Morgunblaðið - 05.01.1935, Síða 4

Morgunblaðið - 05.01.1935, Síða 4
MORfíUNBLAÐIÐ / Laugardaginn 5. jan. 1935. IW—11 1 —»■“ KVENDJOÐIN oa HEIMILIN „Betra er belgur en barn“. — Dönsk kona, blaðamaður, skrifar eftirfarandi smágrein í danskt blað: „Bömin taka upp á taugarn- ar“, andvarpar frú Jensen. „Já. ,En nú þegar Lotta er farin að ganga í skóla, er það þá ekki ljettara?" „Nei, það er einmitt það bræðilega", stundi frú Jensen. „Nú getur maður aldrei verið öruggur. Óvitabörn tala svo mikið í skólanum. Þau segja hvort öðru og kennaranum alt sem þeim dettur í hug. Um daginn kom Lotta heim úr skól- anum og sagði mjer að það hefði verið svo „spénnandi“ í skrift- artímanum. Sveinn hefði sagt kennaranum að mamma hans hefði fengið gervitennur. En pabba hans fanst tennurnar ekki fara henni vel, svo að nú átti hún að fá nýjar tennur, sem væru líkari hennar eigin tönnum. Og Beta sagði frá því, að eldri systir hennar væri ný- trúlofuð. „Nú eignast jeg reglu- legan mág“, sagði hún, „en pabbi og mamma segja að jeg skuli ekki hlakka til of snemma því að Erna sje ekki þannig stúlka að hún geti felt sig v ð að vera með honum lengur en um tveggja mánaða tíma. Er það ekki leiðinlegt?“ „En þú hefir þó ekki farið að segja frá einhverju?, segi jeg“, heldur frú Jensen áfram. ,,En Lotta litla trúði mjer þá fyrir því, að hún heíði rjett upp hendina, og síðan sagt ítarlega frá fyrirætlunum okkar í sum- ar: „Mamma vill helst fara á baðstað", sagði hún. „En pabbi segir að til þess þurfi fallega kjóla. En mamma á enga fall- ega kjóli. Sá kjóll sem hún á er marg upp saumaður og búið að venda honum tvisvar. Pabbi vill þess vegna heldur fá leigt lít'ð sumarhús og lifa rólegu rífi. En mömmu finst ekki ró- legt að vera húsmóðir. Þá seg- ir pabbi, að úr því að mamma sje svona, þá sje best að hætta við alt saman. Við skulum fara upp í sveit til afa og ömmu. Það fáist líka ókeypis“. ,,Og mamma", segir Lotta ennfremur, „jeg spurði kenslu- konuna, hvort það væri ekki gaman að fara upp í sveit í sumarfríinu, og hún sagði að það hlyti það að vera. Þar væru bæði kýr, kindur og hestar, blóm og tún. Svo þú sjerð að þú þarft ekki að láta þjer leiðast að við ekki förum á baðstað í . uroar, mamma!" Frú Jensen ber sig aumlega. „Skrifið þjer grein", segir liún biðjandi róm. „Skrifið um það að barhakennarar eigi að vinna þagnarheit, áður en þeir byrja starf sitt“. Tíska. Ungar stúlkur vilja helst kjöla úr tyll eða taftsilk'. Bmi eni. eíiif margir dansleikir og skemtaiiii'. Ungar stúlkur velja sjer þá kjól úr tyll eða taftsilki. Síi'lkjólar tískasi nijög, en það 'eru aðeins ungar síúíkur, sem geta borið þá svo vel í’ari. Fremri kjóiinn er gulur tyllkjóll, tvær pífur eru á kraganum blúss- an þröng og miiril vídd i pilsinu. Nokkrar pífur eru á pilsinu. Mitt- isbandið er úr taftsilki, appelsínu- gult. Hinn kjólinn er í fínlegum bláuin Ht, mjög fleginn með væng.jaermum, blússan er líka þröng, eins og á hinum kjólnum, en víddin byrjar ueðar í piísinu. Paillottur, Ijósbiáai' eru saumaðar i kjóiinn með siií'urþríaoi í liáls- inn og r.eðan í pilsið. Ullardragtir tíðkast mjög. ,,Dragt“, sem svo er kölluð, má vel nota um þessar mundir. Veðrið leyfír það og tískan býður það. Tískukóngarnir hafa fundið á sjer að veðrið myndi verða heldur Matreíðsla. Shirley Temple. Tveir algengir miðdegisverðir. I. Eggjngrautur. 100 gr. hveiti. 100 gr. kartöflumjöl. 1 y* 1. mjólk. 1-2 egg. 2 matsk. kanell og sykur. V2 L saftblanda. Eggið er þeytt vel. Þar sam- an við er hrært 6 dl. af kaldri mjólk. Kartöflumjöli og hveiti er blandað saman. Þar út í er eggjamjólkin hrærð smátt og smátt. — Það sem eftir er af mjólkinni er hitað. Þegar hún sýður, er eggjajafningnum hrært út í. Hrært vel í því, þar til það sýður aftur. Soðið í 5 mínútur og hrært stöðugt í. — Borðað með kanel og sykri og saftblöndu. Fiskur á fati. 1—1 V-z kg. fiskur. 2 tesk. salt. (4 tesk. pipar. 4 matsk. brauðmylsna. 150 gr. smjörlíki. Soðnar kartöflur. Fiskurinn þveginn, roðflett- ur og flattur og öll bein tekin úr honum. Fatið smurt með smjörlíki. Brauðmylsnu og pip- ar blandað saman og ca. l/g því stráð á fatið. Fiskurinn ann- að hvort skorinn í stykki og raðað á fatið eða flökin heil lögð eftir endilöngu fatinu. — Salti stráð yfir fiskinn og því, sem eftir er af brauðmylsnunni, þar ofan á. Smjörlíkið er látið í smábitum hingað og þangað yfir fiskinn. Fatið látið inn í heitan ofn og bakað ca. l/á klst., eða þar til fiskurinn verð- ur brúnn að ofan. Borið fram beint úr ofninum og borðað með soðnum kartöflum. Ef manni finnst ekki nóg feiti á fiskinum, er gott að bera fram hrært smjör með, óbráðið. Aths. Nauðsynlegt er að nota blikkfat, því leirfat skemmist. II. Kartöflusúpa. % kg. .kartöflur. 2 1. vatn eða kjötsoð. 1 blaðlaukur (púrra). Salt og pipar. 1--2 gulrætur. 30 gr. smjörlíki. 30 gr. hveiti. Kartöflurnar flysjaðar, brytj- aðar smátt og soðnar í vatninu eða kjötsoðinu. Blaðlaukurinn og gulrótin einnig soðin með, þar til þau eru meyr, tekin þá upp úr. Þegar kartölfurnar eru komnar í mauk, eru þær press- aðar í gegnum gatasigti með soðinu. Gulrótin skorin með riffluðum hníf í smábita og púrran í sneiðar. Sm-jörlíki, brætt, hveitið hrært þar út í og þynnt út með kartöflusoð- inu. Krydd látið í eftir smekk. Soðið í 5—10 mínútur. Þá er gulrótin og blaðlaukurinn sett- ur út í og smátt brytjaðar kart- öflur ef vill. Borðað með hveiti- brauði. Gott er að það sje þurk- að. Steikt bjöt meS brauði (Panerað kjöt). 1/2 kg. kjöt. 2 1. vatn. 2 tesk. salt. 314 matsk. hveiti. % dl. vatn. Brauðmylsna. 1 teskeið salt. 2 matskeiðar smjörlíki. Steinselja. Kjötið er soðið í saltvatni, kælt og skorið í þunnar sneið- ar. Einnig má nota soðnar kjöt- leifar. Hveitið hrært með vatn- inu. Smjörlíkið brúnað. Kjöt- sneiðunum snúið upp úr hveiti- jafningnum og brauðmylsnunni. Steikt brúnt á báðum hliðum. Raðað á fat og grænmetisjafn- ingurinn settur öðrum megin. Grænmetisjafninginn býr mað- ur til úr því grænmeti, ,sem er við hendina. Helga Sigurðardóttir. Angandi grenilykt. Gamalt húsráð segir, að hægt sje að fá fram angandi greni- lykt á annan hátt en þann að hafa grenigreinar í stofunum, þannig, að láta 1 teskeið af terpentínu í 1 lítra af sjóðandi vatni. Auk þess á þetta að vera holt og sótthreinsandi. Shirley litla Temple hefir fengið fádæma lof fyrir leik sinn, hún er frægasta leikkona í he'mi þ. e. a. s. á þessum aldri. Hrifinn blaðamaður í New York skrifaði um hana: Þegar hún brosir, byðnar klaki hins harðvítugasta hjarta, þegar hún talar með yndislegri barnsröddu sinni heitir maður því með sjálfum sjer að bæta ráð sitt, fara aldrei 1 nætur- klúbb framar, þegar hún græt- ur er eins og maður sje alt í einu yfirbugaður af sorg, og þegar hún fer. býst maöur við að sjá hana svífa burt á engla- vængjum. , Rússnesk filmstjarna. Þannig lítur hin rússneska kvik- myndakona, Anna Steen, út í sein- ustu kvikmyndinni sem hún leiltur í. Myndin heitir „¥e live again“, og hefir mikið verið látið af henni í New York. hlýtt í vetur. Það er heldur ekki i i! þess ætlast að pilsið og treyjan ;;je úr þunnu efni, heldur úr ullar- cfni., t. d. úr þykku mjúku tweed. Sniðið er látlaust. Pilsið sljett, opið. Ilelst á að vera leðurbelti mn mittið, vasar og hnappar. Ann- ars eins og hverjum líkar best. Þó þykir raglansniðið það rjetta. En það er ekki nóg að vera í dragt. Maður verður líka að liafa snotran klút, bundin sniðuglega um hálsinn, eða smá skinnslá, og liatt sem fer vel við. Einn kjóll aðeins. Hjá einum negraflokki í Su- dan er það siður, að konan fær einn kjól frá manninum sínum þegar hún giftir sig. Þá fyrst er hjónabandið lögmætt, og það varir jafn lengi og kjóllinn. Elski konan manninn fer hún vel með kjólinn sinn, og hann gefur henni ekki annan. En sje því öðru vísi varið, slítur híín honum fljótt — og svo skilja hjónin. M U N I Ð — — að ryðblettir í fötum hverfa sje þeim dyfið í sjóð- andi vatn og síðan nuddað jTir með sítrónu. -----Lökkuð borð verða fal- leg sje strokið yfir þau með mjúkum klút og kartöflumjöli. — — að gylta ramma má hreinsa með þeyttri eggjahvítu, sem blönduð er dálitlu salti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.