Morgunblaðið - 13.09.1935, Blaðsíða 7
MQRGUNBLAÐIÐ
Föstudaginn 13. sept. 1935.
Eisaskipið „Columbus“.
;Columbus“, v'ign Norddeutscher Lloyd, kom nýlega til Kaupmannahafnar með 1700 ferðamenn.
Myndin af skipinu er tekin á ytri höfninni í Höfn. „Columbus“ er 35.000 tonn, og er stærsta skip
sem komið hefir til Kaupmannahafnar. <
Karlinn.
f tilefni af grein herra fram-
kvæmdarstjóra, Hafsteins Berg-
þórssonar, sem birtist í Morgun-
blaðinu í fyrradag, vildi jeg leyfa
mjer að gera dálitla athugasemd.
Fyrir nokkrum árum hefur dr.
Bjarni Sæmundsson bent á það,
fyrstur manna, að mikið verðmæti
færi forgörðum í öllum þeim
karfa, sem kastað væri af togur-
um. Ef að jeg man rjett, hefir
hann oftar en einu sinni í ritum
hvatt menn til þess að hirða karf-
ann. Einnig mætti geta þess, að
fyrir nokkrum árum var gerð til-
raun til þess að bræða karfa í
verksmiðjunni á Sólbakka, en þá
(Strandaði víst á því, að ekki var
hægt að vinna bug á broddunum,
þeir spiltu mjölinu-
Að öðru leyti er skýrsla Haf-
Æteins svo merk, að full ástæða er
að líta með eftirvæntingu á út-
komu þeirrar veiðar, sem þar er
Ifiidd athygli að.
B.eykjavík, 11. sept. 1935.
Ámi Friðriksson.
Dagbók.
Veðrið (fimtud. kl. 17): Um
€00 km. suður af Reykjanesi er
alldjúp lægð á hreyfingu norð-
austur eftir. Vindur er A og NA
um alt land og sumstaðar allhvast
vestan lands og við suðaustur-
ströndina. Dálítill úði er á Vestfj.
og á Suðurl. hefir sumst. verið dá-
lítil rigning í dag. Hiti 8 st. fyrir
norðan en 11 st. syðra.
Veðurútlit í Rvík í dag: AU-
hvass NA. Úrkomulaust.
59 ára er í dag Sigmundur
Rögnvaldssin fisksali, Suðurpól
14.
Póst- og símamálastjómin hefir
tilkynt breytingar á áætlunarferð-
um frá Reykjavík til Dala og
Hólmavíkur. Eftirleiðis verða
ferðir frá Reykjavík til Stórholts
á mánudögum og fimtudögum og
frá Borgarnesi til Hólmavíkur
á þriðjudögum.
Á veiðar eru farnir togararnir
Kári, Gullfoss og Surprise.
Worwichshire, enskur togari,
kom hingað í gær.
Eimskip. Gullfoss er væntanleg-
ur til Vestmannaeyja seinnipart-
inn í dag- Goðafoss er í Hamborg.
Dettifoss var á ísafirði í gær, Brú-
arfoss er á leið til Leith frá Vest-
mannaeyjum. Lagarfoss er á leið
til Kaupmannahafnar. Selfoss er
á leið til útlanda.
Blómasala Hjálpræðishersins. 1
dag og á morgun verða hinir ár-
legu blómadagar Hjálpræðishejs-
íns haldnir í fertugasta sinni. Það
hefir löngum verið venja Reyk-
víkinga að styrkja starf Hersins
á ýmsan hátt, ekki hvað síst í
sambandi við blómadagana. Hjálp-
ræðisliðarnir verða um allar göt-
ur ineð blómin. Salan er þeim hið
rnesta kappsmál og munu þeir því
ekki liggja á liði sínu, hvað söl-
una snertir. Vafalaust munu hin-
ir mörgu vinir og velunnarar
starfsins, sem hingað til hafa
styrkt það rausnarlega, ekki
bregða venju sinni að þessu sinni.
Árlega vex sá fjöldi, sem er hlynt-
ur þessu djarfa starfi, og má því
vænta þess, að árangurinn verði
hú meiri og betri en nokkru sinni
fyr. Z.
Bílþjófnaður. Frá því var sagt
í blaðinu nýlega, að * bifreið hefði
verið stolið hjer í bænum. Upp-
lýst er nú um hver stal bílnum.
Voru það tveir piltar sem óku hon-
nm til Hafnarfjarðar og til baka
til bæjarins aftur.
Saumafundur kl. 4 í dag í
Templarahúsinu.
Frá Norðfirði símar frjetta-
ritari útvarpsins þar, að togarinn
Ver hafi farið þaðan í fyrrakvöld
áleiðis til Grimsby með sjötíu
smálestir af bátafiski frá Sam-
vinnufjelagi útgerðarmanna, til
sölu þar á mánudagsmarkaði.
(F.Ú.).
Sovjetstjómin stendur nú í
samningum við Norðmenn um
kaup á 20 þús. tunnum af saltsíld,
auk ]ieirrar síldar, sem áður hafðí
verið samið um sölu á, auk þess
eru Rússar að gera samning við
Norðmenn um kaup á 600 smá-
lestum af saltfiski. (F.Ú.).
Miltisbrandurinn á Skáney. Frá
því er sagt í útvarpsfrjett í gær-
kvöldi, að ein kýr í viðbót hefði
drepist af miltisbrandi í Skáney
í Reykholtsdal. Kýrnar hafa all-
ar verið grafnar niður með holdi
og hári og alt gert til að sótt-
hreinsa umhverfis þá staði, þar
sem sýkingarhættan er talin lík-
legust.
Ríkisverksmiðjan á Sólbakka
hefir í sumar unnið úr 20.298 mál-
um síldar og fengði úr aflanum
400 smálestir af lýsi, en 390 smá-
lestir af síldarmjöli. (F.Ú.).
Lúðrasveit Reykjavíkur ætlaði
að leika á Austurvelli í gær-
kvöldi, en varð því miður að
hætta við það sökum bilunar á
ljósatækjum, sem hún notar þegar
dimt, er. Lúðrasveitin mun leika
á Austurvelli annað kvöld kl. 8%.
Dómur. í sumar falsaði unglings-
piltur hjer úr nágrenni bæjarins
umboð frá föður sínum og hafði
með því út inneign hans hjá
Mjólkursamsölunni. — Lögreglu-
stjóri hefir nú kveðið upp dóm í
máli þessu og var pilturinn dæmd-
ur í 6 mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið.
Knattspyrnukepni fór fram í
gærkvöldi milli starfsmanna
Mjólkurfjelags Reykjavíkur og
starfsmanna Mjólkursamsölunnar.
Leiknum lauk með sigri M- R.,
gerði 2 mörk gegn 1. Fyrir nokkr-
um dögum kepti M. R. við S. í- S.
og láuk þeim leik með jöfnum
markaf jölda, 1:1.
Berlingatíðindi birti í gær við-
tal við Halldór Kiljan Laxness um
skáldsöguna „Sjálfstætt fólk“ sem
kemur nú út í danskri þýiðngu.
(F.Ú.).
Hús gagnabólstr arar taka ekki
þátt. í verkfalli því, sem nú stend-
ur yfir í húsgagnasmiðiiðnaðin-
um. Eru það aðeins húsgagna-
smiðir, sem verkfall hafa gert.
Útvarpið:
Föstudagur 13. september.
10,00 Veðurfregnir.
12.10 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfrégnir.
19,20 Tónleikar (plötur): Skemti-
lög.
20,00 Klukkusláttur.
Frjettir.
20,30 Upplestur: Bakteríunveiðar
(Pálmi Hannesson rektor).
21,00 Tónleikar (plötur): a) End-
urtekin lög; b) Schumann-tón-
leikar.
Big Ben.
Útvarpshiustendur kannast við
hina miklu klukku í parlaments-
höll Bret.a, Big Ben. Tímamerki
enska útvarpsins er þaðan. Menn
geta fengið hugmynd um stærð
klukkunnar, er þeir sjá vísirinn,
-—Þjer; eigið bræður.
— Nei, prófessor, aðeins einn.
— Það var einkennilégt, jeg tal-
aði við systur yðar í gær og hún
sagðist eiga tvo bræður!
Páll (8 ára) : Mamma megum
við leika skólaleik?
Móðirin: Já, ef þú ert stiltur og
þægur.
Páll: Þess þarf ekki mamma,
jeg ætla að vera kennarinn.
7
14-18 ára piltar og
stúlkur fi Reykjavík,
sem ekki hafa ákveðna atvinnu í haust og í vetur og ekki stunda
nám, eru hjermeð beðin að mæta í Vinnumiðlunarskrifstofunni í
Mjólkurfjelagshúsinu, eða Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar, Lækj-
artorgi 1, kl. 10—12 og 2—4 dagana 14.—18. þessa mánaðar, að báð-
um dögum meðtöldum og útfylla skýrslur, sem þar liggja frammi.
Skýrslusöfnun þessi er framkvæmd að tilhlutun nefndar þeirrar,
sem ríki og bæjarstjórn hafa skipað í því skyni að rannsaka atvinnu-
leysi unglinga hjer í bænum og gera tillögur til bóta á því.
Gunnar M. Magnúss. Yilhjálmur S. Vilhjálmsson,
Bjarni Benediktsson.
eru hjer með alvarlega ámintir um að hafa Ijósatæki bif-
reiða sinna í lagi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 12. sept. 1935.
Oú«laf A. Jónasson
(settur).
Ný bók.
Jón Ófeigsson: Þýsk-íslensk orðabók, 944 bls,
í stóru broti.
Verð í ljereftsbandi kr. 25.00, í skinnb. kr. 29.00,
Fæst hjá bóksölum-
og Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugaveg 34,
Nýr lax.
Smábarnakensla.
Nýr Silungur,
Nýtt Dilkakjöt,
Nýtt Alikálfakjöt,
Nýtt Grænmeti.
Kjötbúðin Herðubreið.
Hafnarstræti 18. Sími 1575.
Vanur kennari, sem hefir
sjerstaklega kynt sjer smá-
barnakenslu erlendis, byrjar
smábarnakenslu 1. okt. í
góðri stofu í miðbænum.
Meðmæli fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 2501
frá kl. 1—3.