Morgunblaðið - 27.10.1935, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavíkurbrjef.
26. október.
Fisksalan.
Gufuskipið Eros fór hjeðan í
gær með 775 smálestir af verk-
uðum fiski, aðallega til Norður-
Spánar.
Skipin Columbus og Edda eru
bæði að byrja hleðslu til Spán-
ar. Columbus tekur fullfermi ti]
Barcelona. Þegar er ákveðið að
Katla taki 800 smálestir, einnig
til Spánar, og verður sennilega
fullfermi.
í Portúgal hafa Norðmenn,
sem kunnugt er lækkað verðið,
og flutt inn allmikið í skjóli
þeirrar verðlækkunar. Þess
vegna hafa sölur legið niðri
hjeðan. En S. I. F. gerir sjer
vonir um nokkrar sölur í nóvem
ber.
Á Ítalíu er nokkur ágrein-
ingur milli stjórnarvaldanna og
S. í. F. út af magni því sem
íslendingar hafa flutt þangað í
ár, samkv. verslunarsamningn-
um, sem gerður var í Róm í
fyrravor. Telja ítalir að inn-
flutningurinn sje orðinn meiri
en samningar heimila og má
gera ráð fyrir að stöðvun verði
á útflutningi þangað, meðan
^tendur í þessu þrefi.
Til Suður-Ameríku hefir sal-
an gengið vonum fremur. Hefir
selst þangað um 12000 kassar,
eða ca. 700 smálestir, sem sum-
part er þegar farið.
S. í. F. er enn á ný að leitast
yið að koma á innflutningi til
Grikklands og er ekki talið von-
laust að það muni takast að ein-
hverju leyti nú í vetur.
Gamli maðurinn í
Sambandshúsinu.
Fyrir landkjörið 1930 gerði
gamli maðurinn sjer ferð kring-
um land til þess að afsanna dá-
lítið hvimleiðan grun, sem á lá
um heilsufar hans. Beindi hann
vilja sínum mjög að því, að
hafa hemil á geðsmunum sín-
um á fundum og koma fram
eins og siðaður maður. En stund
um fór þessi viðleitni alveg út
um þúfur, með þeim afleiðing-
um, að grunsemdimar um
heilsubrest hans jukust fremur
en rjenuðu við ferðalag hans.
Nú ætlar gamli maðurinn á
sama hátt að kveða niður þann
hvimleiða orðróm, sem vinir
hans hafa komið á flot, um að
ellimörkin sjeu þegar farin að
koma í Ijós hjá honum. Og enn
bregst honum bogalistin. Þótt
eitthvað snarki í illkvitninni, þá
bregður aldrei fyrir nokkru
leiftri. Allur broddur er af ádeil
unni, ekkert eftir nema sí-end-
urtekið leiðinda nudd, slitrótt
og máttvana japl nöldrunar-
samrar elli.
Þingfrí.
Þingmenn tóku sjer frí í dag,
fyrsta vetrardag, til þess að
skoða Geysi gamla gjósa, og
ljetta sjer upp eftir erfiði þing-
starfanna.
Þetta mun vera í annað sinn
sem þingfundir hafa fallið nið-
ur á virkum degi það sem af er
þessu þingi.
Fyrstu fimm dagana var þing
meirihlutinn að bræða með sjer
hvernig „endurreisa“ skyldi
Magnús Torfason sem þing-
mann, eftir að hann hafði sagt
sig frá uppbótar þingmensk-
unni fyrir bændaflokkinn.
Síðan hefir verið næsta dauft
yfir þingstörfunum. Samt eru
þingmenn þegar orðnir hvíld-
arþurfi, og velja virkan dag til
að skoða Geysi gjósa.
En Geysir heldur ekki hvíld-
ardaginn heilagan. Hann gýs
jafnt á sunnudögum, sem aðra
daga, ef sett er í hann sápa.
Því hefði mátt fresta förinni
til sunnudags, ef þingmeiri-
hlutinn fyndi til þess, að á þingi
væru verkefni, sem þurfa úr-
lausnar.
N áttúruskoðun.
Hjer í nærsveitum eru mörg
ásjáleg náttúrufyrirbrigði, og
mei'kir staðir sem kunnugt er.
Og úr því þingmeirihlutanum
finst það meira um vert, að
þingmenn noti þingtímann til
kynnisfara, heldur en að sitja
á rökstólum í sölum þingsins,
þá er líklegt, að þessi náttúru-
skoðun verði skipulögð. Væri
hagkvæmt að þingið leitaði til
Ferðafjelags íslands og fengi
þar snjalla og ötula leiðsögu-
menn. Fara má á Reykjanes,
skoða leirhverinn Gunnu, Bessa
staði, Gálgaklett í Garðahrauni,
Kópavog og Klepp.
Og næst þegar farið yrði
austur fyrir Fjall, mundi ýms-
um þykja vel við eiga að kynna
sjer hvernig „verkin tala“ á
Litla-Hrauni.
Sem sagt. Hjer gætu orðið
mörg „verkefnin“ og margir
frídagar fram undan.
En alþýða manna gæti hugg-
að sig við, að þá dagana, sem
hinir rauðu og rauðbröndóttu
þingmenn una hag sínum við
saklaust snuður um sveitir hjer
sunnanlands, gera þeir engin
axarsköft eða óskunda í þinginu
á meðan.
Verslunin og verðlagiS.
„Hve lengi á að misbjóða
þolinmæði vorri!“
Þetta er tónninn í sósíalistum
er þeir tala um verslunina og
verðlagið í landinu. Verðlagið
er of hátt. Kaupmenn okra á
vörunum. Við, segja þeir, þurf-
um að taka verslunina í okkar
hendur.
Hver bannar þeim að versla,
sósíalistum? Hafa þeir ekki sett
hjer upp hverja verslunina á
fætur annari, kaupfjelagsversl-
un, skattfrjálsa, og alt hvað
eina.
Og hvernig hefir farið?
Hvemig fór með kaupfjelag
Hjeðins og Jónasar frá Hriflu,
er seldi hinn fræga Viðeyjar-
fisk. Það leystist upp — eða
drabbaðist niður, eins og fisk-
urinn.
Og kaupfjelagið, sem Har-
aldur Guðmundsson stjórnaði.
Það fór á höfuðið. Og kaupfje-
agið sem hann Ingimar skóla-
stjóri og aðrir sósíalistabrodd-
ar stofnuðu, það fór líka á haus
mn — að svo miklu leyti sem
xví var ekki stolið.
Þannig er verslunarsaga sósí-
alista samfeld röð af „fallítt-
um“. Sú saga minnir á eyði-
merkurvegi, þar sem vegfarend
ur rekja sig áfram eftir blásn-
um beinagrindum fyrirrennar-
anna.
Hvers vegna?
Hvers vegna hafa verslanir
sósíalista ekki þrifist? Ekki
hafa útsvör og skattar íþyngt
þeim.
Er það af því að þeir hafa
ekki sta'ðist samkepnina við aðr
ar verslanir — ekki getað selt
vöruna sama verði og aðrir —
nema með tapi — og farið á
höfuðið með alt saman?
Og svo eru þessir menn að
tala um okurverð á nauðsynja-
vöru.
Því taka þeir sig ekki fram
og selja ódýrara. Þeir hafa
bærileg fjárráð, og nægileg
ítök í bönkunum.
En sannleikurinn er sá, að
fyrri tilraunir þeirra með hin
hrundu kaupfjelög hjer í
Reykjavík eru þeim næg við-
vörun.
Þeir vita sem er, að þeir eru
engir menn til þess að bjóða
lægra vöruverð í frjálsri sam-
kepni við aðra.
Og þess vegna gera þeir ekk-
ert, nema „brúka kjaft“.
En hve lengi ætla þeir •—
hinir kjaftforu ónytjungar, sem
alt setja á höfuðið, að misbjóða
þolinmæði manna með orð-
skvaldri sínu?
Hræðslan.
Eitt af megineinkennum nú-
verandi stjórnarherra er hræðsl
an. Við alla skapaða hluti erú
þeir hræddir.
Nokkrir unglingar klæddu
sig í vor í gráar skyrtur — og
nefndu sig Nazista. Þeir gengu
fylktu liði um göturnar.
í Alþýðublaðinu kom strax út
ávarp til þjóðarinnar um hættu
þá, sem stafaði frá þessum grá-
klædda hóp. í anda sáu hinir
sískelkuðu sósíalistabroddar
bardaga og blóðsúthellingar.
Mikið má samviska þeirra
vera bág, sem líða slíkar hræðsl
unnar kvalir.
Ráðherrarnir virðast ekki
bamanna bestir.
Hjer um daginn fann inn-
brotsþjófur skammbyssu í búð
Sigurgísla Guðnassonar við
Hafnarstræti. Byssan var tekin
af þjófnum og afhent Sigur-
gísla.
En eftir því sem skjólstæð-
ingar Hennanns Jónassonar,
kommúnistar, segja í málgagni
sínu, hefir þessi byssufundur
hjá Sigurgísla fengið mikil eft-
irköst.
Kommúnistar segja, að Her-
mann hafi orðið svo skelkaður
út af því, að Sigurgísli Guðna-
son, þessi staki hæglætismaður,
eigi skammbyssu, að hann sje
nú að semja lög um það, að eng-
inn megi bera vopn, nema hann
hafi til þess stjómarleyfi.
Á fundum.
Þegar Framsóknarmenn eru
á fundum í sveitum, er þeim
gjarnt á að útmála Reykvík-
inga eins og mestu óaldarseggi.
Það má vera að þetta vopna-
frumvarp Hermanns eigi að
vera handhægt umræðuefni á
slíkum fundum.
Það mun vera ætlunin að
veifa þeirri „staðreynd“ fram-
an í dalabændur, að hinn rögg-
sami ráðherra, herra kollu-bani
Hermann Jónasson hafi nú
blátt áfram borið fram frum-
varp á Alþingi um það, að eng-
Brauðgerð
Kaupffelags Reykfavikur
selur allar brauðvörur með sama Iága verðinu og áðuiv
AÐAL-tJTSÖLUSTAÐIR, Bankastræti 2, sími 4562.
Höfum þar öfluga útsendingarkrafta að senda brauðin.
um allan bæinn.
Brauðin eru einnig seld á:
Grandarstíg 2
Bergstaðastrœti 49
Bergþórugötu 23
Vatnsstíg ÍO
sírni 2904.
— 2858.
— 2033.
— 2015.
MUNIÐ LÁGA VERÐIÐ hjá Kaupfjelagsbrauðgerðinní,
sem selur ávalt GÓÐAR VÖRUR. — Reynið viðskiftin.
Brauðgerð Kaupfjelags Keykjavíkur,
Bankastræti 2. Sími 4562,
Spaðbjöf.
Höfum fyrirliggjandi úrvals dilkakjöt í heil-
um og hálfum tunnum.
Eggert Kristjdnsson & Co.
Sími 1400.
gott kaffi.
Þjer drekkið kaffi daglega, oft á
dag. Veljið því tegund, sem veitir
yður daglega ánægju.
„ARÓMA" er blandað áx sjerstak-
lega góðum kaffitegundum. Þess er
vandlega gætt. að það komist til
yðar ný-brent og malað.
Biðjið ekki um brent og malað
„kaffi", heldur „ARÓMA" kaffi.
KápuskinOy
iallegt úrval.
Silkfl sokkar,
margar feg.
Versl.Vlk.
Laugaveg 52.
Sími 4485.
Lifur og hjörtu,
Nýr Mör,
Nýtt Dilkakjöt,
úr Borgarfiröi.
AROM
KAFFI
Kjotbððin Herðubreið.
Hafnarstræti 18. Sími 1676.
inn maður, meðal hinnar frið-
sömustu þjóðar í heimi, megi
bera á sjer byssu, hvorki á
rjúpnaskyttiríi eða við önnur
tækifæri, nema að fá til þess
náðarsamlegt leyfi stjórnarvald
anna.
En þegar einhver bóndinn
kann að spyrja, hvert hafi ver-
ið tilefni þessa, þá hafi þeir
^ramsóknarmenn svar á reiðum
Odýrt ennþá.
Pottar xnéð lold 1.00
Yasaljós með battarie 1.00
Vasaljósaperur 0,15
Battarí 0,50
V ek jaraklukkur 5.00
Vasaúr, herra 18.00
Armbandsúr, dömxx 18.00
Sjálfblekungar, 14 karat 5,00
Sjálfblekungasett á 1.50
Litarkassar, barna 0.35
Reykelsi, pakkinn 0.50
Höfuðkambar, fílabein 1,25
Ilöfuðkambar, svartir 0,35
Taxmburstár í hulstri 0.50
Rafmagnsperur, Osram 1.00
löndum.
Grípa þurfti í taumana, Sig-
urgísli hjá Zimsen átti skamm-
xyssu!
C. Eflnamon
& BlOrnnnon,
Bankastraeti 11.