Morgunblaðið - 23.11.1935, Side 3
Laugardaginn 23. nóv. 1935.
MORGUNSLAÐIÐ
3
Baráttan um sjálfsábúðina.
Þegar á herti þorðu Tímamenn ekki að standa
með sósíalistum í jarðeignaráninu.
Stef na rauðliða:
Jarðirnar af
bændum.
Tíundi liðurinn í „Rauðu stjóm-
arskránni“, þ. e. samningi þeim,
er sósíalistar og Tímamenn gerðu
þegar þeir mynduðu stjórn í
fyrrasumar var svohljóðandi:
„Að afnema þegar á næsta
þingi lög um þjóð- og kirkju-
jarðarsölu og setja jafnframt lög-
gjöf um erfðafestuábúð á jarðeign
um ríkisins. Jafnhliða sje undir-
búin löggjöf um jarðakaup rík-
isins, er komi til framkvæmda
eigi síðar en í ársbyrjun 1936“.
Stéfna sú, sem hjer var mörk-
uð /var komin beint frá sósíalist-
um. Hún var að efni til sam-
hljóða 5. lið „4. ára áætlunar“
sósíalista, er gefin var út fyrir
síðustu kosningar. Þar se'gir svo:
„Að taka fyrir alla þjóðjarða-
sölu, tryggja ríkinu forkaupsrjett
að öllum jörðum, er ganga kaup-
um og sölum, og setja lög um
erfðafestuábúð leiguliða á ríkis-
jörðum, með hagkvæmari skilmál-
um fyrir þá en sjálfseigna-bænd-
ur eiga nú alment við að búa“.
Rauðliðar fóru ekki dult með
fyrirætlan sína í þessu höfuðmáli
landbúnaðarins. Það var þjóðnýt-
ingarstefnan, sem hjer skyldi
ráða.
Á haustþinginu í fyrra reyndu
rauðliðar að koma þe'ssari „hug-
sjón“ sinni í framkvæmd. Þeir
fluttu frumvarp, sem bannaði
fjölgun sjálfseignárbýla í land-
inei. Því fylgdi annað frumvarp
um erfðaábúð leiguliða, þar sem
ráðgert var að afgjöldin skyldi
nota til þess að kaupa smám sam-
an tipp jarðirnar og gera þær að
ríkiseign og ábúendur að leigu-
liðum ríkisins.
Stefna Sjálfstæð-
ismanna: Efling
sjálfsábúðar og
fölgun sjálfseign-
arbænda.
Sjálfstæðismenp mótmæltu þeg-
ar á haustþinginu í fyrra þessari
herferð gegn sjálfsábúðinni.
Þeir mörkuðu svo sína stefnu í
þessum málum með frumvarpi
Jóns Sigurðssonar á Reynistað, um
ættaróðal og óðalsrjett.
Þar var lögð áhersla á, að
jarðirnar geti haldist í sjálfs-
ábúð og að sjálfseignarbændum
fjölgi. Þar var reynt að glæða
og þroska heilbrigðan ættarmetn-
að og trygð bænda við föður-
leyfð sína og íslenskan landbún-
að. Jafnframt var stefnt að því,
að stöðva fjárflóttann úr sveit-
unum og að aflafje bænda stöðv-
aðist í sveitunum sem arfur ætt-
arinnar.
Þessi ste'fna Sjálfstæðismanna
var bygð á þeirri sannfæringu,
„að efling sjálfsábúðarinnar sje
eitt helsta grundvallaratriðið
fyrir jafnri og áframhaldandi
þróun landbúnðaarins“, eins og
Jón á Reynistað komst að orði í
greinargerð fyrir frumvarpi sínu.
Ennfremur sagði hann: „í sjálfs-
ábúðarskipulaginu felst dýrmæt-
ur aflgjafi, sem íslenskur land-
búnaður má síst án vera“.
Málinu vísað tii
Búnaðarfjelags-
ins.
Landbúnaðarnefnd ne'ðri deild-
ar ákvað í vetur að senda Búnað-
arfjelagi íslands öll þessi mál til
athugunar.
Málið var þó aldrei borið und-
ir stjórn Búnaðarfjelagsins. í
þess stað tóku þeir sig til, Stein-
grímur Steinþórsson, Páll Zóp-
honíasson og Bjarni Ásgeirsson
og suðu upp nýtt frumvarp, þar
sem tekin voru upp ákvæðin úr
frumvarpi sósíalista um afnám
sölu þjóð- og kirkjujarða; einnig
var þar tekið upp frumvarpið
um erfðaábúð og það lagfært á
ýmsa ve'gu og þar að nokkru
stuðst við áltvæði í frumvarpi
Jóns á Reynistað um ættaróðal og
óðalsrjett.
Loks var tekið upp í frumvarp-
ið frumvarp Jóns á Reynistað um
ættaróðal óg óðalsrjett, því mis-
þyrmt á ýmsa vegu, m. a. feld
burtu flest ákvæði er gátu bent
til þess, áð jörðin væri éign. Yfir-
leitt var reynt að gera frum-
varpið sem líkast frumvarpinu um
erfðaábúð leiguliða. Þannig mátti
jörðin aðeins ganga í arf til beinna
afkomenda (börn, foreldrar). Ó-
heimilt var að gefa jörðina, þótt
engir erfingjar væru til. Fjéll þá
jörðin í eign ríkisins endur-
gjaldslaust.
Nýtt frumvarp.
Samkomulags-
grundvöllur.
Landbúnaðarnefnd neðri deild-
ar sá sjer þó ekki fært að flytja
samsuðufrumvarp þeirra þre-
menninga, eins og frá því var
gengið.
Nefndm breytti frumvarpinu á
marga vegu, sjerstaklega á þá
lund, að auka rjett jarðeigenda og
tryggja það, að ættin nyti jarð-
arinnar.
Ennfremur voru sett inn þau
ákvæði, að þjóð- og kirkjujarðir
mætti selja, ef þær væru jafn-
framt gerðar að ættaróðali.
Nefndin bar málið fram í
þessum búningi. Og neðri
deild samþykt frumvarpið í
þessari mynd með nokkrum breyt-
ingum.
Eins og neðri deild ge'kk frá
þessu máli, var það ekki fyllilega
eins og Sjálfstæðismenn höfðu
kosið. Sjerstaklega var það kafl-
inn um ættaróðal og óðalsrjett,
sem þeir voru ekki ánægðir með.
En málið, eins og það lá nú
fyrir, var nánast samkomulags-
grundvöllur milli Sjálfstæðis-
manna og Framsólmarmanna.
Þannig fór málið til efri deild-
ar. Þar urðu e*ngar breytingar
gerðar á frumvarpinu og er það
nú orðið að lögum.
Sjálfsábúðin sigrar.
Sósíalistar risu frá öndverðu
gegn þessu máli bæði á þingi og
einnig í flokksblaðinu. Þeir töldu
að Framsóknarmenn hefðu svikið
samninginn, sem gerður var við
st j órnarmy ndunina.
Ekki veTður um það deilt, að
lögin um erfðaábúð og óðalsrjett,
eins og Alþingi samþykti þau,
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
eru mjög á annan veg en stjórnar
samningurinn mælir fyrir um, og
er því skiljanlegt, að sósíalistar
sjeu‘ gramir.
Sósíalistum var sýnd veiðin, en
ekki gefin. Þeir vildu stefna þessu
máli inn á þjóðnýtingarbrautina,
en Framsóknarmenn þorðu ekki,
er á herti, að standa við gefin lof-
orð í þessu efni.
Sjálfsábúðinni hefir verið bjarg-
að í bili.
Japanirvilja
vera einir
umKína!
Berlin, 22. nóv. FÚ.
Japönsk blöð eru um
þessar múndir mjög
harðorð í garð Breta í
greinum sínum um á-
standið í Kína.
Enska blaðið Times segir um
undanfarna atburði þar austur
frá, að Japan sje potturinn og
pannan í því öllu.
Japan ætli sjer að stofna nýtt
leppríki milli Mansjúríu og
Mið-Kína, segir blaðið og að
Bretar verði að halda fast fram
kröfunni um jafnrjetti í Norð-
ur-Kína.
Eldurkemur upp
[ vjelbát f rúmsjó
ÍTTTTt-
Bálurinn dreg-
Inn brennandl
til Keflavíkur.
Eldur kom upp í vjelbátn-
um „Franz“ frá Keflavík í
gærkvöldi er hann var á
heimleið frá dragnótaveið-
um í Garðssjónum.
í gærmorgun Ýór vjelbáturirm
Franz frá Keflavik, til arágnóta-
veiða í Garðssjónúni.
Um kl. 10 í g'ærkvöldi er hann
var fyrir fráman Leirur, á heim-
leið, kom alt^ í giiiu iipp eldur í
vjelaniminu gátu skipverjar
tkki við neitt ráðið.
Vjelbáturinn „Aðalbjörg" úr
Reykjayík va,r þarna nálægt og
ltom hann ]>Q"ar skipverjum til
aðstoðar.
•. f: a
Vjelbátarnir liöfðu báðir
slökkvitæki um borð, „Franz“
eitt og „Aðaihjörg;" tvö. Var
reynt að kæfa eldinn með þeim,
en tókst ekki.
„Aðalbjörg“ tók því hinn
brennandi vjelbát. í eftirdrag og
dróg hann tiL Ke'flavíkur og var
kominn þangað rueð hann klukk-
an um 11.
Kom nú slökkvilið Keflavíkur
á vettvang og tókst því að
slökkva eldinn} í. bátnum á 15
mínútum. . , . ,
Vegna myrkurs var ekki hægt í
gærkvöldi að segja hvaða skemd-
ir hafa orðið ,á bátnum, en búist
er við að þasr sjeu miklar.
Vjelháturinn „Franz“ er 8
smálestir að stærð, eign Jóhanns
Guðjónssonar
Báturinn vár vátrygður hjá
Brunabótafjelagi íslands fyrir 8
þúsund krónur.
Maðurinn I gapastokknum.
Allir stjórnendur síldarverksmiðja
ríkisins fyr og síðar hafa kvartað
undan framferði Þormóðs Eyjólfs-
sonar í verksmiðjustjórninni.
Eftir Svein Benediktsson.
Árás sú er Þormóður Eyjólfs-
son, formaður stjórnar síldar-
verksmiðja ríkisins, hóf í blöð-
unum á meðstjórnendur sína út
af uppsögn Jóns Gunnarssonar,
hefir leitt til þess, að umræð-
urnar hafa snúist inn á þá þraut
að ræða framkomu Þormóðs
sjálfs í verksmiðjustjórninni.
Þormóður er nú lentur í þeim
ógöngum, með að verja afglöp
sín, að hann lætur dagblaðs*-
nefnu Hriflunga draga nafn
látins manns og látinnai’ konu
hans inn í umræðurnar og það
með þeim endemum, að engúm'
er samboðið, nema honum bg
,,nárottunni“ frá Hriflu.
Hin blygðunarlausa, bræsni
hans kemur einna skýrast fram,
er hann býsnast yfir því, að
fulltrúar sósíalista í verksmiðju-
stjórninni skyldu virða mig við-
tals um þær mundir, sem frú
Ebba Flóventsdóttir, ekkja Guð
mundar heitins Skarphjeðins-
sonar, ljest af tæringu í Kaup-
mannahöfn s.l. vor.
En sjálfur bauð Þormóður
mjer heim til sín í veislu, sem
hann hjelt með rausnarlegum
veitingum og dansi, að kvöldi
þess dags, sem lát frúarinnar
hafði frjest til Siglufjarðar.
Það er undarlegt álit, og virð-
ist sprottið upp í heila sálar-
sjúks manns, að stjórna beri
stærsta atvinnufyrirtæki ríkis-
ins með tilliti til sjúkdóms og
dauða íslenskrar konu úti í
Kaupmannahöfn.
Þormóður Eyjólfsson hefir
átt sæti í stjórn síldarverk-
smiðja ríkisins frá upphafi, eða
fráj^ársbyrjun 1930.
Hann kom þangað fyrst sem
fulltrúi Síldareinkasölunnar.
1 fyrstu tvö og hálft árin átti
Guðm. Skarph j eðinsson, sem
fulltrúi Siglufjarðarkaupstaðar,
og jeg, sem fulltrúi ríkisstjórn-
arinnar, sæti með honum í
stjórninni.
Þá strax hóf Þormóður þann
leik sinn að selja verulegan
hluta af afurðum verksmið j-
anna, án þess að leita ráða með-
stjórnenda sinna.
En þegar frekjan gekk svo
lang þann 10. okt. 1931, að
hann seldi heilan skipsfarm af
lýsi verksmiðjanna fyrir lágt
verð, þvert ofan í skjalfest fyr-
irmæli meirihluta verksmiðju-
stjórnarinnar, flutti jeg tillögu
um það á fundi í stjórninni, að
hann yrði látinn bera f járhags-
lega ábyrgð á sölunni, eða segði
sig úr verksmiðjustjórninni, að
öðrum kosti,
Út af tillögu minni um þetta
Jjet Guðm. Skarphjeðinsson
bóka:
... „Jeg tel ,að í yfirlýsingu
piinní um þ^ð að Þ. E. beri
'aByrgÁ p * 1 liiliræddri sölu,
' komi það fram. að hann verði
I T öllú að tevara til afleiðinga
: fyíir verksmiðjuna út af
þessu, _ef;Lrafist verður af
hráefniséigendum. Hins veg-
. ar tel jeg óheppilegt vegna
framtíðarviðskifta verksmiðj-
| unnar við þá, sem keypt hafa
lýsið og aðra, að ónýta nú
söluna, geti Þ. E. sjálfur ekki
fengið henni riftað“.
i Skaði verksmiðjanna vegna
hinnar heimildarlausu sölu Þor-
móðs nam stórfje.
Þormóður Ijet gera reikninga
verksmiðjunnar fyrir árið 1930
þannig úr garði, að þeir sýndu
hagnað, sem nam kr. 432.83,
enda þótt þá væri komið í ljós,
að raunverulegt tap verksmiðj-
unnar væri orðið kr. 65.857.57.
Þormóður fjekst ekki til þess
að leiðrjetta reikningana fyr en
eftir mikið stapp.
I Hann sendi endurskoðendum
verksmiðjureikninganna, sem
höfðu, ásamt mjer ,krafist leið-
rjettingar, skætingsbrjef og
taldi þá- hafa farið út fyrir
starfssvið sitt.
Sama sagan endurtók sig með
verksmiðjureikningana fyrir
árið 1931.
Skrifaði jeg þá athugasemd
ir við reikningana, eins og Þor
móður ljet ganga frá þeim,
og kom með tillögur til breyt-
inga. Þessar tillögur sendi jeg
atvinnumálaráðuneytinu. Ráðu-
neytið sendi svo reikningana á
samt. tillögum mínum til sjávar-
útvegsnefndar Nd. Alþingis til
umsagnar.
¥7___L-1 J