Morgunblaðið - 17.09.1935, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginn 17. sept. 1935.
fflw fpnwapig
Útref.: H.f. Árvakur, Reykjavlfc
Rlt»tjðrar: Jðn KJartanaaon,
Valtýr Stefá.nsson.
Rltstjörn og afgreiBala:
Austurstrætl 8. — Sfml 1*0»
Auglýsingastjðrl: E. Hafberg.
Au.lýslngaskrifstoía:
Austurstræti 17. — Slml 8700
Helsnaslmar:
Jön KJartansson, nr. 1742.
Valtýr Stefánsson, nr. 4220
Árnl Óla, nr. 3046.
E. Hafberg, nr. 8770.
ÁskrJfta&jald: kr. 3.00 á mánubi.
t iausasölu: 10 aura elntaklR.
20 aura meS Lesbök
Beinaverslun
Þeir eru sjaldnast ráðalaus-
ir, stjórnarliðar, þegar þarf að
koma manni að einhvers staðar
við beinajötuna. Þá eru jafnan
til ótal ráð og ótal leiðir.
En aðferðin sem notuð var
til þess að koma Ólafi nokkrum
áSvfeihSáyni, sem Austfirðingar
kannast við, að jötunni, er svo
einstæð, að sjálfsagt þykir, að
almenningur kynnist henni.
Hannes Thorarensen hefir,
sem kunnugt er, haft með hönd-
um forstöðu Vínverslunar ríkis-
ins hjer í Reykjavík (útsöl-
unnar), og farist það starf
prýðilega, eins og alt annað,
sem sá heiðursmaður hefir ná-
lægt komið.
Þótt þegar skifti hundruðum
embættin nýju og stöðumar,
sem núverandi ríkisstjórn hefir
sett á stofn á því rúmlega eina
ári, sem hún hefir verið við
völd, hefir stjórnin þó jafnan
verið í mesta stöðu-hraki.
Til þess að bæta úr þessu
voru lögin um aldurshámarkið
sett á síðasta þingi og menn
flæmdir úr embættum og stöð-
um á grundvelli þeirra.
Auðvitað notaði stjórnin
einnig vald sitt til þess að
flæma pólitíska andstæðinga
úr stöðum, sem ekki voru bygð
á lögum, þar sem því var við
komið.
Þannig sagði hún Hannesi
Thorarensen upp starfi frá 1.
ágúst s.l. I sæti hans skyldi
Ólafur Sveinsson setjast, sá er
fyr greinir.
En Hannes hafði ráðningar-
samning, sem miðaðist við árs-
rekstur verslunarinnar. Hann
neitaði því að fara fyr en frá
áramótum.
Heimtaði þá stjórnin, að Hann-
es tæki Ólaf Sveinsson í versl-
unina frá 1. ágúst, með 800
króna launum á mánuði.
Hannes er friðsemdarmaður,
og gerði þetta.
En Ólafur Sveinsson kom
aldrei í verslunina, heldur kom
þangað annar maður, Snorri
Jónsson að nafni, fyrverandi
starfsmaður Ólafs.
Ekki þykir mönnum senni-
legt, að Snorri fái þær 800 kr.,
sem greiddar eru mánaðarlega,
heldur muni talsverð fúlga
launanna hverfa til Ólafs, sem
þó kemur ekki nálægt starfinu.
Geta má og þess, að Ólafur
Sveinsson starfar nú á skrif-
stofú ftmflutnings- og gjaldeyr-
isnefndar.
Hvað finst mönnum um svona
beina-verslun?
Og hvað tekur stjórnin í
flokkssjóð fyrir slíka verslun?
Þórsmerkið rfkisfáni Þýskalands.
Gyðingar geta ekki verið þýskir borgarar.
Þjóðverjar vilja frið
— ef ekki Memel.
Frá störfum ríkisþingsin§ í Niirnberg.
Hitler.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
M ORGUNBLAÐSINS.
Menn biðu um heim allan
með mikilli eftirvæntingu eftir,
því, hvað gerðist í þýska ríkis-1
þinginu, sem kvatt var skyndi- j
lega saman í Núrnberg.
Þingið kom saman kl. 9 í
gærkvöldi.
Hitler vill frið.
Þar flutti Hitler ræðu —-
þá stystu, sem hann hefir hald-
ið við slík tækifæri. Hann tal-
aði aðeins stundarfjórðung.
Hann sagði,
að friðarvilji Þjóðverja
væri óhagganlegur.
Þýskaland óskar ekki að
blanda sjer í óviðkomandi þræt-
ur, sagði Hitler ennfremur.
Talið er, að þetta beri að
skilja þannig, að Þýskaland
muni ekki á neinn hátt blanda
sjer 1 Abyssiníudeiluna.
En — Memel.
Þá sagði Hitler:
Þýska þjóðin fylgir atburð-
unum í Memel með hinum
mesta kvíða og óróa.
íbúarnir í Memel ern
píndir og ofsóttir og
með þá farið eins og
glæpamenn væru, —
enda þótt eini glæpur
þeirra sje, að óska
eftir að mega vera
áfram Þjóðverjar.
Það verður að kref jast þess
af stjórn Lithauen, að hún
haldi gerða samninga,
annars má búast við,
að það ástand skap-
ist, sem enginn hefir
óskað eftir.
Bolsar — Gyðingar.
Þá drap Hitler á biltinga-
starfsemi kommúnista og undir-
róður Gyðinga. Taldi nauðsyn-
legt, að mál Gyðinganna væri
leyst í eitt skifti fyrir öll.
Þórsfáninn ríkisfáni.
Ríkisþingið samþykti ein-
róma þrenn lög, og var fádæma
fógnuður meðal þingmanna og
áheyrenda, þegar lögin voru
samþykt.
Fyrstu lögin voru um það,
að núverandi ríkisfáni Þýska-
lands — þríliti fáninn, skyldi
ekki lengur vera ríkisfáni,
heldur skyldi Þórsfáninn
framvegís vera ríkis- og
Verslunarfáni jÞýskalands.
Gyðingar —
ekki Þjóðvcrjar.
Önnur lögin voru um þýskan
rí kisborgarar jett.
Samkvæmt þessum nýju lög-
um
eru Gyðingar útilokaðir
frá borgararjettindum í
Þýskalandi.
„Vernd hins þýska
blóðs og æru
Þjóðverja".
Þá eru þriðju lögin. Þau
fjalla um „vernd hins þýska
Stefán Guð
I I
undsson
söng í Ti voli á sunnudagskvöld
við fádæma hrifning áheyrenda.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
íslenski tenórsöngvarinn, Ste-
fán Guðmundsson söng í hljóm-
leikasal Tivoli í gærkvöldi.
Húsið var troðfult áheyrenda
og söngvaranum tekið frábær-
lega vel. Hann varð að syngja
mörg aukalög, því fagnaðarlæti
fólksins ætlaði aldrei að linna.
— Kaupmannahafnarblöðin í
dag geta um sönginn og
öll á einn veg, að hann hafi
verið frábærlega góður.
Politiken skrifar: Stefán
hefir forkunnar fagran tenór,
röddin er hrífandi, með ítölsk-
um blæ. Áheyrendurnir voru
stórhrifnir af söng hans.
Berlingske Tidende skrifa:
Söngur Stefáns er stór við-
burður á sviði sönglistarinnar
og hefir honum farið mikið
Stefán Guðmundsson.
fram, síðan hann söng hjer í
vor, með kórnum.
Socialdemokraten skrifar: —
Stefán hefir mörg skilyrði til
þess að verða frábær „scene“-
söngvari. Páll.
Beck andmælir
Liiviuoff.
Beck.
Genf 16. sept.
Á fundi Þjóðabandalagsins í
dag vakti það mesta eftirtekt,
að Beck, utanríkismálaráðherra
Póllands, gagnrýndi mjög ein-
arðlega ummæli í ræðu Litvin-
offs, utanríkisráðherra Rúss-
lands, þeirri, er hann hjelt í
bandalaginu s.l. föstudag.
Ásakaði Beck Litvinoff fyrir
að hafa viðhaft ummæli, sem
miðuðu að því, að spilla sam-
úð og samvinnu þjóða. (UP).
blóðs og æru Þjóðverja.“
Samkvæmt þessum lögum
er hjónaband stranglega
bannað milli þýskra ríkis-
borgara og Gyðingafólks.
Einnig er þýskum borgara
bannað að hafa holdleg mök
við Gyðinga.
Brot gegn þessum lögum
varða fangelsi.
Þá er Gyðingum einnig sam-
kvæmt lögum þessum bannað
að draga upp Þórsfánann, og
þeir mega ekki ráða til sín
þýskar vinnukonur, sem eru
yngri en 45 ára. Páli.
5-manna nefndin
heldur ekki fund
á morgun.
I
London, 16. sept. FÚ.
5 manna nefndin í Abyssiníu-
deilunni heldur ekki fund á mið-
vikudaginn kemur, eins og ákveð-
ið hafði verið, vegna þess að und-
irnefnd, sem skipuð hafði verið,
treystist ekki til að ljúka áliti
sínu. Undirnefndin átti að fjalla
um ákæruskjöl ítalíu og svör
Abyssiníu við þeim.
Landsþing norskra
fiskimanna
fer fram á 14 miljón
króna kreppuhjálp.
Kbhöfn, 16. sept. FÚ.
Landsþing norskra fiskimanna,
sem haldið er í Stavanger, hefir
farið fram á það að ríkið legði
fram 14 milj. króna, sem kreppu-
hjálp handa fiskimönnum.
Ennfremnr leggur þingið til, að
nokkru af fje þéssu verði varið
til þess að setja á stofn sjerstakt
fiskimálaráðuneyti.
Dýr farmur.
Kolumbus fór frá Siglufirði í
gær, fullfermdur. Farmurinn var
11 þús. tunnur kryddsíldar.
Þessi farmur er sagður' sá dýr-
asti, sem farið hefir frá Siglu-
firði um langt skeið.
Osbtin rigning hefir verið á
Siglufirði síðan á fimtudag. (FÚ).
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 4.—10. ágúst (í svigum
tölur næstu viku á undan): Háls-
bólga 24 (16). Kvefsótt 18 (23)
Gigtsótt 4 (0). Iðraltvef 7 (2).
Taksótt 2 (0). Skarlatssótt 0 (1)-
Kígbósti 2 (4). Ristili 1 (0).
Mannslát 3 (4). Landlæknisskrif-
stofan. (FB).