Morgunblaðið - 22.06.1935, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardaginn 22. júní 1935.
IIIII m—1W1 III niinxak,-
Skýrsl a
11111
þriðja Landsþing hvenfjelaga-
sambands íslands.
Árið 1935 þ. 11. júní var menn alla. Þá höfðu forstöðu-
Landsþing kvenna hið þriðja í konur kvenfjelaganna haft for-
röðinni sett og haldið í Kaup-
þingssalnum í Reykjavík.
Á þinginu voru mættir auk
stjórnar Kvenf jelagasambands
ins, er skipuð er af þeim frú
Ragnhildi Pjetursdóttur, for-
manni, og meðstjórnendum frú
Guðrúnu Pjetursdóttur og frú
J. Briem, eftirtaldir
Kvenfjelagasam-
Guðrúnu
fulltrúar
banda:
Frá Bandalagi kvenna í Rvík:
frú Kristín V. Jacobsen,
— Anna Ásmundsdóttir,
— Aðalbjörg Sigurðardóttir,
— Guðrún Geirsdóttir,
Frá Sambandi Gullbringu- og
K jósarsýslu:
frú Ingibjörg Pjetursdóttir,
Reykjum,
— Guðríður Andrjesdóttir,
Landakoti,
Frá Sambandi borgfirskra
kvenna:
frú Oddný Vigfúsdóttir, Borg-
arnesi.
Frá Sambandi vestfirskra
kvenna:
frú Estiva Björnsdóttir, Þing-
eyri.
Bergþóra Kristjánsdóttir,
Dýrafirði.
Frá Sambandi norðlenskra
kvenna:
frk. Jóninna Sigurðardóttir, Ak-
ureyri,
frú (Jónína Sigurðardóttir,
Lækjamóti.
Frá Sambandi austfirskra
kvenna:
frú Margrjet Friðriksdóttir,
Seyðisfirði.
Frá Sambandi sunnlenskra
kvenna:
frú Herdís Jakobsdóttir, Eyr-
arbakka.
— Oddný Guðmundsdóttir,
Stórólfshvoli.
Frá Kvenf jelaginu Líkn í Vest-
mannaey jum:
frú Ingibjörg Theódórsdóttir.
Mál þau er lágu fyrir fund-
inum voru síðan tekin fyrir
þannig:
Skýrsla forseta:
Forseti las upp skýrslu um
störf og fjárhag Kvenfjelaga-
sambandsins síðastliðin þrjú ár.
Forseti lagði fram reikninga
Sambandsins og voru þeir sam-
þyktir með öllum atkvæðum.
Þá gáfu fulltrúar skýrslu
hyer frá sínu sambandi um
störf þeirra og kom fram í
þeim að vel og ötullega hefir
verið unnið að áhugamálum
kvenna á þessum síðastl. þrem
árum, og má þar til nefna að
innan flestra sambandanna
var kend garðyrkja og mat-
reiðsla á garðamat af þar til
hæfum konum, og var það álit
allra, að sú starfsemi hefði af-
göngu í- því að halda náms
skeið í ýmiskonar handavinnu,
svo sem vefnaði, vjelprjóni og
fatasaum, einnig matreiðslu-
kenslu og heilbrigðisfræðslu
(Rauðakrossnámskeiðum).
Sum kvenfjelögin hafa unn
ið ótrúlega mikið að líknarstarf
semi o. fl. o. fl. mætti tilnefna.
Hjúkrunarmál.
Frú Sigríður Eiríksdóttir hóf
umræður um það efni, rakti
hún sögu þess frá byrjun. -
Taldi hún stærsta sporið er
hefði verið stigið í þá átt,
stofnun hjúkrunarkvennaskóla
íslands, er starfaði í sambandi
við Landsspítalann. Náms-
stúlkur þaðan yrðu svo flestar
hjúkunarkonur á spítölum. -
Fyrirspurn kom til hennar frá
fulltrúum, hvert ekki væri
hægt að útvega stúlkur með
styttra námi, sem hjúkrunar-
og hjálparstúlkur í veikinda-
og vandræðatilfellum, á heim
ilum í sveitum. Taldi hún erfitt
að ráða fram úr því; þar sem
þetta hefði verið reynt, þá
hefði stúlkum þótt kaupið of
lágt og of mikið á þær lagt af
vinnu. Þá var borin upp svo-
hljóðandi tillaga:
Kvenfjelagasamband íslands
skorar á sambandsdeildirnar,
að beita sjer fyrir því, að kven-
fjelögin hafi hjálparstúlkur,
eða hjúkrunarkonur til hjálpar
á heimilunum.
— Eftirfarandi greinargerð
fylgdi tillögunni:
Fundurinn lítur svo á að
aukin hjálp og eftirlit með sjúk
dómum á heimilunum yrði til
þess, að draga úr hinum gífur-
lega berklakostnaði, og skorar
því á hlutaðeigandi sýslunefnd-
ir og bæjarfjelög, að styrkja.
kvenfjelögin í þessu efni með
fjárframlögum, svo að unt
verði að fá hæfar stúlkur til
starfans.
Húsmæðrafræðsla.
Frú Jónína Sigurðardóttir,
Lækjamóti, byrjaði umræður,
áleit hún að konur ættu nú að
keppa að því, að fá kennara-
skóla fyrir kenslukonur í hús-
mæðrastörfum og mælti því
fastlega með því, að hefjast
handa með það mál nú þegar
og lagði hún til, að kosin yrði
þriggja kvenna nefnd í málið
og skyldi ein vera úr Reykja-
vík, en hinar annarstaðar af
landinu. Var það samþykt og
hlutu kosningu frú Jónína Sig-
urðardóttir, Lækjamóti, frk.
Jóninna Sigurðardóttir, Akur-
eyri og frú Ragnhildur Pjet-
ursdóttir, Háteigi. — Síðar á
fundinum lagði svo frú Jónína
Sigurðardóttir, Lækjamóti, f.
h. nefndarinnar, fram svohljóð
andi tillögu:
„Þriðja Landsþing kvenna
ar mikla þýðingu fyrir lands-leggur til að þrjár konur sjeu
kosnar í nefnd til undirbún-
ings kenslukvennaskóla í mat-
reiðslu, sem sje í sambandi við
húsmæðraskóla, sem væntan-
lega kemur á stofn sunnan
lands. Nefndin skal skipuð
þannig, að ein konan sje úr
Rvík og tvær annarstaðar af
landinu. Skal nefndin afla sjer
sem víðtækastar þekkingar á
þessum málum og leggja á-
kveðnar tillögur í þessu efni
fyrir Alþingi, í síðasta lagi fyr-
ir 1937.
Tillögur nefndarinnar skulu
einnig sendar kvennasambönd-
um út um landið og leitað
styrks hjá þeim.“
Tillögunni fylgdi svohljóð-
andi greinargerð:
„Vegna fjölgunar húsmæðra
skólanna í landinu, verður
þörfin sífelt meiri fyrir vel-
mentaðar kenslukonur. Einnig
fjölgar nú stöðugt opinberum
stofnunum t. d. sjúkrahúsum
og skólum, sem þurfa á góðum
matreiðslukonum að halda og
sem þurfa nauðsynlega að hafa
þekking á efnasamsetningu
matvæla og verðlagi. Mundi
þá oft betur vera farið með
fje, ef sú þekking væri til stað-
ar. Það er því okkar álit, að
þessar konur og kenslukonur
við húsmæðraskólana þurfi
sjerstaka vísindalega fræðslu,
miðaða við íslenskt náttúrufar,
og afkoma þjóðarinnar yrði
mun betri ef þessu yrði hrund-
ið í lag“.
Tillagan samþykt með öll-
um atkvæðum.
Þessar konur hlutu kosningu:
Frk. Jóninna Sigurðardóttir,
Akureyri, formaður.
Frú Margrjet Friðriksdóttir,
Seyðisfirði.
Frú Ragnheiður Pjetursdóttir,
Háteig,
og til vara:
Frú Jónína Sigurðardóttir,
Lækjamóti,
Frú Oddný Guðmundsdóttir,
Stórólfshvoli.
Fræðslulögin:
Hóf frú Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir umræður með erindi út
af hinu nýja frumvarpi til
fræðslulaga, er lagt var fyrir
síðasta Alþingi. Talaði ræðu-
kona um hinar róttæku breyt-
ingar er felast í þessu frum-
varpi, t. d. að skólaskylda sje
færð niður til 7 ára aldurs,
brýndi hún það mjög fyrir
sveitakonum, að gæta þess vel,
að heimavistarskólarnir yrði
fyrirmyndarheimili, þar sem
ekki síður væri hugsað um lík-
amlega velferð barnanna en
nám þeirra; margt fleira tók
hún fram bæði um námsgreina-
fjölda og kensluaðferðir. —
Margir fulltrúar tóku til máls
um fræðslulögin. Nefnd var
skipuð í málinu til að leggja
fram tillögur. í nefndina voru
kosr.ar þessar konur:
Frú Margrjet Friðriksdóttir.
— Aðalbjörg Sigurðardóttir.
■ Guðríður Andrjesdóttir.
Tiliögur nefndarinnar eru
svohljóðandi:
1. „Þriðja Landsþing kvenna
telur nauðsynlegt, að gerðar
sjeu auknar kröfur um undir-
búningsmentun kennara, með-
al annars að námið verði fært
Jakobinci Johnson
skdldkona.
Nú vorgyðjan brosir við blikandi ós
og býður þig velkomna heim,
hún breiðir á veg þinn sín vinhlýju Ijós
sem vaka um náttheiðan geim,
og landið þjer heilsar með dreymandi dögum,
sem dýrast þú unnir í kvæðum og sögum.
Nú finnur þú ilminn af fjólu og reyr
um fagurlit gróandi tún,
þú lifir við fossinn þann draum sem ei deyr
í dýrð yfir háfjalla brún,
og ljóðin hans nemur við bergfallið breiða
í brosandi vorfaðmi íslenskra heiða.
Nú smalann þú lítur með lagðþjetta hjörð,
hann ljóðar með svönum á ferð,
og bóndann, sem ávaxtar íslenska jörð
og uppsker sinn fábreytta verð;
sú jörð geymir ættstofnsins auðugu rætur,
um eilífa daga, um lýsandi nætur.
Og þú sjer hvar djúpleiðir dregur frá strönd,
hið dáðríka sjómannalið,
er stórfleyi siglir með sæmd út í lönd,
og sækir á fiskauðug mið,
þar gullið er ríkast, sem byggð vorri breytir,
og bætir vor óðul um strandir og sveitir.
í fjarlægri álfu við heimslistarhljóm
af hjarta og vorelskri -sál,
þú undir í draumi við ættjarðarblóm
og elskaðir sögunnar mál,
því besta og fegursta lýstir í ljóðum
og landið vort kyntir með framandi þjóðum.
Kom blessuð og sæl, til að sjá þetta land,
þess sveitir og göfugu þjóð,
og findu hjer trygðanna tállausa band
sem titrar við skyldleikans blóð,
0£ sjáðu hjer alt eins og sál þína dreymdi,
og söngljúfur óður þíns barnshjarta geymdi.
Og öllum sem víðfrægja land vort og lýð
á lýsandi menningarbraut,
sje heimkoman fögur, og farsæl hver tíð,
sem framtíðin ber þeim í skaut,
og blessaðu alfaðir ástríkum höndum
öll íslensku börnin í framandi löndum.
Kjartan Ólafsson.
meira til hagrænna sviða og
námstíminn lengdur. Lands-
þingið lítur svo á að stefna beri
í náinni framtíð að því, að kenn
araefni ljúki námi við sálfræð-
is- og uppeldisfræðideild, sem
komið yrði á fót við Háskóla
íslands.
Jafnframt telur Landsþingið
sjálfsagt að launakjör barna-
kennara verði þá bætt að mik.-
um mun, frá því sem nú er“.
Samþ. með öllum atkv.
2. „Landsþingið álítur að í
barna- og unglingaskólum heri
að leggja meiri áherslu en gert
er víðast á háttprýði og prúð-
mannlegt dagfar. Telur Lands
þingið aukinn þroska á þeim
sviðum uppeldis sjálfsagðan
lið í mentun barna og ung-
linga og álítur því, að í kenn-
aravali til hlutaðeigandi skóla
verði að taka tillit til þessara
eiginda kennaraefna eigi síður
en annara, sem talin eru nauð-
synleg hverjum góðum kenn-
ara“.
Samþ. með öllum atkv.
3. „Þriðja Landsþing kvenna
lýsir yfir því í sambandi við
hið nýja fræðslulagafrumvarp,
sem nú liggur fyrir Alþingi, að
það telur mjög varhugavert að
skólaskyldualdur barna í sveit-
ur verði færður niður í 7 ár,
þar sem ekki er hægt að'hafa,
heimagönguskóla. Áður en horf