Morgunblaðið - 29.09.1935, Qupperneq 3
Sunnudaginn 29. sept. 1935.
MORGUNBLAÐIÐ ______________________
MBijMIMilligW'iWifflMMW'U '|IH0 iaWC)ri'^llT»WnWWWniWWWI»W«g1IITniWWI—rmnni—
Alþingi
kvatl sainan
ÍO. oktélicr.
í síðasta Lögbirtingablaði birt-
ist konuag&karjef, sem stefnir Al-
þingi saman til framhaldsfnndar,
fimtudaginn 10. október n. k.
Það mun ekki vera ætlunin, að
nein sjerstök viðhöfn fari fram
að þessu sinni við samkomu Al-
þingis. Bngin kirkjuathöfn niun
eiga fram að fara, eins og venja
er til við þingsetningu, enda er
ekki nm neina þingsetningu að
ræða að þéá’áu sinni, þar sem Al-
þingi var frestað í vetur. Tekur
því Alþingi við störfum, þar sem
við var skilið, þegar frestað var.
En þetta mun þó þykja nokkuð
Snubbaraleg byrjun á þingstörf-
nm. Yæri ekki rjett, að halda við
hinni gömlu og góðu venju, hefja
starfið með guðsþjónustu og
koma síðan saman stutta stund í
sameinuðu þingi, áður en hin
eiginlegu þingstörf hefjast ?
Ráðlierraffund-
urinn i Rém.
Framh. af 2. síðu.
viourkenning á forrjettindum
Ítalíu í Ábyssiníu.
Ásakanir í garð
Ahyssiníumanna.
Þá segir í tilkynningunni að
Italía muni ekki eiga frum-
kvæði að neinu máli innan vje-
banda þeirrar stofnunar, sem
frá upphafi hafi virt að vettugi
rjettindr og óskir ftalíu og
að á meðan Þjóðabandalagið
hjúpi sig í skykkju allskonar
samninga fái Abyssinía óá-
talið að hervæðast eftir vild
og búa sig undir árás á ítölsk
lönd.
í tilkýnnmgunni segir enn-
fremur,
að á síðustu tveim sólarhring
um hafi Abyssinía lokið stríðs
undirbúningi sínum og her-
foringjar hennar hafi tilkynt
að þeir hefðu í hyggju að
hef ja árás.
ítalska stjómin, segir í skjal-
inu, getur ekki tekið það hátíð-
lega þó að hersveitum Abyss-
iníu hafi verið boðið, að hörfa
til baka frá landamærunum. Sú
fyrirskipun er aðeins gerð, til
þess að dulklæða hemaðarund-
irbúninginn í landinu.
Með tilliti til þessa, hefir
ítalska stjómin ákveðið að
hraða sem mest flutningi her-
mannanna til Afríku.
10 þúsund £ lán
til Akureyrar.
AKUREYRI I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Samvinnubyggingafjelag Ak-
ureyrar hefir tekið Ián í Eng-
landi að upphæð 10 þús. ster-
lingspund.
Hel'jast húsabyggingar fje-
lagsins í vetur.
Skriffaff dagbók
i 50 ár.
Mðtuneyti
fyrir þurfaling'a
á Akureyri.
AKUREYRI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Bæjarstjórnin á Akureyri hef
ír samþykt að setja á stofn
mötuneyti fyrir þurfalinga bæj-
arins í vetur.
Mötuneytið verður í húsnæði
Hjálpræðsihersins undir' um-
sjón forstöðumannsins og fá-
tækrastjórnarinnar í samein-
ingu.
Frá Akureyri.
AKUREYRI í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Á Akureyri stendur yfir um
þessar mundir haustþing barna-
kennara við Eyjafjörð.
Guðbrandur ísberg, þingmað-
ur, ætlaði að halda þingmála-
fund í kvöld, en fundurinn fjell
niður vegna mænusóttarinnar.
Afstaða ltala til
Breta og Þjóða-
bandalagsins.
Þá ræðir næst í tilkynning-
unni um stefnu ítölsku stjórn-
arinnar frá því að deilan hófst
og er sú greinargerð í þremur
liðum.
í fyrsta lagi er sagt að Ítalía
muni ekki ganga úr Þjóðabanda
laginu þangað til að það fari
sjálft að taka ábyrgð á ráðstöf-
unum sem henni eru f jandsam-
legar.
í öðru lagi getur ítölsk ný-
lendumálastefna ekki skaðað
Bretland,
Sveinn Guðmundsson,
fyrv. hreppstjóri.
Þeir eru margir, sem ein-
hvemtíma ætla að halda dag-
bók og byrja að skrifa. En þeir
eru aftur fáir, sem endast lengi
til þess. Sumir hætta strax, aðr-
ir skrifa við og við samhengis-
lausar klausur — en örfáir
skrifa altaf — hvern einasta
dag — meðan þeim endist ald-
ur til.
Sveinn Guðmundsson, fyrrum
hreppsstjóri á Akranesi, sem
hjer birtist mynd af, er einn
þeirra fáu, sem hefir verið dag-
bók sinni trúr í hálfa öld. Auk
þess, sem Sveinn hefir haft á
hendi margar vanda- og virð-
ingarstöður, og farist það svo
vel úr hendi, að nóg mundi vera
til að varðveita nafn hans frá
gleymsku, þá mun Sveins þó
lengst verða getið í sambandi
við dagbækur sínar.
Þegar dagbækur eru skrifað
ar af jafn greinarglöggum
manni og Sveini, má nærri geta
hvem fróðleik þær hafa að
geyma, t. d. hefir hann skrifað
um veðurlag fyrir hvern dag í
síðustu 50 ár.
Dr. Guðbrandur Jónsson, sem
hefir tekið að sjer að skrá sögu
Borgarfjarðar, hefir fengið til
láns dagbækur Sveins Guð-
mundssonar og kveðst hafa af
þeim mikið gagn — og má þá
fara nærri um hvers virði þær
kunna að verða í framtíðinni
„og ætti Bretland að vita,
þrátt fyrir tilraunir andfas-
ista, til þess að koma af stað
misskilningi, að ítalska stjórn
in er reiðubúin til samninga,
sem að öllu leyti tryggja
rjettindi hvors aðila fyrir sig,
Ítalíu og Bretlands í Austur-
Afríku“.
I þriðja lagi er því hátíðlega
lýst yfir, að ítalska stjórnin
muni forðast allar ráðstafanir
sem orðið gætu til þess, að gera
deiluefnið víðtækara.
Geir G. Zoéga
vegamálasfjéri
átti fimtugsafmfflli í gær. Hann
er tvímælalaust einn af bestu em-
bættismönnum landsins, dugnað-
arforkur hinn mesti, hagsýnn og
ráðdeildarsamur í hvívetna.
Geir G. Zoega hefir unnið við
vegamál landsins í 24 ár, fyrst
sem aðstoðarverkfræðingur og
vegamálastjóri síðan 1917, en þá
tók hann við af Jóni Þorlákssyni.
Stjórn vegamálanna, eins yfir-
gripsmikil og þau eru orðin hjer,
er mikið og vandasamt starf, út-
heimtir öiikla þekkingu, ekki að-
eins yerkfræðilega, heldur og
þekkingu á landinu og einstökum
hjeruðum landsins. Bn alt þetta
kann Geir G. Zoega utanbókar.
Öllum her saman um, að Geir
G. Zoega hafi leyst vegamála-
stjórastarfið af hendi með hinni
mestu prýði. Því er jafnan við
hrugðið á Alþingi, hve glöggar og
skilmerkilegar tillögur hans eru
í vegamálum, hvar sem niður er
drepið á landinu, enda mun eng-
inn núlifandi Islendingur vera
eins gerknnnur landinu og G- G.
Zoega.
Það kom greinilega í ljós í gær,
á fimtngsafmæli vegamálastjóra,
að hann á miklum og almennum
vinsældum að fagna. Allan dag-
inn var látlaus straumur af fólki
heim t i 1 hans. Og símskeytum
rigndi yfir hann frá kinum mörgu
samstarfsmönnum víðsvegar á
landinu.
Sogsvirkjunin.
Henni seinkar vegna
verkfallsins í vor.
Eins og kunnugt er, var svo
ráð fyrir gert í verksamningn-
um við Höjgaard & Schultz, að
virkjunin yrði svo langt á veg
komin haustið 1936, að byrja
mætti þá að leiða straum hing-
að, en fullnaðarvirkjun myndi
ekki lokið fyr en 1. sept. 1937.
En vegna verkfallsins í vor
töfðust mjög allar byrjunar-
framkvæmdir og seinkaði það
mjög verkinu. Er því útilokað,
að virkjunin verði komin það
langt á veg næsta haust, að
hægt verði þá að leiða hingað
straum frá Soginu. En Höjgaard
&Schultz gera ráð fyrir, að
þetta verði hægt 1. ágúst 1937.
Hins vegar er ekki búist við,
að fullnaðarvirkjuninni seinki
neitt verulega frá því er áætl-
að var.
Síldveiðar glæð-
ast við Lofoten.
Síldveiðar hafa glæðst við
Lófóten undanfarna dag. Verð
er óbreytt.
Norska stjórnin hefir ákveðið
að leggja fyrir þingið ný síld-
arlög, sem miða að því, að bæta
vörugæðin. Er búist við að frum
varpið verði lagt fyrir í október.
Færeysk þilskip
hreppa storma á heim-
leið frá Grænlandi.
Kalundborg, 28. sept. FÚ.
Færeysk þilskip, sem stundað
hafa veiðar við Grænland, eru
nú óðum að koma til Þórshafn-
ar og annara færeyskra bæja.
Hafa þau mörg fengið harða
útivist og verstu veður á leiðinni
og sum verið um og yfir,20 sól-
arhringa frá Grænlandi. Eitt
skip laskaðist og náði til hafnar
í Nýfundnalandi. Tvö skip voru
menn orðnir hræddir um að
hefði farist, en þau eru nú bæði
að koma til hafnar.
Fasteignastofan,
Hafnarstræti 15,
hefir enn til sölu nokkrar hús-
eignir með lausum íbúðum 1. okt.
sje samið strax. Nefni sjerstak-
lega: Hálft steinhús við miðhæinn,
laust 2 herbergi og eldhús. Út-
borgun þrjú þúsund. Fremur lít-
ið timhurhús með öllum þægind-
um, ásamt stórum blómagarði
rjett við miðbæinn. Útborgun 8—
10 þúsund. 2 íbúðir lausar 1. októ-
ber, 3 herbergi og eldhús hvor.
— Ennfremur nokkur lítil hús á
ýmsum stöðum utan við hæinn
með lítilli útborgun.
Jónas H. Jónsson,
Sími: 3327.
ÞjóðabandalaQið.
Framh. af 2. síðu.
ingar kosnir til þess að taka
ákvörðun um það, hvort og
hvernig hægt væri að verða við
þeirri beiðni Abyssiníustjórnar,
að senda óvilhalla menn til eft-
irlits með landamærunum. Eiga
þessir sjerfræðingar að afhenda
13 manna nefndinni álit sitt.
Þá hefir 13 manna nefndin
farið þess á leit við aðalskrif-
stofu Þjóðabandalagsins, að
hún semji skýrslu um upphaf
deilunnar.
Engin lagaleg
heimild til að loka
Suezskurðinum.
Stjórn Suezskurðsins kemur
saman á fund 7. næsta mán-
aðar.
Hún hefir opinberlega borið
á móti því, að fundarefnið sje
það, hvort tiltækilegt mundi
M.s. Dronning
Alexandrine
fer í kvöld kl. 8 til Kaup-
mannahafnar um Vestmanna
eyjar og Thorshavn.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
E.s. Súðin
anstnr um miðvikudag,
2. okt., kl. 9 síðd.
Tekið á móti vörum
á mánudag.
E s. Esja
vestur um fimtudag, 3. okt.,
kl. 9 síðd.
Tekið á móti vörum
á þriðjudag.
vera að loka skurðinum ef til
ófriðar kæmi.
Fyrir nokkrum dögum gekk
sá orðrómur víða, að stjórn
skurðsins hefði leitað álits lög-
fræðinga um möguleika á því
að loka skurðinum. Stjórnin hef
ir aftur á móti lýst því yfir,
að engin þörf, sje á að leita
slíks álits þar sem það sje
ótvírætt tekið fram í samn-
ingum um skurðinn frá 1888,
að hann skuli altaf vera op-
inn, hvort heldur er á friðar-
tíma eða ófriðar og heimili
til umferðar hverju skipi,
hverrar þjóðar sem er.