Morgunblaðið - 21.05.1935, Page 6

Morgunblaðið - 21.05.1935, Page 6
6 MORGUNBLAÐIf) Líftryggingarfjel. Andvaka Líftryggingar! Bamatryggingar! Hjónatryggingar! bfðfilSM, allar tegundir, nýkomin. Pljótnr — þægilegur — ódýr rakstur með: Flugbfita. Kögur etc. Höfum mikið af kögri af ýmsum Ktum. Einnig gullleggingar, snúr- «r og dúska. SKERMABÚÐIN, Laugaveg 15. Sími 2812. IflBPSfiSlÐBIBBHl flytur auglýsingar yðar og tilkynningar til flestra blaðlesenda um alt land, í sveit og við sjó - utan Reykjavíkur. Blaðið kemur út vikulega 8 síður samanlímdar. Ekkert blað er iesið jafn víða í SVEITUM íands- ins og ÓGNIR NÆSTU STYRJALDAR. Framh. af 2. síðu. þjóð fengi lög sett, sem hefði þau áhrif, að á friðartímum hefði enginn hagnað af því að framleiða vopn og skotfæri. Um vígbúnaðinn í álfunni sagði Lansbury, að hann bygðist á því, að engin þjóð treysti ann ari, ,,en jeg er sannfærður um, að menn alment eru mótfallnir styrjöldum og menn vilja fús- lega gera alt, sem í þeirra valdi, stendur til þess að koma 1 veg fyrir þær. „Lansbury vill að^ stuðlað verði að því, að menn alment fari að hugsa um af- leiðingar nýrrar styrjaldar, hryðjuverk hennar og eftirköst. Þá myndi áhugi manna fyrir að berjast gegn styrjöldum auk ast. Þar ætti kirkjan að leggja sitt lið, sagði hann, en mæli ein stoða ekki“. (United Press). Tekur Stanley Bald- win við af Mac Donald ? Stanley Baldwin. London, 20. maí. FB. Stanley Baldwin gekk á kon- ungsfund í dag og ræddi við hann hálfa klukkustund. Engin opinber tilkynning hef ir verið birt um það enn hvað þeim fór á milli, en þessi heim- sókn Baldwins hjá konungi hef- ir mjög styrkt menn í þeirri trú, að endurskipulagning þjóð- stjórnarinnar sje fyrir dyrum. Telja menn nú mjög líklegt, að Stanléy Baldwin taki við forsætisráðherraembættinu af Ramsay MacDonald, en hvað eftir annað að undanförnu hef- ir gosið upp kvittur um það, að hann mundi láta af forsætisráð herrastörfum. Nú seinast alveg nýverið ræddu Lundúnablöðin ýmsar breytingar á skipun þjóðstjórn arinnar, sem þau töldu líkleg- ar, svo sem að Anthony Eden taki við af Sir John Simon ut- anríkismálaráðherra o. s. frv. (United Press). Eim&kip. Gullfoss fer frá Leith í kvöld á leið til Yestmannaeyja. Goðafoss er í Hull. Brúarfoss fer til Leith og Kaupmannahafnar í kvöld. Dettifoss er í Reykjavík. Lagarfoss er í Kaupmannahöfn. Selfoss var í Vestmannaeyjum x, Rússnesk risa- flugvfel ferst, rekst á aðra flug- vjel. 48 manns bíða bana. London, 20. maí. FÚ. Á sunnudagsnóttina vildi það til, að einsætisflugvjel rúss- nesk rakst á risaflugvjelina „Maxim Gorki“ og skemdi hana svo, að báðar steyptust til jarðar, og fórst hvert manns- barn er í þeim var. Þetta vildi til skamt frá Moskva. „Maxim Gorki“ hafði burðar þol til þess að flytja 70 manns, en að þessu sinni voru aðeins 47 manns í vjelinni. Alls fórust þannig 48 menn. í Rússlandi er slys þetta skoð að sem alþjóðar sorgaratburð- ur, og hefir stjórnin þegar lýst yfir því, að hið opinbera muni kostá útför allra þeirra sem fór ust. Blöðin, sem fregnina flytja, koma öll út með sorgarrönd. Jafnframt er það tilkynt, að stjórnin sje engan veginn af- huga smíði nýrra flugvjela, nje hafi mist trú á flugferðum, því hjer sje engum smíðagöllum um að kenna, helduf sje um hreint slys að ræða. I dag tilkynnir rússneska stjórnin, að ákveðið sje, að smíða þrjár nýjar flugvjelar af sömu stærð og gerð eins og „Maxim Gorki“. Ákveðið er að hinar nýju flugvjelar heiti Uljanov Lenin, Jósep Stalin og Maxim Gorki. Logandi flng vjclaílök nærri lent á verka- mönnum. London, 20. maí. FÚ. Flugvjel úr breska hernum hrapaði til jarðar og lenti á járnbrautarteinum aðalbrautar innar frá London til Skotlands. Flugmanninum tókst að bjarga sjer á fallhlíf, en verkamenn, sem voru að vinna í nágrenpi við staðinn þar sem slysið varð, komust nauðulega undan, þar sem brennandi flök úr flug- vjelinni þeyttust víðs vegar, er hún kom niður. Kosningar í Tjekkoslovakíu. ,. / .. • -rií u U'- • Stjórnin segir af sjer. London, 20. maí. FÚ. Almennar kosningar í Tjekkó slóvakíu fóru fram í gær. Flokk arnir sem standa að núverandi stjórn hjeldu meiri hluta í kosn ingunni. Það sem einkum vekur eftirtekt við þessar kosningar er óvæntur sigur hins svonefnda „Nýja þýska flokks“, en hann er vaxinn upp af rústum Naz- istaflokksins í Tjekkóslóvakíu, sem nú hefir verið bannaður. Flokkur þessi telur sig vilja halda hollustu við stjórnarfyr- irkomulag Tjekkóslóvakíu og sjálfstæði ríkisins, en berst að öðru leyti fyrir hugsjónum Naz- ista. Það er talið hugsanlegt, að einhverjar breytingar verði á skipun stjórnarinnar upp úr kosningunum. Prag, 20. maí. FB. Búist er við, að ríkisstjórnin biðjist lausnar í dag, vegna þeirrar reglu, sem fylgt er, þeg ar enginn einstakur flokkur fær nægilegt atkvæðamagn á þingi til þess að mynda meirihluta- stjórn. „Pticf urtii ii Kian“ fi Memel þarf að hvcrfa. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. MORGUM BLAÐSINS EINKASKEYTI TIL Gremja Þjóðverja í garð Lit- hauen hefir minkað nokkuð, eftir að frjettist um það, að Þjóðverjar þeir sem dæmdir voru til dauða í Memel, hafa verið náðaðir. Þýska blaðið Angriff skrifar þó um Memelmálin á þá leið, að enn sje þó sú „púðurtunna“ ekki úr sögunni. Segir blaðið ennfremur, að Þjóðabandalagið verði að taka Memelmálin að sjer, og binda enda á það ó- þolandi ástand er þar ríki. Páll. Mörg mál á dag- skrá á Þjóða- bandalagsfundi. London, 20. maí. FÚ. Fundur Þjóðabandalagsráðs- ins kom saman í dag. Fyrir fundinum liggja meðal annars deilumál Abyssiníumanna og ítala, ástandið í Danzig, landa- merlkjaþrætan milli írak o/g Persíu deilan milli Júgóslavíu og Ungverjalands út af morði Alexanders konungs, og stríðið milli Bolivíu og Paraguay. Ekki er búist við að neitt rnarkvert gerist á fundinum fyrstu dagana. Merkustu málin verða látin bíða þar til Laval kemur til Genf, en hann er ekki væntanlegur fyr en á fimtu- dag. í dag voru tekin fyrir fjár hags- og viðskiftamál. Fundin- um stjórnaði Litvinoff, og láta blöð í Genf svo um mælt, að honum farist það greiðlega og með festu. Knattspyrnumót III. flokks. Knattspyrnumót 3. flokks hófst síðastl. sunnudag. Fyrst keptu Valur og Víkingur. Lauk leiknum með því að Vals- menn skoruðu 9 mörk, en Vík- ingar ekkert. Þá keptu K. R. og Fram og urðu úrslit þau að K. R. vann með 3 mörkum gegn 1. í kvöld heldur mótið áfram. Hefst það kl. 7% og keppa fyrst Valur og Fram, síðan K. R. og Víkingur. Það er afar gaman að horfa á þessa ungu pilta leika og má bú- ást við fjölmenni á kappleikjun- um í kvöld. Þriðjudaginn 21. maí 1938. Landhelgisbrjótur dæmdur í 22 þús. króna sekt. Seinni hluta sunnudags síðastL tók varðbáturinn Ingimundur gamli breskan togara að veiðum í landhelgi, fram af Dyrhólaey. — Togarinn heitir James Barrie og er frá Hull. Skipstjórinn heitir Alfred E. Cooke. Varðháturinn varð að skjóta nokkrum viðvörun- arskotum áður en togarinn stöðv- aðist. Var farið með hann til Vest- mannaeyja. f gær var kveðinn upp dómur í málinu. y.pr.skip- stjóri dæmdur í 22 þús. króna sekt og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Skipstjórinn hefir áður verið dæmdur fyrir landhelgisbrot. Var það í aprílmánuði 1926. Þá var hann dæmdur í 12,500 króna sekU Skemtiföi* Feröafjefiagsins á sunnifidagiiiii. Ferðafjelagið efndi til skemti- farar á Þingvöll á sunnudaginn og tók um 150 manns þátt í þeirri för. Klukkan 8 um morguninn lögðu um 90 á stað í fimm almennings- bílum. Var þá bjart veður og glatt sólskin. Á Þingvöllum skift- ist svo fólk þetta í þrjá hópa. Fór einn með bátum út á vatn og yfir að Mjóanesi og gekk þaðan yfir Arnarfell, og fekk dásamlega útsjón. Annar flokkur fór í bíl að Svartagili og gekk sá flokkur á Súlur. Var farið að draga í loft og þoka komin á Súlutinda í þaxna mund, er flokkurinn kom þangað. Þriðji hópurinn ók upp á Hof- mannaflöt og var gengið á Lága- fell og Ármannsfell. Þar var bjart en skygni þó ekki gott. Klukkan eitt lögðu þrír almenn- ingsvagnar enn á stað úr Reykja- vík fullir af fólki, og á Þingvöll- um mætti það hinu fólkinu, sem fór um morguninn. Var nú gengið til Lögbergs og flutti Ólafur Lárusson prófessor þar erindi um sögustaðinn og fornminjar þær, sem þar eru. Á eftir var gengið austur á ranann milli Flosagjár og Nikulásargjár. Þar flutti Pálmi Hannesson rektor erindi um jarð- myndunarsögu Þingvalla. Mintist hann á það að jarðsígið mikla milli Almannagjár og Hrafnagjár,. hefði eigi skeð í einum svip, held- ur hefði landið sigið smám samaa og væri enn að síga. Myndi nú vellirnir komnir nndir vatn, ef Sogið ynni ekki að því ár og síð að svérfa bergið svo að það geti flutt fram svo mikið vatn, að yfirborð Þingvallavatns lækki jafnhliða jarðsíginu. Það er mjög vel til fallið og viðurkenningarvert að Ferðafje- lagið skuli hafa fróðleiksmena með í ferðum sínum til þess að útskýra ýmislegt fyrir fjelags- mönnum. Með því móti hafa þeir miklu meiri not og meiri ánægju af ferðalögunum. Um kvöldið var dansað í Val- höll. Var fjöldi fólks á Þingvöll- um og hefir þar ekki verið jafn- gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.