Morgunblaðið - 02.10.1935, Side 7
Miðvikudaginn 2. skt. 1935,
M 0 K G u ÍN x> L A ÐI Ð
7
Þingrofið í Danmörku.
Framh. af 2. síðu.
ið talsverðum æsingum í Kaup-
mannahöfn og hafa flokkarnir
þegar hafið kosningaundirbún-
ing.
Til þess að koma í veg
fyrir óeirðir hefir verið
bannað að festa upp kosn-
ingaávörp eftir kl. 8 að
kvöldi. Kosningaáróður hef
ir verið bannaður fyrir
dyrum leikhúsa, kvik-
myndahúsa og annara op-
inbarra bygginga. Hátal-
ara má ekki nota á fund-
um og samkomum fyr en
eftir 15. október.
Flokkur Staunings, Social-
demokrataflokkurinn birti kosn
ingastefnuskrá sína í „Social
.Demokraten" þegar síðdegis í
dag.
DANIR BJUGGUST
VIÐ ÞINGROFI
Samkv. einkaskeyti til Mbl.
í gæradag, birti „Berlingske
Tidende“ þegar í gærmorgun
fregnina um að nýjar kosning-
ar myndu fara fram í október.
FRUMVARP TIL LAGA
UM GJALDEYRIS- OG
INNFLUTNINGSHÖFT
Danska stjórnin hafði birt
nýtt frumvarp til laga um
gjaldeyris- og innflutningshöft.
Ganga lög þau, sem nú eru um
þessi mál úr gildi í árslok 1935,
en hið nýja frumvarp gerir ráð
fýrir að gömlu lögin verði fram
lengd um tvö ár, aukin og end-
urbætt.
í hinu nýja frumvarpi er
m. a. gert ráð fyrir að rík-
isstjórnin hafi heimild til
að koma í veg fyrir aukna
dýrtíð, sem leiða kynni af
innflutningshöftunum.
Alment var búist við, að
meirihlutinn myndi fella þetta
frumvarp, en af því myndi leiða
þingrof og nýjar kosningar.
Enski fjármálaráð-
herrann fylgjandi
gullinnlausii seðla!
London 1. okt. FÚ.
Fjármálaráðherra Breta flutti
•eftirtektarverða ræðu í London
í dag um fjármálastefnu
þreska ríkisins.
Ræða hans var flutt á al-
þjóðaþingmannaráðstefnu um
viðskifta- og gjaldeyrismál. í
þessari ræðu komst Chamber-
lain svo að orði:
„Samtímis því, sem jeg
geri ráð fyrir, að gullinn-
lausn seðla verði á end-
anum ofan á, held jeg því
fram, að skilyrðin til þess
að gera slíka tilraun nú
sje mjög óhagstæð. Eins og
útlitið er nú í Evrópu, er
jafnvel minsta tilraun, til
þess að verðfesta gjald-
eyrir til Iangframa alveg
óhugsandi.“
Barnaskólinn í Stykkishólmi
var settur í gær. Nemendur verða
um 80. Mænusóttar hefir ekki
•orðið vart í hjeraðinu, svo AÚtað
sje. (F.Ú.).
Qagbók.
Veðrið (þriðjud. kl. 17) : Ný og
kraftmikil lægð er nú að nálgast
suðvestan af hafi. Vindur er A-
og NA um alt land og er yfir-
leitt hvass á N- og V-landi. A
Patreksfirði er veðurhæðin talin
10 vindstig eða rok. Á N- og A-
landi er nokkur rigning. Hiti er
2—5 st. norðanlands, en 6—10 st.
syðra. Lægðin mun herða enn á
A- pg NA-átt um alt land og má
búast við slyddu eða spjókomu
norðanlands á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hvass
A og NA. Úrkomulítið.
Kvennadeild Slysavarnafjelags
íslands heldur fyrsta fund sinn á
þessu hausti, miðvikud. 2- okt. kl.
&y2 síðd. í Oddfellowhúsimi. Fje-
lagskonur eru beðnar að f jöl-
menna sem mest, þar eð mörg
mikilsvarðandi mál liggja fyrir.
Missögn var í frásögn blaðs-
ins í gær í greininni um Blliheim-
ilið Grund, að Gunnar Sigurgeirs-
son, sem aðstoðaði Einar Markan
söngvara, er ekki söngkennari,
heldur þíanóleikari. Kennir hann
píanó og harmoniumleik.
Sjómannakveðjur.
Byrjaðir að veiða við Austur-
land. Kveðjur. Skipverjar á
Garðari.
Farnir áleiðis til Þýskalands.
Bestu kveðjur. Skipverjar á Maí.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Ólöf
Guðmundsdóttir og Bjami Jóns-
son, úrsmiður. Ileimili ungu hjón-
anna er á Laugaveg 28 C.
Hafsteinn seldi ísfisk í Eng-
lándi í gær fyrir 831 Stpd.
Jón Helgason biskup fór utan
með GullfosSi á sunnudaginn. Var
férðinni heitið til Parísar og ætl-
ar liann að sitja þar alheims
kirkjuþing lúterskra manna, sem
háð er þar um miðjan október.
Seinasta samskonar þing var háð í
Kaupmannahöfn 1929 og sóttu
það fimm íslenskir prestar, auk
biskups: síra Friðrik Hallgríms-
son, síra Ásmundur Gíslason á
Hálsi, síra Ólafur Magnússon í
Arnarbæli, síra Árni Björnsson
í Hafnarfirði og síra Ófeigur Vig-
fúsfcon í Fellsmúla. Ennfremur
sótti það þing fyrir hönd véstur-
íslenska kirkjufjelagsíns síra K.
K. Ólafsson. — 1 sumar helt hið
vesturíslenska kirkjufjelag hátíð-
legt 50 ára afmæli sitt, en þó
liörmulegt sje til þess að vita, sá
rílcisstjórnin ekki fært að þang-
að yrði sendur fulltrúi frá ís-
lenskn móðurkirkjunui, og tirðu
það, sem kunriugt er Vestur-ls-
lendingum sár vonbrigði
Karfinn. Eftir því sem danskur
fiskifræðingur segir, veiddu Þjóð-
verjar 16.000 tonn af karfa á
togara sína árið 1932. Var afli
þessi seldur á þýskum markaði,
og notaður til manneldis.
Dr, Lauge Koch landkönnuður,
hefir skýrt dönskum blaðamönn-
um svo frá, að ríkisstjómin hjer
hafi í huga að hita upp Reykjavík
með laugavatni. En eins og kunn-
ugt er, hafa fylgismenn stjórn-
arinnar ■ í bæjarstjórn Reykjavílr-
ur unnið gegn hitaveitumálinu og
greiddu þeir atkvæði á móti því,
að bærinn keypti hitarjettindin
að Reykjum.
Umsækjendur um þjóðskjala-
varðarstöðnna eru þeir: Barði
Guðmundsson, Kjartan Sveinsson,
Guðni jónsson, magister, dr. Guð-
brandur Jónsson, dr. Björn K.
Þórólfsson, dr. Einar ÓI. Sveins-
son, dr. Þorkell Jóhannesson.
Pjetur Zophoníassön og Jakob
Smári.
Árni Árnason, hjeraðslæknir í
óiaxsvík kefir samið áoktorsrit-
gerð um heilaslag og arfgengi, er
háskólinn hefir tekið gilda. Fer
doktorsvörn hans fram laugar-
daginn 12. október.
Dansleikur í sambandi við
verðlaunaútbýtingu frá leikmóti
Olympsnefndarinnar verður hald-
inn í Iðnó í kvöld kl. 10. Starfs-
mönnum og þátttakendum er
heimill aðgangur og öðrum með-
limum úr íþróttafjelögunum, með-
an húsrúm leyfir. Aðgöngumiðar
fást í Iðnó eftir klukkan 7 í
kvöld.
Heimatrúboö ieikmanna, Hverf-
isgötu 50. Samkoma annað kvöld
kl. 8. — í Hafnarfirði, Linnets-
stíg 2: Samkoma í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
Hafnfirðingar. Munið eftir sam-
komunni í húsi K. F. U. M. í
kvöld.
Kaupendur Morgunblaðsins —
þeir sem hafa bústaðaskifti núna
um mánaðamótin, eru beðnir að
tilkynna afgreiðslu blaðsins það
nú þegar, svo að komist verði hjá
vanskilum á blaðinu.
Fjelagsblað K. R. (1. blað 2.
árg.) er komið út. Formaður fje-
lagsins, Guðmundur Ólafsson, rit-
ar þar grein um starf og stefnu
K. R., H. K. segir frá Þýska-
landsför íslensku knattspyrnu-
mannanna, J. L- skrifar grein um
að standa í skilum, S. H. skrifar
um III. flokk K. R., Kristján L-
Gestsson um Ferðanefnd K. R. og
Húsnefnd K. R. Ýmislegt fleira
er í blaðinu. Þar eru og myndir
af K. R.-flokknum sem vann
drengjamótið í sumar, keppend-
um í AUsherjarmóti í. S. í- sem
K. R. vann nú í 4. sínn í röð,
flokknum sem vann drengjahlaup-
ið í vor (og fekk bikarinn til
eignar), myndir úr ferðalögum
ög mynd af húsnefnd K. R-
Af Fljótsdalshjeraði. Úr Jökuls-
árhlíð er skrifað: Hjer komu
svo miklar stórrigningar dagana
12.—17. september, að enginn man
eftir slíku. Hús og hey stór-
skemdust, jörðin sprakk í sundur
og fellu víða stórar skriður, sem
valda miklum skemdum. Brýr og
vegir eyðilögðust með köflum,
sjerstaklega hjer í Hlíðinni og
Ut-bal. Tjónið er svo mikið víða
hjer á heyjum og húsum að menn
standa agndofa og ráðalausir,
enda sennilega td lítils að leita
hjálpar hjá þingi og stjórn.
Útvarpið:
Miðvikudagur 2. október.
10,00 Veðurfregnir.
12.10 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Ljett kórlög (plötur).
20,00 Klukkusláttur.
20,00 Frjettir.
20,30 Upplestur: Úr kvæðum
Jóns Magnússonar (Sigurður
Skúlason magister).
21,00 Tónleikar: Æskuverk Beet-
liovens (plötur).
22,(X) Tónleikar Músík-klúbbsins á
Hótel ísland.
Járnbrautarslys.
varð nýlega í Louisíana í Banda-
ríkjunum. Flutningalest hrökk út
af járnbrautinni og við það kvikn-
aði í fimm olíuvagngeymum. Eft-
ir brunann fundust þarna fimm
lík af mönnum, sem stolist höfðu
með lestinni. Aðrir ,-blindir far-
þegar“, sem bjargað var, segja að
auk sín hafi 30—40 ínenn falið sig
í lestinni,, og hafa þeir allir farist
í eldinum.
Gölfteppi.
Ekta austurlensk, handhnýtt gólfteppi ca. 375x
400 cm., til sölu með tækifærisverði.
Vöruliiisið.
®’5inr
.M 19
FERRO-LARKIÐ
erheimsins besla poleclakk
SJERFRÆÐINGAR 1:
Ferbolakki,
Shellakki
Bæsun,
Trjelími-
Alt handa trjesmiðum
og húsgagnasmiðum. —
SIGBJÖRN BIRKELAND
BERGEN — NORGE.
i
Það borgar sig
að spyrja oss.
I
Bergen. — Norge.
Skrifið oss og frjettið um
vort lága verð. — Heild-
söluverð einnig á smá-
sendingum. — Fyrsta
flokks vara ábyrgst og
3anngjöm kjör. — Við
gefum upplýsingar um
verð og leiðbeinum. —
Skrifið því til oss í dag,
Samsæti
verður haldið fyrir fyrv. hjeraðslækni D. Sch. Thorsteins-
fc«L- “
son og frú hans, í tilefni af 80 og 75 ára afmæli þeirra,
laugardaginn 5. þ. m.
Áskriftarlisti liggur frammi í Oddfellow-húsinu.
t dag
opna jeg saumastofu í Mjóstræti 3. Þar verður saumað-
ur allskonar kven- og bamafatnaður. Stúlka, dálítið vön
kjólasaumi, getur komist að, einnig lærlingur.
Sólveig Guðmundsdóttir.
Skrifstofa Iðnsambands byggingarmanna
er fluit i SuðurgÖlu 3.
Fy rirliggf an di:
Haframföl - KartöfEumföl.
Hrisgrfén - Laukur.
Eggert Kristjtínsson & Co.
Sími 1400.
ESGLISH COHVERSATION
Reading, Writing, Literature and Business Methods
HOWARD LITTLE.
Laugaveg 5, — entrance from Traðakotsund.