Morgunblaðið - 06.12.1935, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Föstudaginn 6. des.
1935.
■M$I **£
nmH
HEFJA
ÁÐER EN OLÍUBANNlNf
Sjerfræðingar hafa fundið
nýjan sáttagrundvöll.
Bretar kalla beitiskip
á brott frá Gibraltar.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
Samkomulag hefir náðst með frönskum og
enskum sjerfræðingum um ilýjan sáttagrundvöll
í Abyssiníudeilunni.
Sáttagrundvöllurinn er í aðalatriðum þessi:
Italir og Abyssiníumenn hafa skifti á land-
svæðum af frjálsum vilja.
ítalir láta af hendi við Haile Selassie hafn-
arborgina Assab í Eritreu og hlið til hafs.
í stað þess fái ítalir hluta af fylkjunum
Tigre og Ogaden.
Þeir hlutar Abyssiníu sem ítalir hafa söls-
að undir sig verða hinsvegar ekki viðurkendir
sem rjettmætir landvinningar ítala.
Og yfirráð Haile Selassie, keisara, í þeim
hluta Abyssiníu, sem hann heldur eftir, verða
óbreytt.
Tillögur þessar virðast fela í sjer örlitla vonarglætu
um það, að takast muni að leiða Abyssiniudeiluna til frið-
samlegra lykta.
Mussolini hefir þó afdráttarlaust neitað því, að leggja
á borðið tilboð af hálfu Itala til friðarsamninga.
En þó er talið að hann sje fús til samninga, ef
Haile Selassie ríður á vaðið.
Margir búast því við því, að Sir Samuel Hoare muni
leggja það til við Haile Selassie, að hann bjóði fram
sættir.
Sir Samuel ver heilsu-
bótarieyfinu til
sáttaumleitana!
Nú er alment talið að Sir
Samuel Hoare muni í heilsu-
bótarorlofi sínu" gegn ýms-
um stórpólitískum samninga-
gjörðum við Mussolini og
Laval.
Sir Samuel fer á fund
Lavals í París á morgun.
Bretar telja að á fundi
þessum muni verða gerð
fyrsta og mikilvægasta
tilraunin til að koma á
friði í Austur-Afríku.
Erlend blöð telja að Sir
Samuel muni einnig eiga við-
tal við Mussolini í ítalíu, en
þeirri fregn er neitað opin-
berlega í London.
Brefar og Frakkar
liræddir við
olíubannið.
Samningar Sir Samuel og La-
val í París hafa opnað augu
manna fyrir því, að bæði breska
og franska stjórnin vilja í
lengstu lög komast hjá því að
skelt verði olíubanni á Itali.
Þessvegna vilja þeir ganga
úr skugga um það, hvort
engin leið sje til þess að
koma á sáttum milli Musso-
lini og Haile Selassie, áð-
ur en refsiaðgerðanefndin
kemur saman þ. 12. des.
Ef engin lausn verður
fundin fyrir 12. desem-
ber verður ekki hjá því
komist að Þjóðabanda-
lagið banni útflutning
á olíu til ítalíu.
Frakkar álíta hinsvegar, að
Þjóðabandalagið hætti sjer út
á hála braut ef það samþykkir
olíubannið.
Ennfremur óttast Frakkar
að olíubannið muni rifta
gjörsamlega vináttutengsl-
um Frakka og ítala.
Ótti Breta við olíubannið
virðist einnig vera að færast í
aukana.
Mussolini vill frið.
Frakkar telja einnig að frið-
arhorfur sjeu nú bjartari.
Segja þeir að Mussolini sje
farinn að óttast afleiðingar
refsiaðgerðanna.
Hann sje farinn að
óttast að þær leiði hann
sjálfan á höggstokkinn.
Samuel Hoare.
Það er talinn vottur
þess að Bretar vilja fyr-
ir hvern mun ná samn-
ingum við Mussolini, að
tvö beitiskip 'og fjórir
tundurspillar hafa verið
kallaðir á brott frá Gi-
braltar.
Er látið í veðri vaka
að skip þessi eigi að taka
þátt í flotaæfingum
breska Atlantshafsflot-
ans.
En Bretar hafa, fram til
þessa, jafnan neitað því af-
dráttarlaust að draga úr flota-
veldi sínu við Gibraltar, fyr en
Mussolini hætti stríðinu.
Páll.
Laval heldur
ennþá velli.
Atkvæðagreiðslan
fer fram í dag.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Atkvæðagreiðslunni
um fasistaf jelögin, og
um leið um örlög La-
vals, hefir verið frestað
þar til á morgun.
Þingmenn radikal-
sósíala ætla að koma
saman á fund í kvöld.
en á þeim fundi verð-
ur tekin ákvörðun um
atkvæðagreiðsluna á
morgun.
Miklar æsingar voru á þing-
fundi í dag og er þess getið m.
Danskir vísinda-
menn kveða
Lauge Koch
niður.
Ófögur lýsing
á vísindasvindli
hans.
Bæklingur vísinda-
mannanna ellefu, sem
ráðist hafa að dr. Lauge
Koch fyrir nýjustu bók
hans um jarðfræði
Grænlands, kom út í
gær.
I bæklingnum segir um bók
Kochs, að hún sje
eikmannsleg, röng, hlut-
dræg, með skýlausum
villum, vítaverðum und-
andrætti á staðreynd-
um, rangsnúnum tilvitn-
unum, og mótsögnum.
Koch hafi stolið úr verk-
um annara og gert lítið
úr öðrum vísindamönn-
um á ósvífinn hátt.
Koch telur árásir vísinda-
mannanna ranglátar.
PáU.
Frystur fiskur
til Ameriku.
Ný aðferð fundin
í Danmörku.
KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS/
Menn gera sjer nokkr-
ar vonir um að fiskveið-
ar Dana geti haft gagn
af því, að fundin er ný
aðferð til að frysta fisk,
sem gerir það að verk-
um, að fiskurinn verður
alsendis óskemdur, þó
hann sje geymdur í 5-6
vikur.
Það er tilraunastöð fiskveið-
anna í Danmörkú, sem fundið
hefir upp aðferð þessa.
Búast menn við því, að með
því að nota þessa frystiaðferð,
geti danskir útgerðarmenn
komið sjávarafla sínum 1 fjar-
læg markaðslönd, sem þeir hafa
ekki náð til áður.
Fyrsta sporiS í þessa átt verð-
ur það, að seldur verður frystur
fiskur frá Danmörku til Banda-
ríkjanna. Er það bifreiðaf jelag-
ið General Motors, sem gengst
mu
Einkaflugvjelar í stað
einkabifreiða.
„Elugan flýúgandi4* ,
fer yfir Ermasund.
KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Flugvjel við hæfi
meðalefnaðra einstak-
linga hefir nú verið
gerð!
Enskur flugmaður fór
í dag í flugvjel, sem
kostaði undir 100 ster-
lingspundum, yfir Erma-
sund á 35 mínútum.
Flugvjelin {,,er knúin
áfram með 10 hestafla
bifreiðahreyfli og getur
farið um 120 km. á klst.
Flugmaðurinn heitir Apple-
by. Smíðaði hann flugvjelina
sjálfur og kallar hana ,,The
Flying Flea“.
Appleby telur að með flug-
vjel þessari sje fundin upp bin
handhæga einkaflugvjel, sem
geti orðið ódýrari í kaupum og
rekstri en jafnvel bifreið.
Á leiðinni yfir Erma-
sund notaði Appleby
ekki full tvö gallon af
benzíni.
Páll.
Þegar I«lendingar
ælfuðu að selja
fryslan fisk til
Ameríku.
Eins og mönnum er kunnugt
kom það til orða í sumar, að
hægt væri að selja sáltfisk hjeð-
an fyrir mjög hagstætt verð til
Ameríku, með þeim skilmálum,
að leyfður yrði innflutningur á
bílum fyrir nokkurn hluta and-
virðisins. *
En gjaldeyrisnefrid hefir, að
því er blaðið best veit, tregðast
við að hleypa íslenskum salt-
fiski á þann hátt ihn á ónumda
markaði Bandaríkjanna. Það
var sama fjelag, sem ætlar að
kaupa fiskinn í Danmörku, er
bauðst til að kaúpa saltfiskinn
hjer.
Bein ferð frá Spáni fyrir ára-
mót. ,,Edda“ hleður í Valencia
næstkomftndi mánudag beint til
Reykjavíkur, verði um nægan
flutning að ræða. Er þetta sein-
asta tækifæri til að koma vörum
hingað frá Spáni fyrir nýár.
fyrir viðskiftum þessum, þar eð
a. að varaforseti þingsins hafi fjelag þetta hefir unnið að því,
brotið reglustriku sína, er hann að selja bíla til Danmerkur,
var að reyna að kveðja sjer með þeim skilyrðum, að taka
hljóðs. UPP * andvirði bílanna.
Páll. i Páll.