Morgunblaðið - 19.07.1935, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.07.1935, Blaðsíða 6
6 Mórgunblaðið Föstudagmn 19. júlí 1935. nw r - jV'h —" Afhending Dómkirkjunnar i Reykjavík til safnaðarins, Fjölgun sókna og presta í Reykjavík. * ; . |fk ■ Á hinum seinasta almenna kirkju- og safnaðarfundi í Reykjavík, kom það greinilega fram að íslenska þjóðin er yfirleitt eindregin á móti samsteypu-prestakalla, þeirri, seí#nú er fyrirhuguð. Þjóðin er að hallast að því, að viðurkenna prestana sem andlega leiðtoga sína, eins og þeir hafa verið um aldir, og kirkjuna og kristnina sem þungamiðju og göfgi þjóðlífs vors. Þessir menn vilja fjölga prestum, en ekki fækka þeim. Þeir vita hve stórkostlega þýðingu þeir hafa haft fyrir bókmentalíf þjóðarinnar á undanförnum öldum, vern^un íslenskra fornminja og verðmæta í tungu og sögu. Prestarnij* hafa verið þjóðarinnar bestu menn þeg- ar að garði bar útlendinga, sem vildu kynnast landi og þjóð. Þeir hafa verið boðberar nýrra tíma hver í sínu kalli. Þeir hafa verið leiðtogar allrar alþýðu í andlegum og veraldlegum málum, þeir hafa veri§ sjálfkjörnir fræð- arár æskuiýðsins um allar sveitir Islands — vegna þess að þeim var falið það híutverk, með því að setja þá til °£ enn í dag er prestastjettin best til þess fallin úiíra stietta, að vera leiðtogi þjóðar sinnar. Uftt ýferi vansæmd hinni íslensku þjóð, að gera tvent í senn: kosta offjár til mentunar presta og viðhalds kirkj- unnar — og rífa svo niður með hægri hendinni, það sem hin vingfrj gerir. út >Af þessu máli hefir verið samið: Éumvarp til laga nding Dómkirkjunnaf tií nf í Reykjavík og fjÖíg- un sókna og presta í Reykjavík ^' •dg öðrum kaupstöðum. 1. gr. Dómkirkjan í Reykjavík skal.^fhent söfnuðinum til eignar og afnota með þessum skilyrðum: Ríkið greiði söfnuðinum 300 — þrjúrflmnTttlð — þúsund krónur tíl nýrra kirkjubygginga, er greið ist á 3.p ,áf=]jm með 10 þúsund krón- um á .árii Ríkið skal hafa eftir sem áður aðgang að Dómkirkj- unni, þegar þörf krefur, gegn gjaldi er síðar verður um samið. 2. gr. Eftir afhendingu Dóm- kirkjunnar í hendur safnaðarins, skal skifta söfnuðinum í 6 sóknir. Kirkjuráð ákveður takmörk sókn- anna eftir tiilögum sóknarnefndar núverandi safnaðar. 3. gr. Kirkjubyggingar í hinum nýju> sóftnum anftast og kostar söfnuður hverrar sóknar, þó þann ig, að hver sókn fær auk kirkju- gjalds frá ársbyrjun þess árs, er sóknarskifting er löglega ákveðin, hlutfallslegan part af fje því, er ríkið leggur árl^a til kirkju- bygginga samkvænit 1. gr. Akveð- ur Kirkjuráð hvernig skifta skuli. 4. gr. Sóknir þær, er nefndar eni í 2. gr., skulu vera 4 presta- köll, og skulu vera í þeim svo margir prestar, að því svari, að 1 prestur sje fyrir hverjar 5000 sóknarmanna. En ef fólkinu fjölg- ar, skal prestum fjölga í hlut- falii við fólksfjölda, þannig, að á hvem prest komi sem næst fimm þúsund manns. 5. gr. Reykjavíkurbær skal leggja óbeypis lóð undir fyrir- hugaðar kirkjur í hinum nýju sóknum, einnig undir prestsseturs- hús. Skulu staðirnir valdir með samþykki Kirkjuráðs.. 6. gr. Héim;;iT möntmfti eftir 'skiftingu yReykj&Jfikurpresta- kalls í 6 sóknir að taka prests- þjónustu hjá öðrum presti en sóknarpresti sínum iunan tak- marka hins núverandi prestakalls, án þess að fara þnrfi eftir lögum nr. 9, 2. maí 1882, um leysing sóknarbands. 7. gr. Ákvæði 4. gr. í lögum þessum um, að á einn sóknarprest skuli ekki koma fleiri en 5000 manns, skal einnig gilda um aðra kaupstaði laftdsins, og skal f jölga þar prestum eftir þessum regl- um. 8. gr, Ákvæði 2.—6. gr. koma til framkvæmda við næstu presta- skifti í Reykjavíkurprestakalli, eða þegar núvérandi prestar Dóm- kirkjusafnaðarins * samþykkja breytingUna. 9. gr. Lög þessi öðlast gildi .... Athugasemdir við frumvarp til laga um afhend- ing Dómkirkjunnar til safnaðar- ins í Reykjavík og fjölguft sókna og presta í Reykjavík og öðrum kaupstöðum. Við 1. gr. Dómkirkjan, einasta kirkja þjóðkirkjusafnaðar Reykja víkur, ér „landssjóðskirkja“, þ. e. eign ríkisins. Fylgja þar, sem annarstaðar, þar sem líkt stendur á, þau rjettindi, að kirkjueiganda bera allar sóknartekjur kirkjunn- ar, en jáífhframt hvílir sú skylda á kirkjuejg^ftda, að hann sjái um kirkju, eða eins og hjer er ástatt, kirkjur,'J er* fullnægi söfnuðinum til guðsþjónustuhalds. — TJndan þessari skyldu vill 1. gr. frv. þessa leysa ríkið fyrir fult og alt með nefndu 30 ára árgjaldi. Við 2. gr. Eitt af mörgu, sem gjörir sóknarskiftíngu í Reykjavík mjög aðkallandi, er hinn öri vöxt- ur bæjarins, svo að búast má við, ef ekkert er að gjört, að þau kirkjustæði, sem hentugust mega teljast, verði tekin undir aðrar byggingar. Við 3. gr. Með sóknarskiftingu er greitt fyrir því, að áhugamenn geti beitt sjer við fjársöfnun til kirkjubyggingar, hver á sínu af- markaða svæði. Enda er þá for- ustan að sjálfsögðu komín í hend- ur sóknarnefnda hverrar sóknar. Við 4. gr. Ef Dómkirkjusókn næði yfir Víkina, Tjarnarbrekku, Þingholt, Arnarhól, Laufás, Ás- garð og Sólvelli, væru þar nú bú- settir 10 þús. þjóðkirkjumenn, og væri því hæfilegt pr-estakall með 2 prestum, samkv. frv. þessu. Ef Hallgrímskirkja yrði bygð á Skólavörðuhæð, værí Skugga hverfi, Austurhlíð, Tungan, Suður- hlið, hæfilegt prestakall fyrír 2 presta með um 8 þús. þjóðkirkju- menn nú búsetta á þessu svæði. Þá er í Vesturbænum þörf á nýrri sókn er yrði prestakall út af fyrit’ sig og héita mætti Nes- prestálöill. Þar erU búsettir um 4 þús. jöðkirkjuróenn á svæðinu: Ægissíða, Bræðraborg, Selland, Eiði, Kaplaskjól, Seltjarnarnes.' Er það hæfílegur fólksfjöldi fyrir 1 þi*est til að byrja með. Þá eru þrjú svæði e£tif, ér hVert ættu að verða sókn út af fyrir sig: (Jpímstaðaholt, Skildinganes, Brýð- ræðishoit, MelaMÍi'j með nálægt 150() manú». Oskjuhlíð, Fossvogur, Sogíft, Kringlumýri, Ártún, Breið- nolt, með nálægt 600 manns. Enn- fremur: Laugarnar, Sundin og Rauðarárholt, með nálægt 1400 manfts. Gætu allar þessar sóknir verið eitt prestakftii, séiii þó íýfst Uftl siriri nyti þjónustu prest.% Hallgrímssóknar og Nessóknar. Þess skal getið, að nöfn á bæjar- hverfum eru frá Hagstöfú íslands eins og manntal hvers hverfis ér^ þaðan fengið. Við 5.. gr.. í samræml yíð bað, sem hjer á undan er sagt, virðist eðlilegt, að kirkjur ýrðu í fram tíðinni reistar á þessum stöðum: Stór kirkja á Skólavþrðuhæð, minni kirkja í Vesturbænum fyrir Nessókn, en þrjár litlar kirkjftr: Á Grímstaðaliolti, á holtinu milli Fossvogs og Sogamýrar, og á hæð- inni upp af Sundlaugavegi. Við 6. gr. Ákvæði þessarar grein ar eru sett í samræmi við erlenda reynslu. Við 7. gr. Tilgangur þessarar greinar er sá, að fyrirbyggja það í framtíðinni, að aðrir kaupstaða- söfnuðir komist í sömu vandræði og Reykjavíkúrsöfnuður á nú við að búa. (Kirkjuritið). Sigr, Zo€ga & Co Framköllun, kopiering og stækkanir. Fleiri pappírsteg- Undir.Filmur, rammar og albúm til sölu. Ámatördeildin. Nautakjöt af ungu í buff og steik. Nýreyktur Lax. Hllttfiim Hnlubralli Hafnarstræti 18. Sími 1575. Akureyri — Reykjavík. AUa Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Einnig næstkomandi Sunnudag. Frá Akureyri: Alla Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Einnig næstkomandi Þriðjudag. Afgreiðsla á Akureyri er á Bifreiðastöð Oddeyrar. Bifreiðastöif Steindórs. Sími 1580. Væntanlegl Kartöflur, — Laukur — Melónur. — Pernr. Eggert Kristjónsson & Cc Sfmi 1400. Steinsteypuþjettiefnið TBICOSAL er þegar Viðiirkrnt af þektustu og bestu byggingameist- urtim landsins, því það er ódýrara og betra en nokkuð 'annað þjettiefni. - G Nánari upplýsingar hjá sölumanni vorum. nv r\ mirn. Valkendorfsg'. 3Ö, Köbenhávu. ; ' Begynúere og Viderefcómne. Translatör- Disþonent Kurrespondent- Bogholder-Eksamen, •þr' ' . . ¥ • ... Translatorskolen Noiið Radfo þvottarírn verðtir þá hvitari er rokkrtr sírni lyr Hvað er leyndardonrarinn við hinn undursamlega RADION-ÞVOTT? Hvers vegna er Radion betra til þvotta en venju- leg sápa? Yegna þess, að Radion-þvælið er súrefn- is þrungið. Það er alt og sumt, sem þarf til að gera þvottinn fullkomlega hreinan. Súrefnisbólumar þrýsta sjer í gegn um þvottinn og reka öll óhrein- indi á burt. Það er því óþarft að nú eða nugga þvottinn. — Sjóðið tauið í Radion, blönduðu eins og skírt er frá á pakkanum og fáið hvítari þvott en nokkru sinni fyr. RÁDION Hið undursamlega súrefnis- þvottaduft. A LBVBf> PRODUCT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.