Morgunblaðið - 23.01.1936, Side 5

Morgunblaðið - 23.01.1936, Side 5
Timtudaginn 23. jan. 1936. MORGUNBLAÐIÐ 5 9 Ðræðsla sfjérnarblalSanna viff skýrslu S. I. F. uin Gismondi-samninginn. 'FRAMH. AF ÞRIÐJU SlÐU.' þús. sterlingspundum, eins og Gisrnondi taldi að þau kostuðu sig, á þann hátt að hækka fisk- verðið, sem þessu næmi. Ár- angur ferðar framkvæmdar- ;st.jóranna varð því sá, að ekki aðeins var komið í veg fyrir að innflutningurinn minkaði stórkostlega, eins og sýnilegt var að verða mundi án samn- inga við Gismondi, heldur óx hann frá því, sem verið hafði árið áður. Og að ekki aðeins var komið í veg fyrir verðfall, heldur hækkaði verðið. Að ná þannig megin fisk- markaðinum á Italíu fyrir þetta ár, áh nokkurra fríðinda frá Islands hálfu, var ekki aðeins miljóna króna ávinningur fyrir íslenska fiskeigendur, heldur má það kallast eitt hið merki- legasta viðskiftaafrek. Blygðunarlausir menn. Alþýðublaðið og Nýja dag- blaðið höfðu hvað eftir annað með ógurlegum svigurmælum heimtað skýrslu um þetta mál af stjórn S.Í.F. Skýrslan kom, og sýndist þar stungið nokkuð greinilega upp í árásarmenn- ina. Hafa víst margir búist við, að blöð þessi myndu birta skýrsluna þegjandi, og reyna að láta alt gleymast. En því : fór f jarri að þau tækju það ráð. Skýrsluna, sem þau höfðu heimtað, neituðu þau nú að ' birta, en hófu í þess stað 3f nýju hinn herfilegasta ósann- indavaðal um málið. Þetta er nú útaf fyrir sig • ekkert merkilegt.Jónas Jónsson héfir gefið sig svo gjörsamlega . á vald rógburði og ósannind- 'um í landsmálum, að hann virðist hafa mist alt sjálfræði, og dansa þar einskonar „slöngu dans“. — Hvað Alþýðublaðið snertir, þá er aldrei hægt að vita fyrir fram, hvenær atvinnu lygari muni nema staðar, og hvenær hann muni greiðka . sporið. Og þetta varðar raun- ar engu, þegar maðurinn er orðinn kunnur, eins og er um báða þá menn, sem hjer eiga hlut að máli. Umhyggjan fyrir fisksölunni. Það hefir verið deilt um það, hvorir muni af meiri einlægni láta sjer ant um það, að fisk- . sala Islendinga takist vel: fisk- eigendurnir sjálfir, mennirnir, sem eiga fje sitt, sjálfstæði og brauð undir því, að fisksalan takist vel, eða þeir menn, sem árum saman, jafnvel í áratugi hafa ófrægt þá of ofsótt. Þetta er alveg óþörf deila. Það er vonlaus rógburðarherferð, sem Tíminn og Alþýðublaðið hafa farið þarna á hendur S.Í.F. — Allir heilvita menn eru sann- færðir um það, að þegar stjórn S.Í.F. fer eða sendir t'il mark- aðslandanna, þá gerir hún það í þeim tilgangi, og með ein- lægan vilja á því að vinna fisk- sölumálum Islands gagn. En enginn trúir því, þegar J. J. tekur sjer ferð á hendur til markaðslanda íslensks fisks, maðurinn, sem árum saman hefir ofsótt íslensku fiskútflytj- endur, og er með öllu blind- aður af óvild til þeirra, að hann fari þangað af umhyggju fyrir fiskeigendum til þess að greiða götu fisksölumálanna. Allir vita, að ofstopaárás Tímans og Alþýðublaðsins á S. I. F. er ekki sprottin af um- hyggju fyrir fisksölumálunum, heldur af gremju yfir því, hve seinvirk fisksöluvandræðin eru í því að steypa Kveldúlfi og öðrum fiskútflytjendum, sem þau hata. Málið er því ofur einfalt, og gæti jafnvel verið dálítið kími- legt nú, þegar rógberarnir eru komnir í gapastokkinn, — ef ekki væri einmitt ein mjög al- varleg hlið á því, en hún er þessi: Það er að sönnu engin hætta á öðru en að íslenskir útvegsmenn og fiskútflytjendur beiti hjer eftir, eins og hingað til, viti sínu og orku til þess að sigrast á markaðsörðugleikun- um. Þetta liggur í hlutarins eðli, því ella er lífsstarf þeirra að engu orðið, og framtíð þeirra í veði. Og það er ekki ástæða til annars en að ætla, að þeim muni takast giftusamlega, ef þeir mættu einir um vjela. Til þess bendir fortíðin, sem sýnir það, að íslenskir fiskútflytj- endur hafa unnið fiskmarkaði af hverri þjóð, sem þeir hafa átt við að keppa, þrátt fyrir það, að þessar samkepnisþjóðir hafa notið stuðnings og vel- vildar ríkisstjórna sinna, en ís- lenskir fiskeigendur átt auk annars við óvild og meinbægni þings og stjórnar að stríða á seinni árum. En nú eru fisksölumálin að hálfu leyti gengin úr höndum fiskeigendanna sjálfra, þar sem innflutningurinn til aðalmark- aðslandanna er nú skamtaður eftir samningum milli rikis- stjórna. Þessi þáttur íslensku fisksölunnar er því nú kominn í hendur ríkisstjórnarinnar og stuðningsmanna hennar, ein- mitt þeirra manna, sem bera óvildarhug til fiskeigendanna og hafa unnið að því, af ofur- kappi, og beðið þess með ó- þreyju, að þeir biðu skipsbrot í atvinnurekstri sínum. Margir þeirra hafa engan skilning á því, hvert þjóðhagsmál fisksölu málin eru, og aðrir kunna ekki að greina milli útgerðarmann- anna, sem þeim er illa við, og útgerðarinnar sjálfrar. Þessi staðreynd vekur kvíða þjóðhollra og hugsandi manna um það, að íslenska stjórnin, eins og hún nú er skipuð og studd, muni ekki bera gæfu til þess, að ná hagkvæmum samn- ingum fyrir hönd íslenskrar út- gerðar við fiskneyslulöndin. — Að hugur þeirra til útgerðar- manna og fiskútflytjenda muni anda köldu á samningagerð- irnar með þeim árangri, að markaður fyrir íslenskan fisk þverri í Miðjarðarhafslöndun- um. 1 nafni sánnleika og siðsemi. Bæði blöðin, það, sem Danir eiga og það, sem lifir á hnupli innanlands, látast tala af mik- illi hrygð um skort á sann- leiksást og sönnu siðgæði hjá andstæðingum sínum. Þrátt fyrir þetta alt, er þetta siðgæðisskraf einna væmnast af öllu í þessum rógskrifum. Blöð, sem heíst taka af skipbroti menn, sem hrakið hefir svo langt undan landi æru og sið- semis, að hvergi sjer til lands, og láta þá vinna það sjer til lífs og matar, að bera lof á húsbændurna og hælbíta sak- lausa menn, ættu ekki að auka því við ánauð þeirra að láta þá tala um sannleika og sið- gæði. Og maður, sem lætur Sig- fús frá Höfnum og hrossakjöts- salann þjóna fyrir altari í þjóð- málamusteri flokks síns, ætti ekki að tala í vandlætingartón um siðsemi og andlegt hrein- læti í þjóðmálum. Þetta er væmin sjón og klýgjugjörn, en hitt skoplegt, að horfa á þá Jónas Jónsson og Sigfús Sigurhjartarson, þann er stórvirkastur er í nafnlausu níði í Alþýðublaðinu. Fyrir skömmu hnakkrifust þeir og báru hvorn annan æruleysis- sökum. Nú tengjast þeir bandi handa, og leggja báðir hinni hendi ríting í bak þess, f jelags- skapar sem útvegurinn á mest undir að sem best farnist. Sækjast sjer um líkir. Nýtt kjðtfars og fiskfars, daglega. Milnersbúð. Laugaveg 4S. Sími 1505. Höfuj flestallar algengar Bókfærslubækur svo sem: Höfuðbækur, Kladda, Dag- bækur o. fl. Ennfremur allskonar ritföng. 'Bókaverslun Þór. Ho Þorlákssonar Bankastræti 11. Sími 3359. Atvinnurekendur! Jeg er duglegur og ábyggi- Iegur og óska eftir fastri at- vinnu. Reynið mig og jeg skal sína að jeg dugi. Tilboð merkt: „Staða“, sendist A. S. í. Ef þjer þurfið að Iðta mynda yður eðá börn yðar, þá'athugið sjálf hvar yður virðist mynd- irnar bestar. Látið ekki ginnast af sjúklegri sjálfhælni, og skrumi þeirra, er treysta dómgreindarleysi yðar. Án þess að fullyrða að alt sje best hjá okkur, ábyrgj- umst vjer'fyrsta flokks vinnu og efni, og þótt vjer höfum engan ímyndaðan „einkarjett" á tölu smámynda, tökum vjer eins og áður 16 og 36 foto og stækkum eftir þeim. Sömuleiðis tökum vjer hinar vinsælu tegundir „Visit“ og „Kabinet“, sem þrátt fyrir alt munu standa fremstar, og ná fínustu útfærslu, vegna hins negativa retouch. Stækkað eftir gömlum myndum í allar stærðir. . Virðingarfyllst, Jóii J. Dahlmano, Laugaveg 46. Hugleiðingar Guðm. Finnbogasonar FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU. inn fyrir kr. 258.591, en auk þess kartöflumjöl fyrir kr. 42.- 925, eða samtals kr. 801.516, en það er rúmum 100.000 ki\ minna en árið áður (1932). Garðræktin. Rótarávexti, grænmeti og kartöflumjöl ættum vjer brátt að geta framleitt nægilega í landinu sjálfu, og aldinakaup gætu talsvert minkað að sama skapi og vjer aukum grænmet- isframleiðsluna, aldinafram- leiðslu við laugahita og not inn- lendra berja. Kartöflurækt hef- ir verið prjedikuð hjer á landi síðan um 1760 og það er ekki minkunarlaust, að 'vjer skulum enn þá flytja inn erlendar kart- öflur. Yjer sðttum á einu ári að geta aukið kartöflurækt um það, sem innflutningnum nem- ur. En 'vjer eigum að auka hana langt fram yfir það. Eftir bún- aðarskýrslunum fyrir árið 1932 var kartdfluuppskeran hjer á landi það ár 4452300 kg., en innfluttar kartöflur 2234622 kg., samtals 6686922 kg. Það ár voru landsmenn 111555 og verður eftir því neyslan um 60 kg. á mann. Til samanburðar má geta þess, að í ritinu Die Welt in Zahlen eftir WI. Woytinsky, Berlín 1926, segir, að árið 1910 hafi kartöflunotkun í kg. á mann verið sem hjer segir: Þýskaland 670, Austurríki 470, Belgía 320, Svíþjóð 300, Dan- mörk 290, Noregur 240. Árið 1932—1933 var kartöflunotkun í Þýskalandi 622.7 kg. á mann og í Noregi virðist hún sama ár hafa verið 295 kg. á mann, en auk þess var þar varið 75511000 kg. til brennivíns- og mjölvis- framleiðslu. Vjer sjáum.þá, að Þjóðverjar nota kartöflur 10— 11-falt á við oss, Svíar 5-faIt, Norðmenn og Danir 4—5-faIt, svo að oss er óhætt að þerða róðurinn áður en hætta verður á ofáti í kartöflum. Og ef vjer viljum neyta brennivíns, virðist sjálfsagt að gera það úr inn- lendum kartöflum eins og Norð menn. Það er kunnugt, að fátæka fólkið á Irlandi lifir mestmegnis á kartöflum. M. Hindhede fór þangað vorið 1926 til að kynna sjer þetta og dvaldi um tíma i einu fátækasta hjeraðinu á Vestur-írlandi. Hann segir, að einmitt í kartöfluhjeruðunum sjeu heilbrigðustu og þrótt- mestu mennirnir á Irlandi. „Það. getur því ekki“, segir hann, „verið neinn efi á því, að kartöflur eru holl fæða. Ef til vill er ekkert annað næringar- efni betur fallið til að skapa heilbrigði, en einmitt kartöfl- ur“.(M. Hindhede: Fuldkomm- en Sundhed og Vejen der tiL Khöfn 1934, bls. 63).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.