Morgunblaðið - 01.06.1935, Síða 7
Lftugardaginn 1. júní 1935.
Kátttingarstofa Siml
Sarftjaviknrbæjar aqaa
H JÍiMtorgi 1 (1. lofti).
KarlmannadeiMin opin frá
kL 10—12 og 1—2.
Kvennadeildin opin frá
kl. 2—5 e. h.
^M^uveitendum og atvinnuumsækj-
anitán er veitt öll aðstoð við ráðiv
ingu án endurgjalds.
n nimis:
S»«(gúr þjer þurfið að kaupa ný-
rerfct sauðakjöt, spaðsaltað
4&akjöt og 1. flokks frosið
ýÉbakjöt þá hringið í undir-
ritaða verslun.
Versltm
Sveins Jóhannssonar,
BnrpsteCastrseti 16. Sfani 2091
Nýreykl
Hangikföt
á 0,75 pr. y2 kg.
mtbúðln Herðubrelð-
Baínarstræti 18. Sími 1575.
iarðÉiililö.
allar tegundir,
nýkomin.
R9tt i matinn:
1
Lax — Nautakjöt.
Rabarbar 0,45 x/2 kg-
M. Egg, 0,10 pr. stk.
o. m. fl.
Símr: 1636 og 1834.
Kjötbúðin Born
Laugaveg 78.
Ilflr ávextlr:
Appelsínur, mjög góðar.
Sítrónur,
Tómtar.
Grænmeli:
Gulrætur,
Gulrófur,
Rauðrófur.
u 1 •
Dagbók.
Veðrið í gær: Allstór lægð vest-
ur af Bretlanclseyjum og, veldur
SA-átt, hjer við SV-ströndina. -
Annars er hæg N- eða A-átt á
Norðurlandi og víða þoka. Hiti
er víðást 10—12 st. hjer á landi.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg-
viðri. Skýjað en úrkomnlaust að
mestu.
Messur á morgun:
í dómkirkjunni kl. 11, síra
Bjarni Jónsson; kl. 5 síra Friðrik
Hallgrímsson.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Árni
Sigurðsson.
I Hafnarfjarðarkirkju kl. 2, síra
Garðar Þorsteinsson.
1 Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Altarisganga annað kvöld kl. 8%,
síra Jón Auðuns.
I dag er búðum lokað kl. 4 síðd.
og verður svo á laugardögum til
ágústloka. Br þess að vænta að
fólk gjöri innkaup sín og pantanir
svo tímanlega, sem hægt er.
Rakarastofum bæjarins verður
lokað kl. 6 á laugardögum, sum-
armánnðina, júní, júlí og ágúst.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband, ungfni Mar-
grjet Lýðsdóttir, Selbúðum 1 og
Guðni Jónsson, skósmiður.
Hjónaefni. Síðastliðinn miðviku-
dag opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Magnea Ingvarsdóttir og Sig-
urður Jónsson, Björnskoti.
Hjónaband. Gefin verða saman
í hjónaband í dag, ungfrú Unnur
Björnsdóttir og Friðþjófur Þor-
steinsson, starfsmaður í Sanitas.
Heimili þeirra er á Bræðraborgar-
stíg 25.
Kaldhreinsaða nýmjólkin er ó-
komin enn, segja húsmæður bæj-
iirins og spyrja hverju valdi. —
Morgunblaðið spurðist fyrir um
það hjá Samsölunni í gær og fekk
það svar, að 'st.jórn Samsölunnar
hafi verið að spyrjast fyrir um
það hjá búunum, með hvaða kjör-
um þau vildu láta mjólkina en svar
var ekki komið frá öllum í gær.
Br búist við svari í dag eða á
morgun, og úr því ætti hin lang
þráða nýmjólk að geta komið á
markaðinn.
Dr. med. Gunnlaugur Ciaessen
var meðal farþega með Dronning
Alexandrine í fyrrinótt.
Hafnarfjarðartogarinn Júní var
dreginn í Slippinn í gærmorgun
til viðgerðar.
Tilkynning frá ráðuneyti for-
stætisráðhérra: Samskotafje vegna
landskjálftanna 1934: Úr Suður-
eyrarúreppi í ísafjarðarsýslu kr.
228,50 og úr Sljettuhreppi í ísa-
fjarðarsýslu kr. 279.00. (FB.).
Kjartan Ásmundsson gullsmið-
ur er nýkomin heim frá Þýska-
landi, en þar var hann við nám í
smíði á emallieringu og ýmsum
smámunum úr gulli og silfri. -
Kjartan tekur nú að sjer að gera
emailleruð fjelagsmerki, en þau
héfir ekki verið hægt að fá smíð-
uð hjer á landi áður. Er gott tU
þess að vita að þessi iðn er nú
orðin innlend og að einstaklingar
og fjelög þurfa ekki að sækja
merki sín til útlanda lengur.
Reykjavík — Akureyri. Ný hif-
reið, A 159, eign B. S. A., 18
inannn, kom til Akureyrar frá
Reykjavík á miðvikudagskvöld.
Bifreiðarstjóri er Gísli Olafsson.
Bifreið þessi er sú fyrsta sem far-
ið hefir alla leið frá Reykjavík tií
Akurevrar á þessu sumri. Bifreið-
stjórinn taldi Yatnsskarð orðið
sremilegt yfirferðar, en það hefir
verið lakasti kafli þessarar leið-
ar. (FÚ.).
MORGUNB L Af)!I B
7
»
Skallagrímur kom af véiðum í
gær morgun með 123 föt lifrar.
Sjúklingar á Vífilsstöðum hafa
beðið blaðið að færa þeim Gunnari
Pálssyni söngvara og C. Billich
þakkir fyrir komuna og skemtun-
ina síðastl. mánudag.
íþróttafjelag ikvenna. Aðgöngu-
miðar að skemtuninni í Oddfellow
húsinu í kvöld. verða afhentir í
Hljóðfæraverslun Katrínar Viðar
frá kl. 4 e. h. í dag og í Oddfell-
owhúsinu kl. 7—8 e. h.
Vatnsskortur í Eyjum. Blaðinu
var skýrt svo frá í símtali við
Vestmannaeyjar í gær að illa horfð
ist nú til með vatn ef þurkar
hjeldu áfram. Væru brunnar nú
víða uppþornaðir og fyrirsjáan-
legur vatnsskortur ef þurkar hjeld
ust. Ovenjulítill fiskur er nú /ið
Eyjar. Þ6 veiðist dálítið í drag-
nót.
Magnús Pjetursson hjeraðslækn-
ir á 25 ára embættisafmæli í dag.
Basarinn í Grænuborg á upp-
stigningardag fór prýðisvel fr.am.
Alls safnaðist um kr. 633,37 né'tto.
011 skemtiatriðin fóru ffam með
mestu prýði. Fjelagið biður að
færa öllum þakkir, sem stuðluðu
að þessari fjársöfnun.
Dansleik heldur glímufjelagið
Ármann í Iðnó annað kvöld
(suiinúdag), kl. 10 síðd. Á dans-
leiknum verða afhent verðlaunin
frá síðustu einmenningskeppni.
Allir íþróttamenn hafa aðgang að
dansleiknum.
Ferðafjelag’ fslands. Tvær ferð-
ir verða farnar í fyrramálið, kl.
8, önnur: á Skjaldbreið, ekið að
Gatfelli og gengið þaðan á fjallið.
Hin ferðin verður farin á Esju.
Ekið að Bugðu í Kjós, gengið
þaðan austanvert við Flekkndal
og vestur á Hátind og þaðan nið-
ur á Kialarnes lijá Móðilsá. Ekið
þáðán ifeíútleiðis kl. 6. Farjniðar
seldir í bókaverslun Sigfúsar
Eýmundssonar til kl. 7 í kvöld.
Eimskip. Gullfoss var á Akur-
éyri í gær. Goðafoss var væntan-
legur til Vestmannaeyja kl. 4 í
morgun og hingað seinnipartinn í
dag. Dettifoss er á leið til Hull
frá Vestmannaeyjum. Brúarfoss
er í Kaupmannahöfn. Lagarfoss
fór frá Leith í gærkvöldi. Sel-
foss er í Antwerpen.
Ferðaskrifstofa íslands tekur til
starfa í dag. Skrifstofan verður í
Austurstræti 20 í sumar. Ingólfur
Guðmundsson frá Borgarnesi veit-
ir lienni forstöðu, eins og undan-
farin tvö ár. Sú breyting verður á
starfsháttum skrifstofunnar í sum
ar að hún hefir opnar söluhúðir
fyrir ýmsa innlenda muni til ferða
manna, í viðbót við hina venjulegu
upplýsingarstarfsemi.
f dag verður til moldar horin
frú Guðlaug Leví Sveinsdóttir.
-Jarðarförin fer fram frá dómkirkj
unni, kl. iy2.
65 ára afmæli á á morgun (2.
júní), Guðmundur Ólafsson, stöðv
arstjóri, Ásgarði í Grímsnesi.
Útvarpið:
Laugardagur 1. júní.
10,00 Veðurfregnir.
12,00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Tónleikar: Margrödduð ó-
perulög (plötur).
20,00 Klukkusláttur.
Frjettir.
20,30 Leikrit: „Tröll“, iitvarps-
leikrit eftir Einar H. Kvaran
(Ragnar E. Kvaran o. fl.).
21.10 Tónleikar: a) Orgelleikur úr
Fríldrkjunni (Páll ísólfsson) ;
b) Sígild skemtilög (plötur).
Danslög til kl. 24.
Langavegar 82.
Lítið inn í dag. Mikið af nýjum vörum. Búðin annáluð.
Fljót afgreiðsla. Alt sent í snatri. Talið við deildarstjór-
ann, Bjarna Ófeigsson.
WLalimdL
“ Til Borgarfjarðar, Búðardals
'ÆR* “ SI ö rjh o[l t»
eru fastar bílferðir aila mánudaga og fimtudaga.
Frá Stórholti, Búðardal og Borgarfirði,
alla þriðjudaga og föstudaga-
Bifreiðastöðin Hekla
Sími 1515. v Sími 1515.
Reykjavík— Akureyri.
Til Akureyrar næstkomandi Mánudag, Miðvikudag
og Föstudag. — Gætnir bifreiðastjórar á bestu bifreiðum.
Þingrellir
í eftirmiðdag kl. 5 og 7 síðd.
(Dansleikur verður í Valhöll).
Bifreiðastðð Sfeindórs.
Sími 1580.
iia JL