Morgunblaðið - 29.09.1935, Page 4

Morgunblaðið - 29.09.1935, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudaginn 29. sept. 1935. ElliheimiliO Grund 5 ára afmæli. Elliheimilið Grund. Þa<5 þóttu mikil tíðindi og góð þegar EUiheiinilið Grund var stofn að, haustið 1922. 'BIöðin skrifuðu um það langt mál og vinsamlegt, þjóðskáldið á Stóra Nvipi sendi heimilinu samfagnaðarkvæði og fólk kom í hópum vestur að Grund til að skoða þetta „furðuverk". „Ellimannahæli“(!) eins og ein- hver sagði,-----stofnað með al- mennum samskotum í Rvík, eng- inn eyrir tekinn fyrir fyrirhöfnina, sjálfseignarstofnun, sem á að græða á vinsældum og fórnfýsi. — Vjer, sem að því unnum, vorum Pjetur Hlug'ason, EUn Aradóttir og Margrjet Sigvaldadóttir. Hafa verið á Grund í 10—13 ár. barnslega glaðir og buðum meðal annars Alþingismönnum að koma og sjá hús og heimilisfólk. — Þeir komu svo margir að þeir komust varla fyrir innanhúss. „Hvað ætlið þið að biðja um mik- inn ríkisstyrk?“ sagði einn þeirra. „Engan fyrst um sinn“, var svarið. „Því eruð þið þá að b.jóða okkur hingað“? „Til þess að J)ið hjálpið til að Elliheimili komist upp víða um land“.------- Svona vorum við bjartsýnir, — eða barnslegir. Því satt best að segja voru húsakynnin á „Gömlu Grund“, engin fyrirmynd. Hægt var að taka 23 vistmenn með því að láta þrjá eða fjóra sofa í hverri stofu. Miðstöð varð að vera í borðstofu, og engin var þar eiginleg sjúkrastofa. En þrátt fyrir öll þau þrengsli, þótti sum- um vistmönnum, sem þangað komu, „viðbrigðin mikil og góð“. Þau voru hræðileg húsakynnin og sóðaskapurinn, sem sumir komu frá, en þó munu þau „viðbrigðin“ hafa verið mest að ráðskonurnar á Grund, hver á eftir annari, sýndu gamla fólkinu prýðilega nær gætni og ástúð. . En samt sem áður var engin furða að útlendingar, sem liomu að Grund á þeim árum spurðu hálf forviða., eins- og finsk söng- kona spurði: „Er þetta eina elli- heimilið í höfuðstað íslands?“ En hvað kemur þetta við 5 ára afinæli nýja heimilisins við Hring- braut? Meir en lítið. Hefði „Gamla Grund“ ekki orðið vinsæl, aðsókn- in orðið hálfu meiri en hægt var að sinna, og fjármálin blessast vel, þá heíðum vjer aldrei ráðist í að reisa stórhýsið við Hring braut.------- Það voru komnir 56 vistmenn í nýja húsið þegar það var vígt, 28. sept- 1930. 23 komu frá gömlu Grund, og búa 8 þeirra enn hjá oss. „Það er mikill munur á húsa-( kynnum, en samt hefir þetta nýja hús einn slæman galla, það er Starfsfólk Elliheimilisins. nærri ómögulegt að rata út úr því“, sagði einn þeirra, er hann skoðaði nýja húsið í fyrst.a sinn. En hefði enginn annar „galli“ fylgt því, væri um fátt að kvarta- Oss, sem að heimilistjórninni stöndum, finst hitt ineiri galli að lánsfje þurfti að nota að miklu ieyti til að reisa nýja húsið, svo að nær fjórði hluti tekna þess síðan fer til að greiða vexti og vist.gjöld' því hærri en ella mundi og aðsókn minni. Ilúsið getur tek- ið um 150 vistmenn, og í vetur sem leið komust þeir það hæst að þeir urðu 141. Nú eru þeir um 120, og líkur til að nokkrir bætist við bráðlega. En vel gæti heimilið tekið nokkra sjúklinga, þótt ekki væru á gamals aldri, ef ekki væri uni næm veikindi að ræða hjá þeim. Hjúkrun og læknishjálp er í besta lagi, en daggjöld minni en í sjúkrahúsum bæjarins. — Fimm ár er stuttur tími — eða langur, eftir því hvernig geng- ur. Jeg er hræddur um að sam- verkamanni okkar, Haraldi heitn- um Sigurðssyni hafi fundist þau 4 árin, sem hann var forstjóri í nýja húsinu, lengri en hin 8, sem hann var ráðsmaður á Gömlu Grund, og orsök þess hafi fremur verið fjármálin en biluð heilsa. — En nú eru erfiðustu árin liðin, ungur maður og óþreyttur orð- inn forstjóri og annar ungur og óþreyttur, Frímann kaupmaður Ólafsson, komin í stjórn heimilis- ins í stað Haralds heitins. — Er vonandi að svo verði áfram ungir menn og duglegir komi smám saman í stað vor hinna, sem borið höfum hita og þunga dagsins fyrst við Samverjann og síðan við Elliheimilið í rúm 20 ár samtals, — og mun þá vel úr rætast — með guðs hjálp og góðra manna. Sigurbjörn Á. Gíslason. Frú Þorbjörg Þorsteins „Að hryggjast og gleðjast hjer um fáa daga. Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga“. Þessi spöku orð skáldsins flugu mjer í hug, þegar jeg heyrði þá sorgarfregn, að frú Þorbjörg Þor- steins væri látin. Það er gamla sagan sem altaf er þó ný, að maður á erfitt með að trúa því og ennþá erfiðara með að sætta sig við það, að ungt fólk í blóma lífsins hverfi manni sjónum. Og því ver gengur manni að sætta sig við það, sem manni hefir fund- ist meira til um þá sem hverfa. Því það gengur svo illa að vera ]iess minnugur að í raun og veru er ekki svo mikið um það vert að lifa lengi, heldur lifa vel. Og vjer sem í það og það skiftið verðum fyrr vonbrigðum og sorg, festum ef til vill ekki nógu vel sjón á því að stuttur tími getur verið á við heila ævi, þegar endurminn- ingarnar eru bjartar og fagrar um látinn vin eða maka. Já, eitt yndælt ár, getur verið langri ævi betra. — Jeg hygg, að eitthvað þessu líkt hugsum við vinir og venslafólk frú Þorbjargar. Við munum öU hafa lært hjá henni að þekkja það sama: glaða og góða lund, fegurð og prýði. Hún vildi alla gleðja, ekki aðeins með sinni góðu umgengni, lieldur líka með Frú Þorbjörg Þorsteins. því að miðla af sínu þeim, er hún vissi að rjett var að gleðja- Frú Þorbjörg var fædd 12. júlí 1911 að Skeiði í Dalahreppi, Arn- arfirði og ólst þar upp hjá hjón- unum Borghildi Jónsdóttur ljós- móður og Gesti bónda Jónssyni. En foreldrar hennar voru Bjarn- fríður Bjarnadóttir og Hálfdán Bjarnason. Frú Þirbjörg giftist eftirlifandi manni sín,um, Þorsteini Þorsteinssyni forstjóra, 16. jan. 1933. Hún Ijest að heimili sínu, Eiríksgötu 4, 20. þ. m. Þessar línur gefa svo sem að líkum lætur litla hugmynd um frú Þorbjörgu, eða hvað hennar nánustu og annað vinafólk hef- ir mist. Þó hygg jeg, að þessi litla frásögn gefi þeim er lesa, það til ltynna, að sár harmur sje að hennar fólki kveðinn með fráfalli hennar. Aðeins verður hennar minst með þakklæti og söknuði. Endurminningarnar geymast og þær munu lengi ylja. Og þá má minnast orða Björn- son: „Þar sem góðir menn fara, eru guðs vegir“. S. S. Rey kj avíkurbrjef. 28. september. Saltfisksverslunin. Síðasta mánuðinn eða frá 28. ágúst hafa farið 7 skip frá S. í. F. til Suðurlanda. Tveir farm- anna hafa farið til ítalíu, er annar kominn þangað en hinn á leiðinni. Vart hefir orðið nokkurra örðugleika með greiðslu í enskri mynt, og má vera að greiðslur dragist eitt- hvað fremur venju. Ekki eru miklar líkur fyrir sölum til Spánar nú í bili. — Sama er að segja um Portúgal. Hefir heyrst að Norðmenn hafi lækkað verð sitt þar. Og ef það reynist rjett, má búast við drætti á sölum þangað. Nokkr- ar sölur hafa orðið til Brazilíu. Karfaveiðarnar. Karfaveiðarnar hafa nú stað- ið yfir rúman mánuð. Togarinn Sindri byrjaði veiðar 19. ágúst. Um síðustu mánaðamót bættust við togararnir Gulltoppur og Snorri goði. Síðan hafa bæst við Skallagrímur og Tryggvi gamli og loks hefir Hávarður ísfirðingur farið eina veiðiferð. Skipin hafa aðallega lagt upp á Sólbakka, en auk þess hefir mikið verið lagt upp á Siglufirði. Aflinn hefir að mestu verið Lifur og hjörtu, Nýr Mör, Nýtt Dilkakjöt, úr Borgarfirði. jöin Herðubreið. Hafnarstræti 18. Sími 1575. mest úrvalið á Vatnsstíg 3. Blek og peul Aþarft eff, „ERIKA“ betuff ffeynlit mjer. Fegurst — sterkast — best! Sportvoruhús Reykjavíkur. (\ V^cariduJ\ ^íisurfórkring alf 1 a n d ið iafuframí því, að Skandia- mótorar hafa fengið mikSu tndurbætur eru þeir tki iækkaðir f verði. Aðalumboðsmaðor. Csirl Proppé Vetrarkáputau. Kjólaefni, ullar og silki. Silldsobkar. Laugaveg 52. Sími 4485.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.