Morgunblaðið - 17.05.1935, Qupperneq 3
If O R G U N B L A Ð I Ð
Föstudaginn 17. maí 1935.
3
val búnaðar-
málaitjórans.
Landbúnaðarráðherra
segir: Jeg samþykki
Steingrim Steinþórs-
$on og engan annan!
nSjálfstæðiM Búnaðarlfelagsins
er þá ekki in<
Fyrsta
hótunin.
Mönnum er enn í fersku
minni athugasemdin, sem stjórn
rauðliða setti við styrkinn til
Bánaðarfjelags Islands, í fjár-
lagafrumvarpinu 1935, sem lagt
▼ar fyrir haustþingið.
Þar voru sett ýms skilyrði
fyrir styrkveitingu til Búnað-
arf jelagsins, sem í raun og veru
þýddu það, að Búnaðarfjelag-
ið.var búið að vera sem sjálf-
s^æð stofnun.
Kostirnir, sem stjórn rauð-
liða setti þá þessu elsta og
eina allsherjarfjelagi bænda,
▼oru þessir:
1. Annaðhvort verði Búnaðar-
þing svift því valdi, að setja
Ö,f lög fyrir Búnaðarfjelag Is-
lands, eða
2, Jlð Búnaðarfjelag Islands
verði svift því valdi, að ráða
bÚTraðarmálastjórann.
í>essi freklega árás á Bún-
aðarfjelagið mæltist' afa'r illa
fyrir meðal bænda aftiiáhd alt.
Mófrnæli streymdu að úr öllum
áttum. Varð það til þess, að
rauðliðar þorðu ekki annað en
að kippa athugasemd stjórn-
artnhar burtu úr fjárlagafrum-
vahþinú og settu aðra í hennar
etáð, sem ekket hafði að segja.
Sjálfstæði Bún-
aðarf jelagsins
En þetta gerræði rauðu
stjórnarinnar varð til þess, að
bændur gerðu nú háværar
kröfur um sjálfstæði Búnaðar-
fjelags íslands.
Bændur höfðu lengi þráð
það, að Búnaðarþing kysi alla
stjórnendur Búnaðarfjelagsins
og að fjelagið fengi að verða
sjálfstætt.
Þessi ósk bændanna hafði
hvað eftir annað verið borin
fram á Alþingi, því lagabreyt-*
ingu þurfti til þess að koma
henni á. En altaf fór það svo,
að íuálið dagaði uppi á þing-
inu.
Þangað til nú á vetrarþing-
inu. Þá flutti Jón Pálmason á
Akri málið inn í þingið og með
þeim krafti, sem honum er lag-
ið, er hann tekur eitthvert mál
að sjer. Og nú gekk málið fram
og varð að iögum.
Stjórn kosin í Bún-
aðarfjelaginu.
Búnaðarþing sat þegar þessi
breyting var gerð. Kom það því
til kasta þess, að kjósa þrjá
5ira en þetfa!
menn í stjórn Búnaðarfjelags-
ins. Þessir voru kosnir: Tryggvi
Þórhallsson formaður og með-
stjómendur Magnús Guðmunds
son alþm. og Bjarni Ásgeirs-
son alþm.
Þessir menn skyldu síðan
velja búnaðarmálastjórann.
Var nú búnaðarmálaötjóra-
staðan auglýst til umsóknar og
sóttu þessir um stöðuna: Árni
G. Eylands ráðunautur, Pálmi
Einarsson ráðunautur, Metú-
salem Stefánsson búnaðarmála-
stjóri og Steingrímur Stein-
þórsson skólastjóri.
Búnaðarmála-
stjórastaðan.
Þar sem Búnaðarfjelag ís-
lands hafði fengði fullkomið
sjálfstæði að lögum, skyldi mað
ur ætla, að fjelagið yrði nú
sjálfrátt sinna athafna og
gerða.
En landbúnaðarráðherra
rauðu flokkanna var ekki á því,
að veita Búnaðarfjelaginu slíkt
sjálfstæði.
Stjórn Búnaðarfjelagsins helt
fund þriðjudaginn 14. þ. m.
Fyrir fundinum lá brjef frá
Hermanni Jónassyni landbún-
aðarráðherra, þar sem óskað
var eftir því, að hraðað yrði
sem mest tilnefningu búnaðar-
málastjórans.
Tók þá stjórn Búnaðarfje-
i lagsins þetta mál til umræðu
! og verður hjer skýrt frá gangi
málsins þar, eftir bókum fje-
lagsstjórnarinnar.
Tryggvi Þórhallsson lýsti yf-
ir því á þessum fundi, að hann
sæi sjer ekki fært að skifta
um mann í búnaðarmálastjóra-
stöðuna og um leið leysa Metú-
salem Stefánsson frá því starfi,
sem gegnt hefði því vel og
dyggilega um langt skeið, nema
honum yrði jafnframt trygð
sómasamleg staða.
Bjarni Ásgeirsson skýrði þá
frá því, að sjer væri kunnugt
um, að landbúnaðarráðherra
hugsaði sjer að styrkja Búnað-
arfjelagið til að halda úti bún-
aðarblaði og væri Metúsalem
ætlað að annast útgáfu blaðs-
ins.
Bjarni lýsti því ennfr. yfir, að
hann kysi Steingrím Steinþórs-
son sem búnaðarmálastjóra.
Magnús Þorláksson, vara-
maður Magnúsar Guðmunds-
sonar vildi fá staðfestingu ráð-
herra á ummælum Bj. Ásg.,
viðvíkjandi framtíðarstarfi
Metúsalems.
Var því fundi frestað.
Jeg samíiykki Stein-
grím og engan ann-
an!
Næsta dag, miðvikudaginn
15. þ. m. helt stjórn Búnaðar-
fjelagsins fund af nýju til þess
að ræða þetta mál.
Lá nú fyrir brjef frá land-
búnaðarráðherra viðvíkjandi
búnaðarblaðinu og að hann
teldi eðlilegast, að Metúsalem
annaðist ritstjórn blaðsins. Lof-
aði ráðherra því, að greiða úr
ríkissjóði halla þann, er kynni
að verða á rekstri blaðsins.
Varðskipið Ægir
„tekur niðri“ í Skerjafirði
við björgunartiliaunir á enska
togaranum Lincolnshire.
Fyrsta rannsókn á skemdunum fer fram
á ytri höfninni, en nauðsynlegt reynist
að draga Ægi í Slippinn til viðgerðar.
I niðurlagi brjefs ráðherra
segir svo:
„Ráðuneytið mun samþykkja
hr. skólastjóra Steingrím Stein-,
bórsson sem búnaðarmála-
stjóra".
Menn voru í fyrstu ekki ai-
veg á því hreina með hvað
þessi ummæli váðherra ættu að
þýða. En Bjarni á Reykjum
skar fljótt úr þeirri óvissu, því
eftir honum er bókað:
,,Að gefnu tilefn-' tók Bjarni
Ásgeirsson það fx-arn, að sjer
væri kunnugt um að ummæli
ráðherra. viðvíkjand’ samþykki
á ráðningu Steingríms Stein-
þórssonar sem búnaðarmála-
Sljóra. bæri að skilja bannig, að
ráðherrann samþykti hann
e i n a n af umsækjendunum“.
Hefir því átt að standa í
brjefi ráðheri’ans, að hann
samþykti Steingrím og engan
annan
"i ^ •
ilagnús Þorláksson kvað það
tvímælalaust á valdi stjórnar
Búnh.ð^Jfíjelagsins að veita bún-
aðajrmálastjórastöðuna, Hanp
taldi Árna G. Eylnnds hæfast-
an umsækjendanna, en gat þó
mælt með öðrum hvorum þeixra
Árna eða Pálma, ef um það
gæti orðið samkomulag við Ti-.
Þórhallsson og meiri hluti þann
ig fengist með öðrum þeirra.
Tryggvi Þórhallsson ljet nú
bóka langt mál eftir sjer, en
segir að lokum, að ,,með skír-
skotun til þeirra gagna sem
fyrir liggja um alveg ákveðna
afstöðu ríkisstjómarinnar og
f járveitingavaldsins, tel jeg
ekki fært að stofna til þess ó-
friðar og þeirra afleiðinga, sem
það hefði í fþr með sjer fyrir
búnaðarfjelagsskapinn að rísa
gegn krofum íandbúnaðarráð-
herra“, þá fjellist hann á að
veita Steingrími stöðuna.
Var það þvínæst samþykt
með 2 atkv. (Bj. Á. og Tr. Þ.)
gegn einu (M. Þorl.), að veita
Steingrími Steinþórssyni búnað-
armálastjórastöðuna.
Þetta er fyrsta stóra ákvörð-
unin, sem stjórn Búnaðarfje-
lagsins tekur eftir að fjelagið
átti að hafa fengið fult sjálf-
stæði!
Landbúhaðarráðherra, Her-
mann Jónassdn, virðir lögin
frá síðasta þingi að vettugi og
segir: Jeg samþykki Steingrím
og éngan annan!
Hvað finst bændum um
þessa framkomu landbúnaðar-
ráðherra gagnvart þessum elsta
og eina allsheriarfjelagsskap
þeirra, Búnaðarf jelagi Islands?
Hvað er nú orðið um hið
marglofaða ,,sjálfstæði“ Bún-
aðarfjelagsins?
Varðskipið Ægir.
Varðskipið Ægir tók niðri í
Skerjafirði á þriðjudagsmorg-
un, og laskaðist svo mikið að
draga verður skipið í Slippinn
til viðgerðar.
Hefir Ægir nú verið tafinn
frá landhelgisgæslu mánaðar-
tíma við björgunartilraunir á
enska togaranum Lincolnshire,
sem strandaði í Skerjafirði í
vetur. Var Ægir við tilraunir
þarna, er hann laskaðist.
Ægi tókst að losa sig af grunn
inu af eigin ramleik, og var
síðan siglt af Skerjafirði inn á
ytri höfn.
Þar fór fram fyrsta skoðun
á skemdum þeim, sem orðið
höfðu á skipinu. Var kafari lát-
inn athuga skemdirnar á meðan
Ægir lá á ytri höfninni.
Er dálítið einkennilegt, að
slík skoðun skuli hafa verið
látin fara fram þar, því vitan-
lega hefði verið hentugra að
láta slíka skoðun fara fram á
innri höfninni. Bendir þetta til
þess, að ráðamenn skipsins hafi
hugsað sjer að láta ekki meira
bera á þessu skipsstrandi en al-
veg nauðsynlegt var.
En þetta tókst miður en ætl-
að hefir verið í upphafi, því
eftir fyrstu rannsóknina á skip
inu mun það hafa komið í ljós,
að hjer gæti ekki oi’ðið um
neitt launungarmál að ræða,
Ægi myndi þurfa að draga á
þurt land áður en honum væri
ætlaðar sjóferðir eða björgun-
artilraunir.
Ekki er gott að segja hve
skemdirnar eru miklar. En af-
ráðið er að draga Ægi upp í
Slipp undir eins og það er
hægt, en svo lágsjávað hefir
verið undanfarið, að ekki hefir
þótt tiltækilegt að koma skip-
inu í. Slipp. Búist er þó við að
það takist með flóðinu í kvöld.
Skemdsrnar trúnaðarmál.
M. E. Jessen vjelskólastjóri
hefir fengið skýrslu um skemd-
ir á skipinu, en hann skýrði
blaðinu svo frá í gær, að skýrsl-
an væri trúnaðarmál, og að
hann gæti ekki gefið neitt upp
um málið nema leyfi eigenda
skipsins kæmi til.
Pálmi Loftsson gerir lítið úr
skemdunum.
Blaðið átti tal við Pálma
Loftsson í gær og spurði hann
um strand Ægis. Honum var
sýnilega umhugað um að gera
lítið úr skemdunum. Hann kvað
skipið hafa „slegið afturendan-
um við, í kviku“. Skemdir sagði
hann að væru smávægilegar á
„hælnum“ að aftan og mundi
taka 1—2 daga að gera við
þær í Slippnum.
Blaðið spurði hann þá hvort
sjópróf yrði í málinu. Sagði
hann, að það yrði aðeins, ef
vátryggingai’fjelagið, sem skip
ið er trygt hjá, æskti þess.
Ufn björgunina á enska tog-
aranum kvaðst Pálmi ekkert
geta sagt að svo stöddu. Undan-
farið hefði alt eyðilagst af
kviku það sem búið hefði verið
að undirbúa við björgunina. —
En vátryggingarfjelagið enska,
sem Lineolnshire er trygður hjá,
kostaði björgunina.
í Skerjafirði skildi Ægir eft-
ir ýmiskonar áhöld, sem hann
hefir notað við björgunarstarf-
ið. T. d. á hann þar 5 ankeri, 2
dælur o. fl. Hætta er á, að eitt-
hvað af því eyðileggist ef veður
breytist eitthvað til hins verra.
Varðskipið hefir nú verið taf-
ið frá landhelgisgæslu í einn
rnánuð. Og t)ú er beðið eftir
því, að það komist í Slippinn.
Gott væri, ef það þyrfti ekki að
tefja nefhá stutt í Slippnum, en
um það er vitanlega ekki hægt
að segja til fulls, fyr en fyllri
rannsókn hefir farið fram á
skipinu á þurru landi.