Morgunblaðið - 07.07.1934, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.07.1934, Blaðsíða 4
I MORGUNBLAÐIÐ IDROTTIR 9 9 Sundmeistaramót I. S. I. liefst á Akureyri 8. þ. m. og' stend- nr yfir í 3 daga. íþróttaráð Ak- nreyrar sjer um mótið að þessti sinni og kepnin fer fram í hinni .stóru og fullkomnu sundlaug, sem vatn er leitt í úr Glerirgljúfri. J.augin mun vera einhver íull- komnasta og besta sundlaug, sem til er hjer á landi, og heftr hún verið mjög mikið notuð siðan lieita vatnið var leitt í hana. Það má því búast við ágætum árangri á þessu5 meistaramóti, þegar þess er gætt að laugin er fullkomin og keppendurnir, bæði þeir sem hjeð- an fara og' Norðlendingarnir eru vei æfðir. Keppt verður í þessum íþróttagreinum, og er jafnframt getið keppenda þeirra sem hjeðan fara. Uin þátttöku Norðlending- anna, er ekki kunnugt hjer ennþá: 100 stiku sund, frjáls aðferð. Keppendur: Hafliði Magnússon (A), Jónas Halldórsson (Æ), Úlfar Þórðarson (Æ), Jón D. Jónsson (Æ), Ragnar Þorgríms- son (Æ), Haraldur Sæmundsson (Æ), Guðbrandur Þorkelsson (K. R.) og Gísli Jónsson (A). 200 stiku bringusund. Keppend- ur: Þorsteinn Hjálmarsson (A), Stefán Jónsson (A), Þórður Guð- mundsson (Æ), Magnús Pálsson (Æ), Sigurður Iiunólfsson (K. R.) og Ögmundur Guðmundsson (A). 100 stiku sund, frjáls aðf., fyrir konur. Óvíst enn um hve margar konur taka þátt í sundi þessu. 4 x 50 stiku boðsund. Keppend- ur: Hafliði Magnússon (A), Stefán Jónsson (A), Úlfar Þórðar- son (Æ), !jón D. Jónsson (Æ). Yaramenn frá Ægi: Magnús Pálsson og Ragnar Þorgrímsson. 400 stiku sund, frjáls aðferð. Keppendur: Hafliði Magnússon (A), Gísli .Tónsson (A), Jónas Halldórsson (Æ), Haraldur Sæ- mundsson (Æ), Guðbrandur Þorkelsson (K, R.). 200 stiku brmgusund fyrir kon- ur. Óvíst enn hverjar og hve marg- ar konur keppa. 100 stiku baksund. Keppendur: Jón D. .Jónsson (Æ), Haraldur Sæmundsson (Æ), Kristján Silver- iusson (K. R.). 400 stiku bringusund. Keppend- ur: Stefán Jónsson (A), Ögmundu ur Guðmundsson (A), Magnús Pálsson (Æ), Haraldur Sæmunds- son (Æ), Sigurður Runólfsson (K. R.). 1500 stiku sund, frjáls aðferð. Keppendur: Gísli Jónasson (A), Hafliði Magnússon (A). .Tóna.s Halldórsson (Æ). Ennfremur verður keppt sjer- staklega í stakkasundi á „Pollin- um“ á Akureyri. , Þegar þetta er ritað er ekki al- veg víst um þátttöku Norðlend- ing'anna, hve margir keppa af þeirra hálfu. Ennfremur er ekki enn vitað með vissu um þátttöku kvenna í mótinu. Það er óhætt að fullyrða, að þessi flokkur, okkar bestu sund- manna, mun ná mjög góðum árangri á þessu móti, og mjög miklar líkur eru til þess að mÖrg ný met verði sett á þefjsu rnóti. Um hitt skal ekki fullyrt, hvorf Sunnlendingar eða Norðlendingar sigra, eir flokkur sá, sem hje.ðan fer, hefir fult traust íþróttamanna hjer í bænum og þykir allíklegur til afreksverka. Þeir eru vel æfðir allir, og fari svo, að þeir verði að lúta í lægra hald fyrir norðan er engu um að kenna öðru en því að þá eru Norðlendingarriir betur æfðir og meiri sundmenri.. Fylgi ykkur heill og hamingja ungu vösku sundmenn. Foringjar fyrir ferðinni verða. Frá Ármann, Þorsteinn Hjálmars- son. Fyrir Ægir og K. R. Jón Pálsson. Auk þess verður forseti í. S. í., Ben. G. Waage, með í ferð- inni og má þá vænta þess, að ferð- in og keppnin fari vel fram, og verði öllum þátttakendum til sóma. 4. júlí. K. Þ. Milliríkjakeppni í knattspyrnu. Aðal knattspyrnuviðburður árs- ins í Danmörku og Svíþjóð, er þegar landsflokkar þeirra keppa. Þegar Danir sigra flokka annara þjóða, t. d. Norðmenn, Finna eða Pólverja, þá vekur það auðvitað ánægju og eftirtekt. En sigrii þeir Svía í knattspyrnu, vekur það meir en ánægju, þá ríkir almenn- ur fögnuður og gleði um land alt. Sama er um Svía að segja — að sigra Dani, þykir mest í varið. Þó knattsyrnuflokkar ánnara ríkja sjeu sterkari og betri, þá er samt sigurinn yfir gamla keppi- nautnum það, sem best þykir af öllu. Nú ríkir almenn sorg meðal knattspyrnumanna í Danmörku — Svíar sigruðu 17. júní s. 1. Að sama skapi er fögnuðurinn mikill í Svíþjóð, yfir þessum sigri. Það er að vonum, því í síðustu fjögur skiftin, sem keppt hefir verið í Danmörku, milli þeirra og' Dana liafa Danir unnið. Um 6000 Svíar höfðu komið heiman að til að borfa á leikinn og það hefir verið kátur, fjörugur og ánægður hópu- ur, sem h.jelt hoim aftu-r um kvöldið undir söng, „heja“-ópuiQ og almennum gleðskap. Þeir höfðu líka leyfi til að vera glaðir því ,,landsflokkur“ þeirra hafði unnið að verðleikum, leikið mjög vel og sigrað Dani með 5 mörkum-gegn 3 Aftur ð móti fær „landsflokkur“ Dana, frekar ómilda dóma, en út í það skal ekki farið hjer. En sjer- stök ástæða er til þes.s fyrir ís- lenska knattspyrnumenn að veita þessum kappleik athygli. Svo stendur á, eins og áður hefir verið getið h.jer í blaðinu, að flokkur danskra knattspyrnumanna frá knattspyrnufjelaginu H. I. K. kemur liingað 12. júlí n. k. Tveir af þeim mönnum, sem nú kepptu í „landsflokki“ Dana, koma með H. I. K. Þessvegna er rjett að birta hjer, hvað þektasti blaðadómari, um íþróttamá'l, í Danmörku skrif- ar um þessa tvo menn, sem heim- sækja okkur 12. júlí Fimleikaflokkur drengja. „Mr. Smile'* skrifar: '„Thielsen ■— sem þarna var vinstri út-framherji — er það ekki yndislegt að horfa á þennan strák á knattspyrnuvellinum, fullan áhuga og með eld í augum. Dreng, sem aðeins er 19 ára gam- all, sem reynir að brjótast í gegn og sigra einn, þegar aðrir ekki geta það. I fyrsta skifti er hann keppti fyrir Danmörku, það var gegn „landsflokki“ Norðmanna í fyrra — var hann g'óður (skoraði þá þau tvö mörk, sem Danir unnu leikinn með), nú var hann þó ennþá betri, leikinn, fljótur og við ekkert hræddur. Vald lian.s yfir knettinum er fullkomið. Hann getur miðjað knöttinn hversu lítið rúm, sem honum er ætlað til þess.-------- Agner Petersen ljek nú í þess- um „Iandsflokki“ miðframvörð, í stöðu, sem einna mest er undir komið ef vel á að takast leikur flokksins í lieild. Um hann slrrifar „Mr. Smile“. „Tilraunin, sem gerð var með því, að láta varamanninn Agner Petersen leika í þessari vandasömu stöðu tókst. sæmilega. Hann leysti þetta vandasama verk af hendi eins vel og frekast var hægt að vænta, sennilega betur en menn almennt bjuggust við. Dugn- aður hans var mjög mikill og hann vann fyrir flokk sinn eins lengi og' eins vel og' kraftaröir leyfðu, náði knettinum þráfald- lega og skilaði honum yfirleitt. vel til flokksmanna sinna. Það er vafamál hvort nokkur annar, sem hægt var að ná til, liefði leyst starfið betur af hendi“. Nú verða knattspyrnumenn okk- ar að búa sig vel undir keppnina við H. T. K„ því þegar þeir hafa styrkt flokk sinn með jafn ágæt- um knattspyrnumönnum og þess- um — og jafnvel fleiri mönn- um —- má fullkomlega búast við því, að hann verði álíka sterkur og allra sterkustu fjelagsflokkar í Danmörku. — Knattspyrnumenn. Keppnin við H. I. K. er prófraun á það, hvað þið getið, sem knatt- spyrnumenn. Æfið því af kappi. Fylgið tilsögn kennarans. Gerið það, sem í ykkar valdi stendur til að sigra. Þá verðið þið sjálfum ykkur og f jelögum ykkar til sóma. K. Þ. 25 ár. r 1 vor voru liðin 25 ár síðan Helgi Jónasson frá Brennu var fyrst kosinn í stjórn í. R„ þar af hefir hann verið formaður fje- lag.sins í 10 ár og er það nú. Hann er einn af stofnendur í. R. og hefir sí og æ starfað að íþróttamálum síðan. Helgi er djarfur, framsýnn og fylginn sjer í hverju því máli, Myndin hjer að ofan er af hin- um ágæta drengjaflokk frá Vest- mannaeyjumu, sem -ýndi fimleika á Allsherjarmótinu. Þó þeir hefðu tákmarkaðan tíma til sýningar- innar, svo þeir gátu ekki að þessu sinni sýnt okkur alt, sem þeir kunna í •fimleikum, tókst sýning'in mjög vel. Mundu margir hafa kos- ið að sjá meira til þeirra, en þarna var tækifæri til, því allir á- horfendur tóku þeim með hinum mesta fög'nuði. Það er sómi hverjum dreng, að gangá til verks og leiks með áhuga, dugnaði og einlægum vilja til þess að leggja frarn það besta sem hann á tii. Leikni, fimi og' yfirleitt öll framkoma drengj- ænna benti til þess, að þeir höfðu lagt mikla rækt við að efla og stæla líkama sinn. og svo það, að koma v,el og pniðmannlega fram. Alt þetta gerðu þeir — og gerðu ]iað vel. Þessvegna hlutu þeir einróma lof allra áhorfenda og þessvegna fundu þeir það s.jálfir, að sýning' þeirra hafði vel tekist. Kennara þeirra og stjórnanda lierra Lofti Guðmundssyni, má vera það mikið gleðiefni, að starf hans við kenslu og æfingar þessa flokks, hafa borið svo ríkan ávöxt. Það er auðsjeð á öllu, að hann hefir lagt mikið og gott starf fram, til þess að komast svo lang't, sem þessi sýning bar vitni um. — Þökk fyrir komuna ungu drengir. Þökk fyrir ágætt starf Loftur Guðmundsson, kennari. Nöfn drengjanna: Bergþór Jóns- son, Jón Gunnlaugsson, Adolf Sveinsson, Vjemundur Jónsson, Leífur Þorbjörnsson og Geir Geirsson. K. Þ. sem hann álítur íþróttunum fyrir bestu. Hann er góður fjelagi. í. R. hefir notið krafta hans öll þessi ár, og engum einum manni á í. R- meira að þakka velgengrii sina. Meðal annars hefir Helgi verið aðalhvatamaður þess, að í. R. hefir tvisvar sent úrvalsfimleika- floltka kringum land, til Noregs og Svíþjóðar og til Frakklands. Hann sá þörf stofnunar í. S. í., byggingu íþróttavallar í Reykja- vík, o. fl. Hans verk var stofnun Olympíusjóðs íslands 1920 og- íþróttanámskeið í fimleikum og útiíþróttum fyrir fimleikakenn- ara. Nú vinnur hann að þýðingu bókar um útiíþróttir. sem kemur á markaðinn bráðlega. Á sínum tíma hreyfði hann ásamt fleirum í.-R.-irigum á fundi í í. R., stofnun sjerstakrar deild- ar innan fjelagsins, sem átti að vinna að því, að koma Reykvík- ingum út um sveitir land.sins, Úr þessu varð þó ekki. Síðar var stofnað Ferðafjelag' íslands og liefir Helgi verið einn aðalkraft- urinn í því fjelagi, enda frægur göngumaður. Allir þeir, sem íþróttum og ferðalög'um unna, eiga Helga frá Brennu mildð að þakka, hann hef- ir'á margvíslégan liátt verið braut- rvðjandi á þessum sviðum. Við í.-R.-ingar erum sjerstak- lega þakklátir Helga, og óskum þess, að íþróttamálin megi lengi enn njóta -lians starfs og þekk- ingar. 13. Hlaupakona. Mynd þessi er af ungfrú Koub- kova frá Prag. Hún setti nýlega heimsmet í 800 metra hlaupi fyr- ir konur á 2 mín. 16,4 sek. Mynd- in var tekin af henni er hún kom. að marki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.