Morgunblaðið - 01.05.1936, Side 2
Föstudaginn 1. maí 1936.
MORGUNBLAÐIÍ
JpfcfrrgtitiMaítö
OtK«f.: H.f. Arvakur, ReykJaTllt.
RltatjArar: Jðn Kjartanaaoq,
Vattýr gtef&nason.
Rltatjörn og afgrelCala:
Auaturatrœtl 8. — Slml 1(00.
AUKlýaingaatJörl: E. Hafberg;.
Auglýalngaslt rlf atofa:
Auaturatrætl 17.— Slaal 1700.
Helaaaalmar:
Jön KJartanaaon, nr. 1741
Valtýr Stefánaaon, nr. 4220.
Arni óla, i»r. 1045.
B. Hafberg, nr. 1770.
Askrlftagjald: kr. 1.00 á mánuBL
I lauaaaðlu: 10 aura alntaklö.
20 aura net Leabök.
ÚrskurOirnir.
Stjórnarli&aí ,á Alþingi hafa nú
enn á ný be'ift, sinni gömlu að-
ferð: ofbeldimj. og meirihluta-
valdinu gegn þeirri sjálfsögðu
og rjpttmætoii^toröfa, Sjálfstæðis-
manna, ,að ^kjpa rannsóknarnefnd
í símanjósnjrj^r.
Þessi . gðferð stjórnarliða er því
furoufegri og heimskulegri þar
sem fyrir almenningi hefir ver-
ið haldið. leyndu öllu, sem fram
hefir farið í sambandi við þe'ssa
n j ósria starf semi.
Almenningur fær ekki að vita
hverjlr það ^eru, sem legið hefir
svo stérkur grunur á um glæp-
samlegt athæfi, sem rjeftlætti
það, 'að símaleyndin var rofin.
Öll þau yfiryöld, sem hjer eiga
hlut að mái! hafa verið sammála
• i itJ-r' : ::; íi’;
um, að halda þessu leyndu fynr
almenningi,
Forsgejisráðherrann sagði 'að
vísu á Alþingi, að úrskurðirnir
yrðu birtir „á sínum tíma“ þ. e.
þegar þeijn malum, sem urskurð-
irnir stánda í sariibandi við, verð-
ur áfrýjað fil Hæstarj ettar.
Þetta getur e. t. v. að ein-
hverju íéyti staðist að því er
sneytír úi^ktirðinn í vín-njósna-
málunririi. fiVí gera má ráð fyr-
ir, að mál verðí höfðað gegn ein-
hverjum f áambandi við þær
njósnfr 'óg éf því yrði áfrýjað,
myndi Júrskúrðurinn sennilega
slæðáíst með.
Bn hvé’friig horfir þetta við í
sambandi við símanjósnirnar í
bílst jóraverkfallinu ?
Þar er ékki'vitað, að neitt mál
hafi verið höfðað ennþá og eru
þó 4 mánuðir liðnir síðan verk-
fallinu lauk.
Hvemig ætlar forsætisráðherra
að koma þeim úrskurði eða úr-
skurðum til Hæstarjettar?
Forsætisráðherrann hefir að
vísu oft verið að dylgja u'.i
glæpáéá&lég athæfi og lögbrot í
sambandi við bílstjóraverkfallið,
eri hann hefir ekki enn fyrirskipað
neina málshöfðum.
Af þessu er íjóst, að þau um-
mæli forsætisráðherra, ‘að úrsktirð-
irnir verði birtir undir áfrýjun
málanna, eru aðeins blekkingar
Gerræði stjórnarflokkanna, að
snúast með ofbeldi gegn kröfum
alme’nnir gs í þessu máli, hlýtur að
hafa mjög alvarlegar afleiðingar
fjrrir stofnunina sjálfa, landssím-
ann.
Almenningur .treystir ekki leng-
ur þessari stofnun, því að hann
er þe'ss fullviss, að fleira óhreint
hefir þar átt sjer stað, en upplýst
er orðið. Á þessu hefir lengi hvílt
grunur. Sá grunur hefir nú orðið
að vissu, fyrst valdhafamir hafa
kosið að halda öllu leyndu.
GASIÐ RYÐUR ITOLUM BRAUT.
Sinnepsgasi, hinu ægilegasta morðvopni beitt.
Asfou Woussan.
Frakkar óttast
að Hitler taki
Austurrfki.
„Stjórnlaust
í Frakklandi“
Breiar eru
rólegir.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐ6INS.
K ÓTT bæði austur-
^ ríska stjómin og
þýska stjórnin hafi lýst
yfir því, að „alt sje með
feldu“ í sambandi við
herflutninga undanfar-
inna daga, óttast
franska stjórnin, að inn-
limun Austurríkis í
Þýskaland sje fyrir
höndum.
Frakkar segja að auð-
sjeð sje að Hitler álíti
að nú sje tækifærið kom
ið til að taka Austurríki,
vegna þess
1) að í bili sje raunveru-
lega engin stjórn í Frakk-
landi, þareð þjóðin sje
stödd milli tveggja kosn-
ingaskauta, og vegna þess,
2) að ítalir sjeu enn önn-
um kafnir í Abyssiníu, og
geti því ekki varið Aust-
urríki.
InnanlandsörSugleikar.
Reuterskeyti hermir, að Bret-
FRAMH. Á SJÖTTU SfÐU.
Til þess að hraða
úrslitum.
Fellur Addis Abeba
á sunnudaginn?
Italir taka
Sasa Baneh.
*■ t,- , A ... J
KAUPMANNAHÖFN OG LONDON í GÆR.
AÐEINS EITT VlGI EIGA ÍTALIR Ó-
UNNIÐ ÁÐUR EN ÞEIR GETA HALD-
IÐ INNREIÐ SÍNA í ADDIS ABEBA.
I dag berast fregnir um að ítalskar hersveitir
hafi náð fjallinu Tamaburr á sitt vald. Fjall
þetta er 12 þúsund feta hátt, og hefir af sjerfræð-
ingum verið talið „síðasta vígi“ Abyssiníumanna
Krónprinsinn stjórnar vörninni.
Asfou Woussan krónprins hefir stjórnað
vörninni við þetta f jall og varist af mikill hreysti.
En nú hefir hann orðið að hörfa undan til De-
bra Birhan 90 kílómetra fyrir norðan Addis
Abeba. J í
Við Debra Birhan mun úrslitaorusta Abyssiníuófriðar-
ins verða háð. Sigri ítalir, þá er leiðin til Addis Abeba
opin. Fullyrt er að borgin sjálf muni ekki verða varin.
í Addis Abeba á sunnudaginn?
United Press skeyti segir, að alment sje talið, að
abyssinska stjórnin hafi ákveðið að halda á burt úr höfuðborg-
inni, þareð hún búist við, að Italir verði komnir til Addis Abeba
á sunnudaginn.
Önnur fregn gengur um það, að þrír fulltrúar úr borgar-
ráðinu sjeu þegar lagðir af stað til móts við ítali, til þess að
afhenda þeim borgina.
En til þess að leiða
ófriðinn til lykta, áður
en regntímabilið hefst,
víla ítalir ekki fyrir sjer
gashernað. Mussolini et-
ur kapps við tímann.Tak
ist Abyssiníumönnum að
verjast nokkrar vikur
enn fram í miðjan júní,
er „stóra“ regntímabilið
hefst, þá er þeim borgið
Sasah Baneh fallin.
I opinberri tilkynn-
ingu frá Badoglio mar-
skálki segir, að ítalskar
hersveitir hafi í gær ráð-
ist inn í Sasa Baneh, eft-
ir að Abyssiníumenn
höfðu haldið uppi
þriggja daga vörn.
Hann talar um hina harðvít-
ugu vörn Abyssiníumanna, og
kemst svo að orði, að „óvin-
imir hafi verið alráðnir í því,
að berjast til þrauta, og hafi
verið vel útbúnir af vopnum af
öllum tegundum“.
Þá segir hann, að hersveitir
búnar bifhjólum og bifreiðum
elti nú Abyssiníumenn á flótt-
anum, og loks hrósar hann bæði
innfæddum mönnum og ítölum
mikillega fyrir hreysti þeirra
og trúmensku.
Gasstríðið.
I frjettum frá Addis Abeba
er ekkert minnst á það, að Sasa
Baneh sje fallin, þó að líklegt
megi telja að Abyssiníumenn
hafi orðið að gefast upp fyrir
eiturgasi og sinnepsgasárásum,
sem Abyssiníumenn segja, að
beitt hafi verið óspart í gær-
dag, og gasinu þyrlað á hina
abyssinsku herlínu.
Þessar fregnir eru mjög al-
varlegt áfall fyrir Abyssiníu-
menn, sem gerðu sjer vonir um
að geta stöðvað framsókn ítala
þangað til regnið kæmi.
(Samkv. einkaskeyti og FÚ.).
—Gengishrun—
á kauphöllinni
í París.
KHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS
Öttinn við kommúnistana
leiddi til gífurlegs gengis-
hruns á kauphöllinni í París
í gær.
Hlutabrjef Frakklands-
banka (er gerður verður ríkis
eign samkvæmt bandalags-
samningi vinstri flokkanna),
f jellu t. d. úr 7280 í 6425.
En alment er álitið að
þetta sje aðeins örlítill fyrir-
boði þeirra hræringa í við-
skiftalífi Frakka, sem fram-
undan eru, ef radikalir og só-
síalistar mynda stjórn.
PáH.
8 flugferðir
á viku - yf ir
Atlantshaf!
London í gær. (FÚ.).
Portsmouth verður
flugmiðstöð verald-
arinnar innan fárra ára.
Þessi ummæli viðhafði flug-
málaráðherrann breski í ræðu,
sem hann flutti í Portsmouth
í dag. Hann sagSi, að Ports-
mouth mundi verða miðstöð
fyrir flug breskra flugvjela
milli Ameríku og Evrópu.
Þessar ferðir mundu ekki
verða sjaldgæfari en átta
sinnum á viku, fram og aft-
ur, þegar fyrirætlanir breska
flugf jelagsins Imperial Air-
ways, og annara f jelaga, sem
störfuðu í svipuðum anda,
væru komnar í framkvæmd.
I ræðu, sem erkibiskupinn af
Kantaraborg hjelt í fyrradag,
sagði hann m. a., að hinar
kristnu þjóðir Evrópu hlytu að
þola strangan dóm allra inn-
fædda manna í Afríku, og ekki
einungis Abyssiníumanna, þar
sem ein þeirra væri látin beita
hinum grimmilegustu hernaðar-
aðferðum gegn saklausum með
bræðrum sínum, á meðan aðrar
kristnar Evrópuþjóðir stæðu
hjá ver en aðgerðalausar. FÚ.
*
Bruggun. Nýlega hefir orðið upp
víst um bruggun áfengis að Kjóa-
stöðum í Biskupstungum. Fór Bj.
Blöndal austur og gerði húsrann-
sókn á bænum. Viðurkendi Kjart-
an Ólafsson að hafa bruggað á-
fengi fyrir ári síðan og afhen,ti
hann löggæslumanni bruggunar-
tækin. Málið er í rannsókn. (FÚ).
í