Morgunblaðið - 06.03.1936, Side 3
Föstudaginn 6. mars 1936.
MOBG JNB-A3IÐ
jMptwi
Haile Selassie hefir
samþykt tilmæli 13
manna nefndarinnar.
Svar Mussolini vænt-
anlegt á morgun.
Frakkar hafa sett Itölum
úrslitakosti.
Italir varpa sprengjum á
breska Rauða krossstöQ
TJtverðir Japana.
X_J AILE SELASSIE hefir fallist á tilmæli 13
manna nefndarinnar um það, að taka þátt í
friðarsamningum innan vjebanda Þjóðabanda-
iagsins og á grundvelli þjóðabandalagssátt-
málans.
Svar keisarans barst tiL 13 manna nefndar-
innar í dag. Fjelst keisarinn á tilmælin skilyrðis-
laust.
Um allan heim er nú um það spurt:
Hvað gerir Mussoiini?
Blöðin í Rómaborg' fara hörðum orðum um Þjóðabanda-
lagið. Þau seg-ja:
„Þjóðabandalagið rjettir að okkur olíuviðargrein með annari
bendinni en olíurefsiaðgerðir með hinni. En með því traðkar
það á heiðri ítalska stórveldisins".
En þótt tónninn í blöðunum sje á þessa leið, álíta þó marg-
ir að Mussolini neyðist vegna fjárhagslegra örðugleika, til að
fállast á tilmæli 13 manna nefndarinnar.
Aðrir, og þ. á. m. franska stórblaðið ,,Matin“
gera ráð fyrir að Mussolini hafni tilboðinu.
Sendiherrar Breta og Frakka fóru í dag á fund Suwich,
utanríkisfulltrúa ítölsku stjórnarinnar (segir 1 Lundúnafregn
til FÚ), og afhentu honum formlega tilmæli 13 manna nefnd-
arinnar.
Franski sendtherrann tók það fram, að ef ítalska stjórnin
nettaði að verða við tilmælum 13 manna nefndarinnar, myndi
það koma frönsku stjóminni mjög illa, þar sem fulltrúi Frakka
hefði átt frumkvæði að því, að enn væri leitað sætta, áður en
refsiaðgerðimar væru teknar til frekari athugunar.
Benti hann á það, að ef þessu tilboði væri hafnað, neydd-
ust Frakkar til þess að styðja hverja þá ákvörðun, sem Þjóða-
bandalagið kynni að taka. r
ílandin og Mussolini.
'
Á myndinni sjást japanskir útverðir á landamærum Mon-
gólíu og Manschukuo. „Rússar eru albúnir að fara í stríð við
Japani, ef Japanir reyna að hnekkja sjálfstæði Yen Mongó-
líu“, segir Stalin.
Frjettir í stuttu máli:
Olíurefsiaðgerðir spyrna
Itölum úr Þjóðabandalaginu!
Frá París er súnað, að ítalska. í Japan undanfarna daga. Er
,,Matin“ skýrir frá því (segir í einkaskeyti til Mbl,), að
Flandin hafi látið Mussolini vita, að hann geti tæplega vænst
fieiri friðartilboða. Segir blaðið afdráttarlaust að Frakkar
muni halda áfram stuðningi sínuin við refsiaðgerðastefnuna,
ef Mussolini hafni tilmælum 13 manna nefndarinnar.
Fundur ítalska ráðuneytisins í Róm á laugardaginn, mun
sennilega taka ákvörðun um svar ítala.
Engar stórar landspildur.
Dr. Maryan, sendiherra Abyssiníu í París, hefir sagt í við-
tali við blaðamenn í dag (segir FÚ), að ítalir þurfi ekki að
gera sjer neinar vonir um það, að keisarinn láti af hendi stór-
ar landspildur, enda hafi engir þeir atburðir gerst í Abyssiníu,
sem rjettlæti slíkar kröfur af hendi ítala.
Landvinningum ítala í norður Abyssiníu sje ekki þannig
varið, að hægt sje að telja Itali hafa unnið neinn úrslitasigur
á þessum slóðum, og það sje langt frá því, að Abyssiníumenn
sjeu yfirunnir.
Tveir Abyssiníumenn, heil hersveit.
Abyssiníukeisari hefir sent boðskap til allsherjaríundar Mú-
hameðstrúarmanna, sem haldinn er þessa dagana í Addis Abeba
Segir hann, að stríðið við ítali sje aðeins byrjað, og að
allir hraustir og vopnbærir Abyssiníumenn verði nú að taka upp
vopn gegn óvinunum.
Abyssiníumenn megi ekki leggja trúnað á stríðsfregnir
ítala, því það sje reynt, að þegar þeir drepi tvo Abyssiníu-
menn segist þeir hafa brytjað niður heila hersveit.
FRAMH. Á SJÖUNDU SlÐU.
stjórnin sje nú ákveðin í því,
að segja sig úr Þjóðabandalag-
inu, ef olíubannið verði sam-
þykt, og ennfremur að segja
upp skuldbindingum sínum við
Frakka og neita að undirrita
flotamálasáttmálann. (FÚ).
Utaur.'kismálanefnd öldunga-
deildarinnar í franska þinginu
hefir nú samþykt, að fransk-
rússneski . vináttusáttmálinn
skuli lögfestur. Samþyktin var
gerð með 19 atkvæðum gegn
4, en 7 neíndarmenn sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna. — Eftir
þéssa atkvæðagreiðslu er ekki
framar talin neinn vafi á því,
að sáttmálinn verði lögfestur á
næstunni. (FÚ).
Samkvæmt fregn frá Moskva
hefir orðið stórkostleg spreng-
ing í olíuhreinsunarverksmiðju
í borginni Gorki. Eldur kom
upp í tveim stórum bensíngeym-
um, og sprungu þeir í loft upp.
Brunaliðinu tókst ekki að vinna
bug á eldinum fyr en eftir 8
stunda vinnu. (FÚ).
*
•
Stjórnin í Nanking hefir boð-
að til almennrar herskyldu
alla menn á aldrinum frá 18
til 44 ára, og skulu þeir skyldir
að gegna herþjónustu í tvö ár.
Þetta er talin bein afleiðing af
atburðum þeim, sem gerst hafa
gert ráð fyrir, að Nanking-
stjórnin sje með þessu að búa
sig undir að veita viðnám yfir-
gangi Japana í norður Kína.
(FÚ).
Hið nýja loftfar þýsku stjórn
arinnar fór fyrsta reynsluflug
sitt í gær, og tókst það ágæt-
lega. Loftskipið, sem er af
sömu gerð og Graf Zeppelin,
hefir verið nefnt „Hindenburg“
og er gert ráð fyrir, að það fari
í fyrstu ferð sína til SuðurAme-
ríku í lok þessa mánaðar. (FÚ)
Skemdarverkum
á herskipunum
haldur áfram.
KHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS
Skemdarverkum á bresk-
um herski.pum heldur áfram.
Spellvirkjar hafa nú fram-
ið skemdarverk á herskipinu
„Repulse“, sem er eitt af
stærstu skipum breska flot-
ans. Skipið er 32 þúsund smá
lestir. Ennfremur hafa ver-
ið framin skemdarverk á kaf-
bát.
íllvirki þessi eru kend
kcmmunistum. Páíl.
Sfð sjúklingar
drepnir.
i
Sföðin var merkt
nieð slóru Itauða-
krossmerki.
R
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS:
EUTER-SKEYTI
frá Dessie skýrir
frá því að ítalskir flug-
menn hafi varpað niður
sprengjum á breska
Rauðakross stöð nálægt
Quorsim og drepið sjö
sjúklinga stöðvarinnar.
Rauðakross stöðin var
greinilega merkt með
stóru rauða-krossmerki.
Flugu flugvjelamar lágt
svo að ekki hefir getað
hjá því íarið að flug-
mennirnir hafi sjeð
merkið.
Fjörutíu sprengjum var varp-
að. — Starfsmenn stöðvarlnnar
sluppu ómeiddir, en sjö sjúk-
Iingar voru drepnir. Þrír menn
Ijetu þegar lífið, en fjórir dóu
síðar af sárum. Páll. d
Er sagt, að tveir þeirra hafí!
verið frá Kenyu (segir FÚ), og
því breskir þegnar.
Ennfremur eyðilögðust þrju
tjöld, uppskurðarstofa, og nokk
urir flutningavagnar og útbún-
aður sem tilheyrði Rauðakföss-
inum.
ítalska stjórnin heldur því
fram, að hún hafi enga vitn-
eskju fengið um það fyr en í
dag, að breska sjúkrastöð var;
á þessum slóðum.
Badoglio gefur skýrslu.
Badaglio marskálkur hefír í
dag gefið skýringu á atburði
þessum. Segir hann, að í fyrra:
dag hafi ítölsk flugvjel flogið
yfir þessar stöðvar, og sjeð, að
verið var að afferma flutninga-
bifreiðar.
Skamt þaðan var einhver
þústa, með merki Rauðakross-
ins. Flugmaðurinn flaug nú
nokkuð nærri jörðu, og var þá
skotið á flugvjelina.
I gærmcrgun fór flugvjelin
aftur á þessar stöðvar. Flug-
maðurinn sá engin tjöld með
merki Rauðakrossins, en hann
kastaði niður nokkrum sprengj-
um á kassa, sem hann grunaði
að hefðu að geyma hergögn, og
hæfði hann nokkra þeirra.
Segir hann, að við það hafi
gosið upp þykkur svartur reykj-
armökkur, og muni hafa verið
púður í kössum þessurn.
Konoya barón færðist undan
að mynda stjórn í Japan. Keis-
arinn hefir nú beðið Hirota,
fyrverandi utanríkismálaráð-
herra að mynda stjórn. (FÚ)