Morgunblaðið - 01.06.1935, Blaðsíða 4
4
MORGUNBT, AÐTÐ
Laugardaginn 1. júní 1935.
Lausn Sogsdeilunnar
Samningarnir mftlli verkalýðsfjelaganna og
Höjgaard & Sclialtz og mftllft bæjarilfórnar
Reykjavíkur og vörnbílastöðvarinnar „ÞróHur“.
Samkvæmt þeim hefir í stuttu máli verið ráð-
ið fram úr deiluatriðunum á þennan hátt:
Bæjarstjórn Reykjavíkur tekur að sér flutn-
ingana á efni til Sogsvirkjunarinnar, samtals 4700
tonn fyrir 75 þúsund kr., eða kr 15.96 pr. tonn.
Bæjarstjórnin semur samtímis við vörubíla-
stöðina ,,Þrótt“ um flutningana og greiðir fyrir
þá kr. 28 pr. tonn, samtals kr. 131.600. En ríkis-
stjórnin greiðir helming mismunarins milli þeirr-
ar upphæðar, sem Höjgaard & Shultz greiða fyr-
ir flutningana og vörubílastöðin fær. Sá mismun-
ur er kr. 56.600. Svo hlutdeild ríkisstjórnarinnar
nemur kr. 28.300.
Er þetta samskonar fyrirkomulag og sam-
þykt var á bæjarráðsfundi á miðvikudagskvöld,
og skýrt var frá hjer í blaðinu daginn eftir.
Auk þess kveða samningar þessir á um kjör
iðnaðarmanna við Sogsvirkjunina, þar sem þeim
eru trygð sömu kjör og viðgengst við aðra vinnu
hjer. En um það sjálfsagða atriði hafa engar
deilur verið.
Þá eru í samningunum ákvæði um gerðar-
dóm, sem skera á úr um deiluatriði viðvíkjandi
samningunum, er upp kunna að rísa.
SAMNINGUR
milli
Vorkamannafjelagsins Dags-
brún, Reykjavík, Sjómannafje-
) ~ 7s Reyk javíkur, Reykjavík,
lónsambands byggingarmanna
í Reykjavík og Fjelags járn-
iðnaðarmanna í Reykjavík og
hinsvegar
Höjgaard & Schultz A/S í
Kaupmannahöfn (í samningi
þessum nefnt verktaki)
um
kaup og vinnukjör við bygg-
ingu aflstöðvar við Ljósafoss
við Sog.
1. gr.
Verktaki ræður alla menn
til starfa hjá sjer og segir þeim
upp.
2. gr.
I. Verktaki skuldbindur sig
til þess að láta verkamenn bú-
setta í Reykjavík, sem eru með
limir Verkamannafjelagsins
Dagsbrún eða Sjómannafjelags
Reykjavíkur hafa forgangs-
rjett til allrar almennrar vinnu
við virkjun Sogsins, sem eigi
þarf iðnlærða menn til, meðan
ofannefnd fjelög geta bent á
hæfa menn til slíkar vinnu.
Bílstjórar við bílkeyrslu falla
ekki undir þenna lið þessarar
greinar.
II. Verktaki skuldbindur sig
til þess að láta þá iðnaðar-
menn, sem eru meðlimir Fje-
lags járniðnaðarmanna eða í
iðnfjelögum, sem tilheyra Iðn-
sambandi byggingarmanna í
Reykjavík, hafa forgangsrjett
til allrar vinnu, sem heyrir
undir hinar ýmsu iðngreinar
áðurnefndra fjelaga við afl-
stöðvarbygginguna við Ljósa-
foss í Sogi. Þurfi verktaki á
erlendum sjerfræðingum að
halda, skulabindur hann sig
til þess að leita um það álits
Iðnsambands byggingarmanna
og fjelags járniðnaðarmanna,
áður en hanlf tekur þá menn
í þjónustu sína samkvæmt 5.
gr. samnings við bæjarstjórn
Reykjavíkur dags. 7. og 8. des.
1934.
3. gr.
Vinnutími í almennri dag-
vinnu fyrir verkamenn, iðnað-
armenn ojr_ bílstjóra skal vera
frá kl. 7 árd. til kl. 6 síðdegis.
Eftirvinna frá kl. 6 síðdegis
til kl. 10. síðdégis. Næturvinna
frá kl. 10 síðdegis til kl. 7 ár-
degis.
Vinnulaun meðlima Verka-
mannafjelagsins Dagsbrún og
Sjómannafjelags Reykjavíkur
skulu í algengri dagvinnu vera
þau, sem ákveðin eru á hverj-
um tíma í taxta hins fyrnefnda
fjelags, en þau eru nú kr. 1,36
fyrir hverja klukkustund,
reiknað eftir 10 klukkutíma
vinnutíma á dag, þar af 9
effektivir vinnutímar, er skulu
greiddir með kr. l,51l/o fyrir
hvern effektivan tíma í al-
gengri dagvinnu.
Á tímanum frá kl. 7 árdegis
til kl. 6 síðdegis skulu verka-
menn hafa tvo hálftíma til
kaffidrykkju, annan að morgni
og hinn síðdegis, og teljast
þessir hálftímar ekki sem
vinnutímar. Enn fremur skulu
verkamenn hafa einn klukku-
tíma til miðdegisverðar á fyr-
nefndum tíma dags, og 'telst
sá klukkutími ekki með vinnu-
tímanum.
Fyrir eftirvinnu frá kl. 6 til
10 síðdegis greiðast 2 kr. fyrir
hvern effektivan vinnutíma, en
fyrir nætur- og helgidaga-
vinnu greiðast kr. 2,75 fyrir
hvern effektivan vinnutíma.
Nú ræður verktaki bíla
ásamt bílstjórum frá Vörubíla-
stöðinni ,,Þróttur“ til keyrslu
á virkjunarstaðinn, og greiðir
verktaki þeim þá kr. 5,50 um
klukkutíma, þegar um sturtu-
bíla er að ræða, en kr. 5,00
um klukkutíma öðrum bílum,
hvorttveggja fyrir effektiva
vinnutíma í almennri dagvinnu
(kl. 7 árdegis til kl. 6 síðdeg-
is), en 50 aurum hærra á
klukkustund á öðrum tímum
sólarhrings. Um kaffi og mat-
ar-hlje, fer eins og fyr segir
um almenna vinnu.
Bílstjórar í Vörubílastöðinni
„Þróttur“, búsettir í Reykja-
vík, skulu hafa forgangsrjett
til vinnu.
Kaup og vinnutími iðnaðar-
manna skal vera samkvæmt
núgildandi töxtum og launa-
samningum Fjelags járnaðar-
manna í Reykjavík og fjelaga
þeirra, er tilheyra Iðnsam-
bandi byggingarmanna í Rvík.
Fjelögin geta þó sagt upp
töxtunum og samningunum
með þriggja mánaða fyrirvara
í fyrsta lagi frá 1. janúar næst
komandi. Nú segir fjelag upp
taxta og er verktaki og fram-
angreind iðnfjelög þá leyst frá
samningnum frá þeim idegi,
þegar taxtinn gengur í gildi.
4. gr.
Allir verkamenn, bílstjórar
og iðnaðarmenn, er vinna utan
Reykjavíkur við byggingu áð-
urnefndrar aflstöðvar, skulu fá
ókeypis húsnæði, ljós, hita,
matreiðslu og ókeypis flutn-
ing nauðsynja. Enn fremur
skulu allir tjeðir verkamenn,
bílstjórar og iðnaðarmenn fá
ókeypis flutning á vinnustað,
þegar þeir eru ráðnir, og frá
vinnustað, þegar vinnu þeirra
hjá verktaka lýkur, og auk
þess meðan þeir eru í þjónustu
verktaka ókeypisfar til Reykja
víkur og austur aftur, til skift-
is, að minsta kosti einu sinni
í mánuði, þegar bílfært er.
5. gr.
Ailir verkamenn, bílstjói'ar
og iðnaðarmenn, sem að virkj,-
uninni vinna, skulu vera slysa-
trygðir við vinnuna og í ferð-
um samkvæmt lögum.
6. gr.
Verkamenn, iðnaðarmenn og
bílstjórar þeir, er vinna hjá
verktaka, eiga rjett á því að
kjósa sjer trúnaðarmann úr
hópi þeirra manna, er vinna á
virkjunarstaðnum. Eiga verka-
menn, iðnaðarmenn og bíl-
stjórar aðgang að trúnaðar-
manni til þess að bera fram
við verktaka kvartanir um að-
búnað við vinnuna eða annað,
er þeir telja áfátt af hendi
verktaka. Eigi skal trúnaðar-
maður gjalda þess hjá verk-
taka, að hann ber fram kvart-
anir af hendi þeirra, er hjá
honum vinna.
7. gr.
fNu verður ágreiningur út
af samningi þessum, eða ein-
stökum atriðum hans, eða ein-
hver aðili telur hann brotinn
á sjer og skal þá leggja allan
slíkan ágreining eða meint
brot á samningnum í gerðar-
dóin. Skal sá gerðardómur
skipast fimm mönnum þannig:
Stjórnir fjelaga þeirra, er
standa að samningi þessum
skulu í sameiningu skipa, einn
mann og verktaki annan, lög-
maðurinn í Reykjavík skipar
tvo, en sáttasemjari ríkisins í,
vinnudeilum skal vera odda-
maður í gerðardómum. Meiri
hluti ræður í gerðardómum,
gerðardómurinn ákveður með-
ferð málanna og skal gefa báð-
um aðilum nægilegt færi á að
gera grein fyrir málstað sín-
um. Gerðardómur getur dæmt
sektir og skaðabætur fyrir
samningsrof. Gerðardómurinn
ákveður hvernig greiða skuli
kostnað við hann.
8. gr.
Samningur þessi er gerður í
tveim samhljóða frumritum og
heldur verktaki öðru, en hinir
aðilar hinu.
Reykjavík, 30. maí 1935.
F. h. Verkamannaf jel. Dags-
brún
Jón Guðlaugsson.
Kristínus F. Arndal.
Sigurður Guðmundsson.
F. h. Sjómannafjel. Reykja-
víkur
Sigurjón Á. Ólafsson.
Sigurður ólafsson.
ilðnsambandj byggingar-
manna í Reykjavík
Ólafur Pálsson.
Einar Gíslason.
Sigmundur Halldórsson.
Jón Bergsteinsson.
Fjelag járniðnaðarmanna í
Reykjavík
Loftur Þorsteinsson.
Höjgaard & Schultz A/S,
Kaupmannahöfn
Schröder Petersen,
samkv. umboði.
SAMNINGUR
milli Reykjavíkurbæjar og
Vörubílastöðvarinnar ,Þróttur‘
í Reykjavík.
1. gr. Vörubílastöðin Þróttur
tekur að sjer að flytja alt efni
til Sogsvirkjunarinnar, tilheyr-
andi firmanum Höjgaard &
Schultz A/S, fyrir Reykjavík-
urbæ á sama hátt og Reykja-
víkurbær hefir tekið að sjer
að flytja það með viðfestum
samningi við firmað dagsettum
í dag.
Flutningsmagnið er 4700
tonn, þaraf er um 2400 tonna
farmurinn í e/s „Henning B“
og um 2300 tonn, aðallega ce-
ment, er deilist á 3 ár.
Flutningsgjaldið er kr. 131,-
600,00 fyrir framangreind
4700 tonn.
2. gr. Flutningarnir skulu
framkvæmdir á þeim tíma og
eftir þeim reglum, sem verk-
fræðingur firmans Höjgaard
& Schultz ákveður. Skal hann
hafa útbúna ökuáætlun fyrir
minsta kosti eins mánaðar
skeið fyrirfram til leiðbeining-
ar og skal hann hafa rjett til
að gera á henni nauðsynleg-
ar breytingar og eftir því, sem
verkið á virkjunarstaðnum
heimtar.
Flutningsmagnið skal aldrei
fara fram úr 200 tonnum á
viku á tímabilinu frá 1/5 til
15/10 ár hvert og eigi fram
úr 100 tonnum á mánuði á
tímabilinu frá 15/10 til 1/5,
þó skal vera skylt að flytja alt
að 75 tonnum á viku aukalega
á vetrartímabilum, ef um er að
ræða cementflutninga, vegna
þess að verið er að framkvæma
steinsteypu á þeim tíma.
Allir flutningarnir eru bundn
ir því skilyrði að vegir sjeu
færir fullfermdum bílum.
3. gr. Bifreiðarnar skulu
fermdar og affermdar Vöru-
bílastöðinni að kostnaðarlausu,
enda skulu bílstjórarnir taka
þátt í verkinu.
Vörur skulu teknar á
geymslustöðvum firmans Höj-
gaard & Schultz A/S í Reykja
vík, eftir nánari tilvísun og
þær skulu afhentar á virkjun-
arstaðnum eftir fyrirsögn firm-
ans.
Hverjum bíl skal fylgja
þunga- og hleðsluskírteini af
þeim gerð sem Reykjavíkur-
bær ákveður, gefið út af vigt-
armanni, sem báðir aðilar taka
gildan, en móttakandi kvittar
á skírteinið og skal kvittun
móttakanda vera sönnun þess
að flutningurinn hafi farið
fram og skal skírteinið fylgja
með við framvísun reiknings
til Reykjavíkurbæjar.
Verði ágreningur um vigt
samkvæmt farmskrá skal úr
skorið með prófvigtun.
4. gr. Greiðsla fyrir akstur-
inn skal fara fram vikulega
fyrir það, sem flutt hefir verið
samkvæmt hleðsluskírteinum.
5. gr. Bílstjóranum ber að
sjá um að þannig sje gengið
frá vörum á bílunum, að þær
skemmist ekki í flutningnum
og vörur, sem ekki þola að
vökna, skulu þaktar vatns-
heldri ábreiðu þegar þörf
krefur.
6. gr. Vörubílastöðin Þrótt-
ur hefir rjett til að fá fram-
seldan leigu- og afnotarjett
bæjarins til bíla og eftirvagna
firmans Höjgaard & Schultz
A/S með sömu kjörum og bær-
inn nýtur.
7. gr Fyrir heimflutning á
vörum til Reykjavíkur á þeim
bílum, sem vörur hafa flutt
austur í ferðinni, skal ekkert
gjald greiða fyrir flutning alt
að 50 kg. í einu, enda skal
flutningnum þá skilað til af-
greiðslumanns Höjgaard &
Schultz í Reykjavík.
Ef sami flytur meira en 50 kg.
í ferð skal greiða 2 aura á
kilo fyrir það sem fram yfir er.
8. gr. Til tryggingar því, að
flutningarnir verðiþannig fram
kvæmdir eins og um er samið,
setur Vörubílastöðin Þróttur
kr. 20,000,00 — tuttugu þús-
und króna — tryggingu, sem
Reykjavíkurbær tekur gilda.
Vörubílastöðin skal ábyrgj-
ast farminn á leiðinni og er