Morgunblaðið - 05.05.1935, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.05.1935, Blaðsíða 2
M 0 ivGU N Bh AÐIÐ 2 Sunnudaginn 5. maí 1935. ÍTtgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Ritstjórar: J6n Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Ritstjórn og afgreiðsla; Austurstræti 8. — Sími 1600. Auglýsingastjóri: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Sími 3700. Heimaslmar: Jón Kjartansson, i\r. 3742. Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. E. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuði. Utanlands kr. 3.00 á mánutSi. í lausasölu: 10 aura eintakið. 20 aura met5 Lesbók. Þýskum flóttamanni rænt frá Hollandi. Honum var ekið naiiðag« , ninyfir landamærin. Hollenska stjórnin mót- mælir, krefst að mannin- um verði skilað. Utvarpsráðíð. Hlutverk útvarpsráðsins er, samkvæmt lögum, að vernda hlutleysi útvarpsins. Ef þiíigí- meirihlutirin hefði viljað halda því fram í alvöru, hefði þannig átt að vera búið um kosningu í útvarpsráð, að þeir sem þang- að yrðu kosnir væru óbundnir pólitískum fiokkum. En með því 'að láta stjórnmálaflokka, þingsins og landsstjórn ráða meirihluta útvarpsráðs, er út- varpsráðinu beinlínis gert erf- itt fýrir að rækja þetta skyldu- slárf sitt. Með þessum undirbúningi frá þingsins hálfu er eðlilegt, að áframhaldið verði með sama svip, þegar kemur til kasta út- varpsnotenda að velja þá þrjá! menn i útvarpsráð, sem þeir eiga að kjósa. Enda hjelt stjórri arliðið áfram á sömu braut, með því að bera fram lista stjórnarsinna, og heimta af öll- um, sem stjórninni fylgja að málum meðal útvarpsnotenda að kjósa lista þann. Með því ætluðu þeir sjer að koma að tveim mönnum af þeim lista. En þetta fór á annan veg. Þessi liðskönnun stjórnarsinna meðal útvarpsnotenda bar þann árangur, að aðeins um 25% þeirra sýndu sig fylgjandi landsstjórninni og fekk listinú því með naumindum einn. — Aftur á móti voru það nokkru fleiri, eða um 1900, sem höll- uðust að því, að 'hafa kosning- una í útvarpsráð óháða pólit- ískum flokkum, og er það ekki nema eðlilegt. Hrakfarir stjórnarliðsins í þessu máli, gefa æði glögga hugmynd um hið síhrörnandi fylgi flokka þeirra, sem fara með völdin í landinu. í þessu sambandi er rjett að benda á hvernig ráðherra Al-' þýðuflokksins velur formann útvarpsráðs. Dagblað Tímamanna gumar af því hve mörg skeyti hinn fimtugi formaður flokksins fjekk. Blaðið hefði getað bætt við skeyti því sem húsbændurnir á stjórnarheimilinu, sósíalist- ar, hafa sent formanni „hjá- leigu“ flokksins, Jónasi Jóns- syni, með því að skipa Sigfús Sigurhjaj’tarson formann út- varpsráðs, manninn, sem ný- lega hefir.lýst því áliti á Jón- asi Jónssyni, að hann væri af- dankaður foringi, er svikið hafi gersamlega hugsjónamál sín. KAUPMANNAHÖFN í GÆR EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. 4jjímskeyti frá Haag segir frá fm, að þýskur lögregluþjónn og Hollendingur, sem var í þjónustu Þjóðverja, háfi flutt úr landi í Hollandi þýskan flóttamann, sém þar hafði tekið sjer bólfestu. Er það myndhöggvari og heitir Gut- zeit. Þeir tældu hann til þess að aka með sjer í bíl og hjetu, honum atyinnu, en óku svo á f^eygif^rð inn yfir þýsku landamærin og þar vay Gutzeit tekirm .fastur, ^ Báðir t o a nnr æ n i tj g jarjíúr hafa vérið teknir höndum og báðir hafa, þeir meðgengið. Mannrán þetta skeði í febrúar, i en því hefir verið haldið leyhdu | þangað til nú, og hafa orðið um j það hvassar uhlræður í hollenska i þinginh. j Hollenska stjórnin hefir mót- | mælt athæfinu við stjóm Þýska- i lands og fcref$t þess að Gutzeit verði framseííur. Þýska frjettastofan „Deutsches i\ aeh richtenbureau“ , heldur þvl ! ,■■(? fm ö'ios,-Un rtýrt j tram. um Lampenþerg,. mannxníþ sem nýlega var tekinn á lapdo- mærum Þýskalands, og, Tjékkp- ; slovakíu, að* hann hafi verið fek- ina á þýskri grand. En eftir ná-; {kvæhiá"Yáfúisökn segja yfirvöld- in í Tjekkosloyakíu að það sje sannað að maourinn hafi ver'ð inrian við tjekknesku landamærit’. PálL I Frakkar vílja losna víð tindírróðar- starfsemí kommún- ísta * am leid og þeír gera sáttmáíann víð Rássa. KAUPMANNAHÖFN I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. Það er nú ákveðið að Laval, utanríkisráðherra Frakka leggi á stað til Moskva á fimtudaginn .tur ° keraur. Ætlar hann að kqma við í Warschau í leiðinni. Það er búist við því, að Laval mtini fara fram á það við ráð- stjórnarherrana, að. þætt verði. öll- um kommúnistiskum undirfróðri í Frakklandi, en hann hefir verið rekinn af rniklu kappi alf fram.að þ'es.su. , > Páll. Blóðtíg appreísn í Fílíppsey|ítm bæld níðtir. KAUPMANNAHÖFN í gær. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS Símskevti frá New York segi r frá því. að :jálfstæðismennirnir á FiJipseyjun;, sem uppréisni-na hófu, hafi náð. a sitt vald mörgum opinberum byggingum, tekið lands stjórann höndum og haldið honum sem fanga í margar klukkustund- ir., Hátíðagestir streyma til Bretlands. London 3. maí. FÚ.1 Hátíðagestir í þúsunda tali eru nú á leið til Englands úr Austur- og Vesturálfum, og munu stíga í land næstu daga. Tvö skip, annað frá Vestur- Indíum og hitt frá Kanada, munu koma á sunnudaginn. — Frá Bandaríkjunum eru þrjú skip á leiðinni, og koma til Englands nú um helgina. Frá Austur-Indíum kemur skip á sunnudag eða mánudag með 1100 gesti, og’ annað með 300 farþega frá Veátur-Afríku. Norðmenn óánægðir yfir flöggum ríkis- stjórnarinnar 1 maí. Oslo 4. maí. FB. Á Stórþingsfundi í gærkvöldi flutti Lykke ráðherra ræðu óg kvað sjer þykja miður, að rík- isstjórrtin hefði tekið þá ákvörð un, að flaggað skyldi á öllum opinberum byggingum 1. maí. Nygaardsvold varði þessa ráðstöfun ; stjórnarinnar og sagði verkalýðinn hvorki hæða eða misnota fána landsins með því að nota hann við hátíða- höld sín. Hann sagði, að rík- isstjórnin gæti ekki tekið aft- ur ákvörðun sína í þessu efni og kvaðst vona, að verkalýður- inn alment notaði flaggið í kröfugöngum sínum, þar sem það hefði verið dregið á stöng af ríkisstjórninni á opinber- um byggingum um gervalt land ið 1. maí s.l. Mowinckel lýsti sig svipaðrar skoðunar og for- sætisi’áðherrann um þetta mál. TTppreisnin er nú algerlega bæld . i-- * ----- niður eftir blóðugar orustur. 47 „Pram“. í dag er æfing kl. 5 menn hafa fallið. síðd., við H. M. S. Cherwell. Fje- Páll. lagar beðnir að mæt.a kl. 4%. Samníngar tim fítígleíðír míílí Breta og Banda- rikfamanna. London 3. maí. FÚ. Bretland og Bandaríkin hafa gert með sjer samninga um flugleiðir, sem á að greiða fyr- ir fei'ðum hVors um sig yfir lönd hms ríkisins. — Samningurinn gengur í gildi 5. maí. Þau bresk lönd, sem undir samninginn heyra eru Stóra- Bretland, Norður-írland, Ný- fundnaland, Lábrador og Vest- ur-Indíaeyjár, en amerísk land svæði, sem Bretar fá leyfi til að fljúga um eru: Bandaríkin öll, ameríski hlutinn af Samoa- eyju, Panamáskursávæðið, Porto Rico og Virgineyjurnar. Haf tækj aeinkasalan. ■ TTt, af sífeldum fyrirspurnum um það, livað gerist í raftækja- einkasölumálinu, hefir Morgun- blaðið snúið sjer til ,’rafvirkja og fengið þær upplýsingar, að þeir sjeu álcveðnir í því að knýja fram kröfur sínar um að Sigurði Jónas- : syni vérði vikið frá 'einkasÖlunni og’ að reglugerðin verði endurbætt í samráði við rafvirkjastjettina. Kveðast þeir munu beita öllum samtakamætti sínum til að fá þessu framgengt. Rafvirkjar segja ennfremur að yið undirbúningsstörf þeirra und- ir væntanlega baráttu í þessu máji, liafi komið fram, um alt land, svo eindreg'inn og óskiftur stuðnin.g-1 ur við kröfur þeirra um frávikn-1 ing Sigurðar Jónassonar, að eins dæmi muni vera 1 okkar pólitíská þjóðf jelagi. Hljómlistarstefnan í Wiesbaden. Jón Leifs fær besta dóma af norrænu tónskáldunum. Berlín í gær. (Einkaskeyti til Morgunblaðsins.) Á norrænu hljómlistarstefnunni í Wiesbaden 26.—30. apríl var leikið nýtt og stórt hljómsveitar- tónverk eftir Jón Leifs. Nefnist það „Konzert fíir Orgel und Orchester‘ ‘. Undanfarna daga hafa dómar um hljómstefnuna verið að koma í þýskum blöðum, og er því þar slegið föstu að þessi tónsmíð, hafi vakið langmesta athygli af öllu því, sem þar var leikið, og sje einum rómi talin frnmlegt og stórfenglegt listaVerk, enda tóku áheyrendur því með mikilli hrifn- ingu. K. Heimatrúboð leikmanna. Síðast- liðinn mánuð liafði Heimatrúboð léikmanna engar reglulegar opin- berar samkomur hjer í bænum, en í dag hefst starfið að nýju með almennri samkomu kl. 8 síðd. á Hverfisgötu 50. Allir eru hjartan- lega boðliir velkomnir á samkom- ur starfsins, eins og að undan- förnu. 1 Hafnarfirði hefir starfið ennfremur samkomu á Linnets- stíg 2 í dag, ld. 4 e. h. Forsætísráðherra dæmdur. Eftírhreytar kolía- máísins. Á meðan Kollumálið fræga var í í ran'nsókn var sakborn- ingurinn/ Hermann Jónasson, þáverandi lögreglustjóri og nú- verandi forsætisráðherra, mjög stórorður og illorður í ga^rð vitnanna Gústafs Karlssonti.r og Oddgeirs Bárðarsonar. ITann sagði meðal annars fyrir rjetti: „Jeg ætla að sanna það hjer á staðnum, að þetta eru ljúgvitni, og bið sjer- staklega rjettarvottana að taka eftir því“. Og við Gústaf Karlsson sagði hann í rjettinum, að „svona menn væri hvergi betur geymdir en í steim inum, og alls staðar ann- ars staðar en hjer væri búið að setja sííka menn inn“. Út af þessum meiðyrðum og mörgum öðrum, stefndu þeir Gústaf og Oddgeir Hermanni. Hermann krafðist þess fyrir rjettínum, að málinu yrði vísað frá, og til vara að hann yrði al- gerlega sýknaður. En hvorug krafan var tekin til greina ,og var dómur kveðinn upp í mál- inu í bæjarþingi Reykjavíkur og er dómsniðurstaðan sú, að það verði að fallast á það hjá stefnendum, að ummælin uni að þeir sje ljúgvitni, sje meið- andi fyrir þá og að þau hafi ekki verið rjettmæt. Einníg ummælin um það, stefn- endur væri hvergi betur geymd ir en 1 steininum, í því sam- bandi sem þau voru sett fram, því að í þeim fælist aðdrótturi til þeirra um að þeir hafi þor- ið vísvitandi rangt fyrir rjetti. Þvi dæmist rjett vera: Framangreind ummæli skulu vera dauð og ómerk. Stefndur, Hermann Jónasson greiði 75 króna sekt í ríkissjóð, og komi, ef hún verður ekki greidd áður en aðfararfrestur er liðinn, fimm daga einfalt fangelsi. Svo greiði stefndur stefnendum Gústafi Karlssyni og Oddgeiri Bárðarsyni 50 kr. í málskostnað. Dóminum ber að fullnægja innan 14 daga frá birtingu hans að viðlagðri aðför að iög- ■um. Nú sýnist ekki vera um nema túent að velja fyrir Hermann, annað hvort að leita til dóms- málaráðherra um náðun, eða þá að áfrýja málinu til Hæsta- rjettar og reyna að fá dómi undirrjettar hnekt. Verkfalli lokiH. Yerkfallinu við flutningaskipin „Heklu“ og „Eddu“ er nú lokið, tókst sáttasemjara að jafna deil- una. Deilurnar stóðu um kaup og kjör stýrimanna á þessum skip- um. Samningar voru undirritaðir í fyrrakvöld af stjórn Stýrimanna- fjel. íslands og éimskipafjelag- anna þriggja, sem hlut áttu að máli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.