutt- um tíma drápu þeir þar 600 fjár. Bændur þykjast ekki geta hrundið þessum ófögnuði af sjer og hafa krafist þess af stjórninni að hún veiti sjer hjálp. „Æskan“ er elsta, útbreiddasta og; fjölbreyttasta unglinga- blaðið, er kemur út b jer á landi hvað efni og myndaval snex’tir. „Æskan“ kemur út mánaðai’lega í stóru 8 síðu broti. Ank þess fá skilvísir kaup- endur Jólabók sem er 24 síður. ,,Æskan“ er að flytja nú mjög spennandi framhalds- sögú. Auk þess flytur Jnin smásögur, gátur, æfintýri, skrítlur og ým~ iskonar fræðslupistla. —- Margar myndir í hverju blaði. „Æskan“ gefur auli þess sem áð- ur er talið 3—4 arks sögubók öllum skilvís- um kaupendum sínum á þessu ári í aukakaup- bæti. Athugið þessi kosta kjör „Æskunnar" á 35 ára afmæli blaðsins. ,Æskuna‘ má panta í bókaverslun Sig'f. Eymundss. Nýir kaupendur að yfirstand- andi árg. fá í kaupbæií síðustu jólabók ef þeir borga blaðið við pöntun. Árg. kostar kr. 2,50. —- Líka er tekið á móti nýj um áskrifendum á af- greiðslunni (Edinborg, uppi) eða í síma 4235. Sími hjá Eymundses er 3135. Bankabygg. Bankabyggsmjöl. Mannagrjón. Scmulegrjón. Bækigrjón fást í Frð Hristín V. lacebson. Þjóðarstrengir þúsundfaldir þakka fenginn dýran arf, stendur þitt um ár og aldir unnið mikla líknarstarf. # Þú héfir staðist strauma lífsixls. stýrt og forðast boðaföll, minnast allir mæta vífsins, er mai’kið setti og vann þar ðli. Lífsstarf þitt var fjör og festft, fús að bæta þjóðarmein, mætrar konu minning besta markaðir þú í harðan stein. Sjötíuár til sæmdar lifuð sjer á þeirra liðna bak. Þau munuu standa skráð og' skrifWt skýrum stöfum: Grettistak. Kær kveðja. Einar M. Jónasson. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ: Frá Hallgrímsnefnd Norðfjarðar. Samskot og’ áheit kr. 33.45. —• Kærar þakkir. Ól. B. Björnsson. Til Strandarkirkju frá konu í Vestmannaeyjum 5 kr. Til Slysavamafjelagsins fré Karólínu Friðriksdóttur 5 kr. Ungbarnavernd Líknar, Bára götu 2 (gengið inn frá Garða- ' stræti, 1 dyr t. v.). Læknir fJð- ! staddur fimtudaga og föstudagu íkl. 3—4.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.