Morgunblaðið - 18.05.1935, Side 6

Morgunblaðið - 18.05.1935, Side 6
6 mokgunblaðið Laugardaginn 18. maí 1935,, 12 Appelsinur fyrir 1 krónu. LUXUS Appelsínur, 25—65 aura. XUUrIIZUÍ Nýlt nautakjöf af ungu og Tómatar og Rabarbari. Verslunin Kföt & Fiskur. Símar: 3828 og 4764. Divanar írá 35 kr MIKIÐ || ÚRVAL af nýtísku ^ Stoppuðum HBSiisnia. Hðssaoaavsrslai Hrlstláns Sisgeirssonar. Laugaveg 13. Kögur etc. Höfum mikið af kögri af ýmsum litum. Einnig gullleggingar, súur- ur og dúska. SKERMABÚÐIN, Laugaveg 15. Sími 2812. Spikað fefot af fullorðnu á 55 og 65 aura % kg, Saltkjöt, hangikjöt af Hóls- fjöllum. Svið og rjúpur — og margt fleira. Jóhannes Jóhannsson Grundarstíg 2. Sími 4131. Stofnfundur] jf Fisksðlusam- -y bandsins verður haldinn næst- komandi fimtudag. Samkvæmt fyrirmælum at- vinnumálaráðherra hefir fiski- málanefnd boðað til stofnfundar Fisksölusambandsins næstkomandi fimtudag, 23. þ. m. Á fund þenna eru boðaðir allir saltfisksframleiðendur og fjelög, sem standa að samtökum þessum og verður þar sett framtíðarskip- an á fjelagsskapinn. Þar sem svo giftusamlega hefir til tekist, að telja má fullvíst að Fisksölusambandið verði endur- reist, er það skylda allra góðra manna, að láta skoðanamun og væringar niður falla og vinna sameiginlega að lausn málsins. Hjer er svo mikið í húfi, að ný sundrung má ekki komast að. KlriÖ og frost í Englandi. Mikil snjókoma í ýmsum stöðum. London 17. maí. FÚ. I dag eru kuldar með fann- komu í Englandi. í London var sólskin og kalsa veður. Sums staðar hefir fallið mikill snjór, svo sem í Cumberland, Lancas- hire, Devon og Norður-Wales. Á ýmsum stöðum hefir þurft að nota snjóplóga til þess að greiða fyrir samgöngum, en járnbrautarlestir hafa tafist. I sumum h.ieruðum er þetta talin mesta fannkoma ársins. Veð- reiðar hafa einnig tafist vegna snjójkomunnar, og er sagt að það hafi ekki komið fyrir ára- tugum saman í Bretlandi. Þó er þess getið að veðreiðar hafi farið fram í fönn árið 1839 og 1887. Það er sagt, að ekki hafi komið í Englandi í maímánuði eins miklir kuldar og nú í 64 ár. í Kent hefir skemst mikið af ávöxtum, kartöflum og baunum, og er tjónið metið á þúsundir punda. I Essex hefir einnig orðið mikið tjón á ávöxt um og grænmeti. 1 dag er alt að 4 stiga frost á þessum slóð- um. Englandskonungur og drotn- ing ætluðu samkvæmt áætlun að fara aðra ákrúðför sína um Lundúnaborg á morgun, og þá um Suður-London. Nú er það vafasamt vegna kuldans og snjóanna, hvort úr þessu verð- ur. Sennilega fara þau í lok- uðum vagni, en munu stansa á ýmsum stöðum, þar sem borg arstjórar einstakra borgarhluta taka á móti þeim. Manndauði. Árið 1933 dóu hjer á landi 1159 eða 10,3 af hverri þúsund landsmanna. Er það lægra manndauðahlutfall heldur en nokkurt undanfarið ár.Barnadauði var aðeins 4,3% og er það minna en nokkurt ár áður. Barnadauði er nú orðinn minni hjér en í flest- um öðrum löndum. í Nýja Sjá- Iandi og Ástralíu er hann þó minni, og í Noregi og Hollandi svipaður og hjer. Verkfallið á MNormandieM. Kröfur skipverja. London 17. maí. FÚ. Verkfall skipshafnarinnar á ,,Normandie“ heldur enn þá á- fram. Siglingamálaráðherrann hafði krafist þess, að skipverj- ar færu til vinnu sinnar um borð og kvaðst þá mundu kveða upp úr með úrskurð sinn í deil- unni, en hann er sáttasemjari. Þessu neituðu skipverjar, en franska stjórnin hefir í dag fallist á afstöðu ráðherrans, og gert ráðstafanir til þess, að láta beita í málinu þeim á- kvæðum refsinga, sem að þessu lúta. Alt er með jkyrrum kjörum í Le Havre, og verkfallið hefir ekki breiðst út til annara hafn- arborga. Verkfall þetta er sprottið af gamalli deilu milli útgerðar- fjelags Normandie og skip- verja þess. Þeir eru aðeins ráðnir til einnar ferðar í einu, og afskráðir þegar ferðinni er lokið. En þeir hafa farið fram á það, — og hefir staðið í samningaþófi um það síðast- liðna 18 mánuði — að þeir fengi ýms hlunnindi, sem þeir hafa ekki áður notið hjá fje- laginu, þannig, að um 80% þeirra yrðu fastráðnir með samningi, og einnig yrði þeim greiddur ellistyrkur, veittir á- kveðnir frídagar o. fl. Fœreysk umkvörtun út af meðferð á skipi í Reykjavík. 1 ,,Dimmalætting“ stendur nýlega: í ofviðrinu í lok mars- mánaðar laskaðist kútterinn „William Martin“ (skipstjóri Jörgen Höjgaard) svo mjög að hann varð að hleypa inn til Reykjavíkur. Þegar þangað kom lagði toll- gæslan hald á skjöl skipsins og skipstjóra var tilkynt, að hann ^gæti ekki fengið þau aftur nema því aðeins að hann skrif- aði undir yfirlýsingu um það að hann skyídi ekki veiða í ís- lenskri landhelgi. Skipstjóri helt því fram, að hann hefði leitað nauðhafnar og sjer bæri ekki að greiða venjuleg hafnargjöld nje svo- kallað „útflutningsgjald“, sem er l!/2% af aflanum. Vegna inflúensunnar, sem þá geisaði í Reykjavík, vildi skip- stjóri ekki eiga það á hættu að skipverjar hans sýktust, og mætti því ekki í sjórjetti, en varð að greiða þau gjöld, sem heimtuð voru af honum og und- irskrifa yfirlýsinguna. Þegar heim kom hefir hann lagt fram kæru í amtsráðinu út af því hve illa hafi verið farið með sig á íslandi. Morgunblaðið hefir borið þetta undir skrifstofu tollstjóra og fekk þar þessar upplýsingar: Þegar danska sendinefndin var hjer í vetur, varð það að samkomulagi að færeysk skip, sem leituðu hafnar á íslandi, ín memoriam. Úr múgsins þröng, sem máttarlítið barn, og málleysingi, út á eyðihjarn; jeg heiman fór með ævintýri í arf — eitt ævintýri — fljettað lífs í gam. Og á þeim hrjóstrum, sem jeg svipinn hans, þess sigurvissa, hreina, sterka manns, er leiðir ruddi> hóf á herðar bjarg, og hlífiskildi brá — en þó til sanns. í hverri hreyfing festa, rök og ráð, xn af reynsluviti og drengskap var þar skráð — Sú þekking hans, um þyrnivaxna slóð til þjóðarheilla — er hjartablóði stráð. Hve lengi einn hann hóf upp heljarbjörg, og hratt úr leið — þau voru orðin mörg! Með viti, á arm sinn, vóg upp Grettistök. Og veginn ruddi inn að landsins hörg. I heilli borg, var enginn eins og hann. Og eldur manndóms hvergi skærar brann. Hans augu lýstu sálarþroska og þrótt, með þreki og festu — er aldrei víkja kann. Þá hylji sorg, er hjarta mannlegt á það himindjúp, er enginn kanna má, sem ekki veit, að einn er ávalt einn, og á sinn veg — er aðrir ekki sjá. Þótt oftast lítum brautryðjandans blóð, sem barnagull, með okkar smáu þjóð — Vjer sjáum altaf loga á tindum lands — og Ijós í spori á fullhuganna slóð. Er hópar rísa — flokkar steðja á stjá ™-.. þeir stefna allir björtu ljósin á og róma hátt, að oftast einn og einn — og aðeins einn — er Ijóminn stafar frá. Skuggi. skyldi greiða 1V2 % útflutnings- gjald af þeim afla, sem þau hefðu þá um borð, og ennfrem- ur skyldi skipstjórar undir- skrifa yfirlýsingu um að þeir skyldi ekki veiða innan land- helgi. Þetta kom Færeyingum nokkuð á óvart en allir hafa þó skrifað undir yfirlýsinguna, og allir greitt útflutningsgjald- ið, nema þeir sem hafa orðið að leita hafnar vegna vjelbil- unar eða skemda á skipi og 'hafa mætt fyrir sjórjetti. Klemdur í holu trje. Englendingur nokkur, Mr. William Boukett frá Dverton varð um daginn fyrir einkennilegu at- viki. Einn góðan veðurdag fór hann á gönguferð út' í skóg og gat ekki staðist freistinguna að klifra upp í hátt trje. Honum tókst greiðlega að klífa trjeð, en er hann ætlaði niður aftur varð honum fótaskortur og hann fell ofan í trjeð, sem var holt að inn- an og þar varð hann að dúsa, klemdur eins og í skrúfstykki. Hann gat hvorki hreyft legg eða lið. Við og við hrópaði hann á hjálp, en alt kom það fyrir ekki. Daginn eftir heyrðu menn þó hljóð hans og komu honum til hjálpar. .... — »— Unguerska stúlhan sem „skifti um sál“ uppvís að svikum. Með erlendum blöðum, sem komu með „lslandi“, bárust þær frjettir að saga ungversku stúlkunnar, Iris Farczady, væri svik og prettir frá upphafi til enda. Saga hennar þótti svo einkenni- leg að nefnd manna var sett á laggirnar til að athuga málið nán- ar. í nefndinni voru sendiherra Spánar í Búdapest, lögreglustjór- inn í Búdapest og nokkrir læknarci Iris Farczady kvaðst fús til að gefa nefndinni allar úp'ptýsihgar er hún gæti í tje látið. Eftir því sem Daily Exþress sícýfíF frá gerði lögreglan húsrannsókn á heimili hennar, og fann þar spænska orðabók, málfræði og kenslubækur í spænsku, Sendiherra Spánverja tilkynti að, hún talað spænsku frekar illa. Hin 18 ára gamla ungverska stúlka varð uppvís að svikum. — Læknarnir tilkyntu að hún væri sálarsjúk og væri undir einskonar dáleiðslu áhrifum frá móður sinni, sem ætlaði sjer að koma henni á framfæri hjá einhverju fjölleika- húsinu, með þessu athæfi. ísland fer norður og vestur í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.