Morgunblaðið - 23.11.1935, Blaðsíða 2
Z
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardaginn 23. nóv. 1935,
JílorfitmHaMð
Útgef.: H.f. Arvakur, Reykjaylk.
Rltatjörar: Jön KJartanason,
Valtí'r Stefánaaon.
Rltstjörn og afgreiösla:
Austurstrætl 8. — Sítni 1600.
A'iglýsingastjöri: R. Hafbergj.
Auglýsingaskrlfstofa:
Au turstrætl 17. — Sfml 8700.
Heimaslmar:
Jön Kjartansson, nr. 8742.
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 8046.
E. Hafberg:, nr. 8770.
ÁskriftagrjaW: kr. 8.00 á mánuBl.
1 lausasölu: 10 aura elntakiS.
20 aura meii Lesbök.
Skyr og rjómi.
Aldrei þessn vant minnist Al-
þýðublaðið í ekki á nein
„svik“ eða „stórgiépif í samþandi
við m.jólkursóluna, Oa:ti þetta ver-
ið bending .uni [iað. að hinir
gætnari menn flokksins bafi nú
íoksins tekið í taumana, eftir að
blaðið h^fif veri§(rekið svo eftir-
minnilega á stampjnn í umræðun-
um og ritstjóri ;þe|s fengið svo
maklega ráðningi[_ ,JSr það og
á allra vitorði, ^ð )tþin síendur-
teknu frumhlaup Finnboga Rúts
í þessu máli hafa mælst afar illa
fyrir meðal flokksmanna hans, og
þykir þeim flestum skömm til
lians koma, sem vonlegt er.
Hjer í blaðinu birtist í dag
viðtal við Sigurð Pjetursson
gerlafræðing. Er ritstjóra Al-
þýðublaðsins bent á að lesa þetta
viðtal, og vita hvort hann finnur
ekki í því eitthvert tilefni til
feitletraðra fyrirsagna um „svik“
og „glæpsamlegt“ atferli, ef hann
skyldi fá eitt kastið enn.
Eða hvað segir ritstjóri Al-
þýðublaðsins um það, að mjólk-
ursölunefndin hefir selt bæjarbú-
um rjóma, sem inniheldur minna
fitumagn en ákveðið eT? Ef
Mjólkurfjelag Re'ykjavíkur og
Eyjólfur Jóhannsson hefðu selt
slíka „svikna“ vöru, þá hefði Al-
þýðublaðið varla sparað fyrir-
sagnirnar um „ný svik“ og „nýtt
glæpsamlegt atferli“, „vörusvik í
stórum stíl“ o. s. frv.
En auðvitað þegir Alþýðu-
blaðið af því vinur þess, klerk-
urinn á Breiðabólstað á í hlut, og
af því að blaðið hefir fengið sinn
ágóðahlut af þessum „vörusvik-
um“.
Eða þá skyrið? Það hefir ver-
ið svo illa tilbúið, að nále'ga tókst
að venja Reykvíkinga af neyslu
þessarar þjóðlegu og hollu fæðu.
Hefir skyr þetta verið nefnt
„graðhestaskyr“ eftir samskonar
vöru sem fyrrum var notuð til
Skepnufóðurs.
En það er til marks um „vöru-
svikin“ að því er skyrið sneTtir,
að einn af dauðsþökustu tagl-
hnýtingum síra Sveinbjarnar
Högnasonar, sem fekk eins og
aðrir bændur skyr sent heim sem
greiðslu fyrir mjólkina, hafði
þau orð um það, að hann yrði að
krydda það handa hundunum!
Það verður víst tæplega kom-
ist lengra í „vörusvikum“ en að
búa til skyr, sem þarf að krydda
svo það geti heitið hundamatur.
Færi vel á því að aðstandendur
Alþýðublaðsins sleptu villidýrinu
lausu og ljeti það gæða sjer
nokkra daga á „rjómaglundri“ og
„hundamat"!
Hran yfirvofandi
í Frakklandi?
Vinstrjflokkarnir ætla að steypa stjórn Lavals ef
fasistafjelðgin verða ekki leyst upp.
Gengisfall frankans óhjákvæmilegt.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
1 EYfir Frakklandi vofir algfört
fjárhagslegt* og stjórnarfars*
legt liruii.
Vinstriflokkarnir hafa afdráttarlaust neitað
að fallast á bráðabirgðalöggjöf Lavals, sem sett
var til viðreisnar f járhag franska ríkisins.
Verður því að teljast óhjákvæmilegt að stjórn
Lavals falli næstkomandi fimtudag, er þing kem-
ur saman.
Sundrung sú, sem ríkir innan vinstriflokkanna
sem meirihluta hafa í franska þinginu, mun hins-
vegar valda því, að ekki verður hægt að mynda
nýja stjórn í Frakklandi.
Algjört stjórnarfarslegt hrun er því yfirvof-
andi.
Krafa vinstriflokkanna um það, að facista-
flokkarnir í Frakklandi verði afvopnaðir og leyst-
ir upp, kann auk þess að leiða til þess, að facistar
reyni að gera uppreisn.
Mun af því leiða blóðug bylting, miklu víðtæk-
ari og ægilegri en þekst hefir fyr.
Ná er ekkft lengur ræftt um
það hvort franskft frankftnn fallft
ár gullgftldi, ftieldur liilt, liversu
hrun hans verðft mftklÖ.
Ótal ill öfl hafa stuðlað að
því að draga Frakkland að
barmi stjórnarfarslegs og fjár-
hagslegs hruns.
Fjármál Frakklands eru í
botnlausu öngþveiti.
Herriot,
formaður radikal-sociala flokksins,
sem styður Laval. Radikal-sociali
flokkurinn telst til vinstri flokk-
anna og er öflugsti flokkur
franska þingsins.
Tekjuhalli á fjárlögam er!
gífurlegur, og skuldir ríkisins j
við þjóðbankann meiri en j
nokkru sinni.
Krefst fjárhagsöngþveiti *
þett.a skjótra aðgerða, ef forða
á ríkisgjaldþroti og hruni frank
ans.
Vinstriflokkamir hafa hins-
vegar andæft þeim ráðstöfun-
um, sem Laval hefir gert til
sparnaðar á ríkisútgjöldum.
Laval hefir undanfarið verið
að reyna að ná samkomulagi
við vinstriflokkana, með því að
milda löggjöfina, einkum að því
er lýtur að sparnaði við kaup-
greiðslur ríkisins.
Hefir staðið í þófi um þetta
undanfarið,
en í dag varð það ljóst,
að ekkert samkomulag
myndi nást.
Laval.
Hrun frankans
óhjákvæmilegt.
Eftir þetta mun tæplega
verða hjá því komist að gengi
frankans hrynji.
Franskir innstæðueigendur
eru orðnir hræddir og eru farn-
ir að taka innstæður sínar út
úr bönkunum.
Fer fjárflótti frá Frakklandi
stöðugt vaxandi.
Franski þjóðbankinn hækkaði
forvexti fyrir skömmu um einn
af hundraði í 4%, til þess að
stemma stigu fyrir gullflóttann.
Samt sem áður nam
gullflótíinn á síðustu
viku þúsund miljónúm
franka.
Forvextir hækka
. í 5’/o
í gær hækkaði Frakklands-
banki forvextina aftur um einn
af hundraði.
Gulltrygging Frakklands
banka nemur þó ennþá 73.8%,
af seðlaútgáfunni, og hefir
bankinn því enn um stund við-
námsþol gegn gullflóttanum.
Forvaxtahækkunin leiðir auk
þess í ljós, að Frakklandsbanki
muni gera sitt ítrasta til þess að
halda í gengi frankans.
,,The Times“ telur þó
að nú sje ekki lengur um
það að ræða hvort gengi
frankans falli. Það sje
óhjákvæmilegt.
Hitt skifti mestu máli
hvort takast muni að
stöðva hrunið og forða
Frakklandi frá verð-
bólgu.
Upplausn fasista-
fjelaganna.
Ofan á þessi fjárhagslegu
vandræði bætast næstum óvið-
ráðanleg pólitísk vandamál.
Um .langt skeið hafa vinstri-
flokkarnir í Frakklandi krafist
þess, að facistafjelögin frönsku
yrðu leyst upp.
Kröfur þessar hafa orðið há-
værari með degi hverjum, eink-
um eftir að Sló í bardaga milli
socialista og „Eldkross“-facist-
anna í Limoges fyrir skömmu.
Laval hefir veigrað sjer við
að verða við kröfum vinstri
flokkanna í þessu efni.
þar sem hann óttast að
facistar muni gera bylt-
ingu ef við þeim verði
hreyft.
Hálmsfrá?
Það er aðeins eitt sem
getur bjargað Laval, og
um leið forðað hinu yfir-
vofandi hruni.
Sundrungin sem ríkir
innan vinstri flokkanna
mun e. t. v. geta opnað
augu þeirra fyrir hætt-
unni, sem vofir yfir, ef
Laval fellur og ekki
verður hægt að mynda
nýja stjórn á örskömm-
um tíma.
Páll.
Leon Blum,
foringi socialista, sem háværastir
eru í kröfum sínum um upplausn
fasistaflokkanna.