Morgunblaðið - 13.10.1934, Síða 2

Morgunblaðið - 13.10.1934, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ JPlorgmiHaMft Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Ritstjörar: Jðn KJartanaaon, Valtýr Stefánsson. Rltstjðrn og afgreiBsla: Austurstrœti 8. — Slmi 1600. Auglýslngastjðrl: B. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Slmi S700. Heimastmar: Jðn KJartansson nr. S74S. Valtýr Stefánsson nr. 42S0. Árni 6la nr. 3045. B. Hafberg nr. 3770. Áakriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBl. Utanlands kr. 2.60 á mánuBl í lausasölu 10 aura eintakiB. 20 aura meB Lesbök. ’uskiráðið. Það er sýnilegt á dag’blaðl Tíma manna í gær, að þá sárlang'ar til að snúast gegn fiskiráðinu, en þora ekki almennilega til við málið. Samt er blaðið með eftir- tölur út af kostnaðinum við fiski- ráðið. Svo mikið má ekki fyrír útveginn gera, og er þó útvegs- mönmim sjálfum ætlaS a8 greiða allan kostnað af fiskiráðinu. , „Hjer skal ekki mælt á móti því út af fyrir sig, að nefnd eins og þarna er stungið upp á, kunni að geta gert g’agn. Verkefni bennar, eins og það er hugsað í greinargerðinni, virðist þó al- geriega eiga lieima hjá skipulags- nefnd atvinnrmveganna sem nú er starfandi" segir blaðið. Skipulagsnefndin, þ. e. rauði rannsóknarrjetturinn hefir tekið að s.jer að rannsaka alt milli him- ins ög' jarðar og hefir því nóg með ’sitt. Enda liggur nærri að spyrja: Ef rannsóknarrjetturinn f'ir skyldu til að fást við verk- efni fiskiráðs, hversvegna lætur hann þá ekkert frá, sjer heyra í þessu mesta vandamáli þjóðar- innar? t Nei, á rauða rannsólcnarrjett- inum og fiskiráðinu er sá munur, að rjettinn skortir alla þekkingu á viðfangsefninu og öll skilyrði til að hrindá umbótum í framkvæmd, en ráðið á að verða skipað mönn- um, sem vegna atvinnu sinnar og lífsbaráttu hafa aflað sjer þekk- ingar á sjávarútvegi og verslun. Og með skipun nefndarmann- anna er einmitt trygð ákjósanleg- asta aðstaða til að hrinda umböt- unum í framkvæmd. , Alþingi skal ekki að órevndu ætluð sú Ijettúð, svo ekki s.je kveð'ið sterkar að orði. að það fleygi þessu höfuð-vandamáli ísl. atvinnulífs í nefnd, sem er þann- ig skipuð, að hún hefir eigi burði til þess að ráða við þetta verkefni. Hjer er um slíkt stórmál að ræða, að ekki kemur annað til mála en að fela það hinum allra- hæfustu mönnum sem völ er á. VírkfanlFIíótaár fyrir Siglufjarðarkaupstað. Garðar Þorsteinsson flytur frv. um heimild fyrir bæjarstjórn Siglufjárðar að láta reisa og reka raforkustöð við Fljótaá í Skaga- fjarðarsýslu til raforkuvinslu fyr- ir Siglufjarðarkaupstað. Ennfr. er í frv. ákvæði um það, að ríkis- stjórnin skuli ábyrgjást lán til virkjunarinnar, alt að 700 þús. kr. Siglufjarðarkaupstað er skylt að veita, Holtshrepp rjett til að taka þátt í virkjuninni á alt að 200 hö., ef hreppsnefnd Holts- hrepps óskar. — Frv. var vísað til fjárhn. Hroðaleg manndráp í Asturia á Spáni. Augljóst að uppreisnin er brátt úti stjórnin. London, 12. okt. FÚ. Frá Spáni er það helst talið til tíðinda í dag, að augljóst þykir, að uppreisnin í Asturiu er ekki enn fullkomlega brotin á bak aftur, en jafnframt virðist það augljóst, að ekki geti liðið nema fáir dagar, þangað til svo verður. Fregn kemur um það, að 100 upprelsnarmenn í Asturiu hafi verið grafnir lifandi með þeim hætti, að sprengikúla, sem skot- ið var áf stórskotaliði stjómar- innar, hefi gersamlega lokað námugöngum, þar sem uppreisn armenn höfðu leitað hælis. Ennfremur er skýrt frá því, að 150 uppreisnarmenn hafi fundist dauðir í þorpinu Campo- manes, þar sem flugvjelar segir spánska stjómarinnar höfðu látið rigna sprengikúium. Fjöldi manna, er sagt, að einn ig hafi beðið bana í dag, vegna sprengikúlnaskota. Tvær flugvjelar stjórnarinn- ar, sem þátt tóku í þessum árás- um, urðu fyrir slysum. Hrapaði önnur þeirra,og saérðust báðir þeir, sem í henni voru. — Innanríkismálaráðuneytið spánska tilkynti í dag, að Az- ana mundi verði fluttur frá Barcelona til Madrid, til þess að mæta fyrir rjetti, og að hann mundi verða krafinn um svör við því, hvort hann hefði átt þátt í því, að koma upp- reisnarliðsveitum á land við strendur Asturíu. Meiser biskup í Bayern sviftur embætti. Almenn mótmæli gegn Miiller ríkisbiskupi. London, 12. okt. FÚ. Múller, ríkisbiskup Þýska- lands, hefir svift Heiser, biskup yfir Bayern, embætti sínu, og leyst upp ríkiskirkjuna í Bay- ern, og skipað svo fyrir, að Bayern skuli hjer eftir verða skift í 2 biskupsdæmi, og skuli ríkisbiskupinn sjálfur skipa biskupa, til þess að gegna þeim embættum. Meiser hefir verið sviftur ém- bætti sínu vegna þess, að hann neitaði að framfylgja lögum stjórnarinnar um þýska alls- herjarkirkju. Óhemju æsingar urðu í Bay- ern þegar þessi tíðindi frjettust, mest kvað að þeim í Múnchen, þar sem fólk streymdi saman og fylti kirkjur mótmælenda, og einkum St. Matthíasarkirkjuna, þar sem Méiser biskup flutti afar harðorða ræðu, þar sem hann komst svo að orði, að kirkjan og Guðskristni hefði vefið saurguð með þessum að- gerðum. Annar klerkur flutti ræðu yf- ir múg þeim, er safnast hafði saman úti fyrir kirkjunni, þar sem Dr. Meiser talaði. Komst hann svo að orði: ,,Ef að vjer verðum allir trúir biskupi vor- um, þá mun enginn prestur í Bayern missa embætti sitt“. Þegar Meiser biskup ók frá kirkju sinni í bifreið, fylgdi múgur manns á eftir bifreið- inni, og hrópaði Iáflaust: ,,Vjer kiefjumst þess, að fá að hafa biskup vorn!“ Ricl/lincmnrA ! Þess hefir einnig verið getið DlöKUpolIIUÍU |til; a6 biskup kynni a6 hafa í Latvítt. | komið innbrotsþjófi á óvart, og ----* ! hafi þjófurinn drepið hann, til London, 12. okt. FÚ. 1 þess að komast undan. Yfirbiskup grísk-kaþólsku i kirkjunnar í Latvíu hefir andast j með voveiflegum hætti, og er; alment talið, að hann hafi verið j myrtur. Eldur kom upþ í húsi j hans s.l. nótt, og brunaliðsmenn, j sem voru að slökkvistarfi í hús- j inu, fundu biskup dauðan, með j banvænt sár á enni. Yfirbiskupinn hafði undan- farið átt í deilu við biskupa kirkju sinnar, og þess hefir ver- ið getið til, að sú deila kunni að hafa leitt til þess, að þetta verk var framið. Samkomttlag i íandhelgísmálum í Noregs. London, 12. okt. FÚ. Bráðabirgða samkomulag hef ir orðið milli fulltrúa ensku og norsku stjórnanna, um ágrein- ing þann, er milli þeirra hefir verið, um fiskveiðar við Nopeg. Uppkast að samningum um þessi efni verður nú lagt fyrir stjórnir beggja ríkja. Pjúðarsoro meðal lugoslafa. Italir tfii beim vinarhug ’ -4 London, 12. okt. FÚ. Dubrovnik, herskipið, sem flutti lík Alexanders konungs til Júgoslafíu, kom til Messina- sunds snemma í morgun. ítölsk herskip komu þar á móti því, og skutu 21 skoti og fylgdu síðan Dubrovnik þangað til það var komið út fyrir landhelgi Italíu. Um leið og Dubrovnik fór fram hjá Passerovitanum var flagg- Júgoslafíu dregið í hálfa stöng á flaggstöng vitans. Þessi kurteisi, sem þarrnig hef ir hefir sýnd Júgoslafíu af hálfu Italíu, hefir til muna dregið úr þeirri andúð gegn ítölum, sem farið hefir vaxandi síðustu dagana. Fregnir þær um mótmæla- göngur, til þess að lýsa fjand- skap við Ítalíu, sem sagt er að hafi átt sjer stað \> Júgoslafíu upp á síðkastið, hafa verið mjög ýktar. María drotning og Pjetur konungur eru nú á leiðinni heim. Síðdegis í dag fóru þau í gegn um Austurríki. Vegna óveðurs hefir Dubrov- nik tafist mjög á leiðinni, og kemur ekki til Split fyr en snemma á sunnudagsmorgun. Minningarathöfn verður haldin bæði í Split og Zagreb, áður en lík konungs verður flutt til Bel- grad. Einstökum atriðum í sam- bandi við jarðarförina hefir nú verið raðað niður, en jarðar- förin fer fram á fimtudag í stað miðvikudags, sem áður hafði verði ákveðinn. Lík konungs verður jarðsett í hinu konung- lega grafhúsi í Topala, við hlið Pjeturs konungs I. London, 12. okt. FÚ. Sjónarvottur lýsir þannig Bel- grad, höfuðborg Júgoslafíu, í dag: „Borgin er hljóð af sorg. í kaffihúsum borgarinnar, þar sem daglega ríkir gleði og glaumur, og fiðlur förumanna hljóma, er nú þögn. Kaffihúsin standa auð og dimm. Á götun- um er fólkið með alvöru- og sorgarsvip, og svört bönd um ermar og hatta. Þetta er uppskerutími á vín- berjaökrunum, og aldrei er meiri gleði og glaumur en ein- mitt þá. Ef konungurinn væri ekki dáinn, myndi hvarvetna kveða við söngur og íagnaðar- óp, en nú er uppskeran borin heim á herðum sem bogna undir þunga sorgarinnar. Ef konung- urinn væri ekki dáinn, þá væri dansað og hlegið í hverju þorpi, en nú er enginn fögnuður. Jeg hefi sjeð gamla hermenn, sem börðust með konunginum í Balkanstríðinu og í styrjöldinni miklu, gráta látinn konung sinn og herforingja. Og í kirkjum kristinna og múhameðstrúar- manna, og musterum gyðing- anna, þyrpist fólkið saman til þess að minnast kónungs síns og syrgja hann. í aljan dag hefir verið stöð- ugur straumur fólks heim að konungshöllinni. Þar hefir það staðið nokkra stund, með drúp- andi höfuð, og gengið síðan hljóðlega í burtu. Um stjómmálin, og framtíð þeirra, er varla nokkuð talað. Þó er búist við því, að mynduð verði ný stjórn, allra flokka“. Lögreglan í Belgrad vinnur nú að því í samráði við frönsku lögregluna, að hafa upp á hugs- anlegum vitorðsmönnum við banamann Alexanders konungs. þgir tveir menn, sem franska lögreglan tók höndum, í ná- grenni við svissnesku landamær in, hafa reynst vera meðlimir róttæks fjelags æsingamanna, og hafa þeir þegar játað, aS vegabrjef þeirra væri fölsuð. London, 11. okt. og Berlin, 12. okt. FÚ. Göbbels, útbreiðslumálaráð- herra Þýskalands, hefir lagt bann við sýningu kvikmyndar- ínnar, sem tekin var af morð- inu í Marseille. Scotland Yard hefir skoðað myndina gaumgæf- lega, í leit eftir myndum af þektum glæpamönnum, sera kynnu að hafa verið við morðið riðnir. Franska stjómin. Herriot. Paris, 12. okt. FB. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er talið líklegt, að ekki komi til þess, að frakk- neska ríkisstjórnin fari frá, því að búist er við, að Tardieu verði innanríkismálaráðherra, en Herriot utanríkismálaráð- herra. (United Press). Heimdallur. Aðgöngumiðar að Kkemtifundi fjelagsins, sem hald- ' inn verðúr í kvöld kl. 9 í Odcl- fellowhúsinu, enj seldir í dag frá kl. 3—7 í skrifstofu fjelagsins í Varðarhúsinu, sími 2774.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.