Morgunblaðið - 04.10.1934, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
I kvold kl. 8 |2
Flðluhllðaileikar
í Þjóðkirkjunrii
i Hafnarfirii.
Undrasnillingurinn
með píanotmdírspilí.
Úi' Deutsches Volksblatt,
Wien: „Hann skyggir al-
gerlega á lieimsfræga snill-
inga, svo sem Kubelik,
Prikóda og Isay“-----
Aðgangar í,50
við innganginn og hjá
Y. Long.
Gardiinr
Nýkomnar
iVerslun
•! <mwrbmbmh
GHomli:
Blúndur, ýmsar gerðir.
' Mótív og blúndur á undirkjóla.
iSmádúkar (Dúllur og Löberar)
: Slæður, ’mafgar tegundir.
Kápuhnappar. •
Kjólahnappar.
Kjóla-clips.
Beltisspennur.
; Upphlutaskyrtuhnappar,
og margt fleira.
. Alt í nýtísku úrvali.
Kýi
iliaisarinii,
Hafnarstræti 11.
Sími: 4523.
Vinber,
Laukur,
fyrirligg'jandi.
llniii
Lifnr, hjðrfu,
svið og mör.
Altaf nýtt í
Nordalsíshúsi,
Sími 3007.
Gilndadrðpll I Fossvogi.
Það voru 73 hvalir sem
náðust. Hvalskurðurinn
byrjaði í gær og mun
honum lokið í dag.
Um kl. 71/2 í gærmorgun var
byrjað að skera hvalina í Poss-
vogi. Voru þeir þá taldir nákvæm-
lega og reyndust 73. Þeir eru mjög
misstórir, hinir stærstu líklega 10
álnir, en svo eru margir mjög
smáir.
Slairðurinn gekk g'reiðiega,
enda hafa um 40 manns unnið að
honum og um hádegi í gær var
búið að skera rúmlega 20 hvali.
Bjuggust menn við að hægt mundi
að skera 50 í gær eða meira. Það,
sem eftir verður mun svo nkorið
í dag.
Það man líklega vera í rúmlega
30 staði »3 skifta. Bn misjafnan
hlut munu menn eiga í veiðinni.
Um landshlut verður líklega ekki
að ræða. Ríkið á landið þar sem
hvalirnir voru dregnir upp, en
þar sem lijer var um veiði að
ræða, sem kalla má að handsem-
um hafi verið langt úti í í'irði,
þá á víst ríkissjóðvrr ekki tilkall
til annars en bóta fyrir landspjöll,
og þau eru engin.
Byrjað var að selja hvalinn
þegar í gærmorgun. Var kjötið
selt á 5 aura pundið, en spikið
nokkru dýrara. Komu margir til
að kaupa og um háde^i höfðu
selst nær 2 smálestir. En hve mik-
ill matur fæst af öllum hvölunum
verður ekki giskað. á, en það er
ekkert smáræði.
Um matreiðshi hvalkjöts.
Kjöt af grindahvölum þykir
herramannsmatur. Maður, sem vav
á norsku skipi í fyrra hjá Græn-
landi, segir svo frá, að þegar
skipverjar gátu fengið hvaikjot,
vildu þeir eklci sjá annað kjöt.
Þeir hengdu það upp á svölvun
stað og ljetu það hanga þar nm
vikutíma. Við það varð kjötið
meirt, og livarf af því væmubragð
það, sem er að því nýju- Og svo
var það steikt.
í Noregi er á hverju ári etið
gríðarmikið af hvalkjöti og fer
neysla þess stöðugt í vöxt. Er það
geymt þar í íshúsum og selt nt í
smásölu fyi-ir 30 aura pundið —
og þetta er beinlaus biti. Segja
Norðmenn að neysla hvalkjöts-
ins hafi dregið mest xir markaði
fyrir íslenskt saltkjöt þar.
SumÍr 'reykja kjötið og þykir
iað herramannsmatur. Þannig
verka Danir það, og fer neysla
þess í vöxt með ári hverju. Kjöt
ið fá þeir frá Pæreyjum og Græn
landi.
1 Færeyjum er kjötið og spik-
ið soðið nýtt og þykir afbrag'ð.
Sumir búa tii „banta“ úr því, en
þá er bétra að láta kjötið fyrst
liggja yfir nóttina í saltpækli með
nokkru af sóda í. Sumir sjóða kjöt
ið\ fyrst og steikja það svo- En í
Pæreyjum er hvalurinn aðallega
saltaður niður í tunnur, spik qg
kjöt saman. Þessi saltbvalur er svo
soðinn og borðaður með kartöfl-
um, og er það lífrjettur Færey-
inga.
í norskri matreiðslubók segir
svo: Neysla livallcjöts eykst stöð-
ugt, og það má búa til afbragðs
mat úr því. Það er undir smekk
komið, hvort menn leg'gja það í
bleyti eða ekki, en sje það útvatn-
að, skal edik látið í vatnið, þrjár
matskeiðar af ediki í bvern líter
af vatni. Látið það svo liggja í
bleyti 4—12 klukkutíma. Þerrið
það svo vel á eftir. Úr hvalkjöti
eru búnir til allir hinir sömu rjett-
ir og úr nautakjöti.
Um hagnýting kjötsins í Fær-
eyjum, segir' Jörgen Landt prest-
ur:
— Ný þykir grindin afbragð til
tu og jafnvel útlendingar felja
suma bitana lierramanusmát. Kjöt-
ið er á útlit og bragð mjög svip-
að nautakjöti. Það sem ekki er
etið nýtt er skorið í leng'jur og
liengt upp í vind. Spikið er að-
mestu leyti brætt, en þó er nokk-
uð af því saltað niður í tunnur
og stampa- Spikið á liryggnum er
látið liggja í pæklinum, en síðu-
spiltið er tekið upp úr lionum eft-
ir viku eða hálfan máiiuð og liengt
upp í vind- Getur það síðan
geymst í mörg ár og er etið eins
og flesk.
Skip í sjávarháska.
London, 3. okt. FÚ.
Síðustu daga hafa óvenjulegir
stormað geisað í Atlautsliafi.
Breska flutning'askipið Millpool
(4000 smál.) símaði fyrir 2 dögum
að sjór væri að fylla lestarrúmin
og í nótt kom skeyti frá skipinu
um að siglur þess væru brotnar.
Rak það stjórnlaust fyrir veðri
og sjó. Tvö flutningaskip hafa
Ieitað á þeim slóðum, þar sem
Millpool þóttist vera„ en eklti get-
4
að fundið það. Á skipinu voru 26
menn.
□agbók.
Veðrið í gær: Fyrir .sunnan land
og austan eru djúpar lægðir. en
fremur há loftþrýsting yfir Græn-
landi- Vindur er NA-lægur um alt
land, fremur hægur sunnanlands
með bjartviðri norður undir Snæ-
fellsnes og 6—9 st. hita. Á N- og
NV-Iandi er víða allhyast, talsverð
rigning og liiti 5—6 st. Á A-landi
er vindur heldur hægari og minni
úrkoma. NA-átt mun haldast um
alt land næstu dægur og' heldur
kólna í veðri.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hvass
N-. Úrkomulaust.
Orgelkenslu heldur Kristinn
Ingvarsson, Hverfisgötu 16, uppi,
í vetur eins og að undanförnu.
M. Júl. Magnús læknir er flutt-
ur að Laug'arnesi. Tók hann við
yfirlæknisstöðunni- þar, þegar
Sæmundur Bjarnhjeðinsson pró-
fessor Ijet af henni.
Sjómannakveðjur.
Byrjaðir að veiða við Austur-
land. Sendið póst til Hull með
fyrstu ferð. Kærar kveðjur. Vel-
líðan. Skipverjar á Sviða.
Farnir til Engjands. Vellíðan
allra. Kærar kveðjur. Skipsliöfnin
á Surprise.
Gísli Pálsson læknir er fluttúr
til hæjarins og býr í Ingólfsstræti
21 B.
Földesy, cellomeistarinn, leikur
í útvarpið kl. 12,15. tlanii fer bjeð-
an í kvöld með Lyrn.
Lyra fór lijeðan til Keflavíkur í
ær að sækja þangað fiskmjöl 0.
fl. Fer hjeðan til útlanda í kvöld.
Hvalkjötið. t Hressingarskálan-
um var matreitt livalkjöt í gærdag
(bauti) og neyttu þess margir og
Ijétu ágætlega af.
Skiftafunöur.
Næstkomandi föstudag, 5. þ. m., kl. V/2 e. h., verður á
skrifstofu sýslunnar í Hafnarfirði, haldinn skiftafundur í
þrotabúi Baldvins Jónssonar, bónda á Hópi í Grindavík,
og þá, með tilliti til framkomins kauptilboðs á öllum eign-
um búsins, föstum og lausum, tekin ályktun um ráðstöfun
á eignum búsins.
Skrifstofu Gullbringu- og Kjósarsýslu, 3. oktbr. 1934.
Magnús Jónsson.
Þakjárn.
Þakjárn í öllum lengdum, nýkomið.
Lægsta verð í bænum, eins og áður.
Helgi Magnússon & €0
Hafnarstræti 19.
Li(noleum
fjölbreytt úrval fyrirliggjandi.
R. Einarsson h Funk.
Efní í lampaskerma.
Skermagrindur — georgétte —
skermasilki — shamtung — gull-
leggingar — gullsnúrur — gull-
dúskar — silkileggingar — silki-
snúrur — silkidúskar — silkikög'-
ur — silkitvinni — vafningsbönd.
Hjá okkur er úrvalið stærst og
verðið lægst.
SKERMABÚÐIN
Laugaveg 15.
Fermlngarklálaefni
Satin og' Crepé de Chine.
Kjólasilki.
Ullarflauel í fleiri litum.
Alt mjög ódýrt.
Ityi Bazarinn,
Hafnarstræti 11
Sími: 4523.