Morgunblaðið - 25.07.1934, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.07.1934, Qupperneq 2
2 MORGgNBLAÐIÐ JPtorpttUit^ Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Ritstjórn og afgreií5sla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Auglýsingastjóri: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Sími 3700. Heimasímar: Jón Kjartansson nr. 3742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. Árni Óla nr. 3045. E. Hafberg nr. 3770. Áskriftagjald: Imanlands kr. 2.00 á mánuíSi. Utanlands kr. 2.50 á mánuT5i í lausasölu 10 aura eintakiö. 20 aura meö Lesbók. Sfjórnarskiltin. í dag mun Ásg. Áskeirsson for- sætisráðherra skrifa formönnum flokkanna og fara fram á, að nú yerði skipuð stjórn, er hafi meiri- hluta þings að baki sjer. Þar sem rauðu flokkarnir tvek liafa nú komið sjer saman um stjórnarmyndun, má gera ráð fyr- ir, að ekki standi á svari af þeirra hálfu. Þegar það er komið, verður konungi símað. Ættu stjórnar- skiftin því að g'eta orðið á föstu- dag eða laugardag, En þar sem þessi fyrsta stjórn- armyndun sósíalista fer fram án þess að Alþingi sitji, og þar sem mannvalið í þá stjórn hefir orðið með þeim endemum, sem alþjóð er nú kunnugt, ætti það að verða krafa til Ásg. Ásg. forsætisráð- herra, að hann heimtaði eiginhand- ar undirskrift þéirra 25 þingm., sem téljast stuðningsmenn ráðn- neytis Hermanns Jónassonar. Það pjlagg yrði áreiðanlega merkilget í þingsögunnL Ekki síst myndi það verða talinn viðburður, að sjá nöfn roskinni og reyndra bænda undir sMku plaggi, sjá þá afsala málefnum bændanna á íslandi í hendur róttækra sósíalista <Jg spjátrunga á örlagaríkustu tímum * þjóðarinnar. --------------— Úsigur Iðnasar „sterka". Rauðu flokkunum hættir til að guma æði mikið af úrslitum kosn- inganna síðustu. Mest var loft í Jónasi Jónssyni að kosningUnum loknum. En rostinn hefir farið úr honum síðan rauða samfylkingin kom sjer saman um að koma ráð- herraefninu, Jónasi Jónssyni fyrir í „heimagrafreit'1 Framsóknar- flokksins. Því, eins og kunnugt «r, voru það samverkamenn hans í rauðu samfylkingunni, sem kváðu niður alla ráðherradrauma lians. Þessir menn geta hrósað þeim sigri, að þeir skyldu verða til þess að koma í veg fyrir að- Jónas Jónsson yrði ráðherra. Sjálfur nefndi .Jónas Jónsson á fundi rauðu samfylkingarinnar það „níðingsverk“, sem flokks- menn hans hefðu á honum framið. Sjaldan launa kálfar ofeldið. Þannig getur sá í heimareitnum hugsað, ér hann sjer fósturbörn sín tvö, Hermann og Eystein sparka sjer út í myrkrið og setjast sjálfir í ráðherrastóla. Þessir líka menn. Af því fekk Jónas augastað á Hermanni, að hann sá sem var, að maðurinn var metorðagjarn og heimskur. En Eysteinn litli fell í kramið hjá kennara sínum, J. J., af því Landkjörstjórn lykur störfum. Uppbófarsætum úthlutaö til flokkanna. Kl. 3 síðdegis í gær kom land- kjörstjórn saman í lestrarsal Al- þingishússins, til þess að úthluta 11 uppbótarsætum til flokkanna. Atkvæðatala flokkanna. Við kosningarnar 24. júní voru gild atkv. samtals 51.929 og skift- ust þau þannig milli flokkanna: Sjálfstæðisflokkur 21.974 atkv. Framsóknarflokkur 11.377Y2 — Alþýðuflokkur 11.269% — Kommúnistaflokkur 3.098 — Bændaflokkur 3.348 — Þjóðernissinnar 363 — Utan flokka 499 — Á hvern kosinn þingmann komu atkvæði, sem hjer segir: Alþýðu-' flokks 22539/10 atkv., Bændaflokks 3348 atkv., Framsóknarflokks j 758% atkv. og Sjálfstæðisflokks 13736/1S atkv. Þar sem Framsóknarflokkurinn hlaut lang' flesta þingmenn kosna, ’ miðað við atkvæðamagn varð tala hans (758%) hlutfallstala kosn-, inganna. Uppbótarsætin. Þau fjellu eins og áður hefir verið skýrt frá þánnig, að Al- þýðuflokkurinn hlaut 5 uppbótar- sæti, Sjálfstæðisflokkurinn 4 og Bændaflokkurinn 2. Og þegar bú- ið var að úthluta uppbótarsætun- um til þessara flokka komu 1126 atkv. á hvern kosinn þm. Alþýðu- flokksins, 1116 á hvern þm. Bænda flokksins og ^ 1098 á hvern þm. Sjálfstæðisflokksins. Sjest af þessu hve mikið vantar á, að þess- ir flokkar njót-i jafnrjéttis við Framsóknarflokkinn. Uppbótarþingmenn. Þessir eru uppbótarþingmenn og merkja tölurnar aftan við nöfn- in röð þeirra: Alþýðuflokksins: Stefán Jóh. Stefánsson 1 Páll Þorbjörnsson 3 Jón Baldvinsson 4 Jónas Guðmundsson 6 Sigurður Einarsson 9 Bændaflokksins: Magnús Torfason 2 Þorsteinn Briem 10 Sjálfstæðisflokksins: G.uðrún Lárusdóttir 5 Jón Sigurðsson 7 Garðar Þorsteinsson 8 Gunnar Thoroddsen 11 ■ Munaði aðeins örlitlu á hlutfalls ■ tölu G. Th. og' Torfa Hjartarson-! ar; G. Th. lilaut 40,0% greiddra atkvæða í kjördæminu en Torfi 39,8%. - Þingflokkar þeir, sem uppbót- arsæti hljóta fá jafnmörg vara- þingsæti. Þessir eru varaþing- menn: Alþýðuflokksins: Pjetur Jónsson, Barði Guðmundsson, Gunnar M. Magnúss, Sigfús Sigurhjartar- son og Guðjón Baldvinsson. Bændaflokksins: Stefán Stefáns- son og Jón Jónsson í Stóradal. Sjálfstæðisflokksins: Eiríkur Einarsson, Torfi Hjartarson, Þor- leifur Jónsson og- Lárus Jóhannes- son. Kosningin í Sagafirði. Flokksatkvæði Sjálfstæðismanna fleiri enflokksatkvæðiFramsóknar Eftirtektarverðar eru atkvæða- tölurnar í Skagafirði, en það_ var sem kunnugt er á hlutkestinu þar, sem rauðu flokkarnir fengu meiri- hlutahn á Alþingi. Sjálfstæðisflokkurinn fekk 928% gild atkvæði í Skagafirði, en Framsóknarflokkurinn 911% atkv., eða 17 atkv. færra en Sjálf- stæðisflokkurinn. Þetta er eina kjördæmið á landinu, þar sem flokkur fær ekki þingmenn kosna, enda þótt hann hafi meiri- hluta atkv. í kjördæminu. Þetta stafar af því, að atkv. dreifðust milli frambjóðenda annara flokka. Frambjóðendur Sj álfstæðisflokks- ins fengu 879 átkv. saman, en frambjóðendur Framsóknarflokks- ins 859 atkvæði saman. — Jón á Reynistað hlaut 23 atkv. með frambj. annara flokka, en síra Sigfús Jónsson 45, þar af 2 með öðrum kommúnistanum; svo segja má, að hann hafi flptið inn á atkv. kommúnista og hæfir það vel rauðu stjórninni, sem nú er að taka við völdum. Er landkjörstjórn hafði lokið öllum reikningi, bjó hún út kjör- brjef til uppbótarþingmannanna og þar með var hennar verkefni lokið. ítalskur ráðherra rekinn úr Fascistaflokknum og sviftur embætti. Berlín, 24. júlí. FIJ. Það hefir vakið mikla athygli ekki einungis á ítalíu, lieldur einn- ig í öðrum löndum, að Albinati, fulltrúi í innanríkisráðuneytinu ítalska, og einn af æðstu mönnum Faseistaflokksins, hefir nú verið rekinn úr flokki Fascista, og jafn- fram sviftur embætti sínu. Ekki er ennþá kunnugt um, hvað hon- nm er gefið að sök. hann átti til að bera hógláta ó- svífni ásamt barnslegu trúnaðar- trausti á blessun sósíalismans. Þessir tveir menn hafa nú sigr- að læriföður sinn. Bíll rekst á búðarglugga. Hafnarfirði, 24. júlí. FÚ. TJm kl. 8 í gærkvöldi lá við árekstri milli tveggja bifreiða á gatnamótum Gunnarssunds og Strandgötu hjer í Hafnarfirði. Til þess að forðast árebstri lenti önnur bifreiðin á hinu nýja versl- unarhús Valdimars Long' við Strandgötu og braut þar stóra rúðu, og glervarning er var til sýnis í glugganum. 300 manns druknuðu. Eígnatjóníð 1100 mílfónir. Flóðin að sjatna í Póílandi. London, 24. júlí. FÚ. Flóðin í Póllandi eða í Var- sjá eru nú að rjena. Menn óttuð- ust það, að flóðin frá Krakásveit- unum mundu berast til Varsjá í nótt, en úr því varð ekki, en fióðin eru nú að sjatna, og hafa lækkað um nokkra cm. Mesta hættan fyrir borgina er því liðin hjá, en þúsundir manna* halda enn vörð á flóðgörðunum, og gera við þá eftir því, sem auðið er, til þsss að reyna að hafa þá í lagi, þegar Krakáflóðin berast þangað. Það er áætlað, að eignatjónið, sem flóðin hafa valdið nemi að minsta kosti rúmum 1100 milj. króna, en ennþá er of snemt að reyna að meta manntjónið, en gert er ráð fyrir því, að farist hafi ekki færri en 300 manns. Flug Oriersons. Flugvjel hans skemd hjer í höfninm. í fy/rakvöld meðan Gr-ierson íl.ugmaður var i landi. hafðf ein- Lvcr báíur farið út að fiugvjel- inni, þar sem hún lá fyrir festum úti undir Örfirisey. Þeir, sem á bátnum voru, munu hafa róið und- ir flugvjelina, en svo komið alda, sem hefir lyft bátnum svo hátt að hnífillinn hefir rekist upp í skroklc flugvjelarinnar og sett gat á hann, 8 þumlunga á annan veg og' 6 þumlunga á hinn. Upp- götvaðist þetta þegar átti að flytja flugvjelina upp í Slippinn í fyrrakvöld. Skrokkur flugvjelarinnar er gerður úr krossvið, og yfir hann strengt íborið silki, sem er vatns- þjett. Nú voru engin tök á því að gera við brotið á krossviðnum, vegna þess hve mikill asi er á flugmanninum, en svo vél vildi til, að Björn Eiríksson flugmaður átti dálítið af íbornu silki. Var það strengt yfir g'atið og límt og er talið að sú viðgerð muni nægja. Grierson ætlaði' að tafea hjer bensín í gær. Alt bepsín til þessar- ar farar fær hann hjá ShellfjeJag- inu, og hafði það fyrir löngu sent birgðir handa honum á hina ýmsu viðkomustaði. En vegna rigningar reyndist það ógerningur að koma bensíninu í vjelina í gær. Veður- horfur voru ekki góðar í gær- kvöldi, og var þá enn alt óvíst um það hvenær flugmaðurinn mundi Jeggja á stað hjeðan, enda fer hann dult með fyrirætlanir sínar. „Monte Rosa“ Flmleikar Svía í gærkvöldi. Um 1000 áhorfenda var á í- þróttavellinum í gærkvöldi er sænski flokkurinn gekk þar inn undir sænska fánanum. Forseti í. S. í. bauð þá velkomna og var síðan hrópað liúrra fyrir þeim. Ottoson svaraði nokkrum orðum og piltar hans lirópuðu húrra fyrir íslandi og fslendingum. Þá var leikið „Du gamla du fria“. Svo hófst sýningin, fyrst stað- æfingar með söng, svo venjulegar stílæfingar, sem margar hverjar líkjast leikjum, síðan æfingar á dýnu og kistu og loks svokallaðar „tableau“-æfing'ar, þar sem tveir og f jórir leika sarnan. Yfirleitt má segja að sýningin hafi tekist prýðilega, og hafi verið lærdómsrík fyrir okkur, því að þar voru ýmsar nýjungar, sem vjer höfum ekki kýnst áður. Eng- in mistök voru á æfingunum. Mesta hrifningu vöktu handstöðu- æfingar í flokkum, enda sjást varla slíkar listir nema í f jölleika- liúsum. Leikfimi þeirra er sj'er- kennileg fyrir það, að svo má heita að þeir noti engin áhöld. Er það nýung sem mundi vel henta hjer á landi, þar sem hvorki eru leikfimishús nje leik- fimisáliöld. Áhorfendur gerðu mjög' góðan róm að sýningunni og munu fjöl- ménna út á völl í kvöld og taka marga með sjer, því að þá verður sýningin endurtekin (kl. 8,45). Og þeir, sem hafa áhuga fyrir líkamsmenningu, ætti alls ekki að láta þétta tækifæri til að sjá sænsku fimleikana ganga sjer úr greipum. bjargast og er á leið hing- að með 1300 farþega. Þýska skemtiferðaskipið „Monte Rosa“, losnaði af grunni á Gliv- ursnesi kl. 6 í gærmorgun og sigldi inn á Þórsliöfn. Sjór var í skipinu og hjeldu menn að það mundi hafa brotnað éitthvað. Var því kafari látinn skoða skipið, en það reynd- ist óbrotið, og helt því áfram ferð sinni kl. 2 í gærdag með alla farþegiana. Þeir eru 1300. Skipið er væntanlegt hingað í fyrramálið og mun fara aftur annað kvöld. Það var ekki móttökunefndin sem dönsku knattspyrnumennirnir gáfu fána sinn, heldur þeir menn, sem þeir höfðu mest átt saman við að sælda hjer: Ólafur Þor- varðsson, Guðjón Einarsson og' Ó. Á. Thejll. Síldweiði eystra Norðfirði, þriðjul. Síldarverksmiðjan starfar nú nótt og dag og getur unnið úr 3ðö málum á sólarhring, en hefir ekki undan. Berst svo mikið að af síld að allar þrær éru nú fullar. Mikil síld var sögð á Hjeraðs- flóa og' austur fyrir Borgarfjörð í gær. Rðstur í Minneapalis. . London, 24. júlí. FÚ. Vörubifreiðastjórar í Minnea- polisþ hafa krafist þess, að verka- málaleiðtogar borg'arinnar boðuðu til allsherjarverkfalls. Talsverðar róstur hafa orðið á götum iiti síðustu dagana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.