Morgunblaðið - 17.01.1936, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.01.1936, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 17. ján. 1936. Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar 1936. Sósfalistar fella sparnaðartillögur S j álf stæðismanna. ______ I Á þriðjudaginn var fjárhags- áætlun Hafnarfjarðar fyrir árið 1936 til 2. umræðu í bæjarstjórn- inni þar. Urðu umræður allsnarp- ár á köflum og stóðu yfir fram á nótt. Það olli mestum ágreiningi, að Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn voru því andvígir að útsvörin yrðu hækkuð nokkuð verulega, frá því sem var í fyrra, en jafnaðarmanna meirihlutinn lagði það til, að hækka útsvörin úr kr. 242.500 í kr. 278.360, eða um kr. 35.860. Sjálfstæðismenn vildu aftur á móti draga svo úr útgjöldum bæj- arins, að hækkun útsvara þyrfti ekki 'áð vera nema rúml. 5 þús. kr. * Aðalliðir fjárhagsáætlmiarinnar eru sem hjer segir: Tekjur: Tekjur af arðberandi eignum 30 þús. Vatnsveitan 50 þús. Holræsi 16 þús. Endurgr. fátækrastyrkur 25 þús. Væntalegur atvinnbótastyrkur 25 þús. Niðurjöfnunargjald kr. 278.360. Auk nokkurra smærri gjalda. Gjöld: Stjórn kaupstaðarins kr. 33.800. Barnaskólinn 51 þús. Flensborgarskólinn kr. 14.800., og 10 þúsund til nýbyggingar skólahússins. Til heilbrigðismála kr. 8.650. — Brunamála kr. 7.660. — Löggæslu kr. 14.200. Til styrktarstarfsemi kr. 32.800 (af þeirri upphæð eru ætlaðar 20 þús. kr. til útgjalda vegna hinnar nýju tryggingarlöggjaf- ar, til verkamannabústaða kr. 7.800 o. s. frv). Fátækrastyrkur kr. 120 þús. Ve'xtir og afborganir lána kr. 57.650. Vegir, holræsi og vatnsveita kr. 15 þús. Atvinnubætur (malbikun o. fl.) kr. 60 þús. Sorp- og salernahreinsun kr. 7 þús. Götulýsing kr. 4.500. Girðing bæjarlandsins 1 þús. Sandur og möl 2 þús. Fasteignir bæjarins kr. 4000. Óviss útgjöld kr. 10 þús. Áætlunarupphæðin er samtals kr. 465.560. .Samkomulag fekst í bæjarstjórn inni um tvær breytingartillögur við hið upprunalega frumvarp til áætlunarinnar. Áætlað var að miðstöð o g bað í leikfimishús bamaskólans myndi kosta kr. 8 þús. En þann lið mátti að athug- uðu máli lækka um kr. 2.000. Og eins felst öll bæjarstjórnin á að lækka liðinn til vaxta og afborg- ana um kr. 5.300, með því að ætla ekki fyrir afborgunum af svo- nefndum D-lánum. Með þessu móti þurfti að hækka útsvörin um kr. 35.860. En Sjálfstæðismenn vildu færa út- gjöldin niður, sem fyr segir, svo að þess gerðist ekki þörf. Tillögur þeirra, sem að því mið- uðu voru í stuttu máli þessar: í fyrra ákvað bæjarstjórnin að veita barnakeunurum bæjarins launauppbót, er nam samtals kr. 4.500. Var þessari upphæð jafnað jafnt niður milli kehnaranna, án tillits til þess hvernig ástæður þeirra og efnahagur væri. En Sjálfstæðismenn vildu breyta til og veita þeim einum launaupp- bót er væru giftir og hefðu börn á framfæri, þeim mun hærri upp- bót, sem bömin væru fleiri, kr. 100 fyrir hvert barn, á þann hátt færð ist upphæðin niður úr kr. 4.500 í kr. 2.000. Þá töldu SjálfstæðLsnjenn óhætt að lækka áætlunampphæðina til fátækraframfæris um 20 þús. kr. Ástæður fyrir þeirri tillögu voru í stuttu máli þessar: 1 útgjaldaliðnum til tryggingar starfsCmi eru ætlaðar kr. 20 þús. vegna hinna nýju löggjafar um þau mál. En alt bendir til, að af fátækraframfæri ljettist við það útgjöld er nemi svipaðri upp- hæð. En auk þess er fengin reynsla fyrir því á síðastliðnu ári, að út- gjöld til fátækraframfæris hafa lækkað, síðan núverandi fátækra- fulltrúi tók við því starfi og síð- an bærinn setti á stofn mötuneyti og gamalmennahæli, ek fátækra- fulltrúinn tók við starfinu á miðju ári, og mötuneytinu var ekki komið á fyrri en komið var fram á haust. í liðnum vextir og afborganir era kr. 15 þús. ætlaðar í vexti til Hafnarsjóðs. En Sjálfstæðismenn lögðu til að breyta því þannig, að fella niður 5 þús kr. af því, en taka 10 þús. kr. þeirrar upp- hæðar og fella saman við atvinnu- bótafjeð. Að atvinnubótafjeð yrði alls 85 þús kr., þar sem við tillögu jafnaðarmanna yrði bætt 15 þús. kr., sem ætlað er til vega og hol- ræsa og 10 þús. kr. sem ætlað er í vexti til Hafnarsjóðs. Með þessu móti hækkaði krafa Hafnarfjarð- ar til ríkisstjómar um styrk til atvinnubóta. Með þessu móti hefðu útsvör Hafnfirðinga sem sagt ekki þurft að hækka nema um rúml. 5 þús. kr. En spamaðartillögur Sjálfstæð- ismanna vora allar feldar. Sósíalistar hjeldu því fram á fundinum, að tillögur Sjálfstæð- ismanna nm niðurfærslu á gjöld- um væri að miklu leyti talnablekk- ingar. En þeim var þá bent á, að ekki síður væri það talnablekking, að ætla sjer að leggja útsvör á bæj- armenn, sem vitað væri fyrirfram, að ekki myndu fást innheimt vegna fjárhagsvandræða. Slíkar blekkingar hafa endur- tekið sig í Hafnarfirði ár eftir ár. útsvör hafa ekki innheimst. Bær- inn orðið að taka lán, er fram á árið kom, og þau ián hefir ekki veTið hægt að borga, nema að litlu leyti. Furðuleg blræfni í nýkomnum Mentamálum ber ritstjórinn, hr. Gunnar M. Magnúss, mjer það á brýn, að jeg fari með rangt mál, er jeg skýri frá því, að tillögur nefnd- ar kennara og presta um krist- indómsfræðslu hafi verið sam- eiginlegar tillögur allra (þ. e. fjögra) nefndarmanna. Kveðst hann vel geta sannað þessa staðhæfingu sína, hvenær sem sje. Ritstjórinn varar sig auð- sjáanlega ekki á því, að jeg hefi í höndum óræka sönnun fyrir mínu máli, þar sem er nefndarálitið sjálft. Læt jeg hjer prenta kafla úr því, en skjalið er ritstjóranum til sýnis heima hjá mjer, ef hann vill. „Nefnd sú, er fulltrúafund- ur presta og kennara kaus 1. júlí f. á. til þess að gjöra tillögur um kristindómsfræðslu barna, hjelt nokkura fundi síðastliðinn vetur á heimili formanns, Ás- mundar Guðmundssonar, Lauf- ásvegi 75. Ritari nefndarinnar var Ólafur Þ. Kristjánsson. — Hefir nefndin orðið sammála um það, að leggja fyrir sameig- inlegan fund presta ogkennara 6. júlí svohljóðandi ÁLIT....... 1. Að fyrir yngstu börn á námsaldri verði gefnar út frá- sögur úr Nýja testamentinu um líf og starf Jesú, á ljettu máli við þeirra hæfi. Myndir fylgi og vers. Einnig gæti komið til mála að hafa í bókinni fáeina sögukafla úr Gamla testament- inu, t. d. úr sögunni um Jósep. 2. Að samdar verði biblíu- sögur, er taki við af þessari bók, og sjeu þær ætlaðar nokk- uð eldri og þroskaðri börnum. Biblíusögumar sjeu úr báðum testamentunum, og kaflarnir úr Gamla testamentinu þannig valdir og þeim þannig skipað, að trúarsaga ísraelsþjóðarinnar komi sem ljósast fram. Myndir sjeu í bókinni.... Aðalsteinn Sigmundsson. Ásmundur Guðmundsson. Hálfdan Helgason. ólafur Þ.. Kristjánsson“. Má vera, að ritstjórann langi til að gera Aðalstein kennara Sigmundsson ómerkan að und- irskrift sinni, en það væri að bæta gráu ofan á svart. Ásmundur Guðmundsson. Bankabygg. Bygggrjón, Bæki-grjón, Semulegrjón, Hvítar, brúnar, gular og grænar BAUNIR fást í oLiverpoofj það besta fáanlega. Þurkaðir og nýir ávextir í fjöl- breyttu úrvali. Jóhannes Júhannsson, Grandarstíg 2. Sími 4131. með morgunkaffinu Nýir kaupendur fá blaðið ókeypis tll næsíkomandi mánaðamóta. Hringið í síma 1600 og gerist kaupendur Dr. Guðm. Finnbogason: Framh. af 5. síðu. fullkomið einræði. Þeir, sem kaupa og selja gjaldeyri, hafa ekkert að segja. Þeir eiga alt undir náð þeirra, sem ráðherr- ann skipar í nefndina af frjálsu fullveldi. Hjer virðist helst vera gert ráð fyrir alvitrum og algóðum fjármálaráðherra, því að öðrum kosti mundi naumast löggjafarvaldið fela svo ægi- legt vald einum manni í hend- ur, þ. e. a. s. ef það hugsar um almenningsheill. 1 gjaldeyrisnefnd ættu auk fulltrúa bankanna að sitja full- trúar kaupmanna, samvinnufje- laga, landbúnaðar, sjávarút- vegs og iðnaðar til þess að gæta þess, að gjaldeyris og innflutn- ingsleyfum væfi rjettilega skift eftir þörfum þessara aðila, en fulltrúar bankanna hefðu neit- unarvald, þegar sýnt væri, að gjaldeyrir hrykki ekki til. Ákvæðin um skipulag þess- ara nefnda brjóta því mjög í bág við þá reglu, að láta þá aðila ráða, er mesta þekkingu og reynslu hafa á málunum og mest eiga á hættu um það, hvernig framkvæmdin tekst. Fiskimálanefnd, Síldarútvegs- nefnd og Gjaldeyris- og inn- flutningsnefnd hafa nú með höndum þau atriðin, er heyra undir þrjá fyrstu liði bjargráð- anna, sem talin eru hjer að framan. Væru þær skipaðar af rjettum aðilum, er veldu í þær hæfustu menn, sem völ er á, mundu þær eflaust geta áorkað miklu til bóta. Dagbók. I.O.O.F. 1 = 1171178 Va = Veðrið (fimtud. kl. 17): Grun* lægð yfir Húnaflóa á hreyfingu suðaustur yfir landið. Dálítil úr- koma hjer og hvar á V- og N- landi. Við SV-ströndina er 2—4 st. hiti en 3—5 st. frost í öðram landshlutum. Veðurútlit í Rvík í dag: N- kaldi. Úrkomulaust að mestu. Peningagjafir til Vetrarhjálp- arinnar: G. G. 10 kr., Starfsfólk hjá Ölgerðin Egill Skallagrímsson h. f. 110 kr., Starfsfólk Timbur- veTslunar Árna Jónssonar 24 kr., Starfsfólk Landsbankans 110 kr., Ó. J. 5 kr. — Kærar þakkir. F.h. Vetrarhjálparinnar. Stefán A. Pálsson. „Rauða akurliljan" nýársmynd Nýja Bíó verður sýnd enn einu’ sinni í kvöld. Hefir kvikmynda- hússtjóranum borist fjöldi áskor- ana frá mönnum, sem langar til að sjá myndina, því hinn annálaði leikur Leslie Howards hefir frjest víða. Svo mikil aðsókn hefir verið að myndinni, að fólk fór jafn- vel hjeðan suður í HafnáTfjörð til að geta sjeð myndina, þegar hún var sýnd þar. Aðalfundur var haldinn á mánudaginn var í landsmálafje- laginu Stefni í Hafnarfirði. Var þar skýrt frá störfum fjelagsins á síðastliðnu ári. Fjelagið hafði haldið allmarga fundi. Og blaðið Hamar hafði fjelagið gefið út fram til 1. júlí. Auk almennra fjelags- funda helt fjelagið mjög fjöl- menna árshátíð Sjálfstæðismanna þ. 7. des. Formaður fjelagisns, Loftur Bjarnason var endurkos- inn, og meðstjórnendur Ólafnr Einarsson og Enok Helgason. Reykjavíknrstúkan, fundur i kvöld kl. 8y2. Gretar Fe'lls flyk- ur erindi . Hjálpræðisherinn. í kvöld kl. 8y2 vakningasamkoma. Adj. Molin stjórnar. KeflavíknrBamskot: Lína 5 kr., J. G. 20 kr. TTe.rma.nTi Jónasson forsætisráð- herra var meðal farþega með e.s. Lyra í gær. Eimskip. Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. Goðafoss er í Ham- borg. Brúarfoss eT á leið frá Leith. til Vestmannaeyja. Dettifoss er á leið til Austfjarða frá Hull. Lag- arfoss er á leið til Austfjarða frá. Leith. Selfoss er í Leith. E.s. Lyra fór hjeðan í gær kl. f áleiðis til Bergen. Farþegar með e.s. Lyra til út- landa í gær voru m. a. Carl Olsea, konsúll, ungfrú Inger Olsen, Vil- hjálmur Finsen, sendiherraritari. Bing Crossby, útvarpssöngvar- inn frægi leiknr aðalhlutverkið í kvikmyndinni „Þjónn hennar há- tignar", Bem Gamla Bíó sýndi í fyrsta skifti í gærkvöldi. — Bing Crossby var í fyrstu kvikmyndum sínum hálf stirðbusalegur, en eft- ir þessari mynd hans að dæma hefir hann tekið miklum stakka- skiftum upp á síðkastið. — 1 þess- ari mynd leikur hann frægan og forríkan útvarpSsöngvara, sem verð ur ástfanginn í landflótta hértoga- ynju. Til þess að komast í kynni við hana gerist hann þjónn á hóteli og nátúrlega spinst ými»- legt spaugilegt út af því. í raun og vera er efni myndarinnar ekki annað eú rammi utan um þrjú danslög, sem þegar era orðin kunn hjer á landi. Lögin eru „Ifb June in January", „Love is just a round the cornér" og „With every breath I take“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.