Morgunblaðið - 19.03.1935, Side 6

Morgunblaðið - 19.03.1935, Side 6
0 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudaginn 19. mars 1935^ Höllin í Versölum, þar sem friðarsamningarnir voru undirskrifaðir. tJr verstððvunum. 18. mars. FÚ- V estmannaey j ar. Ofsaveður af austri var í dag í Vestmannaeyjum. Ellefu bátar fóru í róður. Tveir þeirra sneru aftur og 5 voru komnir úr róðri er skeytið var sent klukkan 17,30 í dag. — Varðskipið Þór, sem var statt 8 sjómílur suðvestur af Þrí- dröngum segir í skeyti, sem var þá nýkomið, að það hafi sjeð 6 báta á sjó. Samkvæmt skýrslu yfirfiskimats mannsins til frjettaritarans hafa aflast í Vestmannaeyjum frá 1. til 15. þ. m. 993.380 kg. fiskjar. Ógæftir hafa verið en afli jafn- an ágætur þegar hefir gefið á sjó. — Saltlítið hefir verið undam farið í Vestmannaeyjum. Salt- skip sem kom síðastliðinn föstu- dag liggur enn óaffermt sakir óveðurs. Akranes. Allir bátar hjer á Akranesi hafa róið síðustu daga og fiskað fremur vel. Hæst var í dag 25—30 skp. Fimtánda þ. m. var Hafþór sem er aflahæstur, búinn að salta 400 skp. — Línuveiðarinn Ólafur Bjarnason lagði á land í dag 200 skp. eftir 13 daga útivist. — Nova lestaði í dag 400 tunnur söltuð hrogn. j um á flekum yfir verstii skafl- J ana. Frá Grænumýri til Blöndu ; óss er gott færi. j Bílnum er ætlað að ganga frá Blönduósi suður til Holta- vörðuheiðar þegar bílfært er, þangað til bílfært verður til Suðurlands. Þorfinnur Jónsson í Baldurshaga. Heldur fanst ’ann þykkjuþungur þegar í æsku en hreinn og beinn. Og þegar maður enn er ungur, ægifríður, röskur sveinn, skyldi enginn um það dæma hver örlög skyldi honum sæma. Dagbók. □ Edda 59353197 — Fyrirl. I.O.O.F. = O b 1 P = 116319874 = 83/4 Hr. st. Veðrið í gær: Lægðarsvæði yfir hafinu fyrir sunúan ísland og virð ist það vera á hægri hrevfingu nörðvestur eftir. Við S-ströndina er A-stormur (Vestm.eyjum 10 vindstig), en annars er vindur allhvass A um alt land og dálítil snjókoma Austanlands. Hiti er um 0 st. vestanlapds en 1—2 st. frost nyrðra og eystra. Veðurútlit í Rvík í dag. Hvass A og síðan hægari SA-átt. Slýddá eða rigning. Röskur maður reis í sveitum ramefldur um kraft og mál, og þótt vjer æði lengi leitum leitun mun að þvílíkt stál eins og þar var saman soðið sálar og líkams muni boðið. 1 Örlög ráða, örlög fel.la ösp og minsta beitilyng., Og þegar lífsins þrumur svelfa þá er líkt um brot og hring. En ekki má þó minna vera j en minst sje þín — og skal það gera. Árni Óla. Páll Sigurðsson fer á bíl norður yfir Holta vörðuheiði. Blönduósi 17. mars FÚ. S.l. föstudag fór Páll Sig- urðsson bílstjóri af staf úr Rvík í 18 manna bíl með 2 menn til aðstoðar áleiðis til Blönduóss. Var hann 15 stundir frá Rvík að Þyrli á Hvalfjarðarströnd. Vegurinn var snjólaus á þeirri leiíj en sandskriður og grjót- skriður höfðu fallið á veginn. Frá Hvalfirði fór hann til Akra ness og út fyrir Hafnarfjall, og var vegurinn sæmilegur frá Þyrli til Fornahvamms. Þaðan gekk ferðin allvel norður að Sæluhúsi, en frá miðri heiði og norður til Grænumýrar var færi slæmt og óku þeir bíln- Roosevelt starfsamur maður. Amerísku blöðin. lofa Roosevelt forseta fyrir starfsemi og dugnað, enda vinnur hann sliturlaust frá morgni og langt fram á kvöld. Kl. 8y2 fer hann á fætur og snæðir morgunverð um leið og hann les blöðin. Kl. 10^ fer hann á skrifstofu sína og vinnur þar viðstöðulaust til kl. 6 að kvöldi, með stuttu matarhlje um hádegis- bil. Rúmlega sex fær liann sjer hressandi sund í lauginni í Hvíta húsinu. Og að loknum miðdegis- verði vmnur hann af kapþi til klukkan að ganga tólf; þá geng- ur hann til hvíldar. Læknir Roose- velts segir, að hann viti ekki hvað ! það sje að vera taugaóstyrkur. fHann sje aldrei uppstökkur, kom- ist aldrei út af jafnvægi, hvað sem 1 á dynji. Thor Thors, alþm, ! í víðsjá blaðsins í dag birtist fyrri hluti framsöguræðu 'l’lior Thors alþm., er hann flutti á Al- ! þingi, þegar fmmvarp um stofnun atvinnudeildar við Háskólann var lagt fyrir þingið, en fruinvarp þetta er eitt af merkustu nýmæl- um, sem fram hafa komið á Al- þingi. Samtíðin. Eggert, P. Briem bók- sali, hefir keypt tímaritið 8ain- tíðina af útgáfuf jelaginu. H.f. Höfundur, og er komið út 1. liefti 2. árgangs, og hafa verið gerðar ýmsar brevfingar á útgáfunni. t þessu fyrsta hefti hefst saga eftir Hans Fallada, grein um ljóðabók Tómasar Guðmundssonar „Fagra veröld“ eftir Sigurð Skúlason magister,. o. m. fl„ t- d. Múnch- hausen ræðir tolla og haftamál (úr Economist). Skýrsla Náttúrufræðifjelagsins, fyrir árið 1935 er nýkomin út. Þar eru, tvær æfiminningar um látna náttúrufræðinga. Dr. Bjarni Sæmundsson ritar um Johs Sch- midt, fískifræðinginn víðkunna, er um langt skeið hafði umsjón með SlðiisiæðismeflD! Hjósið í dag í útvarpsráðl Híósið B-listann. Kjörstofa úfvarpsins á Lækjartorgi I er opin frá kl. 10-12 og kl. 1-7. fiskirannsóknum Dana hjer við land. En Jóhannes Áskelsson rit- ar um Guðm. heitinn Bárðarson. Þá eru í ritinu reikningar f jelags- ins og fjelagatala, og skýrsla um Náttúrugripasafnið. Aðsókn að safninu var árið 1934, svipnð og árið áður. Alls komu þangað 9830 manns á árinn. Dr. Bjarni Sæ- mundsson ritar um nýjungar í dýraríki íslands, nýja og fásjeða fugla og fiska. Steindór Steindórs son ritar um Flórunýjungar 1934, sem aðallega eru frá ferðum hans um Möðrudals-. og Brúaröræfi, Melrakkasljettu og Mývatnssveit. Jóhannes Áskelsson skýrir frá at- hugunum sínum á sævarminjum á Tjörnesi. Og að lokum er skýrsla Magnúsar Björnssonar um fugla- merkingar og árangur þeirra árin 1933 og ’34. Aðalfundur Bókbindarafjelags Reykjavíkur verður haldinn í Bað- stofu iðnaðarmanna í kvöld ld- 8% síðd. Franskur togari kom í gær að fá sjer kol. Útvarpskosningin. í gærkvöldi höíðu Í9Ö1 útvarþshötendur neytt atkvæðisrjettar síns. Bansleik heldur fjelagið „Ang- ]ia“ á morgnn í Oddfellowhúsinu fyrir yfirmenn af enska her- skipinu „Godetia“. Henrik og Pernilla. Þessi leikur verður sýndur í Iðnó kl. 8% í kvöld í seinasta sinn. Húsmæðrafjelagið heldur fund í Nýja Bíó kl. 4 í dag. Eru þar mörg áríðandi mál á dagskrá. — Nýjar fjelagskonur vélkomnar. Ort við andlátsfregn síra Björns Þorlákssonar: Mörg hefir Iifað æfi ár andans jöfur slingur, fáir þó sjeð þig fella tár frækni Þingeyingur. Álfkona. Heiðurssamsæti var síra Pálma Þóroddssyni og konu hans haldið í Hofsós á laugardaginn. Yar þeim afhentur minningargripur, hóka- hylla, útskorin af Ríkharði Jóns- syni. Síra Pálmi sagði af sjer prestþjónustu síðastliðið sumar. Skíðanámskeið stendur yfir í ísafirði. Snjólaust er í þygð, en ágætt skíðafæri í Selfjalladal. Öldin, heitir nýtt Stúdentablað sem hefur göngu sína í dag. Út- gefendur eru nokkrir háskólastú- dentar, en ritstjórar þeir Arn- Ijótur Guðmundsson stúd. jur. og Óskar Bergsson stúdent. í formála segir svo: — Rit það, sem hjer hefur göngu sína, á ekki aðeins að ná til takmarkaðs hluta stúdenta, en til ætlast, að það nái alment til akademiskt mentaðra manna, og að í því sjáist nöfn sem flestra þéirra, án, tillits til þess, hvar þeir skipa sjer í daglegum stjórnmáladeilum. Mörg áhugamál stúdenta eru þannig vaxin, að þeir geta staðið saman um þau, þótt þeir hafi mismunandi stjórn- málaskoðanir, og mun ritið etiár megni taka þau mál til meðferífe* og þá einkum helstu hagsmuua- málin. Greinar í þessu fyrsta heHi eru meðal anuars: Löggjöf og' lögfræðingar eftir Einar Ásmunds- son, Ræða, sem sendiherra Dama?- Fontenay, flutti við vígslu Stúdentagarðsins. Þá er grein uxu háskólalóðina eftir próf. Guðut,:,. Haunesson. Um reykvíska leikam eftir Lárus Sigurbjörusson, o. xn. fl. Ritið er í hentugu broti Of. mjög aðgengilegt. Víðavangshlaup drengja verðiar háð sunnudaginn fyrstan í samri (28. apríl). Kept verður n drengjahlaupsbikarinn, liandhafei Knattspyruufjelag Reykjavílmr; Öllum fjelögum innan í. S. í. er heimiluð þátttaka. Þátttakendur gefi sig skriflega fram við stjóru Glímufjelagsins Ármann, fyrir 21» apríl n. k. Fimleikaképpni um farandbi'kar Oslo Turnforening, verður háð 1 í f iinleikasal Austurbæ jarskólans, sunnudaginn 28. apríl. Handliali bikarins nú, er Glímufjelagið Ájr- mann. Öllum fjelögum innan X. S- f. er heimiluð þátttaka. Flokkar þeir, sem ætla að taka þátt í keppninni verða að senda stunda- skrá flokksins, ásamt nöfnum keppenda, eigi síðar en 14. aprSt n. k„ td stjórnar Glímufjelagsius Ármann. Einmennings keppnin um fim- leikabikar í. S. í. verður háð i fimleikasal Au s t, u r b æ ja rsk ól aa», sunnudaginn 5. maí. HandhaS bikarins nú, er Sigurður Norðdahl úr Glímufjelaginu Ármann. Öllunsv fimleikamönnum innan í. S. í. er heimiluð þátttaka. Þátttakendw sendi stundaskrá sína ásamt nöfix- um til stjórnar Glímuf jelagsúw Ármann, fyrir 21. apríl n. k. Togararnir- f gær komu af veið- um Max Pemberton með 108 föt lifrar, Baldur með 70, Hilmir með 42 og Skallagrímur með 72 föt lifrar. Fjórir dagar eru nú aðeins þaxxg að til kosningu í útvarpsráð er lokið. Komið því sem fyrst og kjósið B-listann. Atvinnudeilurnar í Danmörk, Samningaumleitanir milli fjelaga sjómanna, útgerðarmanna og at- vinnuveitenda á sunnudagsnótt leiddu td þess að samið var frúBct- varp að nýjum samningagrundr- velli, sem fulltrúar málsaðila mæla með, og verður frumvarpið nú lagt fyrir stjórnir fjelaganna. (Sendiherrafrjett). Dómur hefir verið kveðinn upp yfir skipstjóranum á enska tog- aranum Baltha/ar frá Hull, sem Ægir tók við Öndverðarnes. Var skipstjórinn sektaður um 5000 krónur fyrir ólöglegan umbúnað veiðarfæra, en afli og veiðarfæri gert upptækt. Skipstjórinn hafði verið sektaður í ísafirði fjnrlr fimm árum fyrír landhelgisbrot.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.