Morgunblaðið - 13.09.1935, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.09.1935, Qupperneq 8
é 8 lf ORGUNBLAÐIÐ JCaMfis&a]iu€\ j SíŒyivninqac - Narag-miðstöSvarofn, notað- ur og kolaofn, til sölu. Unnar- ðtíg 4. Ung kýr, miðsumarsbær, af .góðu kyni, til sölu. A. S. í. vísar á. Kaupi gamian kopar. Vald, Poulsen. Klapparstíg 29. Vandlátar húsmæður skifta yið Nýju Fiskbúðina, Laufás vég 37. Sími 4052. Vil kaupa andaregg. Benóný, aími 3964. Veggmyndir og rammar í ífjölbreyttu úrvali á Freyju- götu 11. Glænýr silungur. Nordalsís- hús. Sími 3007. Orgelkensla. Upplýsingar í síma 2907. Fæði og einstakar máltíðir í Café Svanur við Barónsstíg. Góður matur. Sanngjarnt verð. Nýir kaupendur að Morgun- blaðinu fá blaðið ókeypis til næstkomandi mánaðamóta. I slátríO: Föstudaginn 13. sept. 1935- Rúgmjöl, Bankabyggsmjöl, Bankabygg, fæst í Háskólastúdent óskar eftir kenslu, gegn fæði. Ágæt með- mæji. Upplýsingar í síma 4004. JCiísnœði Gott herbergi með ljósi og hita óskast, helst nálægt mið- bænum. Tilboð, merkt „8“, -sendist A. S. 1. Nyslátrað dilkakjöt lækkað verð. Frosið kjöt af fullorðnu á 35 aura og 45 aura í lærum. Ennfremur allskonar græn- meti. Jðhannes Jóhannsson, Grundarstíg 2. Sími 4I3L Blaða-hálsklútar. Madame Schia parelli í París, hefir fundið upp nýja tísku í hálsklútum fyrir karlmenn. Þessir nýju hálsklútar eru úr silki og er prentað á þá blaðagreinar, auglýsingar, myndir o- s. frv.. Það er alveg eins og menn hafi dagblað um hálsinn er þeir bera þessa klúta. Ö1 í dósum. í Ameríku er nú far ið að selja svokallað „canned beer“ eða öl í niðursuðudósum. Ölið er ódýrara en á flöskum og kvað vera fullt eins gott á bragðið. Hegning A1 Capone. Fangi einn, sem nýlega er búinn að afplána ,sekt sína í fangelsi því, sem glæpa mannaforinginn A1 Capone situr í, segir svo frá að A1 leiðist afar mikið í fangelsinu. Sjerstaklega fái hin mikla þögn, sem ríkir í fangelsinu mikið á glæpamanna- foringjann. Þær reglnr gilda í fangelsinu, að fangamir mega ekki tala saman eitt aukatekið orð. verður á boðstólum Smiör beflnt úr sflrohknum frá rjómabút Kaupfjelags Borgfflrðinga. Til Keflavfkur og Grlndavíkur i MHf" eru ferðhudaglega fró — En mamma, hundurinn hefír elt mig alla leiðina heim. t ^Bflfreflðasflöll Steindórs. Sími 1580. Allir Reykvíkingar lesa auglýsingar Morgunblaðsins. FMGINN FRA TOBOLSK. 30. honum aftur kjark og þrautseigju fyrri ára. Að vísu var hann kominn út úr æfingu, en hann var liðugur og Ijettur á sjer. Rex hjelt glaðværðinni uppi. Hann sagði þeim frá því, er hann var handtekinn, eftir að hann hafði falið sig í kolaflutningsvagni, sem var aftan í hermannalestinni frá Turinsk til Tobolsk. Og hvernig hann hefði „grýtt“ þá með kolamolum, þegar þeir reyndu að taka hann fastan. Hann þóttist viss um að margir af rauðliðunum hefðu verið með marbletti og skrámur daginn eftir. En hvað átti einn veslings náungi að gera, þegar ráð- ist var á hann úr öllum áttum og hann hafði ekk- ert sjer til varnar annað en kolamola. Síðan sögðu þeir Rex frá því, hvað á dagana hefði drifið, frá því að þeir komu til Rússlands. Hugur Simonar hvarflaði til Valeriu Petrovna. Myndi hann nokkurn tíma fá að sjá hana framar og njóta hinnar glæsilegu fegurðar hennar, fá að kjassa hið gullna hörund, heillaður af hinum daufa en sætþrungna ilman, sem umlukti hana. Aldrei myndi hann gleyma þeirri hamingjuvímu í Moskva, þegar þúsundir stjarna blikuðu á frost- skærum himninum, og spegluðust í fljótinu, sem þau gátu sjeð út um glugga hennar. Það var ó- skiljanlegt, að hann hefði dvalið viku í Moskva. Alt var breytt, skrifstofa hans í London, þ'ar sem alt gekk eftir vissum reglum, með ótal símum og skrifstofufólki, alt virtist svo óendanlega Iangt í burtu, eins og í öðrum heimi. Hvað myndu með- eigendur hans, sem vantaði alt hugmyndaflug, segja, ef þeir sæi hann nú? Meðsekan í morði, á flótta undan lögreglunni — hvert? Á veiðum 'eftir einhverjum gimsteinum, sem vitlaus prins hafði hulið. Hann leit á vini sína. Þetta hlaut að vera draumur, martröð, og hann vaknaði bráðum heima í vistlegu svefnherbergi í klúbbnum sín- m En þegar hann fann men Valeria Petrovna við brjóst sjer, vissi hann, að alt þetta var veru- leiki. Strax og þeir sáu fyrsta húsið í smáþorpi, sem þeir komu að, fóru hertoginn og van Ryn að bollaleggja, hversu ráðlegt það væri að ræna hest- um og sleða á einmana, afskektum bóndabæ. De Richliau vildi fyrir hvern mun að þeir reyndu að fá hesta og sleða hið allra fyrsta, annað hvort með kaupum — eða þjófnaði. En van Ryn va> á öðru máli. Hann sagði, að ef þeir fengi sleða, yrðu þeir að fara veginn, en þar myndu flugmennirnir strax verða varir við þá. Hann sýndi þeim á kortinu, að það voru ekki nema fimm mílur til Romanovsk, og mælti fastlega með því, að þeir hjeldu sig í skóginum og gengu það sem eftir væri leiðarinnar. En þegar myrkt væri orðið, gæti enginn flugmaður sjeð þá. Ef nauð- syn krefði væri hann reiðubúinn að ráðast á hvaða bóndabæ sem væri — en ekki fyr en væri orðið dimt! Simon fylgdi Rex að máli, og þar með var það útkljáð. Þeir gengu stóran krók kringum þorpið, og þar sáu þeir fyrstu stóru flugvjelamar. Þeir voru rjett komnir út á stórt opið svæði í skóginum, en urðu að draga sig fljótlega í hlje ipn á milli trjánna. Um fjögur hundruð metra yfir höfðum þeirra drundi í stærðar flugvjelum, sex í röð, og á eftir þeim komu tvær raðir fjugvjela, sex í hvorri. De Richleau leit á fjelaga sína. „Þetta var und- arlegt,“ sagði hann. „Það má vel vera, að litlu flugvjelarnar, sem við sáum í morgun, hafi verið að elta okkur, en jeg hefi Iitla trú á, að þeir hafi sent út sprenjuvjelar okkar vegna“. „Það hlýtur að vera flugvöllur hjer í grend- inni,“ mælti Rex. „Jack Straw bað okkur einmitt um að taka eft- ir hvað hjer væri á seyði, hvort hjer væri hern- aðarlegar framkvæmdir á ferðinni," skaut Simon inn í. „Ef tilgáta mín er rjett, er það áreiðanlega go® $ frjett fyrir hina leynilegu frjettasmala í Wash- ington.“ ,,Flugvöllur,“ segði hertoginn hugsi. „Og, þíh segir, Rex, að flugvjelarnar sjeu alveg ólíkar a5> ) gerð þeim flugvjelum, sem þekkjast í Ameríkiu og Evrópu?“ „Já, áreiðanlega, vængirnir sitja öðru vísí. Þeir- eru líka styttri. Þið sjáið að þær eru eins; og smát, fuglskríli", bætti hann við háðslega. Þeir hjeldu áfram gegnum skóginn. Eftir að þeir höfðu sjeð þessa fyrstu röð af sprengjuflug- vjelum, heyrðu þeir stöðugan þyt flugvjelanna. yfir höfðum sjer. Voru þær ýmist þrjár og þrjár í röð, eða sex,. eða ein og ein, og stöðugt sáust þær hefja. sig til flugs eða svífa niður, og gerðu margskonar æfingar á fluginu. Voru þrjár aðaltegund'ir flug- vjela, einvængjaðar, stórar sprengjuflugvjelar og þriðja tegundin var stór hernaðarflugvjel, með fjórum sætum. Þeir voru rjett komnir upp litla hæð, er þeir komu auga á limagirðingu um fimtíu metra fram undan. Var hún þrjár álnir á hæð, búin til úr sex koparþráðum, er festir voru við smástáura. Girð- ingin lá langar leiðir til beggja handa. Þetta var mjög meinlaust á að sjá. En de Richleau kannað- ist vel við slíkar girðingar — við vígstöðvar óvin- anna á stríðsárunum. Þegar þeir nálguðust grindurnar, Iagði hertog- inn höndina á öxl Simonar og sagði: „Farið var- lega, það liggur rafmagnsstraumur í gegnum þræðina, það er lífshætta að snerta á þeim.“ Rex benti á dauðan hreysikött, sem lá skamt frá. „Aumingja skepnan hefir komið við girðing- una. Það er svo sem auðvitað, að þeim er um- hugað um að láta ekki óviðkomandi fólk koma hjer.“ Þeir gengu spölkorn með fram limagirðingunni. Alt í einu nam Rex staðar. Og í sama vetfawgn 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.