Morgunblaðið - 09.03.1934, Side 8

Morgunblaðið - 09.03.1934, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ r £ rmá-auglýsingar| Appelsínumarmelaði fæst í lausri vigt á 1,25 pr. i/2 kg. Einnig heimabakaðar kökur. Príkirkju- veg 3, sími 3227. Gefið börnum kjarnabrauð. Það er bætiefnaríkt og' holt, en óáýrt. Það færst aðeins í Kaupfjelags- brauðgerðinni, Bankastræti 2. — Sínfi 4-562, '_____ Lambalifur, frosin, selst fyrir 40 aura % kg. Kaupfjelag Borg- firðinga, sími 1511. Fæði, gott og ódýrt og einstakar máltíðir fást í Café Svanur við Barónsstíg. Skaðsemi ýmsra fegrunarmeðala. Röskur Ikvenmaður. í Soutliend í Englandi á heima gömul kona, sem er hvorki meira nje minna en 102 ára gömul. Hiin hefir bestu matarlyst og )) lhfenr mi Qlseih] í I ,,Morgunblaðinu“ dags. 2 mars, er grein með ofanritaðrij fyrirsögn. Grein þessi fjallar um|er grannvaxin eins og ung stúlka, ýms skaðleg áhrif, er hljótast af notkun fegrunarmeðala, en sjer- staklega eru tilnefnd áhrifin af tetráchlor-kolefni, sem nú er oft notað í shampooing-lög. Eft- irþví, 'sérn blaðið skýrir frá. héfr ir notkun þessa efnis verið upp tekin vegna þess, að með því losna menn við hin alkalísku áhrif venjulegs shampooing- j lagar eða shampooing-dufts, en þau áhrif lýsa sjer í því, að hárið Gangurinn er gríðar nettur, galla sporið varla finst, „Völund“ hann er saman settur, svona að hann bili minst. Takið eflir. f öðrum löndum t. d. Danmörku hefir það færst mjög í vöxt, að láta gleraugna „Experta" fram- lcvæma alla rannsókn á sjónstyrk- leika sínum. Þessar rannsóknir eru fram- kvæmdar ókeypis. Til þess að spara fólki útgjöld, framkvæmir gleraugna „Expert“ vor ofan- greindar rannsóknir, fólki að kostnaðarlausu, Viðtalstími frá kl. 9—12 og 3—7. F. A THIELE. Austurstræti 20. þann ókost, að tetrachlor-kol- efnisgufan er svo þung, að hún sígur niður um höfuð þess, er hárþvottinn fær, og veldur deyf- ingu, sem að mörgu leyti líkist deyfingu eða svæfingu með chloroformi. Með því að nota ,,Rósól“ líkar lienni heldur vel við ungu stúlkurnar. Það er þetta gamla viðkvæði „Það, var öðru vísi, þegar jeg var ung“. j Ungar stúlkur með vindling í : munninum og í karlmannsbuxum, | yfir það á gamla konan ekki orð; Dómar þyngdir fyrir mannrán. í Bandaríkjunum hafa hin tíðu mannrán orðið til þess, að refsing- þó að hún borði það sem liana lystir. Klukkan sex á morgnana (fer hún á fætur og býr sjálf um rúm sitt. Hún er seint á ferli á kvöldin. 1 viðtali við blaðamenn -sagði hún-, að hún fylgdist vel með í blöðunum, og einkanlega sagðist hún fylgjast vel með í glæpamálum. „Mjer finst nefnilega gaman að sjá, livort dómarinn er á líkri skoðun 0g jeg“, segir gamla kon- verður ekki eins fallegt og!an ________ bylgjur haldast ver í því en ella. j En eitt er skrítið við gömlu Tetrachlor-kolefni hefir þann konuna jjUn þolir alls ekki hreint kost fram yfir bensín, að það er ioft jjún gætir þess vandlega að ekki eldfimt, en aftur á móti kafa alla glngga vel lokaða. Ekki Allar húsmæður Ijúka upp einum munni um það, að ..Víkíng — bafraœjöl sje það besta. shampooingsduft eru menn j húh hristir bara liöfuðið. og hugs tryggðir gegn þessari hættu, ar með sjer, þannig skvldu mín- þar eð í því er ekkert tetra-jar dætur ekki vera. chlor-kolefni, en aftur á móti er þetta shampooing-duft búið til úr mjög fínu sápudufti, og er mjög veikt, alkaliskt, þar sem framleiðandinn hefir um margra ára skeið keppt að því, að fram- leiða vöru, sem hreinsaði burt óhreinindin án þess að minnka ar fyrir þau hafa verið þyngdar V T* Móf orbátar Eins og undanfarið verður hagkvæmast að kaupa þá hjá okkur. Bggert Kristjánsseii & Co» Kaupmenn og Kaupff elög. Ktalska sykraða ávexti í kössum, seljum við sanngjörnu verði. hinn eðlilega gljáa hársins Þvei*t á móti kemur einmitt hinn eðlilegi gljái hársins fram, er fitan hefir verið þvegin burt. Það er því hægt að mæla með ,,Rósól“-shampooingsdufti í öllu tilliti. Ins. að mun, og stjórnin gerir alt sem ? í hennar valdi stendur til þess að hafa upp á mannræningjunum. I Nýlega náðist í þrjá menn, sem höfðu rænt enska fjármálamann- inum John Factor. Þeir voru dæmdir 22. febrúar í samtals 99 ára fangelsi. nl r\ Sími 1228. Grand-Hótel. 39, orðið hneyksli.Nú, ekki? Ekkert hneyksli? Dálítið klapp? Breyta sýningarskránni, meinarðu? Já, það getum við alltaf talað um seinna. Já, nú fer eg að hátta — nei, engan lækni, heldur ekki Witte eða Suzette — eg vil ekki, að neinn komi til mín. Eg vji bara vera í ró og næði. Þið farið til franska sendi- herrans og afsakið mig. Þakka þér fyrir. Góða nótt! Góða nótt, Pimenoff. Heyrðu, Pimenöff, heilsaðu Witte og Michael. Já, heilsaðu þeim öllum frá mér. Nei, engar áhyggjur mín vegna. Á morgun er mér batnað aftur. Góða nótt“. Hún lagði frá sér heyrnartólið. „Góða nótt, góði!“ sagði hún við sjálfa sig út í bláinn. Nú, svo hjartað er í ólagi, hugsaði Gaigern, sem hafði með miklum erfiðismunum fylgst með í þessu samtali, sem fór fram á frönsku. Þess vegna kemur hún steðjandi hingað á bandvitlausum tíma. Jæja, hún lítur nú annars illa út. Jæja þá. Nú fer hún sjálf- sagt að sofa, og þá get eg kvatt og farið. Nú bara að vera kaldur. Hann fór varlega yzt út á svalirnar og leit niður. Þarna sátu þessir fábjánar ennþá og voru að kjafta saman. Þeir höfðu hengt tvær renniluktir hjá sér, eins og þeir væri viðbúnir að vinna alla nóttina. Nú tók tóbaksþorstinn í Gaigern að verða beinn sjúkdómur. Hann opnaði munninn og tók hann fullan af bensínkenndu lofti. En um leið gekk Grus- inskaja að þrískifta speglinum, þar sem handtaskan stóð, og hjarta Gaigerns tók að hamast. En hún ýtti frá sér töskunni án þess að líta á hana, og kveikti á lampanum, sem var yfir miðhluta spegilsins, greip báðum höndum Um brúnina á speglinum, eins og hún ætlaði inn í hann. Svipur hennar var gráðugur og ljótur er hún tók að rannsaka andlit sitt í speglinum. Kvenfólkið er undarlegar skepnur, hugsaði Gaigern, bak við tjaldið. Alveg óþekkt dýr. Hvað sér hún eig- inlega í speglinum, að þurfa að setja upp svona grimmdarsvip ? Sjálfur sá hann konu, sem var fögur — um það gátu ekki verið skiftar skoðanir, enda þótt liturinn væri í þann veginn að leysast upp á kinnum henn- ar. Einkum var hnakki hennar, sem speglaði sig tvisvar í, hliðarspeglunum, óviðjafnanlega fagur- lega lagaður. Grusinskaja starði á andlit sitt, eins og á argasta fjandmann sinn. Með grimmdarsvip horði hún á æðarnar, hrukkurnar, slapandi húðina, ellimörkin og þreytusvipinn — gagnaugun voru ekki lengur slétt, munnvikin voru hangandi og augnalokin ofurlítið hrukkótt undir bláa litnum líkt og silkipappír. Meðan Grusinskaja var að horfa á s'jálfa sig, fékk hún kuldahroll, miklu verri en þann, sem hún hafði fengið úti á götunni. Hún reyndi að halda vörum sínum í skefjum, en tókst það ekki. Hún hljóp til, slökkti sterka ljósið í krón- unni og kveikti á gólflampanum í staðinn, en hún varð ekki hlýrri á svip fyrir það. Hún reif leik- húsbúninginn af sjer óþolinmóðlega, þeytti honum frá sér, og gekk nakin að ofan, en í prjónaslæðu- búningi upp fyrir mitti, að hitaleiðaranúm, og þrýsti brjóstinu að grámáluðu hitapípunni. Án þess að hugsa um nokkuð sérstakt, leitaði hún þangað sem hitinn var. Nú er nóg komið, hugsaði hún. — Aldrei framar. Búið. Hún hvíslaði óskiljanlegum orðum á ýmsum málum milli glamrandi tannanna. Hún gekk inn í baðherbergið, afklæddi sig þar al- veg og stakk höndunum undir heita vatnsbununa, hún lét vatnið streyma yfir slagæðarnar, þangað til hana sveið. Hún tók bursta, neri með honum axlir sínar, en snögglega hætti hún því, og gekk allsnak- in og skjálfandi af kulda, að símanum. Varir henn- ar titruðu svo mjög, að hún varð að gera tvær til- raunir áður en hún kom upp orðunum. „Te“, sagði hún. „Mikið af tei. Mikið af sykri“. Hún gekk aftur að speglinum og skoðaði sjálfa sig með dimmum strangleikasvip. En líkami henn- ar var fullkomlega óaðfinnanlegur, því hann var óvenjulega fagur. Það var líkami sem á sextán ára dansnema, sem mannsaldurs erviði og æfing hafk varðveitt óbreyttan. Alt í einu snerist sjálfshatur Grusinskaju upp í blíðu og meðaumkun. Hún greip axlir sínar báðum höndum og strauk *yfir daufa gljáann á þeim. Hún kyssti hægri olnbogabótina. Hún lagði fagursköpuðu brjóstin í hendurnar eins og í skálar og klappaði á bogadreginn kviðinn og grannvöxnu mjaðmirnar. Hún beygði höfuðið nið- ur að hnjánum og kyssti þessi vesalings mjó- sleggnu, járnsterku hnje, eins og þau væri sjúk börn, „Bjednajaja, malenjkaja“, tautaði hún — það1 var gamalt gælunafn. „Litli vesalingurinn“ þýddi það. Án þess, að Gaigern vissi af því sjálfur kom á andlit hans svipur, sem var fullur virðirigar og .jafnframt meðaumkunar. Þetta, sem hann sá þarna, kom honum í vandræði. Hann hafði þekkt margar konur, en enga, sem hafði jafn fullkomið vaxtar- lag og þessi. En það var í rauninni aukaatriði. Því það, sem fyllti hann angurblíðri meðaum-kun, var það hve Grusinskaja var varnarlaus, skjálfandir vonlaus og ringluð, þar sem hún stóð fyrir framan spegilinn. Enda þótt hann væri siðferðislegur skip- brotsmaður og væri nú með 500.000 marka virði af stolnum perlum í vasanum, var þó fjarri því, að hann væri nokkurt illmenni. Hann losaði hendina af perlunum og tók hana upp úr vasanum. Hann fann löngunina í lófum sjer og örmum til að taka þessa litlu einmana konu upp, bera hana burt, hug- hreysta hana og verma, til þess að gera einhvern enda á þessum andstyggilega kuldahrolli og þessu vitfirringslega hvísli---- Þjónninn barði á hurðina og Grusinskaja tók sloppinn sinn og fór í hann — þennan sama slopp, sem hafði skelft Gaigern áður, — og setti upp slitnu inniskóna. Tebakkanum var ýtt inn í herbergið, hæ- versklega. Grusinskaja læsti að sér hurðinni. — Þá er^vo langt komið, hugsaði hún. Hún hellti bollann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.